Dagblaðið Vísir - DV - 21.02.1997, Síða 4
FÖSTUDAGUR 21. FEBRÚAR 1997 DV
BOTITLEBJÁ
Þaö leikur enginn vafi á því
hverjir voru sigurvegarar á afhend-
ingarhátíö íslensku tónlistarverð-
launanna 1997. Bjartasta vonin frá
því í fyrra, Botnleðja, var kjörin
hljómsveit ársins, á lag ársins
(Hausverkun) og telst eiga geisla-
plötu ársins (Fólk er flfl). Hljöm-
sveitin Botnleðja er skipuð þeim
Ragnari Páli Steinarssyni, Heiðari
Kristjánssyni og Haraldi Frey Gísla-
syni.
Hjólin byrjuðu að snúast hjá
þessu kraftmikla og rokkglaða tríói
þegar það vann Músíktilraunir árið
1995. í kjölfarið gaf sveitin út fyrri
plötu sína fyrir jólin 1995 en hún
var kölluð Drullumall. Platan hlaut
nokkuð góðar viðtökur og með út-
gáfunni og mikilli spilamennsku
öðlaðist sveitin traustan aðdáenda-
hóp. Það er hins vegar óhætt að
segja að platan Fólk er fifl, sem kom
út fyrir síðustu jól, og góð frammi-
staða á tónleikum hafi sett Botn-
leðju á stall með vinsælustu hljóm-
sveitum landsins.
Frægð Botnleðju hefur borist út
fyrir landsteinanna og hefur hún
notið kunningsskapar við Damon
Albarn og félaga hans í bresku
rokksveitinni Blur. Botnleðja hitaði
upp fyrir Blur á stórum (og vel
heppnuðum) tónleikum í Laugar-
dalshöll síðastliðið haust og nýlega
fór Botnleðja utan til þess að hita
upp fyrir Damon og félaga í
Englandi. Óhætt er að fullyrða að
ferðin hafi komið Botnleðjumönn-
um vel enda var Blur að kynna nýja
plötu og þar af leiðandi talsverður
spenningur fyrir tónleikunum í
Englandi. Damon Albam hefur
marglýst hrifningu sinni á því
kraftmikla rokki sem Botnleðja spil-
ar og jafrivel er hægt að merkja
áhrif frá þessari tónlistarstefnu
Botnleðju á nýrri geislaplötu Blur
(sjá plötudóm um nýju plötu Blur á
bls. 17).
Óhætt er að fullyröa að Botnleðja
Botnleðja: Komin formlega í úrvalsdeildina. Sveitina skipa þeir Ragnar Páll Steinsson, Heiðar Örn Kristjánsson og Haraldur Freyr Gíslason.
hafi skotið mörgum af kunnustu
tónlistarmönnum landsins aftur fyr-
ir sig með velgengni sinni á ís-
lensku tónlistarverðlaununum 1997.
Sem dæmi má nefna gamalgrónar
sveitir eins og Mezzoforte og Tod-
mobile sem voru einnig tilnefndar
sem hljómsveit ársins og Emilíana
Torrini og Kolrassa krókríðandi.
Þeir sem hlutu tilnefningar fyrir lag
Gróskan kom vel í Ijós
ársins voru Stefán Hilmarsson
(Eins og er), Emilíana Torrini (The
Boy Who Giggled so Sweet), Tod-
mobile og Anna Halldórsdóttir
(Villtir morgnar). Sjö geislaplötur
voru tilnefndar sem geislaplata árs-
ins 1997. Fyrir utan Fólk er fifl með
Botnleðju voru þaö plötumar Mer-
mann með Emilíönu Torrini,
Ómissandi fólk með KK og Magnúsi
Eiríkssyni, Köld eru kvennaráð
með Kolrössu krókríðandi, Seif með
Páli Óskari, I Believe in You með
Páli Rósinkranz og Eins og er með
Stefáni Hilmarssyni.
Af þessu má ráða að Botnleðja er
komin í úrvalsdeildina í íslensku
tónlistarlífi.
