Dagblaðið Vísir - DV - 13.01.1997, Page 8
8
MÁNUDAGUR 13. JANÚAR 1997
Útlönd________________________________pv
Kona í hópi tugþúsunda mótmælenda í höfuðborg Búlgaríu:
Er hér af því börn mín
hafa ekkert að borða
UPPBOÐ
Uppboö munu byrja á skrifstofu
embættisins að Skógarhlíð 6,
Reykjavík, sem hér segir,
á eftirfarandi eignum:
Esjumelur 3, hluti C, 20% af heild, eign-
arhl. 103, Kjalamesi, þingl. eig. Bjöm
Jónsson, gerðarbeiðandi Kaupþing hf.,
föstudaginn 17. janúar 1997, kl. 10.00.
Garðhús 55, íbúð á 1. og 2. hæð og nyrðri
bflskúr, þingl. eig. Helgi Snorrason og
Þóra Sigurþórsdóttir, gerðarbeiðendur
Búnaðarbanki Islands, Hraðfrystihús
Eskifjarðar hf. og Lánasjóður íslenskra
námsmanna, föstudaginn 17. janúar
1997, kl. 10.00.
Grettisgata 94, 3. hæð og herbergi í risi
m.m., merkt 0301, þingl. eig. Astríður
Eyj ólfsdóttir, gerðarbeiðandi húsbréfa-
deild Húsnæðisstofnunar, föstudaginn 17.
janúar 1997, kl. 10.00.
Hólaberg 36, þingl. eig. María Teresa
Jover, gerðarbeiðandi Húsasmiðjan hf.,
föstudaginn 17. janúar 1997, kl. 10.00.
Hólaberg 48, ehl. 50%, þingl. eig. Valdi-
mar Jónsson, gerðarbeiðandi Tollstjóra-
skrifstofa, föstudaginn 17. janúar 1997,
kl. 10.00.
Hólmgarður 20, íbúð á efri hæð og risloft,
þingl. eig. Magnea Guðmundsdóttir,
gerðarbeiðandi Islandsbanki hf., útibú
517, föstudaginn 17. janúar 1997, kl.
10.00.________________________________
Hraunbær 14, íbúð á 3. hæð f.m., þingl.
eig. Þorvaldur G. Blöndal, gerðarbeið-
andi Byggingarsjóður ríkisins, föstudag-
inn 17. janúar 1997, kl. 10.00.
Kringlan 4, 5. hæð, þingl. eig. Kringlan
4-6 ehf. en talin eign Mænis hf., gerðar-
beiðandi Kringlan 4-6 ehf., föstudaginn
17. janúar 1997, kl. 10.00.
Kringlan 4, kjallari, þingl. eig. Kringlan
4-6 ehf. en talin eign Mænis hf., gerðar-
beiðandi Kringlan 4-6 ehf., föstudaginn
17. janúar 1997, kl. 10.00.
Laugalækur 14, þingl. eig. Halldór Guð-
mundsson, gerðarbeiðandi íslandsbanki
hf., höfuðst. 500, föstudaginn 17. janúar
1997, kl. 10.00.______________________
Markland 10, íbúð á 1. hæð t.h., þingl.
eig. Einar Friðriksson, gerðarbeiðandi Is-
landsbanki hf., höfuðst. 500, föstudaginn
17. janúar 1997, kl. 10.00.___________
Miklabraut 20, íbúð á 1. hæð m.m., þingl.
eig. Tryggvi Ólafsson og Ásta Bima
Hauksdóttir, gerðarbeiðandi húsbréfa-
deild Húsnæðisstofnunar, föstudaginn 17.
janúar 1997, kl. 10.00.
Prestbakki 3, þingl. eig. Amar I. Sigur-
bjömsson, gerðarbeiðendur Húsasmiðjan
hf. og Sameinaði lífeyrissjóðurinn, föstu-
daginn 17. janúar 1997, kl. 13.30.
Rauðagerði 33,1. hæð, þingl. eig. Fóður-
blandan hf., gerðarbeiðandi Iðnlánasjóð-
ur, föstudaginn 17.janúar 1997, kl. 10.00.
Rjúpufell 27, 4ra herb. íbúð á 2. hæð,
merkt 0202, þingl. eig. Ambjörg Hansen,
gerðarbeiðendur Lífeyrissjóður rafiðnað-
armanna og Sparisjóður Reykjavíkur og
nágrennis, fösmdaginn 17. janúar 1997,
kl. 13.30.____________________________
Skógarás 6, íbúð á 1. hæð t.v. og bílskúr
nr. 4, þingl. eig. Rafnkell Sigurðsson,
gerðarbeiðandi Byggingarsjóður ríkisins,
föstudaginn 17. janúar 1997, kl. 10.00.
Úlfarsfell II, 4452,5 fm spilda úr landinu,
Mosf., þingl. eig. Fullvinnslan ehf., gerð-
arbeiðandi Hafnarfjarðarhöfn, föstudag-
inn 17. janúar 1997, kl. 10.00.
