Dagblaðið Vísir - DV - 13.01.1997, Qupperneq 24
32
*
MÁNUDAGUR 13. JANÚAR 1997
ÍJJJ-
íbúarnir í San Luis, afskekktum
bæ í Mið-Ameríkuríkinu Hondúras,
sluppu með skrekkinn fyrir hálfum
öðrum mánuði þegar loftsteinn féli
til jarðar eigi langt þar frá, kveikti í
nokkrum ekrum af kaffiræktar-
landi, eyðilagði vegarspotta og
myndaði 55 metra breiðan gíg í jörð-
ina. Hefði loftsteinn fallið í byggð
hefði hann valdið umtalsverðu tjóni.
„Loftsteinar sem falla tU jarðar
eru ekki mjög óalgengir, svona
handfyUi á hverju ári eða svo, en
þessi virðist hafa verið nokkuð
stór,“ segir Jacqueline Mitton, félagi
í konunglega breska stjamvísindafé-
laginu. En það er fleira en loftstein-
ar sem hugsanlega geta lent í
árekstri við jörðina okkar.
Bandarískir vísindamenn skýrðu
frá því fyrir skömmu að rúmlega tvö
hundruð „flækingssmástirni", sem
eru meira en kílómetri í þvermál,
væru á flakki um sólkerfi okkar og
að braut nokkurra þeirra kunni að
skera sporbraut jarðar um sólu.
Smástimi þessi eru úr svoköUuð-
um Trójuhópum sem eru tveir stór-
ir hópar smástima á sporbaug um
sólu í sömu fjarlægð og Júpíter. í
bréfi til tímaritsins Nature segja
vísindamennirnir Carol og Eugene
Shoemaker og Harold Levison að
smástimi í Trójuhópunum hafi upp-
haflega verið fleiri en þau sem era í
smástirnabeltinu. Trójuhópamir
hafi hins vegar skroppið saman
vegna áhrifa þyngdarafls risareiki-
stjama á borð við Satúmus sem hef-
ur hrist smástimin laus þannig að
þau flakka nú frjáls um sólkerfið.
„Við áætlum að það séu rúmlega
tvö hundruð Trójusmástirni með
meira en eins kílómetra þvermál á
flakki um sól-
kerfið. Þar af
era nokkur sem
kunna að fara
fyrir sporbaug
jarðar,“ segja
vísindamenn-
imir í bréfi
sínu. Skýrsla
þeirra er byggð
á langtímagrein-
ingu á stöðug-
leika Tróju-
hópanna.
Þau Carol og
Eugene Shoema-
ker uppgötvuðu
flækingssmást-
imið Shoema-
ker-Levy 9 sem
lenti i árekstri
við Júpíter fyrir
tveimur árum.
Rannsóknir
þeirra sýndu
fram á að ólík-
legt væri að
Shoemaker-
Levy 9 hefði
verið Trójusmástimi vegna spor-
baugs síns.
Fyrir rúmum mánuði fór smá-
stimi, sem hefur hlotið nafnið Tout-
atis og er um 4,8 kílómetrar í þver-
mál, fram hjá jörðinni í um 5300
milljóna kílómetra fjarlægð. Það er
fjórtánfóld Ijarlægð tunglsins frá
jörðu. Samkvæmt kokkabókum
stjarnvísindamanna er það svona
næstum-því-árekstur. Árið 2004
mun Toutatis þjóta hjá enn nær, eða
í fjórfaldri fjarlægð tunglsins frá
jörðu. Vísindamenn segja að ef smá-
stimi af þeirri stærð rækist á jörð-
ina jafngilti það því að öll kjam-
orkuvopn heimsins spryngju á
sama tima.
Talið er að smástimi hafi komið
niður við Yucatanskaga í Mexíkó
fyrir 65 milljónum ára og valdið gíf-
urlegum loftslagsbreytingum sem
hugsanlega urðu svo til þess að risa-
eðlur hurfu af yfirborði jarðar.
Vísindamenn hafa hvatt til þess
að lagt verði fjármagn í að koma
upp neti stjömusjónauka til að vara
við hugsanlegri smástirnaárás. Þá
hafa borist fréttir um að vísinda-
menn kunni í framtíðinni að geta
beitt hlustunartækni í þessu skyni,
ekki ósvipaðri þeirri og notuð er til
að fylgjast með kjarnorkusprenging-
um neðanjarðar.
SMASTjRNI flFLAKKI
Rúmlega 200 flækmgssmástirni úr Trójumhópunum. meira en einn kílómetrií þvermál,
kunna aö vera á flakki um sólkerfiö og sum þeirra munu hugsanlega skera sporbaug
jaröar, aö því er Carol og Eugene Shoemaker segja.
