Dagblaðið Vísir - DV - 13.01.1997, Síða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 13.01.1997, Síða 17
MANUDAGUR 13. JANUAR 1997 0enning „Lífið heldur áfram, Austurstræti éé í ljóðabók Tómasar Guð- mundssonar, Fögru veröld, sem fyrst kom út árið 1933, togast á róm- antík og raunsæi. Kimni og tregi vega salt. Tómas er borgarskáldið og sér ótal lit- brigði þar sem aðrir sjá aðeins grámyglu hvers- dagsins. Það rign- ir aldrei lengi í ljóðum hans og þó að yrkisefhið sé sorg og amstur svifur heimspeki- leg ró yfir vötn- um. Já, „lífið heldur áfram, Austur- stræti" og „sólskinið á gangstéttun- um ljómar". „Og svo er mikill ljóss- ins undrakraftur að jafnvel gamlir símastaurar syngja í sólskininu og verða grænir aftur.“ Á tímum þegar menn krepptu hnefa í réttlátri reiði yfir atvinnu- leysi og bágum kjörum verkalýðsins þótti sumum þessi kvæði óþolandi rómantísk. Nær væri að yrkja ádeilu- og baráttuljóð sem gætu hleypt kjarki í alþýðuna og eflt stétt- arvitundina. En Tómas hélt sínu striki og þjóðin elskaði hann. I dag kunnum við honum þökk fyrir ljóð- in, sýn hans á Reykjavík síns tíma og ódauðlegar myndir sem hann bregður upp af bænum. Karl Ágúst Úlfsson leggur upp með það markmið að höndla tilfinn- ingu og anda þessara kvæöa. Leik- mynd Sigurjóns Jóhannssonar er listilega útfærð og skapar ásamt búningunum kórrétt andnlmsloft. Söguþráðurinn virkar í þynnsta lagi framan af en þéttist þegar á líð- ur og lifandi sviðsetning Brynju Benediktsdóttur leikstjóra ásamt skemmtilegum tónlistarflutningi byggja upp góða leiksýningu. Sum atriðin eru óborganlega fyndin í út- færslu Brynju, eins og lítil svip- mynd frá dansiballi, og nokkrar per- sónur verða bráðlifandi í meðförum leikhópsins. Tómas sjálfur stendur álengdar og horfir svolítið glettnislegur á gleði og sorg. Þórhallur Gunnarsson Stríð í uppsiglingu milli fisksölumanna: Helga Braga Jónsdóttir, Sóley Elías- dóttir og Jón Hjartarson í hlutverkum sínum í Fögru veröld. Leiklist Auður Eydal leikur hann og kemur vel fyrir. Hann miðlar stóiskri ró og tíma- lausri sýn þess manns sem er hætt- ur að hafa áhyggjur af jarðnesku bjástri. í miðju atburða og öllu jarð- bundnari eru þau Guðrún og Klem- enz, óframfærin og feimin í tilhuga- lifinu, enda fulltrúar utanbæjar- manna. Jóhanna Jónas og Hinrik Ólafsson leika þau með kómískum áherslum, sem þau hefðu jafnvel mátt draga aðeins úr, en alvarlegur undirtónninn kom engu að síður í gegn og persónumar skiluðu sér ágætlega, hæfilegar andstæður við misjafnlega heimsvana bæjarhúa. Úr þeirra hópi má nefna baráttu- skáldið Finnboga sem fyrirlítur kveðskap Tómasar en yrkir sjálfur ljóðabókina Kaldhamra, meira af vilja en mætti. Bjöm Ingi Hilmars- son átti svolítið í brösum með þenn- an pabbastrák og kvennabósa sem braskar og svindlar en þykist vilja berjast fyrir verkalýðinn! Friðan flokk Austurstrætisdætra leika þær María Ellingsen, Guðlaug Elísabet Ólafsdóttir, Ásta Arnar- dóttir og Sóley Elíasdóttir. Margrét Helga Jóhannsdóttir er í hlutverki Kristínar, eiganda kaffihússins, og háalvarlegur eiginmaður hennar er leik- inn af Pétri Ein- arssyni. Þá gerðu þeir það gott Kjartan Guðjónsson í hlutverki Gústa sendils og Theo- dór Júlíusson sem fram- kvæmdamaður- inn Eyjólfur. Jóhanna V. Þórhallsdóttir annast söng- stjóm og leikur sjálf söngkonu. Það var virki- legur glans yfir söng hennar en leikararnir skiluðu líka flestum söngatriðum mætavel, þó að eitt- hvert vesen í hljóðkerfmu væri til ama til að byrja með. Það truflaði ekki frábæra hljóðfæraleikara, und- ir stjóm