Þórsgata 23, risíbúð, merkt 0401, þingl.
eig. Magnús Þór Jónsson, gerðarbeiðend-
ur Byggingarsjóður ríkisins og Lands-
banki Islands, aðalbanki, föstudaginn 17.
janúar 1997, kl, 13.30._______________
SÝSLUMAÐURINN í REYKJAVÍK
Tugþúsundir Búlgara söfnuðust
saman fyrir utan dómkirkjuna í höf-
uðborginni Sofiu i gær til að krefiast
þess að stjórn sósíalista boðaði til
þingkosninga tveimur árum áður en
þær ættu allajafna að vera.
Fráfarandi forseti landsins og sá
væntanlegi sögðu að kosningar væru
eina leiðin út úr stjórnmálakrepp-
unni og forseti þingsins, Blagovest
Sendov, sagði að sósíalistar ættu að
fallast á kröfur stjómarandstæðinga.
Fólk á öllum aldri úr höfuðborg-
inni og bæjum úti á landsbyggðinni
kom saman undir gylltu hvolfþaki
Átta manns að minnsta kosti
týndu lífi í gær þegar hraðlest fór út
af sporinu og rakst á raflínumöstur
á norðurhluta Ítalíu. Tuttugu og
fimm hlutu meiðsl. Lögregla og
slökkviliðsmenn á slysstaðnum
töldu ekki líklegt að fleiri hefðu far-
ist en þeir gætu þó ekki fullyrt að
ekki væru fleiri innilokaðir í flaki
lestarinnar sem var á leiðinni frá
Mílanó til Rómar.
Öryggislögreglan í Róm sendi frá
sér yfirlýsingu þar sem sagði að
ekkert benti til að skemmdarverk
hefði valdið því að lestin fór út af
Svissneskum lækni og belgísk-
um kaupsýslumanni mistókst í
Alexander Nevsky dómkirkjunnar
þrátt fyrir brunagadd. Hundruð bíla
með bláan fána stjórnarandstöðunn-
ar steymdu inn til borgarinnar þar
sem sígaunahljómsveit tók á móti
þeim og lögreglan veitti þeim fylgd.
„Ég er hér af því að bömin mín
tvö hafa ekkert að borða og eigin-
maður minn er atvinnulaus," sagði
hin þrítuga Anzhela Georgieva.
„Ég kom hingað með dóttur mína
af því að ég vil að hún muni eftir
þessum dögum. Þetta eru dagar
breytinga í sögu okkar,“ sagði Blago-
verst Iliev þar sem hann hélt á hinni
sporinu. Margir stjórnmálamenn
höfðu látið í ljósi grunsemdir um að
eitthvað gmggugt væri á ferðinni
þar sem Francesco Cossiga, fyrrum
forseti Ítalíu, var meðal farþega i
lestinni. Hann meiddist ekki og
flaug síðar til Rómar.
Italia Fortunati, héraðsstjóri í
Piacenza, sagði að allt benti til að of
mikill hraði á lestinni hefði valdið
slysinu.
Lestin, sú hraðskreiðasta á Ítalíu,
fór út af sporinu þegar hún var að
nálgast brautarstöðina í Piacenza,
um fimmtíu kílómetra fyrir sunnan
gær að verða fyrstir manna til að
fljúga umhverfis jörðina í loftbelg
þegar þeir þurftu að lenda belg
sínum á Miðjarðarhafinu sex
klukkustundum eftir flugtak
vegna þess að eldsneytisgufur
láku inn í vistarverur þeirra.
Þyrla frá franska hernum hífði
mennina, þá Bertrand Piccard og
Wim Verstraeten, upp úr sjónum
og eru þeir sagðir við góða heilsu
en vonsviknir þó.
„Það segir sig sjálft að við
erum mjög daprir í bragði," sagði
Alan Noble í stjómstöð loftbelgs-
flugsins á flugvellinum í Genf.
Flugtakið gekk að óskum í gær-
morgun en eftir þriggja klukku-
fimm ára gömlu Aneliu.
Samkvæmt stjórnarskránni, sem
Búlgaríu var sett eftir að kommún-
istar hrökkluðust frá völdum, eru
völd forsetans afar takmörkuð en
engu að síður hafa bæði Petar Stoy-
anov, kjörinn forseti, og Zhelyu Zhel-
ev, fráfarandi forseti, tekið einarða
afstöðu gegn ríkisstjórn landsins.
Zhelev sagði að hann mundi ekki
biðja sósíalista, sem eru aðeins
hálfnaðir með fjögurra ára kjörtima-
bil sitt, um að mynda nýja stjórn
nema þeir féllust á að boða til kosn-
inga. Ríkisstjórn Zhans Videnovs
Mílanó. Ekki hafði staðið til að lest-
in hefði þar viðkomu. Sjö af átta
vögnum lestarinnar fóm út af spor-
inu.
