Dagblaðið Vísir - DV - 13.01.1997, Page 18

Dagblaðið Vísir - DV - 13.01.1997, Page 18
★ i 18 ( ' ik ir enning MÁNUDAGUR 13. JANÚAR 1997 JLlV Glíman við Ibsen Sigfús í viðtali I fjórða hefti Tímarits Máls og menning- ar 1996 er meðal annars talsvert af ljóðum, áhugaverð smásaga eftir Pál Pálsson, grein um ritskoðun í bandarískum kvikmyndum eftir Þóru S. Ingólfsdóttur og önnur eftir Eystein Þorvaldsson um keim af Jóhanni Jónssyni í verkum Halldórs Laxness. Aðalefnið og það skemmtilegasta er viðtal Eiríks Guðmundssonar og Kristjáns B. Jónas- sonar við Sigfús Bjart- marsson skáld frá Sandi. Hann hefur ekki farið sömu leið að skáldskapn- um og forfeður hans og frændur, varð ung- ur bam tveggja heima, sveitar og borgar, og hefur fullorðinn farið víðar og lengra en önnur Islensk skáld. Hann fer líka vítt yfir í viðtalinu þótt einkum sé talað um bækur hans. Ég hefði heldur kosið dæmi um ljóð hans í römmum en sumar tilvitnanimar í annað fólk. Slæm samviska Villiöndin var frumsýnd í Þjóðleikhúsinu á annan í jól- um. Þá vom liðin rétt tæp 112 ár síðan leikritið var framflutt í Bergen, og tuttugu ár frá því að það var síðast leikið hér. Verkið var fyrst sýnt á íslandi hjá Leikfélagi Reykjavikur 1928 í þýðingu Guðbrands Jónsson- ar, svo í Þjóðleikhúsinu 1954 í þýðingu Halldórs Laxness og þýðing hans var líka notuð hjá LR 1976. Nú var fengin ný þýð- ing og Kristjáni Jóhanni Jóns- syni rithöfundi, sem lengi bjó í Noregi, treyst fyrir því verki. Ný uppsetning á íslandi krefst nýrrar þýðingar - breyta Norðmenn texta Ibsens í nýjum uppfærslum? „Nei, ég held mér sé óhætt að segja að þeir geri það ekki,“ svarar Kristján. „Þeir færa leik- ritin hans oftast upp alveg hefð- bundið, svolítið biblíulega. Norskar uppfærslur em ekki alltaf þær bestu sem maður sér. En öðra hverju eru líka settar upp tilraunasýningar. Það skilja allir Norðmenn norskuna sem Ibsen skrifar - nema kannski einstök orð og mállýskur hér og þar. Hann skrifar nákvæman, klassískan stíl, vandað mál, rökrétt og skýrt. Hann skrifar mál sem lif- ir, ekki upphafið mál eða bund- ið af tískustefnum. Hann krafð- ist þess af tungumálinu að það skildist og hugsunin væri ljós. Það sem er flókið við þennan texta er ekki í málfarinu sjálfu heldur því að ótrúlega margar setningar í leikritinu kallast á við aðrar setningar, eiga ein- hvers staðar hliðstæðu eða and- stæðu sína. Verkið er þéttriðið net af millivisunum sem gerir það vandasamt í þýðingu. Ég nefni sem dæmi það sem sagt er um ljós og birtu í leikritinu, en eitt af þemum þess er birta og myrkur, blinda og sýn á öllum mögulegum plönum. Alltaf þegar komið er að einhverju sem víkur að birtu - og þetta hangir saman við lýsinguna i leikritinu - þá verður að hafa sérstaka aðgát af því það miðar allt að því hvernig fléttan opnar að lokum fyrir grandvallarhugsuninni: Sérðu eða sérðu ekki? Ertu staddur I myrkri eða birtu?“ Hin sanna krafa „Ég fékk óskalista frá þjóðleikhússtjóra með einni ósk sem mér fannst réttmæt og góð,“ heldur Kristján áfram, „hún var sú að hafa sígilt málfar á þýðingunni en þó nútímalegt. Textinn hefur í upphafi gengið beint inn í huga leikhús- gesta án hindrana, og það á hann helst að gera líka núna. Ég þurfti sáralítið að gera annað en gæta þess að vera ekki uppskrúfaður. Einkenni á leikhúsverkum er að þar er fólk að tala saman og setningamar verða að krækja hver í aðra, vera svör, og einföldustu lausnimar era oft þær vandfundn- ustu og bestu. “ - En hvað var erfiðast í glímunni við Ibsen? „Nokkur atriði era óþýðanleg. Til dæmis má nefna að ein aðalpersónan, Gina, er alþýðukona sem vUl vera svolítið fmni en hennar stand segir til um og notar erlend orð eins og norska yfirstéttin gerði á þessum tíma. En hún