Kjartans Valdemarssonar, sem músíseruðu af mikilli kúnst. Fagra veröld bregður upp nota- legum smámyndum úr bæjarlífinu á fjórða áratugnum og segir brot úr sögu persónanna. Karl Ágúst slepp- ir að mestu að fjalla um myrkari hliðar mannlifsins, þó sést glitta í ljóta ásjónu nasismans sem skaut upp koilinum hér eins og annars staðar á þessum árum. Ljóðin hans Tómasar fá nýjan hljóm við tónlist Gunnars Reynis Sveinssonar. Lögin em margbreyti- leg i stil og fyrst og fremst virðast þau samin við hvert einstakt ljóð. Þau grípa mann misjafnlega við fyrstu kynni en sum þeirra leika strax við hlustir eins og gamlir kunningjar. Leikfélag Reykjavíkur sýnir á Stóra sviði Borgarleikhúss: Fagra veröld eftir Karl Ágúst lilfsson Byggt á Ijóðum Tómasar Guð- mundssonar Tónlist: Gunnar Reynir Sveinsson Hljóð: Baldur Már Arngrímsson Lýsing: Lárus Björnsson Söngstjórn, útsetningar: Jóhanna V. Þórhallsdóttir Hljomsveitarstjórn, útsetningar: Kjartan Valdemarsson Leikmynd og búningar: Sigurjón Jóhannsson Leikstjórn: Brynja Benediktsdóttir lllsala 10-70% afsláttur Rafkaup ARMÚLA 24 - S: 568 1518 ^ Leiðistþér stundum?... Leiðist þér að skilja ekkert ítilgangi lífsins? • Ertu einn af þeim sem finnst líf sitt hálfínnantómt og sjá lítinn tilgang í þessu „hangsi“ hér á jörðinni frá vinnudegi til vinnudags? 0 Vissir þú að sálarrannsóknir undanfarin 150 ár hafa sýnt hverjum sem heyra vill að mikill og merkilegur tilgangur virðist vera með lífinu þegar litið er til þeirra afar merkilegu niðurstaðna að spenn- andi líf sé eftir dauðann í flestum tilvikum? • Langar þig að vita hvar látnir vinir og vandamenn hugsanlega og lfklegast eru í dag og hversu örugg meint samband við þá og þessa undarlegu heima er með stoð miðla. - í skóla þar sem skólagjöldunum er stillt í hóf? • Langar þig að setjast í mjúkan skóla eitt kvöld í viku, eða eitt laugardagssíðdegi í viku, þar sem reynt er á sem víðsýnastan hátt að gefa nemendum sem besta yfirsýn yfir hverjar séu raunverulegar niðustöður þessara handanheimafræða sem milljónir manna hafa haft persónulega reynslu af undanfama áratugi í öllum löndum heims? Þrír byrjunarbekkir hefja brátt nám í sálarrannsóknum I nú á vorönn ’97. Skráning stendur yfir. - Hringdu og fáðu allar nánari upplýsingar um mest spennandi skólann sem í boði er í dag. Yfir skráningardagana er svarað í síma Sálarrannsóknarskólans alla daga vikunnar, kl. 14-19 Sálarrannsóknarskólinn Mt \ - Mest spennandi skólinn i bænum - Vegmúla 2 s. 561 9015 & 588 6050 REYKJAVIK O G NÁGRENNI Heppnin bíður þín />i í B Nvtt áskriftarár er hafið Aðalumboð Verslunin Straumnes GARÐABÆR: Suðurgötu 10 Vesturbergi 76, sími 557-2800 Bókabúðin Gríma stmi 552-3130 Neskjör Garðatorgi 3, sú Verslunin Grettisgötu 26 Ægissfðu 123, sími 551-9292 Vífil Úifarsfell Hagamel 67, Blómal sími 551-3665 Blómabúðin Iðna Lísa Hverafold 1-3, Grafarvogi, sími 567-6.320 Breiðholtskjör Arnarb: _ 700^557 Griffil Síðumúla^,, sítqii^T-1010 pkabútTA rbæj ar mi 587-3355 Bókabúð Fossvogs Grímsbæ, sími 568-6145 Happahúsið Kringlunni, sími 568-9780 framköllun ehf. iðbæ, sími 565-4120 SELTJARNARNES: Litabær Austurströnd 14, sími 561-2344 KÓPAVOGUR: Borgarbúðin Hófgerði 30, sími 554-2630 Videómarkaðurinn Hamraborg 20A, s. 554-6777 fOSFELLSBÆR Bókabúðin Ásfell Háholti 14, sími 566-6620 Reykjalundur SÍBS-deildin, sími 566-6200 Miðaverð: 700 kr. VISA HAPPDRÆTTI milljónii|óskiptar á einn miða M e s t u vinningslíkur í í s 1 e n s k u s t 6 r h a p p d r æ 11 i ... fyrir lífiðsjálft

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.