Dagblaðið Vísir - DV - 13.01.1997, Síða 22
30
MÁNUDAGUR 13. JANÚAR 1997
*AÍklWa-,i,- - ■
'■ l/hJíJj1 vi)
Guðmundur Rúnar Lúðvíksson myndlistarmaður:
■ /
Hefur stofnað alþjoðlegan
listaskóla á netinu
„Skólinn er hugsaður fyrir þá
sem hafa lokið grunnnámi á sínu
sviði, þetta er í rauninni eins og
hvert annað akademískt nám,“ seg-
ir Guðmundur R. Lúðvíksson mynd-
listarmaður en hann hefur stofnað
listaskóla á Intemetinu. Hann hefur
fengið aðra listamenn úti um allan
heim til liðs við sig og starfa þeir
sem kennarar. Einnig býður vefsíða
skólans upp á sýningaraðstöðu þar
sem hægt er að setja upp sýningar í
rými að eigin vali. Enn fremur er
boðið upp á ókeypis forrit sem lista-
menn geta nýtt sér við listsköpun
sína.
Krefjandi nám
Hver kennari hefur sitt sérsvið.
Þannig er einn gullsmiður, annar
sérhæfir sig í hljóðvinnslu og einn
í hefðbundinni myndlist svo eitt-
hvað sé nefiit. Kennslan virkar
þannig að nemandinn sendir kenn-
ara (eða kennurum) sinum verk
sín með aðstoð netsins og fær til
baka athugasemdir og gagnrýni.
„Ég hef sjálfur verið í
akademísku námi, bæði í Þýska-
landi og Hollandi. Þar var einung-
is hægt að nálgast kennara með
þvi að biðja sérstaklega um viðtal
og það fæst kannski eftir mánuð.
Svo fer það eftir ýmsu hvaða við-
brögð maður fær.“ Guðmundur
segir að hann hafi spurt sig hvers
vegna nemandi ætti að þurfa að
sætta sig við þetta þegar hægt er
að vera í beinu sambandi við kenn-
arann í gegnum tölvu. Námið sem
Guðmundur sér fyrir sér krefst
mikils sjálfsaga en býður jafnframt
upp á mikla möguleika. „Það skipt-
ir engu máli hvar kennarinn situr,
hann getur verið í Belgíu og nem-
andinn á íslandi. Verkið þarf ekki
að vera áþreifanlegt til þess að
hægt sé að fjalla um það. Ég sé það
fyrir mér að eftir venjulega skóla-
göngu, þar sem grunnatriði séu
kennd, geti menn numið við skóla
eins og þennan. Það væri kannski
hægt að vera í fjórum skólum í
einu og þar með fá fjögur mismun-
andi sjónarhom á verkin. Svo geta
menn vegið og metið hvaða sjónar-
hom séu gagnlegust.“
Guðmundur segir að netið sem
slíkt ætti að geta verið listamönn-
um góður bandamaður. „Það sem
vantar mjög í akademískt nám,
sérstaklega hér á landi, er mögu-
leikinn á að sýna verk. Menn
BBBRS
[k tBr««» Bkcu>
■Utttel
vinna oft verkin sín og svo liggja
þau bara á gólf-
inu. Á vefsíðu
skólans má
setja upp
sýningu í
hvaða
rými sem
er. Ef það
er til dæmis
eitthvert
metnaðarmál
að sýna á Kjar-
valsstöðum eða
Louvre-safninu
þá er lítið mál
að koma því
við.“ Þetta er
gert með því
að listamað-
urinn fær
teikningu af
þessu sýndar-
rými og still
ir
þessu séu mjög spenntir. „Samt
sem áður eru þeir til sem viður-
kenna ekki þessa aðferð einungis
vegna þess að Intemetið er notað
en það lagast með tímanum."
Hvað varðar framtíðina segir
Guðmundur að ætlunin sé einfald-
lega að stækka síðuna. Mein-
ingin er að þegar
hún hefur
fengið að
þróast
og
Guömundur R. Lúðvíksson myndlistarmaöur hefur sett upp listaskóla á
Internetinu.
Slóöin á listaskólann er http: //www.islandia.is/acadmie
verkum sínum upp eins og honum
finnst henta best. Þannig fá lista-
menn jafnari möguleika til að
koma sér á framfæri en áður hefur
þekkst. Netið greinir ekki milli
heimsfrægra listamanna og byrj-
enda. Guðmundur leggur áherslu á
að þetta form sé ekki mjög frá-
brugðið því þegar list er sett fram
í bókum. „Fæstir hafa séð upp-
runalegu verkin eftir Picasso held-
ur hafa þeir séð þau í bókum eða
sjónvarpi eða jafnvel á konfekt-
kassa. Listin er samt jafn raun-
veruleg fyrir því.“ Hann segir að
þeir sem hafi á annað borð kynnst
vaxa muni nemendur greiða fyrir
veru sína þar. „Það verður senni-
lega inntökupróf í skólann og svo
hef ég áhuga á því að á síðu skól-
ans muni fyrirtæki gefa nemend-
um kost á að prófa hugbúnað sem
þau eru að selja," segir Guðmund-
ur að lokum.
