Dagblaðið Vísir - DV - 21.02.1997, Blaðsíða 12
26 myndbönd
Independence Day:
Allt sprengt í tætlur
itlDfFfidlCF RAV
* v
Risastór geimskip koma til jarðarinnar og taka sér
stöðu yfir helstu stórborgum meðan aðalhetjumar
þrjár eru kynntar til sögunnar. Fyrstan ber að nefna
Jeff Goldblum i hlutverki tölvusénis sem uppgötvar ill áform geimver-
anna. Þá er Wili Smith í hlutverki fífldjarfs orrustuflugmanns og loks Bill
Pullnam í hlutverki forseta Bandaríkjanna (sem er ekki lítil hetja í þess-
ari mynd). Þegar áhorfendurnir eru búnir að fá smátíma til að átta sig á
sögupersónunum heíjast geimvenmnar handa, sprengja allt í klessu og út-
rýma nánast öllum herjum jarðarbúa þangað til í restina að góðu gæjam-
ir detta niður á snilldarlausn og útrýma geimverunum algjörlega. Þetta er
með heimskustu myndum sem ég hef séð, sem væri allt i lagi ef hún væri
svolítið skemmtilegri. Brandaramir eru svona upp og ofan, en skást er
myndin þegar ekki er meiningin að koma áhorfandanum til að hlæja, þ.e.
þegar heimskan og þjóðemisrembingurinn yfirkeyra allt. Þá fyrst verður
hún virkilega fyndin. Sprengingamar eru flottar í svona hálfa mínútu en
verða þá leiðigjamar og myndin er einfaldlega alltof löng. Hefði mátt skera
hana niður um svona klukkutíma. Leikaramir fara með línurnar sínar og
sjálfsagt hefur Jeff Goldblum hlegið dátt þegar hann opnaði larmaumslag-
ið. Tæknibrellur eru vel úr garði geröar, en ofnotaðar.
Útgefandi: Skífan. Leikstjóri: Roland Emmerich. Aðalhlutverk: Will Smith,
Bill Pullnam og Jeff Goldblum. Bandarísk, 1996. Lengd: 145 mín. Bönnuð
innan 12 ára. -PJ
Mr.Wrong:
Glataður gæi
Ellen DeGeneres leikur unga konu á uppleið sem
ekki hefur verið mjög heppin í ástum hingað til. Hún
tekur þó gleði sína þegar hún hittir draumaprinsinn
Bill Pullnam og allt leikur í lyndi þar til hún segir hon-
um að hann geti verið hann sjálfur og látið sinn innri
mann koma fram. í Ijós kemur að hans innri maður er
snarklikkaður og hún sér sitt óvænna og segir honum
upp. Því miður er hann þrjóskari en andskotinn og
neitar að gefast upp. Hann platar hana og foreldra
hennar til Mexíkó og dregur hana upp að altarinu í
óbyggðum Mexíkó. Til að bæta gráu ofan á svart er
næstum því jafn geggjuð og brjálæðislega afbrýðisöm fyrrum kærasta hans
á hælunum á þeim. Hér er ágætis hugmynd á ferðinni og miðað við farsa-
kenndan söguþráðinn hefði átt að vera hægt að búa til góða dellugrín-
mynd. Þetta klikkar hins vegar allt saman algjörlega, því að handritið er
ekkert fyndið. Bill Pullnam nær fram brosviprum af og til, en að hafa Ellen
DeGeneres þama er út í hött og sá sem hélt að hún væri skemmtileg ætti
að finna sér nýtt starf.
Útgefandi: Sam-myndbönd. Leikstjóri: IMick Castle. Aðalhlutverk: Ellen
DeGeneres og Bill Pullnam. Bandarísk, 1996. Lengd: 90 mín. Öllum leyfð.
