Dagblaðið Vísir - DV - 21.02.1997, Síða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 21.02.1997, Síða 11
FÖSTUDAGUR 21. FEBRUAR 1997 lyndbönd 25 Ríkharður III: Eitt mesta illmenni leikbókmenntanna William Shakespeare samdi gífur- legan fjölda af leikverkum og skapaði margt illmennið en eitt það allra frægasta er Richard III, stimamjúki og undirfóruli kroppinbakurinn sem hrindir öllum úr vegi, þar á meðal flestum meðlimum eigin fjölskyldu, svo að hann megi verða kóngur. í nýrri mynd um þennan mikla harð- stjóra er sögusviðið fært fram á fiórða áratug 20. aldar. Blóðugt borgarastríð í Englandi endar með því að konung- urinn er myrtur og nýr konungur er krýndur. Yngsti bróðir hins ný- krýnda konungs er Richard. Hann er kroppinbakur og hefúr visinn vinstri handlegg, en bætir sér það upp með sjarma, hnyttni, hugrekki og slægð. Hann hefur einsett sér að komast í hásæti Englands og ryður öllum fyr- irstöðum úr vegi. Hann lætur myrða alla andstæðinga sína, þ.á.m. eldri bróður sinn, drottningarbróðurinn, syni kóngsins og forsætisráðherrann, og er að lokum krýndur kóngur. Við tekur ógnarstjóm í stíl einræðisherra Evrópu á þessum tíma, þangað til óvinir hans sameinast og veita and- spymu. Að lokum hefur Richard ni misst alla helstu stuðningsmenn sína og ósigur hans er óumflýjanlegur, en hann er trúr sínu eðli fram á síðustu stund á vígvellinum. Samvinna tveggja ólíkra manna Sir Ian McKellen hefur hlotið mik- ið lof fyrir túlkun sína á ógnvaldinum Richard ni, en hann er einnig hand- ritshöfúndur ásamt leikstjóranum Richard Loncraine og var að miklu leyti maðurinn á bak við það að koma þessu leikriti á skjáinn. Árið 1990 var uppfærsla konunglega breska þjóð- leikhússins á Richard III frumsýnd í London. Leikstjórinn var Richard Eyre, sjálfúr leikhússtjórinn, sögu- sviðið var Bretland fjórða áratugar- ins og Ian McKellen var í aðaihlut- verki. Uppfærslan tókst mjög vel og ferðaðist leikflokkurinn með sýning- una um Evrópu og Ameríku. Ian McKellen vildi reyna að ná til enn stærri hóps og með það í huga settist hann niður í frístundum sínum og lan McKellan í hlutverki Ríkharðs III ásamt Kristin Scott-Thomas sem leikur eiginkonu hans. skrifaði kvikmyndahandrit, byggt á uppfærslunni. Valið á Richard Loncraine sem leikstjóra var mikilvægt. Hann hefur aldrei unnið við leikhús og hafði eng- an sérstakan áhuga á Shakespeare. Hann hafði hins vegar vakið athygli fyrir íburðarmikla, sjónræna leik- stjórn og var því tilvalinn í samvinnu við Ian McKellen, sem er mikill sér- fræðingur í Shakespeare. Richard Loncraine gaf myndinni mjög sjón- rænt yfirbragð og lagði áherslu á að leikaramir væru sem eðlilegastir í túlkun sinni og léku á nútímalegan hátt, þótt textinn væri sextándu aldar orðskrúð, og þar með skapaðist heild- armynd sem þeir félagar vonuðust til að myndi draga að mikinn fjölda áhorfenda, en bæri samt ákveðin ein- kenni Shakespeares og kynnti hann frrir sem flestum. Sterkur leikhópur Leikaravalið tók einnig mið af þessu. Fyrir utan Ian McKellen er mikið af virtum, enskum leikurum í myndinni og hafa flestir þeirra reynslu af Shakespeare. Þ.á.m. eru Kristin Scott-Thomas, Jim Broadbent, Maggie Smith og Nigel Hawthome. Tveir bandarískir leikarar, Annette Bening og Robert Downey jr., eru einnig meðal leikara, og er það ekki eingöngu til að draga að bandaríska áhorfendur. Þau em í hlutverkum drottningarinnar og bróður hennar, sem samkvæmt upphaflegri útgáfú Shakespeares vom ekki með blátt blóð í æðum og þar með utangarðs meðal breska aðalsins. Ian McKellen og Richard Loncraine þótti þvi tiival- ið að leggja áherslu á þetta með því að gera þessar persónur að Banda- ríkjamönnum. Sir Ian McKellen hefur átt glæsi- legan 35 ára leikferil og unnið til 18 alþjóðlegra leikverðlauna. Hann er fyrst og fremst sviðsleikari en lék ein- göngu í kvikmyndum í tvö ár til að búa sig undir Richard III, í mynd- unum Six Degrees of Separation, The