fer næst- um undantekningarlaust rangt með þessar slettur! Þetta er Kristján Jóhann Jónsson: Setningarnar veröa aö krækja hver í aöra gríðarlega fyndið í Nor- egi og algengt skaup, en ómögulegt hér vegna þess að fyrirmyndarmál okkar er ekki slettu- skotið yfirstéttarmál heldur hreintunga bændamenningarinnar. Menn gera sig að fifli með því að sletta. Þetta var óleysanlegt en við reyndum að bæta það upp með því að láta hana einstaka sinnum ofvanda mál sitt, eins og fólk gerir þegar það vill tala finna mál en það ræður við, nota orðatiltæki sem það kann ekki að fara með og svo framvegis. Annað atriði er þegar sannleikspostulinn Gregers Werle kemur fram með sína kröfu, sína sönnu eða heilögu kröfú, „den ideelle krav“, eins og Ihsen seg- ir. Einn gagnrýnandi spurði hvers vegna ekki væri notað orðið „hug- sjónakrafa" og það er einfalt að svara því, þetta þýðir alls ekki hugsjónakrafa. Þarna er komið inn á grunnhug- myndir verksins. Krafa Gregers er einungis krafa um sannleika. Ekki sannleika um eitt- hvað heldur óáþreifan- legan sannleika sem er yfírskipaður öllu öðra. Aðalvandinn í glímunni við svona texta er að sætta sig við að maður getur ekki yf- irgefið neina setningu fyrr en maður er kom- inn að endanlegri nið- urstöðu um hvar hún stendur í orðræðu verksins og samhengi. Það þarf að hafa svo mikinn aga á sér; hrófla ekki við neinu því að þá skekkist eitthvað annað. Ég er mjög ánægður með sýninguna eins og hún kem- ur út. Hún fer að sumu leyti aftur að uppsprettunni, sem þarf að gera við og við í hverri listgrein. Þarna er allt lágstemmt og rennur ljúflega, lítil sýndar- mennska og mikil merking. Hópurinn hafði lesið verkið fimavel og skilið það djúpum skilningi. Og úr því ég er hér sem þýðandi í viðtali get ég ekki stillt mig um að koma því á framfæri að það er óþol- andi að sjá í blöðum þegar gagnrýnandi hefur fjallað um þýdda bók og hvergi þorað að láta í ljósi neina gagnrýni vegna vanþekkingar þá kemur oft að lokum klausa sem hljómar eitthvað á þessa leið: Ég hef að vísu ekki lesið framtextann en nokkrir staðir hefðu mátt betur fara. Svo er vitnað til nokk- urra setninga sem engin leið er aö sjá að sé neitt athugavert við, engin regla brotin. Þar að auki er gagnrýnandinn búinn að lýsa því yfir að hann hafi ekki lesið framtextann, hann viti ekki hvað var þýtt, það er bara orðin hefð að sparka í þýð- ar um leið og farið er hjá, því menn hafa engar hugmynd- enga getu til að gera neitt annað.“ Stórmennskubrjálæði Athyglisvert er það sem Sigfús segir um íslenska hreintungustefhu: „Hér er /.../ sennilega öflugasta mállögregluríki heims- ins og algerar páverbremsur á allri endur- nýjun tungunnar. Ég hef fyrir satt að rit- skoðun sé á tveimur stigum. Á lægra stig- inu eru ritskoðararnir að krukka í allt sem skrifað er en á æöra stiginu era þeir orðn- ir óþarfir. Þannig varð það fljótlega fyrir austan járntjald, hver og einn varð sjálfs sín ritskoðari og miklu nákvæmari og smá- smugulegri en hinir höfðu verið. Það er búið að gera íslendinga þannig og ég held að þetta sé alveg stórhættulegur hemill á fijósemi fólks. Það er hjá þjóðunum sem tungumál þróast og listamönnum þeirra reyndar líka, málsérfræðingar geta ekki viðhaldið tungumáli upp á eigin spýtur sama hversu málfræðilega snjöll nýyrði þeir semja. Það er auðvitaö alveg furðulegt stórmennskubrjálæði að ætla sér aö stjóma heilu tungumáli af kontórnum. En svona er þetta oft með alræðisöflin, eftirá skilur eng- inn hvers vegna í ósköpunum viðkomandi þjóð gat liðið þetta án þess að bregðast við með byltingu." Ný snædrottning „To mand ffem for en snedronning" heit- ir viðtal í Politiken við Bille August og Pet- er Hoeg, en sá fyrmefndi hefur nú kvik- myndað sögu þess síðar- nefnda um Smillu hina grænlensku, snædrottning- ________ una nýjú sem les snjóinn. Aðalhlutverk- | ið leikur Julia Ormond. Þetta er langt viðtal og rétt hægt að grípa niður þar sem Bille August lýsir viðskiptum sín- um við veðurguðina: „Þegar við skipulögð- um tökur vonuðumst við eftir svolitlum snjó í Kaupmannahöfn. Áður en lauk höfð- um við fengið fimm mánaða frostavetur. Þaö hafði ekki komið almennilegur vetur síðan við tókum Pella sigurvegara, svo að segja má að ég hafi heppnina með mér þeg- ar snjór er annars vegar.