PJ
Nothing Personal:
Hatur á Norður-írlandi
Nothing Personal gerist í Belfast árið 1975. Forvíg-
ismenn andstæðra fylkinga kaþólskra og mótmælenda
era að reyna að semja um vopnahlé, en fylgismenn
þeirra eru tregir til. Eftir götubardaga er kaþólskur
maður að skjögra heim í gegnum hverfi mótmælenda
þegar hann er hirtur af uppreisnargjömu gengi úr
röðum mótmælenda. Einn af liðsmönnum þess er stór-
hættulegur ofstopamaður sem er kominn í ónáð hjá yf-
irboðurum sínum, en foringi gengisins er hugsjóna-
maður sem þekkti fanga sinn í bamæsku. Meðan
hann er í haldi leita ung böm hans að honum í báð-
um hverfunum, meðal mótmælenda og kaþólskra. Þetta er mjög hrá og
raunsæ lýsing á fáránlegum en mjög raunverulegmn aðstæðum í Belfast
og grimm ádeila á hatrið og ósamlyndið sem þar ríkir. Beiskt háðið kem-
ur vel fram í lok myndarinnar þegar hljóma fer lag um stríð og heiður,
eftir tilgangslaus drápin sem á undan era gengin. Úrvalsleikarar eru í öll-
um aðalhlutverkum, James Frain og Ian Hart fara á kostum í hlutverk-
um félaganna í mótmælendaklíkunni og John Lynch, sem lítið hefur sést
síðan hann lék í Cal, er öraggur í sínu hlutverki. Þá er athyglisvert að sjá
Ruaidhri Conwoy (Clockwork Mice) í hlutverki ungs og upprennandi of-
beldismanns sem lærir sína harkalegu lexíu.
Útgefandi: Myndform. Leikstjóri: Thaddeus OlSullivan. Aðalhlutverk:
James Frain, lan Hart og John Lynch. Bresk/írsk, 1995. Lengd: 90 min.
Bönnuð innan 16 ára. PJ
Omega Doom:
Vélmennabardagar ★
Þessi mynd gerist einhvem tíma í framtiðinni þegar
mannkynið er hér um bil búið að útrýma sjálfu sér og
ekkert eftir nema vélmennin, sem skipa sér í klíkur
eftir framleiðslugerð og lúskra hvert á öðru. Rutger
Hauer leikur flökkuvélmenni sem kemur í bæ, þar sem
tvær slíkar klíkur berjast um yfirráðin. Báðar klíkurn-
ar era að leita að vopnabúri sem talið er vera falið ein-
hvers staðar í bænum, en þær telja sig þurfa á vopnum
að halda til að drepa hin vélmennin og þar að auki
mennina sem samkvæmt síðustu orðrómum era við
það að láta til sín taka aftur. Rutger Hauer di-epur öll
vélmennin (nema tvö, sem era góð) og fer. Þessi mynd er nokkuð undar-
leg. Hún virðist leggja af stað með nokkuð metnaðarfullan söguþráð í stíl
Yojimbo og eyðir oft miklum tíma og fyrirhöfn í útlit og sjónræn bardaga-
atriði. Fagmennskuna vantar hins vegar. Söguþráðurinn er götóttari en 15
ára gamlar nærbuxur og heimspekin, sem nóg er af, er grunn og heimsk.
Omega Doom er því fremur leiðinleg mynd, en fær punkt fyrir að reyna.
Rutger Hauer er fremur sorglegur eins og vanalega.
Útgefandi: Skífan. Leikstjóri: Albert Pyun. Aðalhlutverk: Rutger Hauer.
Bandarisk, 1996. Lengd: 90 mín. Bönnuð börnum innan 12 ára. PJ
FÖSTUDAGUR 21. FEBRUAR 1997
SÆTI FYRRI VIKA VIKUR A lista: TITILL .« ÚTGEF. TEG.
ij NÝ i ! Independence Day Skífan Spenna
2 ; « 1 3 Mission Impossible ClC-myndbönd Spenna
3 : 3 4 ; Fargo Háskólabíó Spenna
M NÝ 1 Eye for an Eye ClC-myndbönd Spenna
5 2 4 ; Spy Hard Sam-myndbönd Gaman
« 6 ; 5 4 ; Truih about Cats and Dogs Skrfan Gaman
7 1 NÝ i : Mr. Wrong Sam-myndbönd Gaman
f « ; mmm 4 .; Rock Sam-myndbönd Spenna
9 NÝ i ; Happy Gilmore ClC-myndbönd Gaman
10 9 2 ; Bio-Dome Sam-myndbönd hbsj Gaman
11 11 2 Last Dance Sam-myndbönd Drama
12 6 5 ■ i Cable Guy Skífan Gaman
13 8 3 The Quest Myndform Spenna
14 16 r 2 i X-Files: Tunguska Skrfan Spenna
15 12 9 , 2 Kingpin Sam-myndbönd Gaman
16 ; 17 Final Cut Háskólabíó Spenna
11 i»J 10 5 Mullholland Falls Myndform Spenna
NÝ i : Kazaam Háskólabíó st- -.5- --- t Gaman
19 15 11 Sgt. Bilco ClC-myndbönd Gaman
20 Al u ; i Down Periscope Skífan Gaman
lO.feb. til lO.feb.
