Dagblaðið Vísir - DV - 13.01.1997, Síða 40
11.1/97
/2&f
HeildarvinningsupphæÓ
12.535.732
13 16 23
id 32 36
l.snrs 8.282.152
2.iqfS + 105.710 |
3. 4 «rs 115 . 9.510 5
4.3qf5 -ÆQQ9 ... 630
Vinningstölur a
11.1/97 '
KIN
FRETTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notað í DV,
greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Við tökum viö fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
Eins og sjá er fjarskiptamastrið á
Fteynisfjalli stórskemmt ef ekki ónýtt
eftir að hafa fallið til jarðar í hvass-
viðri um helgina. DV-mynd Njörður
Mastur
brotnaði á
' Reynisfjalli
DV, Vík í Mýrdal:
í hvassviðri sem gekk yfir Mýr-
dalinn síðastliðinn laugardag brotn-
aði 25 metra hátt fjarskiptamastur
Pósts og síma hf. sem er á Reynis-
fjalli. I mastrinu voru endurvarpar
fyrir Ríkisútvarpið, rás 1 og 2, Sjón-
varpið og bæði farsímakerfin.
Þegar mastrið féll datt því endur-
varp allra þessara miðla út, en það
náði til Víkur og hluta sveitarinnar
í kring. Viðgerðarmenn voru vænt-
anlegir austur í gær og reiknað með
að bráðabirgðasendum yrði komið
fyrir strax. Endanleg viðgerð kemur
til með að taka lengri tíma.
Víkurbúar og nærsveitamenn
misstu því t.d. af tyrsta þætti Spaug-
stofunnar á laugardagskvöldið en
. þess má geta að Stöð 2 og Bylgjan
duttu ekki út vegna þessa.
~ -NH/bjb
Banaslys í
, Skagafirði
' Banaslys varð þegar karlmaður
hrapaði í Merkigil í Skagafirði laust
eftir hádegi í gær. Farið var að svip-
ast um eftir manninum þegar hann
kom ekki fram á þeim tíma sem bú-
ist var við honum. Björgunarsveit
SVFÍ á Sauðárkróki fann manninn
og var hann úrskurðaður látinn
þegar læknir kom á staðinn. -sv
Einn á slysadeild
Tveir bílar skullu saman á mót-
um Flókagötu og Lönguhlíðar um
miðjan dag í gær. Einn var fluttur á
slysadeild og kenndi hann sér meins
í hálsi. Ekki er talið að hann hafi
verið alvarlega meiddur en bilarnir
eru báðir mikið skemmdir. -sv
Fangavörður á Litla-Hrauni til rannsóknar hjá RLR:
Ásakaður um
fíkniefnasmygl
til eins fangans
- tengist missætti tveggja fangavarða á Litla-Hrauni
Að beiðni Fangelsismálastofn-
unar ríkisins hefur Rannsókn-
arlögregla ríkisins, RLR, til rann-
sóknar ásakanir á hendur fanga-
verði á Litla-Hrauni um að hafa
smyglað flkniefnum til eins fang-
ans. Aðspurður staðfesti Kristján
Stefánsson, framkvæmdastjóri
Litla-Hrauns, þetta í samtali við
DV en vildi að öðru leyti lítið tjá
sig um málið. Samkvæmt upplýs-
ingum hans hefur rannsókn und-
anfarinna vikna lítið miðað og átti
hann von á niðurstöðu innan
skamms.
Hjá RLR vörðust menn allra
frétta. Hörður Jóhannesson yfir-
lögregluþjónn vildi hvorki játa því
né neita aö málið væri þar til
rannsóknar.
Krisfján vildi ekki upplýsa
hvernig málið kom upp. Sam-
kvæmt heimildum DV var það
fangavörðurinn sem bað fangeísis-
málayfirvöld um þessa rannsókn.
Hann telur sig saklausan og vill
hreinsa mannorð sitt. Ásakanirn-
ar komu frá kollega hans og sömu
heimildir herma aö þeir hafl um
skeið eldað grátt silfur, jafht utan
sem innan fangelsisins.
Meint flkniefnasmygl á að hafa
átt sér stað þegar fangavörðurinn,
sem ásakaður er, lét taka til í klefa
umrædds fanga. Fanginn er sagð-
ur hafa tekið þessu illa, haft i hót-
unum við fangavörðinn og fengið
kollega hans til liðs við sig.
