Dagblaðið Vísir - DV - 13.01.1997, Page 20
20
MÁNUDAGUR 13. JANÚAR 1997
r
Iþróttir unglinga
Þýskalandsferö u-18 ára landsliðsins í handbolta á Hela Cup - milli jóla og nýárs:
Mjög þokkalegur árangur
miðað við undirbúning
- vann Sviss og jafnt gegn Póllandi og Þýskalandi en tapaöi Qórum leikjum mjög naumlega
Landsliösmenn framtíöarinnar, u-18 ára landsliö íslands í piltaflokki 1996. Aftari röö frá vinstri: Björn Eiríksson
aöstoðarþjálfari, Heimir Ríkarðsson þjálfari, Daníel Snær Ragnarsson, Ragnar Óskarsson, Sigurgeir Ægisson,
Vilhelm Sigurðsson, Sigurgeir Höskuldsson, Hörður Flóki Ólafsson, Guðjón V. Sigurösson, Heimir Árnason og Einar
Björnsson, liösstjóri. - Fremri röö frá vinstri: Kristján Þorsteinsson, Einar Jónsson, Halldór Sigfússon, Jóhann
Guömundsson, Helgi H. Jónsson, Hjalti Gylfason og Bjarki Hvannberg og Sverrir Þóröarson.
DV-myndir Hson
Mótið Hela Cup í Þýskalandi var góð reynsla fyrir strákana:
íslandi boðin þátttaka í næsta móti
- segir Heimir Ríkarðsson landsliðsþjálfari
Ekki verður annað sagt en að
frammistaða u-18 ára landsliðsins í
handbolta á mótinu Hela Cup hafi
verið mjög ásættanleg þegar á allt
er litið. Strákarnir héldu utan 26.
desember og komu heim daginn
fyrir gamlársdag. DV hafði sam-
band við þjálfara liðsins, Heimi Rík-
arðsson, og aflaði frétta af ferðinni.
Þurftum meiri undirbúning
„Undirbúningur fyrir þessa ferð
hefði að sjálfsögðu mátt vera meiri
en erfitt var að finna tíma til að
boða leikmenn saman þar sem
nokkur hluti þeirra leikur með
meistaraflokksliðum sinna félaga og
því mikið álag á þeim. Þá spila
þessir strákar einnig með 2. og 3.
flokki og því ekki hægt að kalla þá
saman þegar hlé varð á leikjum í
Umsjón
Halldór Halldórsson
Nissandeildinni. Hópurinn náði
fyrst saman saman eina helgi í lok
nóvember og síðan aftur 13. des-
ember en æft var til 21. sama mán-
aðar og var undirbúningi þannig
hagað að æft var í hádeginu og
leikið síðan gegn meistaraflokks-
liðum í 2. deild á kvöldin. Mikil
forfoll leikmanna voru á undir-
búningstímabilinu vegna prófa og
veikinda er herjuðu á strákana.
Valdir voru 17 leikmenn til farar-
innar og voru allir leikimir spilaðir
í Merzig sem er lítill bær stutt frá
Saarbrúcken, en gegn Sviss var spil-
að í þeirri borg,“ sagði Heimir.
Ísland-Sviss 25-20
Þessi leikur fór fram í Saar-
brúcken og var æfingaleikur sem
fékkst vegna beiðni okkar. íslenska
liðið var yfir allan tímann og staðan
í síðari hálfleik var 10-5. Þessi
munur hélst út leikinn og lokatölur
urðu 25-20 fyrir ísland. Gangur
leiksins: 4-2, 6-4, (10-5), 15-10,18-13,
20-15, 25-20.
Ísland-Pólland 23-23
Þetta var fyrsti leikur okkar í
mótinu og eftir nokkurt basl á
fyrstu mínútum leiksins náði ís-
lenska liðið góðum leikkafla og
komst mest í 8 marka forystu. Mjög
slæmur kafli strákanna síðustu 15
mínútur leiksins varð til þess að við
misstum leikinn niður í jafntefli,
23-23, og fengu Pólverjar þetta
nánast á silfurfati og náðu að jafna
á síðustu mínútu leiksins. Þetta var
sárt tap fyrir íslenska liðið þar sem
strákamir okkar höfðu átt góðan
leik fram aö því.
Gangur leiksins: 0-2, 6-2 (14-8),
17-9, 22-18, 23-22, 23-23.
Karate unglinga:
Reykjanesmót
á laugardag
Laugardaginn 18. janúar, kl.
10, hefst Reykjanesmótið í karate
unglinga. Fer það fram í Smár-
anum. Búist er við góðri þátt-
töku að þessu sinni, eða um 130
krökkum. Eins og oft áður er
einungis keppt i kata u-16 ára.
Einnig verður keppt i kihon sem
er óvenjuleg keppnisgrein.