-JHÞ
Á fjórðu afhendingu íslensku tón-
listarverðlaunanna sem fór fram í
gærkvöldi kom það berlega í ljós að
íslenskt tónlistarlíf hefur verið í
mikilli sókn að undanfömu. Til
dæmis segir það meira en mörg orð
að sjö geislaplötur voru tilnefndar
sem geislaplata ársins 1997. Upphaf-
lega áttu þær að vera fimm en
þær sem voru i sjö efstu sætun
um vom svo hnífjafnar að ekki
þótti réttlætanlegt að gera
uppi á milli þeirra. Einnig má
geta þess að í Hljómfanga-
blaði DV, sem gefið var út
fyrir síðustu jól, var fjall-
að stuttlega um 150
íslenskar geisla-
plötur. Fyrir jólin
1995 var fjallað um
100 plötur í sam-
hærilegu
blaði á veg-
um DV. Það
vekur líka at
hygli að fjöl-
breytnin
sem
kem-
ur fram í útgáfu á íslenskri tónlist
er mikil og virðast menn óhræddir
við að prófa sig áfram með nýja
hluti. Það er líka ekki dýrt að gefa
út geislaplötu, því hefur verið fleygt
að það kosti álíka mikið að gefa út
geisla-
plötu
og
það kostar að kaupa sæmilegan
gamlan bíl.
Það er Félag íslenskra hijómlist-
armanna, Samband hljómplötu-
framleiðenda, Samtök um byggingu
tónlistarhúss og íþrótta- og tóm-
stundaráð sem eiga fulltrúa í sex
manna framkvæmdanefnd sem stýr-
ir framkvæmdinni á íslensku tón-
listarverðlaununum auk tveggja
fulltrúa úr röðum fjölmiðlafólks.
Iðnaöarráðuneytið styður nú ís-
lensku tónlistarverðlaunin og eru
fjármunirnir sem þaðan eru komnir
notaðir til þess að kosta
heiðursverðlaun þau
sem veitt eru ein-
staklingi sem
telst hafa ver-
ið öðrum til
fyrirmynd-
ar með
áralöngu
starfi í
þágu ís-
lenskrar
tónlistar.
Emilfana Torrini samfagnar Páli Óskari er íslensku tónlisfarverðlaunin voru afhent í fyrra. Páll var þá valinn söngv-
ari ársins en Emillana Torrini var valin söngvari ársins 1993. DV-mynd ÞÖK
Rytjandi/Hljómsveit ársins
1993 Todmobile
1994 Jet Black Joe
1995 Björk Guömundsdóttir
Blásturshljóðfæraleikari ársfns
1995 Óskar Guðjónsson
ana ársins
1993 Björk Guömundsdóttir
1994 Emiliana Torrini
1995 Björk Guömundsdóttir
sins
1993 Stúlkan - Todmobile
1994 Higher and Higher - Jet Black Joe
1995 Army of Me - Björk Guðmundsd.
Bassaleikari ársins
1993 Eiöur Arnarsson
1994 Eiöur Arnarsson
1995 Jóhann Ásmundsson
Hljómborðsleikari ársins
1993 Eyþór Gunnarsson
1994 Jón Ólafsson
1995 Eyþór Gunnarsson
Trommuleikari ársins
1993 Gunniaugur Briem
1994 Gunnlaugur Briem
1995 Gunnlaugur Briem
Söngvari ársins
1993 Daníel Ágúst Haraldsson
1994 Páll Rósinkranz
1995 Páll Óskar
öfundur ársins
1993 Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson
1994 Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson
1995 Björk Guömundsdóttir
Textahöfundur ársins
1993 Andrea Gylfadóttir
1994 Andrea Gylfadóttir
1995 Kristján Kristjánsson
Geislaplata ársins
1993 Spillt - Todmobile
1994 Æ - Unun
1995 Post - Björk Guömundsdóttir
Gftarleikari ársins
1993 Guömundur Pétursson
1994 Guömundur Pétursson
1995 Guömundur Pétursson
Klassísk geislapiata ársins
1995 Schwanengesang
Kristinn Sigmundsson
og Jónas Ingimundarson
i Djassleikari ársins
Í994 Eyþór Gunnarsson
1995 Eyþór Gunnarsson
Bjartasta von ársins
1994 Spoon
1995 Botnleöja
Hel&ursverðlaun
1993 Björgvin Halldórsson
1994 Ragnar Bjarnason
1995 Guömundur Steingrímsson
* Nú eru íslensku tónllstarverölaunin miöuö viö áriö í ár
en ekki áriö á undan eins og áöur.