Ballad of Little Jo, And the Band Played On, The Shadow og Restorati- on. Áður hafði hann leikið í Scandal, Plenty, The Keep og Priest of Love. Hann er ekki lærður leikari en út- skrifaðist með próf í ensku frá Cam- bridge-háskóla árið 1961 og fékk að því loknu fyrsta hlutverk sitt í at- vinnuleikhúsi í leikritinu A Man for all Seasons í Belgrade-leikhúsinu í Coventry. Fyrir utan fjölmörg Sha- kespeare-verk, svo sem Much Ado About Nothing, Richard II, Edward II, Hamlet, Othello og að lokum Richard III, hefur hann unnið til verðlauna fyrir t.d. Scent of Flowers, Bent, og sjónvarpsmyndina Walter í leikstjórn Stephen Frears. Árið 1991 var hann aðlaður fyrir framlag sitt til leiklist- arinnar og varð prófessor í nútíma- leiklist við Oxford-háskólann. Hann er einn af stofnendum Stonewall Group, sem berst fyrir réttindum homma og lesbía í Bretlandi og hefur hlotið ýmsar viðiu-kenningar fyrir framlag sitt til mannréttindamála. PJ UPPÁHALDS MYNDBANDIÐ MITT Helgi Pétursson Ég hef horft verulega oft á myndband sem ég á um siglingar á húsbátum í Frakk- landi. Ég fór sjálfur í svona ferð í fyrra með fjölskylduna og það er besta frí sem ég hef átt. Þetta er kynningarmyndband frá fyrir- tæki nokkru sem leigir út þessa báta og ég horfi aftur og aftur á þetta mér til skemmtunar. Þá rifjast upp sælar minningar úr ferðalaginu mínu. Siglt var frá litlum bæ rétt fyr- ir utan París í gegnum allt Champagne-héraðið. Þetta var hálfs mánaðar ferð eftir ám og skipaskurð- um og við fórum í gegnum fjölda franskra sveitaþorpa. Ég fékk allt aðra mynd af Frakk- landi með þessum ferðahætti. Engar hraðbrautir sem liggja ffarn hjá bæjunum heldur ruggar mað- ur þama í rólegheitunum og sér miklu meira fyrir vikið. Fyrir utan þetta kynningarmyndband er danska myndin Gestaboð Babette í miklu uppáhaldi hjá mér. Það er mynd frá Billie August og hún er að mínu mati alveg einstök. Hún er hæg og róleg, ger- ist í danskri sveit og fjallar um franska konu sem býður öllu þorp- inu í mat. Ýmislegt gerist svo í þessu boði og ég ráðlegg öllum að horfa á hana - og fara svo í ferðalag á húshátum í Frakk- landi. -ilk Myndbandahátíð 1997: Braveheart hlaut tvenn verðlaun Eigendur myndbandaleiga og myndbandaútgefendur héldu Mynd- bandahátíð á laugardaginn var. Há- tíðin byrjaði í Laugarásbíói þar sem boðið var upp á veitingar og kvik- myndin Evita síðan sýnd. Þaðan var farið í Gullhamra þar sem matur var á borðmn og hátíðahöld og skemmt- un ffarn eftir nóttu. Áður hafði farið fram kosning á meðal myndbanda- leiga um vinsælustu myndir ársins og ýmislegt annað sem tilheyrir þess- um bransa. Þetta var unnið að sann- kallaðri óskarsfyrirmynd, þar sem fimm myndir voru tilnefndar og á laugardagskvöldinu var síðan greint endanlega frá úrslitunum. Eins og á óskarshátíðinni í fyrra var sigurvegarinn á Myndbandahá- tíðinnni Braveheart, en hún var bæði valin besta dramatíska myndin og svo í lokin besta mynd ársins á myndbandi. Aðrar kvikmyndir sem urðu sigurvegarar voru The Priest, sem valin var besta listræna kvik- mynd ársins og keppti hún þar með- al annars við ekki minni myndir en n Postino og Underground. Sérstakur flokkur var myndir sem frumsýndar eru á myndbandi og þar bar sigur úr býtum BUly Madison. Óvæntasta mynd ársins var valin Usual Suspect, en hún fékk einnig tilnefningu sem besta mynd ársins og besta spennu- mynd ársins. Besta spennumyndin var. hins vegar valin Seven, sem einnig var tilnefnd besta mynd árs- ins. Besta gamanmyndin var síðan valin Birdcage. Einnig voru tilnefningar utan við myndirnar sjálfar: ClC-myndbönd þótti hafa tekist að markaðssetja best á árinu, Sam/Wamer-myndbönd þóttu standa sig best í auglýsingum, og i bamamyndum sem fara á mynd- bandaleigur þótti Myndform hafa staðið sig best. Mel Gibson leikur aðalhlutverkiö og leikstýrir Braveheart sem fékk tvenn verðlaun á Myndbandahátíðinni.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.