Lagrange punktar
Punktar í nágrenm tveggja þungra efnisheiida
(svo sem jaróarinnar eöa tunglsins) þar sem
þyngdarafl hvors um sig er i jafnvægi
'í Trojubeltum Júprters voru upphaflega fleiri
smástirni en í helsta smástirnabeltinu en smám
saman hefur drerfst úr þeim vegna áhrifa þyngdarafls
risapláneta á borð við Saturnus sem hefur hrist
smástirnin laus, segja Carol og Eugene Shoemaker
sem uppgötvuðu halastjörnuna Shoemaker-Levy
sem lenti í árekstri við Jupiter fyrir tveimur arum.
- líkamsræktin líka
Hver kannast ekki við að hafa
strengt þess heit um áramót að
taka sjálfan sig nú aldeilis taki og
leggja stund á líkamsrækt á nýju
ári, tekið það með trukki strax í
upphafi en síðan ekki söguna
meir? Sá hinn sami getur þó hugg-
að sig við að hann er ekki einn á
báti.
Landlæknir þeirra
Bandaríkjamanna hef-
ur áhyggjur af
heilsufari landa
sinna og sá sig knú-
inn til að leggja
þeim lífsreglumar
um áramótin. Og boðin
frá landlækni vora þau
að menn ættu að
stunda minni líkams-
rækt á nýbyijuðu ári og
fara ekki eins geyst í
sakirnar og þeir héldu
að þeir ættu aö gera.
Það er nefnilega
þannig með marga
Bandaríkjamenn, og lík-
legast íslendinga þá líka,
að þeir skammast sín svo fyrir
hóglífið yfir hátíðamar að þeir
ætla sér um of þegar bót og betran
lofað. Menn æða út og reyna
kannski að hlaupa allt að tíu kíló-
metra, eða þá að þeir kaupa sér
kort í líkamsræktina og hamast í
tvo klukkutíma fyrsta daginn, nú
eða þeir kaupa sér rándýr tæki til
að hafa heima við og þræla svo og
púla kiukkustundum saman um
leið og búið er að setja tækið sam-
an.
í því felast mistökin. Hinir
áhugasömu þreytast og verða
aumir og sárir, missa kjarkinn og
hætta. Því vill landlæknirinn
bandaríski að hófs sé gætt í þess-
um efnum.
Landlæknirinn segir að
rúmlega 60 prósent
Bandaríkjamanna fái
ekki þá hreyfmgu sem
mælt er með og fjórð-
ungur þeirra stundar
alls enga líkamsrækt.
Nærri helmingur af
ungu fólki á aldrinum 12
til 21 árs stundar líkams-
rækt heldur ekki reglu-
bundið.
Sérfræðingar telja að
fólk forðist ekki endilega
likamsræktina heldur eigi
þaö í erfiöleikum með að
koma henni fyrir í daglegu
amstri. Þess vegna hafa
þessir sömu sérfræðingam-
ir reynt að benda fólki á einfalda
hluti sem auðveldlega má gera á
degi hverjum og hafa mikið gagn
af, svo sem eins og aö ganga upp
stigana í stað þess að taka lyftuna.
Þá er líka bráðgott að ganga rösk-
lega í svo sem hálftíma og ýta
bamavagni á undan sér um tveggja
kílómetra leið á 30 mínútum.
Það er sem sé engin nauðsyn að
hamast eins og Magnús Scheving
til að hafa gagn af líkamsræktinni.
Sólarljósið drepur
bakteríur
Sólin er til margs nýtileg. Nú hef-
ur komið í ljós að hægt er að nota
sólarljósið á einfaldan og ódýran
hátt til að gera vatn hæfara til
drykkjar.
írskir læknar, sem störfuðu i
Kenía, segja að þriðjungs minni
líkur séu á því að böm
fái niðurgangspest
hafi þau drakkið
mengað vatn úr
plastflöskum
sem vora látnar
vera úti í
sterkri sólinni.
Ronan
Conroy, sem
starfar við
læknaskólann
í Dublin, segir
að hitinn og út-
fjólublá geislun frá
sólinni vinni i sam-
einingu að því að drepa
bakteríur sem valda sjúkdómum.
Hann segir aðferðina einfalda og
ódýra og henni sé hægt að beita
nánast hvar sem er.
„Þetta drepur nánast allt sem er í
vatninu," segir Conroy. E-kólibakt-
eríur og örverur sem valda kólera
og öðrum sjúkdómum era þar á með-
al. „Augljóslega er ekki verið að
dauðhreinsa vatnið en í samfélögum
sem ekki hafa neitt til neins er þetta
raunverulegur valkostur," segir
Conry.