Listaskólinn er vistaður hjá Isl-
andia. Slóðin þangað er
http://www.islandia.is/academie
Guðmundur á eigin vefsíðu á ver-
aldarvefnum og er slóðin þangað
http://www.islandia.is/gummi
-JHÞ
Allt um veður
Heimurínn og Ameríka
Gervihnattamyndir af veðurkerfum jarðarkringlunnar eru á slóðinni
http://rs560.cl.msu.edu/weather/
Þar er einnig hægt að fylgjast náið með veðrinu
f Bandaríkjunum eins og það er nákvæmlega núna.
ísland
Ágæt vefsíða Veðurstofu íslands er á slóðinni
http://www.vedur.is
Þar má lesa veðurspár um allt land. Þar er einnig
útskýrt hvað hugtök eins og gola þýða raunverulega.
Borgir
Vefsíða CNN fréttastofunnar er sennilega ein
sú besta af þeim ötlum. Þar er hægt að finna
upplýsingar um veður í fjölda borga úti um allan
heim á einföldum gagnagrunni. Slóðin er
http: //www.cnn.com
Evrópa
Gagnlegt yfirlit yfir veðrið í Evrópu er að finna á vefsíðu
frönsku veðurstofunnar Meteo France. Slóðin þangað er
http: //www.meteo.fr/
. Ít.v I ■ \
Tengingasafn
Afar fjölbreytt tengingasafn um veður er að finna á slóðinni
http://www.cybercomm.nl/~willem/weerkaarten.html
PVI
tölvur
Þrátt fyrir að mörg helstu há-
tæknifyrirtæki heimsins eigi að-
setur sitt í Sílikondalnum fræga
í Kalíforníu þá er rikið afskap-
lega aftarlega á merinni hvað
varðar aðgang skólabarna að
tölvum. Á bandarískan mæli-
kvarða er Kalifomía i 45. sæti af
50 hvað þetta varðar.
Kalifomíubúar vilja breyta
þessu og á dögunum tilkynnti
ríkisstjóri Kalifomíu að hann
myndi standa fyrir 33,5 milljarða
króna fjárveitingu til tölvukaupa
fyrir skóla ríkisins á næstu fjór-
um ámm. Gert er ráð fyrir því
að þeir jafhi framlag ríkisins
þannig að allt í allt ættu tölvu-
kaupin að nema um 67 milljörð-
um króna. Ætlunin er að 400
þúsund til milljón tölvur bætist
við tölvukost skóla í „sólskins-
ríkinu“ Kaliforníu. -JHÞ
a
Bandaríska netfyrirtækið
WevTV hefur tilkynnt að það
ráði yfir nýrri tækni sem geri
notendum Internetsins kleift að
sjá hreyfimyndir í sömu gæðum
og gengur og gerist í venjulegum
sjónvörpum. Talsmenn WevTv
halda því einnig fram að hægt
verði að nota venjulegar simalín-
ur til þess að senda þessar mynd-
ir hratt og örugglega til notenda.
Nýja tæknin kallast VideoFlash
og hefur þegar hlotið hrós úr
frekar óvenjulegri átt. Útgáfufyr-
irtækið National Geographic,
sem leggur mikið upp úr góðum
myndgæðum í því fræðsluefni
sem það gefur út, hefur lýst því
yfir að VideoFlash gefi fyrirtæk-
inu sömu möguleika á því að
koma gæðamyndefhi til notenda í
gegnum netið og þegar er gert í
gegnum sjónvarpið.
VideoFlash þjappar hreyfi-
myndum þrisvar til tíu sinnum
betur en nú þekkist. Algengur
þjöppunarmáti er svokallað
MPEG en þá er myndin þjöppuð
; hundraðfalt. -JHf'
Strútar
Þeir sem vilja elda strút ættu
að skoða siðuna á slóðinni
http://www.osmond.com/os-
net/companies/oster-
ich/hints.html
Meira um Luðrasveit
verkaiýðsins
Það munar ekkert um það
hvað þeir hjá Lúðrasveit verka-
lýðsins eru duglegir að búa til
vefsíður. Eina slika er að fmna
á slóðinni http: //www.ved-
ur.is/~torfi/lv.html
No Doubt
Hljómsveitin No Doubt hefur
slegið i gegn svo um munar í
Bandaríkjunum með plötu
sinni Tragic Kingdom. Aðdá-
endur sveitarinnar ættu að geta
skoðað síðu á slóðinni
http://bird.tapon-
line.com/heckler/nodoubt.html
sér til ánægjuauka.
Ferðast til Ástralíu
Ástralska innflytjendaeftirlit-
iö er með vefsíðu á slóðinni
http: //www.immi.gov.au/
Iþróttasamband Islands hefur
glæsilega vefsíðu á slóðinni
http://www.toto.is/isi/
Meira um íþróttir
Á slóöinni http:
//www.sky.co.uk/sports/cent-
er/ er vefsíöa íþróttadeildar
Sky Sports.
Staðreyndir um Evitu Peron,
sem Madonna er að leika í
nýrri kvikmynd, eru á slóðinni
http: //www.abc.nl/abc/sec-
ond/tjarda/gallery/evita.htm
Flamenco
Dansarar ættu að skoða síð-
una • á slóðinni
http://www.flamengo.com/ing-
les/entrev/entrev.html
Fyrir svanga
Þeir sem ekki vilja standa
upp frá tölvunni til þess að
næra sig geta keypt allt sem til
þarf hjá Netkaup. Slóðin er
http: //www.saga.is/cgi-
bin/n/enter/