-bjb
Finnur Ingólfsson:
Of seint I
mótmælt |
„Þessi mótmæli koma allt of
seint fram. Árið 1993 var gert skipu- .
lag á þessu svæði þar sem gert var
ráð fyrir iðnaðaruppbyggingu, án
þess að því væri mótmælt. Umhverf-
ismat fór fram og af hálfu þeirra
sem mótmæla mest núna var þá
engin athugasemd gerð. í júnímán-
uði síðastliðnum úrskurðaði ráð-
herra um tillögu skipulagsstjóra um
umhverfismatið. Og á grundvelli
þess að umhverfísmat hafði farið *
fram og iðnaðaruppbygging er fyrir-
huguð á svæðinu valdi Colombia-
fyrirtækið þennan stað,“ sagði
Finnur Ingólfsson iðnaðarráðherra
um þau miklu mótmæli sem nú eru ,
uppi í nærliggjandi sveitum við
Gnmdartanga gegn því að þar verði
reist álver.
Finnur segir að menn hefðu átt að i
mótmæla strax í byrjun þegar ákveð-
ið var að vera með iðnaðaruppbygg-
ingu á svæðinu. Hann segir að nú sé
verið að kynna starfsleyfíð sem slíkt. j
„Þar geta þeir sem nú mótmæla
haft áhrif. Þeim býðst það vegna ’
þess að þar verður afgreitt með
hvaða skilyrðum verksmiðjunni
verður leyft að starfa." segir Finnur
Ingólfsson. -S.dór
Eins og sjá má er bifreiöin mjög illa farin eftir aö hafa oltið 50 metra niður
Vattanesskriður og hreint kraftaverk að bifreiðastjórinn skuli hafa lifað
slysið af. DV-mynd Ægir
Vattarnesskriður:
Alvarlega slasað-1
ur eftir bílveltu i
„Þetta er í annað sinn sem maður
slasast alvarlega í þessum skriðum
á skömmum tíma og maður lét lífið
eftir hafa farið þama niður í bíl sín-
um í kringum 1980. Þetta er þvi
þriðja alvarlega slysið í þessum
skriðum á tæpum tveimur áratug-
um,“ sagði lögreglúmaður á Fá-
skrúðsfirði við DV í gærkvöld en
karlmaður liggur mjög alvarlega
slasaður á gjörgæsludeild Sjúkra-
húss Reykjavíkur eftir að bill hans
fór 50 metra niður brattar Vattar-
nesskriður, ofan við svokallað Hafn-
ames, á milli Reyðarfjarðai- og Fá-
skrúðsfjarðar, á laugardagskvöld.
Slæm færð var á þessum slóðum
og sá vegfarandi fór eftir bíl manns-
ins sem lágu út af veginum. Hann sá
hvað gerst hafði, lét lögreglu vita og ;
reyndi síðan að hlúa að hinrnn slas-
aða eftir mætti. Tveir læknar komu :
með sjúkrabíl frá Reyðarfirði en
þangað var farið með manninn til
þess að búa hann undir ferð með
þyrlu Landhelgisgæslunnar, TF- *
LÍF, til Reykjavíkur.
Þyrlan þurfti að fara til Hafhar í
Homafirði til þess að taka eldsneyti
og kom síðan til Reykjavíkur rétt fyr- *
ir klukkan sex í gærmorgun. Talið er .
að maðurinn hafi farið út af veginum
um klukkan níu í fyrrakvöld og því
liðu um níu klukkustundir frá slys-
inu og þar til hann komst á sjúkra- t
hús. Sem fyrr segir liggur maðurinn
mjög alvarlega slasaður á Sjúkrahúsi
Reykjavíkur. -sv/-ÆK
Einn með fíkniefni á Selfossi
Maður um tvítugt var tekinn
með þónokkurt magn af hassi og
amfetamíni á Selfossi aöfaranótt
sunnudags. Maðurinn var tekinn
eftir venjubundið eftirlit lögreglu.
Hann vai- látirm laus að yflrheyrsl-
um loknum. -sv
L O K I
Veðrið á morgun:
Rigning
eða
slydda
Á morgun má búast við all-
hvassri austan- og norðaustanátt
og snjókomu á norðvestanverðu
landinu. Hún mun þó verða mun
hægari annars staðar, víða með
rigningu eða slyddu.
Veðrið í dag er á bls. 44.
MERKILEGA MERKIVELIN
brother pt-2qo
Islenskir stafir
5 leturstærðir
8 leturgerðir
6, 9 og 12 mm prentborðar
Prentar í tvær llnur
Verð kr. 6.995
Nýbýlavegi 28 Simi 554 4443