“ Julia Ormond Smillu. hlutverki Upprennandi fiðlusnillingur Ungur fiðluleikari, Sigurbjöm Bernharðs- son, hélt tónleika í íslensku óperunni síðast- liðinn laugardag. Með honum lék James How- smon á píanó og á efnisskránni vora verk samin á þessari öld og öldinni sem leið. Fyrst á dagskrá var sónata í G-dúr op. 78 eftir Brahms. Flest sem þetta tónskáld samdi er þrangið alvöru og dýpt og því þarf túlkun tónlistar hans að vera þung og oft tregafull. Slíkt er yfirleitt ekki á færi komungra lista- manna og kom þvi flutningur Sigurbjörns undirrituðum á óvart. Skemmst er frá því að segja að leikur hans var frábær, hver tónn fullkomlega mótaður, hver hending úthugsuð og þrangin tilfinningu. Túlkunin var full af ástríðu en þó öguð, en einmitt þannig á Brahms að hljóma. Næst var verk eftir Paganini - tilbrigði á G-streng við stef eftir Rossini - sem telst varla merkilegt að hugmyndaauðgi og frum- leika; Paganini var fyrst og fremst fiðlusnill- Tónlist Jónas Sen ingur sem samdi yfirgengilega erfiðar tón- smíðar fyrir sjálfan sig til að sýna fólki hvað hann gat á fiðluna. Flytjandi verka hans þarf að vera gæddur fullkominni tækni svo áhættuatriðin í tónlistinni fái hárin til að rísa á áheyrendum. Annars er hætt við að flutningurinn verði ekki merkilegri en fiðlusarg í ónefndri krá í villta vestrinu. Því miður á Sigurbjörn enn dálítið í land hvað varðar Paganini- spilamennsku, og þó hann gerði ýmislegt vel náði hann ekki að koma tónlistinni á flug. Vel hefði mátt sleppa þessu atriði efnisskrárinnar. Eftir hlé var komið að verki sem nefnist Fjórir kaflar fyrir fiðlu og píanó eftir Anton Webem. Það er ekkert sérlega aðgengilegt áheymar en Sigurbjörn og Howsmon fluttu það af tilfinningalegri dýpt og náðu greinilega að fanga hjörtu áheyrenda. Hið sama var uppi á teningnum í næsta atriði tónleikanna, Að vomóttum - fjórum næturljóðum eftir Þorkel Sigurbjömsson. Þetta er frábær tónlist, dulúðug og grípandi og var spilamennskan í alla staði hin fegursta. Lokaverkið var svo Tzigane eftir Maurice Ravel - fjörleg tónsmíð sem þarf að flytja af miklum krafti og glæsileika. Sigurbimi og Howsmon tókst yfirleitt mjög vel upp, flutn- ingurinn var svo til hnökralaus og túlkunin full af ástríðum og lífsgleði. Þetta hefðu því verið frábærir tónleikar ef Paganini hefði ekki endilega þurft að dúkka upp og spilla partýinu... Og meira: „Ég var tregur til að fara til Grænlands og kvikmynda þar vegna þess að ég hef eins og aðrir Danir slæma sam- visku út af framkomu okkar við Grænlend- inga. Og ég hafði bara séð raunalegar götu- myndir frá Nuuk. En staðurinn sem við völdum, Ilulissat i Diskoflóa, er einhver sá magnaöasti og fegursti sem ég hef séð. Stór- fenglegur. /.../ Ég skildi SmiUu miklu betur eftir að hafa verið á Grænlandi. Frumkraft hennar. Væmnislausan skýrleika." Þá er Peter Hoeg spurður hvort hann hafi ekki farið til Grænlands áður en hann skrifaði bókina og hann svarar:„Jú, en ég veit aUs ekki eins mikið um Grænland og sagan gefur í skyn. Svona er það með rit- höfunda. Þeir geta ekki bæði vitað allt og skrifað bækur. Þeir neyðast til að þykjast hafa kynnt sér hlutina!“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.