Komið og fylgist með skemmti-
legri keppni.
Ísland-Þýskaland 23-23
Okkar menn náðu mjög góðum
leik gegn sterku, þýsku liði og
börðust vel allan tímann. Þýska
liðið náði góðri forystu á fyrstu 10
mínútum leiksins og hélt henni þar
til um 20 mínútur vora til leiksloka,
er Island náði að jafna. Það sem
eftir var leiks var jafnt á öllum
tölum og er mínúta var til leiksloka
hafði ísland möguleika til að ná
tveggja marka forystu þegar
þrumuskot hafnaði í stöng og
hafnaði boltinn hjá þýska liðinu
sem tókst að jafna á síðustu sek-
úndu leiksins.
Gangur leiksins: 0-5, 4-5, (8-11),
12-16, 19-19, 22-21, 23-23.
Ísland-Hvíta-Rússl. 19-24
ísland átti möguleika á að vinna
riðilinn með sigri á Hvíta-Rússlandi
í síðasta leik riðilsins sem jafnframt
var þriðji leikur íslands þann
daginn - en miklum mun líkamlega
sterkari leikmenn Hvíta-Rússlands
náðu strax yfirburðaforystu sem
þeir létu ekki af hendi það sem eftir
var leiks - en ísland náði þó að
minnka muninn í síðari hálfleik.
Þessi leikur var sá slakasti hjá
strákunum í ferðinni og gerðu þeir
sig seka um uppgjöf í fyrri hálfleik.
Fljótfæmi í sókn og slakri vörn og
markvörslu. í síðari hálfleik reyndu
íslensku piltarnir allt sem þeir gátu
til að rétta sinn hlut og tókst það
reyndar aðeins.
Gangur leiksins: 2-7, 3-9 (4-12),
10-17, 14-20, 20-25.
Ísland-Saarland 22-23
íslensku strákamir komu vel
stemmdir til leiks gegn Saarlandi og
höfðu örugga forystu um miðbik
seinni hálfleiks þegar saarlenskir
dómarar leiksins tóku sig til, ráku
okkar menn grimmt út af og dæmdu
boltann af okkur ítrekað, en 15
sinnum var t.d. dæmdur ruðningur
á íslensku strákana í leiknum. Þá
voru íslendingar þrisvar þremur
færri á síðustu 15 mínútum leiksins
en alls vora leikmenn íslands ein-
um færri i 28 mínútur.
Við þetta jafnaðist leikurinn,
Saarland komst yfir í fyrsta skipti
er 30 sekúndur vom til leiksloka og
að loknum venjulegum leiktíma
misnotuðu okkar strákar vítakast
og tókst því ekki að tryggja sér
framlengingu.
Gangur leiksins: 2-0, 5-2, 10-5,
(12-8), 16-11, 22-21, 22-23.
Ísland-Pólland 30-30 (33-34)
Jafnræði var með liðunum alian
leikinn en Pólverjar þó ávallt fyrri
til að skora. Undir lok leiksins var
Pólland með þriggja marka forskot
og brá á það ráð að klippa tvo
leikmenn íslenska liðsins út en við
það riðlaðist leikur þeirra og ísland
náði forystu er stutt var til leiks-
loka.
Pólland náði síöan að jafna og
tryggja sér framlengingu. Jafnt var
á öllum tölum í framlengingunni.
Pólland skoraði síðasta mark sitt
þegar 15 sekúndur voru til leiksloka
- en íslandi mistókst að jafna úr
dauðafæri á síðustu sekúndu leiks-
ins.
Gangur leiksins: 0-2, 5-6, 11-13,
(15-15), 24-27, 29-28, 30-30, fram-
lenging: 33-34.
Ljóst er að ekki er íslenska liðið
langt frá því að slá í gegn á þessu
móti og hefur það verið íslenskum
handbolta til mikils sóma í þessari
utanlandsferð.
Hvert er álit Heimis Ríkarðs-
sonar landsliðsþjálfara á ferð u-18
ára landsliðsins í handbolta til
Þýskalands? Skilar hún
miklu til hinna ungu leik-
manna?
„Þýskalandsferðin var að
mínu mati mikil reynsla
fyrir hið unga landslið - og
er örugglega gott veganesti
fyrir komandi verkefni
þessa liðs sem verður að
huga að sem allra fyrst.
Eins og sjá má á öðrum stað
á síðunni voru leikir
strákanna mjög jafnir og með smá-
heppni hefði árangurinn orðið frá-
bær. Þeir unnu einn leik, gerðu tvö
jafntefli, töpuðu þremur, þar af
tveim með einu marki og öðrum
þeirra eftir framlengdan leik. Þá má
Skor leikmanna á
Hela Cup
Tölumar í töflunni hér á eftir
em samtals skorað mörk ein-
stakra leikmanna í íslenska lið-
inu.