Sjónarvottar sögðu að fremsti
vagninn hefði rifnað upp en sá sjötti
var enn á réttum kili, klesstur milli
fimmta og sjöunda vagns. Lestin
rakst á fjölda raflínumastra áður en
hún stöðvaðist loks.
„Lestin var á mjög miklum hraða
og allt í einu lágum við bara á hlið-
inni. Það var hræðilegt," sagði einn
úr áhöfninni í viðtali við ítalska út-
varpið. Reuter
stunda flug, þegar belgurinn
hafði svifið yfir Mont Blanc, fóru
eldsneytisgufurnar að leka inn í
belghylkið. Loftbelgsförum tókst
ekki að hleypa gufunum út og
þeim var að lokum orðið svo
ómótt að þeir neyddust til að
lenda í sjónum.
Breski auðkýfingurinn Richard
Branson, sem einnig reyndi sams
konar hnattflug í síðustu viku,
fylgdist með þegar Piccard og
Verstraeten lögðu af stað. Hann
lýsti yfir miklum vonbrigðum
með nauðlendinguna. Branson
sagðist sjálfur mundu reyna aft-
ur, sennilega í nóvember.
Reuter
sagði af sér 21. desember síðastlið-
inn.
Stoyanov, sem á að taka við for-
setaembættinu á sunnudaginn kem-
ur, sagði að ekki væri hægt að halda
viðræður stjórnar og stjórnarand-
stöðu nema stjórnin féllist fyrst á að
halda kosningar.
Georgi Parvanov, leiðtogi sósíal-
ista, virðist ekki kippa sér upp við
sívaxandi þrýsting. Hann segist glað-
ur mundu ræða um nýjar kosningar
en það væri forgangsverkefni nú að
mynda nýja stjórn sósíalista.
Reuter
Stuttar fréttir
Kóngur til ísraeis
Hussein Jórdaníukóngur og
Benjamin Netanyahu, forsætis-
ráðherra ísra-
els, ræddust
við í gærkvöld
um nýja mála-
miðlunartil-
lögu í deilu
ísraela og
Palestínu-
manna um
Vesturbakkabæinn Hebron.
Netanyahu sagði eftir fundinn að
meiri vinnu þyrfti að inna af
hendi áður en hægt yrði að
komast að samkomulagi. Dennis
Ross, sendimaður
Bandaríkjastjórnar, frestaði
heimferö i gær verða ferðalags
kóngsins.
Störfum bjargað
Aukið ofbeldi írska lýðveldis-
hersins að undanfömu hefur orð-
ið til þess að fyrirhuguð fækkun í
lögregluliði Norður-írlands hefur
verið stöðvuð og hætt er við aðr-
ar breytingar.
Banki seldur
Stjóm Austurríkis komst að
samkomulagi um sölu eignar-
hluta ríkisins í einum helsta
banka landsins, Creditanstalt, til
helsta keppinautarins, eftir 11
stunda langan neyðarfund.
Lausn möguleg
Theodoros Pangalos, utanríkis-
ráðherra Grikklands, sagði í gær,
eftir viðræður við andstæðar fylk-
ingar í Serbíu, að mögulegt væri
að finna lausn á stjómmálaöng-
þveitinu þar ef farið væri eftir
skýrslu Öryggis- og samvinnu-
stofnunar Evrópu þar sem segir
að stjómarandstæðingar hafi sigr-
að í sveitarstjómarkosningum.
Lebed sigurviss
Alexander Lebed hershöfðingi
sagðist í gær viss um að senn yrði
boðað til forsetakosninga á ný
vegna lélegrar heilsu Jeltsins for-
seta og að hann mundi fara með
sigur af hólmi.
Uday, nei takk
Frönsk stjómvöld sögðu í gær
að Uday, elsti sonur Saddams
íraksforseta, fengi ekki læknis-
hjálp í Frakklandi en Uday var
sýnt banatilræði fyrir nokkru.
Jeltsín braggast
Borís Jeltsín Rússlandsforseti,
sem liggur á sjúkrahúsi í
Moskvu þar
sem hann er að
ná sér af
lungnabólgu,
var öllu hress-
ari I gær en
dagana á und-
an og byrjaði
að vinna að-
eins á sjúkrabeðinum, að sögn
talsmanna stjórnvalda. Reuter
Félagsfundur í Taflfélagi Reykjavíkur
Félagsfundur verður haldinn í Taflfélagi Reykjavíkur,
fimmtudaginn 16. jan. kl. 20.00.
Fundurinn verður haldinn í húsnæði félagsins að Faxafeni 12.
Á fundinum verður rætt um húsnæðismál félagsins og tekin
ákvörðun um sölu á hluta af fasteign félagsins.
Stjórnin
ítalska hraölestin sem fór út af sporinu skammt frá Piacenza á Norður-ítaliu í gær var afar illa útleikin, eins og sjá
má á þessari mynd. Sjö vagnar af átta fóru út af.
Símamynd Reuter
Atta forust þegar itolsk
hraðlest fór út af sporinu
Hnattflugi í loftbelg lauk meö
nauðlendingu á Miðiarðarhafi