Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.1997, Blaðsíða 1

Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.1997, Blaðsíða 1
iiiiiii/tiiiiiiliifiliiiiifiiilfiiii Virðulegur og traustlegur fjallagöslari Dodge Ram skúffubíllinn er vel fallinn til breytinga þannig að hann fullnægi kröfum þeirra sem vilja aka yfir snjó frekar en í gegn- um hann, komast á jökla og annað þvílíkt sem minni bílum á mjórri hjólum er ófært. í dag lítum við á einn þannig bíl sem búið er að breyta ansi snotur- lega. Réttara væri kannski að tala um að hann hefði verið bættur því flest af því sem gert hefur verið væri réttara að kalla viðbætur en nýsmíði. Þessi tiltekni bill er til að mynda ekkert hækkaður á grind, aðeins á íjöðrum, en síðan var tek- ið vel úr brettum svo hægt væri að setja undir hann 38 tomma dekk. Með þessum búnaði samsvarar bíllinn sér mjög vel. Hátt er undir hann, án þess að þyngdarpunkti sé ruglað, og jafnvægi helst gott í hon- um. 5,9 lítra 230 hestafla vél við fjög- urra gíra sjálfskiptingu með yfirgir gerir bílinn ágætlega skemmtilegan akstursbíl á þjóðvegum og breyt- ingin/bætingin gerir hcum að ákjósanlegum fjallabíl að auki. Með breytingunni nær hann furðu vel að sameina kosti fjallaljóns og heimilisbOs. Við segjum nánar frá bílnum á bls. 32. Ung hjón samhent í jeppamennskunni: Gaf bóndanum 44 tomma dekk í jólagjöf Við heimsóttum á dögun- um þau Kristínu Jónsdóttur og Amar Þorsteinsson, ung hjón sem eru samtaka í jeppamennskunni og eyða flestum frístundum í það að gera bílinn kláran fyrir vetr- arferðimar. Þau vom í óðaönn að gera jeppann sinn, sem er aldinn höfðingi af gerðinni Jeepster, frá árinu 1967, kláran fyrir stóm jeppaferðina yfir Sprengisand um næstu helgi. - sjá bls. 38 Kristín Jónsdóttir og Arnar Þorsteinsson eru hér í jepp- anum sínum, gömlum og góöum en vel búnum Jeep- ster, en bílinn voru þau að gera kiáran fyrir jeppaferö- ina stóru yfir Sprengisand sem farin verður um næstu helgi. DV-mynd Pjetur Merkjamystíkin gengur út í öfgar - segir sænskur ritstjóri og hvetur fólk til að velja sjálfstætt þegar það kaupir bíl — sjá bls. 45 Leigubílstjórar óvarðir fyrir árásum farþega - átti sérsmíðaðan Packard með búri. Rabbað við Guðmund Guð- mundsson, fyrrverandi leigubíl- stjóra, sem átti sérsmíðaðan leigu- bíl með öryggisbúri. -sjá bls. 44 Líknarbelgir mikilsverður viðbótarbúnaður -sjá bls. 37 IMTO

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.