Conroy og starfsbræður hans
skýra fá því í læknaritinu Lancet að
þeir hafi gefið 206 bömum af masaí-
ættbálkinum í Kenía vatn í plastfl-
öskum. Helmingi barnanna var sagt
að geyma flöskumar uppi á þaki á
kofanum sínum og drekka
ekki úr þeim fyrr en
eftir sex klukku-
stundir. Hin börn-
in máttu geyma
flöskumar í for-
sælu inni í
kofum sín-
um.
Niður-
gangspestartil-
fellin uröu
þriðjungi
færri meðal
barnanna
sem settu flösk-
urnar sínar í sólina.
Bömum í þróunarlöndunum
stendur mikil ógn af niður-
gangspest sem drepur fjórar til sex
milljónir þeirra á hverju ári. Hreint
drykkjarvatn leysir þann vanda.
Conroy segir að kjörið hafi verið
að kanna kenninguna á masaium
þar sem þeir hafi ekki aðgang að
hreinu drykkjarvatni og aðrar
hreinsunaraðferðir, svo sem klór-
blöndun, virki ekki í brunnunum
sem þeir fá vatn sitt úr.
„Þessi böm drekka mengaðasta
vatn í heimi,“ segir Ronan Conroy.
11 og póð fþrótt fyrir alla
Fullorðnir ^ ^ Listgrein
Barnaflokkar Sjálfsvörn
Líkamsrækt
iglingaflokkar
4 0 0 3
Sensei KAWASOE 7.dan
Yfírþjálfari Shotokan
á íslandi.
Þórshamar
Brautarholti 22
Sensei Ólafur Wallevik 4.dan
Yfirþjálfari Þórshamars.
Sameiginlegur
uppruni rabbína
Vísindamenn hafa nú sýnt
fram á að prestskapur meðal
gyðinga hefur gengið í erfðir i
karllegg í þúsundir ára og þyk-
ir það renna stoðum undir frá-
1
sagnir Biblíunnar um skipun
fyrsta æðsta prest ísraels-
I manna fyrir 3300 árum.
í bréfi til timaritsins Nature
segjast vísindamennimir hafa
J rannsakað 188 óskylda rabbína
frá ísrael, Norður-Ameríku og
Bretlandi. í ljós kom að Y-litn-
ingamir, sem erfast frá föðurn-
um, í sýnunum úr rabbínunum
voru allfrábrugðin þvi sem ger-
IÍ ist í óbreyttum gyðingum.
Fyrri rannsóknir hafa leitt í
ljós að litningasamsetning gyð-
inga er nokkuð mismunandi
eftir heimshlutum, að hluta til
vegna blöndunar við annað
fólk. Hins vegar reynist litn-
ingasamsetning í rabbínum
vera mjög áþekk, sem bendir til
sameiginlegs uppruna.
Grænt gras í
verstu þurrkum
» í miklum þurrkum er oft erfitt
I að halda grasinu grænu en nú
s kann að verða breyting þar á.
! Breskir vísindamenn hafa nefhi-
s lega fúndið leyndardóminn að
1 grænu grasi, jafnvel i verstu
Iþurrkum. Uppgötvunin gæti leitt
tii ódýrara viðhalds golfvalla og
almenningsgarða og jafnvel til
næringarríkara fóðurs fyrir bú-
peninginn á veturna.
Vísindamennirnir tóku eitt
: sinn eftir grasafbrigði einu sem
hélst grænt þótt grasið alit um
J kring væri skrælnað og gult af
þurrki. Afbrigði þetta reyndist
j vera náttúrulega stökkbreytt og
sem í vantaði ensim sem brýtur
niður blaðgrænuna sem plöntur
| nota til að framleiða eigin fæðu
með aðstoð ljóstillífunar. Nú er
>! búið að flytja þennan eiginleika í
s önnur grasafbrigði og halda þau
ij græna litnum og eiginleikum
sínum lengur i þurrki en ella.
Annað brot
hjálpar til
Breskir læknar hafa uppgötv-
að að betur gengur að fá erfitt
brot til að gróa ef gert er annað
brot i sama útlim. Slíkt getur
jafnvel komið í veg fyrir að
sjúklingurinn missi útliminn.
Græðingarstarf líkamans
stöðvast alla jafna að þremur
mánuðum liðnum. Það getur
komið sér illa fyrir brot sem
eru lengi að gróa. En með því
aö gera annaö brot í sama útlim
hrekkur græðingarstarfið aftur
í gang. Tækni þessi hefur verið
prófuð á nærri 200 sjúklingum í
Bristol.