Nokkrar hræringar eru á myndbandalistanum þessa vikuna
og þrjár nýjar kvikmyndir fara hátt á listann. Fyrsta ber að telja
vinsælustu kvikmynd ársins í fyrra, Independence Day, sem
þegar er komin í hóp vinsælustu kvikmynda sem gerðar hafa
verið. Hún fer að sjálfsögðu beint í efsta sætið og verður þar
örugglega um tíma. I fjórða sæti kemur svo tryllirinn Eye for
an Eye þar sem Sally Field leitar hefnda þegar dótturmorðingi
hennar er látinn laus vegna mnistaka við handtöku hans. í sjö-
unda sæti er svo Mr. Wrong, sem er gamanmynd með Ellen
DeGeneres, en hana þekkja flestir sjónvarpsáhorfendur ein-
göngu sem Ellen. Þess má geta að hinn viðkunnanlegi leikari
Bill Pullman leikur eitt af aðalhlutverkunum, bæði í Inde-
pendence Day og Mr. Wrong. Ein ný mynd gægist inn á listann
en það er Kazaam með körfuboltastjörnunni Shaquille O’Neal
í aðalhlutverki.
Independ-
ence Day
Jeff Goldblum og Bill
Pullman.
Vísindamenn
NASA verða varir
við að einhverjir
risastórir hlutir era
á sveimi í geimnum
og áður en langt um
líður kemur i ljós að
þetta eru geimfór frá
óþekktri plánetu. Á
skömmum tíma sigla
þessi risastóra skip
inn í gufuhvolfið og
taka sér stöðu fyrir
ofan allar helstu höf-
uðborgir heimsins.
Brátt skýrist að ekki
er um neina vináttu-
heimsókn að ræða
heldur stefna geim-
verurnar á að út-
rýma jarðarbúum.
Mission: Im-
possible
Tom Cruise og Jon
Voight.
Um skeið hefur
CLA haft grun um að
einhver innan leyni-
þjónustunnar sé að
selja hátæknileynd-
armál. Njósnarinn
Ethan Hunt og hans
fólk er að undirbúa
að afhjúpa bæði svik-
arann og kaupand-
ann. Allt gengur
samkvæmt áætlun
þar til aðgerðinni er
að ljúka, þá fer allt
úrskeiðis og allir era
drepnir nema Hunt.
Fljótlega áttar Hunt
sig á aö hann er sjálf-
ur orðinn hinn grun-
aði í málinu, enda sá
eini sem eftir er sem
vissi um áðgerðina.
ssaicss raatií sístí
5» iwtCT 30SC2«I
E5SS6
il
Fargo
Frances McDormand
og Steve Buscemi.
Uppburðarlítill
bílasali hefur komið
sér í skuldasúpu. Til
að bjarga málum fær
hann tvo krimma til
að ræna eiginkonu
sinni og eiga þeir að
krefja forríkan
tengdafóöur hans um
lausnarfé. Þegar
krimmarnir drepa
lögreglumann og tvo
saklausa- vegfarend-
ur fer málið langt út
fyrir það sem bílasal-
inn ætlaði. Það kem-
ur í hlut lögreglu-
stjórans í Fargo,
hinnar kasóléttu
Marge, að rannsaka
málið. Brátt tekst
henni að tengja á
milli morðanna.
Eye for an
Eye
Sally Field, Kiefer
Sutherland og Ed
Harris.
Líf McCann fjöl-
skyldunnar breytist í
martröð þegar dóttir
þeirra er myrt á
hrottalegan hátt.
Skömmu síðar hand-
tekur lögreglan
mann sem er sterk-
lega grunaður um
morðið. það verður
mikið áfall fyrir
móðurina þegar
manninum er slepþt
því hún er sannfærð
um að þessi maður
sé morðinginn og
ákveður nú að fylgj-
ast með ferðum
hans.
B •*VmM,snr
Spy Hard
Leslie Nielsen og
Nicolette Sheridan.
Njósnaranum WD-
40 er falið að stöðva
grimmileg áform
handalausa hryðju-
verkamannsins
Rancors sem í enda-
lausri brjálsemi
sinni ætlar sér ekk-
ert minna en heims-
yfirráð. í myndinni
er einnig komið inn
á persónuleg tengsl
WD-40 við hinar og
þessar persónur inn-
an og utan leyniþjón-
ustunnar, til að
mynda er hulunni
svipt af, leyndar-
dómnum um dular-
gervi yfimjósnarans
í CIA og yfirmanns
WD-40.