Fyrri talan er tilraunin, síðan
skoruð mörk.
Bjarki Hvannberg, Val.........10/8
Daníel S. Ragnarsson, Val....10/6
Einar Jónsson, Fram...........10/3
Guðjón V. Sigurðsson, Gróttu . 15/11
Helgi Jónsson, Stjömunni......5/2
Halldór Sigfússon, KA.........16/7
Heimir Öm Ámason, KA . . . . 25/15
Hjalti Gylfason, Vikingi.......6/2
Kristján Þorsteinsson, KR . . .. 15/12
Ragnar Þór Óskarsson, ÍR. 79/59 (28)
Sigurgeir Ægisson, FH..........8/2
Sindri Sveinsson, Fram........15/9
Sverrir Þórðarson, FH........11/10
Vilhelm Sigurðsson, Fram......2/1
Markverðir - Varin skot:
Sigurgeir Höskuldsson, Val.....57
Jóhann Guðmundsson, Selfossi .. 35
Höröur Flóki Ólafsson, KA........3
Hörður lék aðeins hluta af 2 leikjum,
þar sem hann veiktist í feröinni.
geta þess að ísland var eina þjóðin
sem Þýskaland vann ekki í mótinu,
en það sigraði Hvíta-Rússland í úr-
slitaleik.
Þátttaka hinna þjóðanna
í mótinu var liður í
undirbúningi þeirra fyrir
Evrópukeppnina í maí nk.
en þjóðirnar hafa æft af
kappi undanfarna mánuði,
að sögn þjálfara þeirra. En
á sama tima hefur okkur
verið þröngur stakkur skor-
inn til undirbúnings vegna
mikils álags strákanna með
meistaraflokkum sinna félaga í
Nissandeildinni og með 2. og 3.
flokki.
Vegna þessa var ekki ljóst fyrr en
örfáum dögum fyrir ferðina til
Þýskalands hvort nokkrir leikmenn
liðsins gætu farið með vegna leikja
í Nissasdeildinni milli jóla og nýárs
og haföi það mjög slæm áhrif á allan
undirbúning fyrir ferðina.
Gera þarf ráö fyrir minnst
fimm æfingahelgum
Mótshaldari Hela Cup hefur þeg-
ar boðið okkur að senda landslið
leikmanna, fæddra 1980 og seinna, á
Hela Cup í desember á þessu ári og
tel ég að HSÍ ætti að þekkjast það
boð enda allur kostnaður erlendis
greiddur af mótshaldara. Gera verð-
ur ráð fyrir þátttöku íslands áfram
og miða alla uppsetningu móta hér
heima við það.
Nauðsynlegt er að gera ráð fyrir i
það minnsta fimm æfmgahelgum á
ári fyrir unglingalandsliðin," sagði
Heimir að lokum.
Kolbrún setti 86
met á síðasta ári
DV, Akranesi:
Kolbrún Ýr Kristjánsdóttir, 13
ára sundkona á Akranesi, er þrátt
fyrir ungan aldur komin í fremstu
röð íslenskra sundkvenna í dag.
Hún náði frábæram árangri á síð-
asta ári og stendur þar hæst tvö-
faidur íslandsmeistaratitill í 200
m baksundi kvenna. Hún setti alls
86 met á síðastliðnu ári. 14 íslensk
unglingamet og 72 Akranesmet í
telpna-, stúlkna- og kvennaflokki
og var réttilega kjörin sundmaður
Akraness 1996. Hennar helsti ár-
angur síðasta ár var á innanhúss-
meistaramóti íslands en þar sigr-
aði hún í 200 m baksundi kvenna,
varð 2. í 100 m baksundi og í 50 m
skriðsundi og völdu þjálfarar
hana efnilegustu sundkonu lands-
ins. - Á sundmeistaramóti íslands
í 50 m laug sigraði hún í 200 m
baksundi kvenna, varð 2. i 100 m
baksundi og i 3. sæti í 200 m fjór-
sundi og 50 m skriðsundi.
Á aldursflokkameistaramótinu
vann hún í 400 m skriðsundi og
100 m skriðsundi telpna, 200 m
fjórsundi telpna og varð 3. í 100 m
flugsundi telpna, ásamt boðsund-
um sama aldursflokks. Kolbrún á
fast sæti í unglingalandsliðinu og
keppti á alþjóðlegu unglingamóti í
Lúxemborg í apríl og stóð sig vel,
varð í 1. sæti í sínum aldursflokki
í 100 m baksundi, í 2. sæti í 200 m
baksundi og í 4. sæti í 100 m skrið-
sundi.
Ljóst er að hér er mikið sund-
konuefni á ferðinni sem fróðlegt
verður að fylgjast með. -DVÓ
Heimir
Ríkarðsson