Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.1997, Síða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.1997, Síða 4
LAUGARDAGUR 1. MARS 1997 DV 38 ★ bílar • ^ Samhent í jeppamennskunni: Gaf bóndanum 44 tommu dekk í jólagjöf „Þetta er annar jeppinn okkar af þessari gerð, sá fyrri fór í íbúða- kaup en þennan erum við búin að eiga í ár,“ sögðu þau Kristín Jóns- dóttir og Amar Þorsteinsson, ung hjón sem eru samtaka í jeppa- mennskunni og eyða flestum frí- ■ stundum í það að gera bílinn kláran fyrir vetrarferðimar. Þau Kristín og Arnar em meðal þeirra sem ætla að fara yfir Sprengisand um næstu helgi og slást þar í hóp 120 jeppa sem ætla að halda upp á það með þessari ferð að tiu ár em frá fyrstu stóru hópferð Ferðaklúbbsins 4x4. Fyrir tíu ámm stóð til að fara yfir Sprengisand en vegna veðurs komst hópurinn aldrei lengra en í Nýjadal. Ferðabíllinn þeirra er aldinn höfðingi af gerðinni Jeepster, frá ár- inu 1967. Þetta er vel búinn bíll, á 44 tomma dekkjum, með 455 cub. Bu- ick- vél og 4 gira handskiptan gir- kassa. No-spin-læsingar em að framan og aftan, 9 tomma fljótandi öxlar að aftan en Dana 44 að fram- an. I tilefni ferðarinnar verða settir stillanlegir Rancho-demparar að aft- an. Bensíntankurinn tekur 220 lítra og þar að auki eru 40 lítrar á brús- um svo að bensínforðinn ætti að vera nægur yfir sandinn en reiknað er með því að bíll af þessari stærð fari með 350 lítra af bensíni í ferð- ina fram og til baka. Fjarskiptabúnaður er líka í lagi því að sjálfsögðu er GPS-staðará- kvörðunarbúnaður í bílnum af gerð- inni Eagle, með plotter, einnig far- sími, Gufunestalstöð, SSB, af gerð- inni Yaesu, og CB-stöð til fjarskipta á milli bíla. byrjuðu saman Olíkt mörgum öðrum byrjuðu þau Kristín og Arnar saman í jeppa- mennskunni en oft er það svo að fyrst byrjar karlinn og konan kem- ur svo á eftir. „Við erum búin að vera í þessu í sjö ár, byrjuðum um 1990,“ segir Kristín. „Við höfum verið samtaka í þessu frá byrjun og það hefur verið óskaplega gaman. Fyrsti bíllinn okkar var AMC J-10 pickup (stóri Wagoneer með skúffu) en við skipt- um á honum og fyrri Jeepstemum okkar. Þá fórum við í blindhríð og vitlausu veðri norður á Blönduós, skiptum þar á bílum og ókum síðan til baka. Þann bíl áttum við í nokk- ur ár og fómm víða á honum. Þetta var góður bíll og við sjáum eftir honum en við létum hann frá okkur þegar við keyptum okkur íbúð. Við fengum okkur síðan aftur Je- epster fyrir ári og þessi bíll verður þróaður áfram.“. Það kom fram hjá þeim Kristínu og Amari að ekki liggja svo miklir peningar í bíl sem þessum. Það er helst í þeim búnaði sem bætt er í bílana sem kostnaðurinn liggur. Bíllinn er líka aðeins notaður til ferðalaga á veturna því daglega aka þau um á gömlum Skóda. „Við keyptum hann á rúmlega tuttugu þúsund fyrir ári og hann hefur ekki klikkað á þeim tima.“ Fékk 44 tommu dekk í „Við byrjuðum strax í stóru dekkjunum," segja þau Kristin og Arnar. „Fyrsti bíllinn okkar var að vísu á 40 tomma dekkjum en okkur líkaði ekki við þau þannig að við vildum skipta. Kristín er frá Fossi á Síðu og að venju var haldið austur til að halda upp á jólin með ættingjunum. „Þeg- ar ég opnaði jólapakkann var í hon- um leikfangabíll á stómm dekkjum en það var ávísun á 44 tomma dekk sem Kristín hafði keypt og séð sjálf um að koma austur," sagði Amar. „Þeir eru vist enn að ræða um það, strákamir hjá Bílabúð Benna, þegar konan kom og keypti þessa sér- stæðu jólagjöf." ur upp á svo óendanlega mikið að bjóða,“ segir Kristin, „við eigum engin böm, bara kött, svo að við erum frjálsari að skreppa þegar við höfum tækifæri til þess.“ Föðurlandið frá mömmu Kristín Jónsdóttir og Arnar Þorsteinsson eru hér aö gera jeppann sinn, gamlan og góöan en vei búinn Jeepster, kláran fyrir jeppaferöina stóru yfir Sprengisand sem farin veröur um næstu helgi. DV-mynd Pjetur Talið barst að búnaði í vetrarferð- um en hann hefur breyst mikið á síðustu ámm. „Við erum yfirleitt í góðum vélsleðagalla og svo svíkur foðurlandið frá mömmu engan en það er ekkert betra í fjallaferðum en að vera í ullarfatnaði næst sér,“ seg- ir Kristín. Ferðamennskan hefur líka breyst á síðustu árum. Menn fara í þessar ferðir betur undirbúnir og það er mun minna um óreglu en var hér á árum áður. „Það var eins og sumir vildu bara komast burt frá öllu og til fjalla án þess að njóta útivemnn- ar en sem betur fer hefur þetta breyst mikið og nú eru allir sam- taka um að láta sér líða vel og njóta þess sem fjallaferðir að vetri hafa upp á að bjóöa.“ Þau Amar og Kristín voru í óða- önn að ljúka við að gera bílinn klár- an fyrir jeppaferðina um næstu helgi þegar við heimsóttum þau í vikunni á verkstæðið þeirra í Kópa- vogi sem þau deila með nokkram fé- lögum sínum úr Ferðaklúbbnum 4x4. Þau fara raunar á undan stóra hópnum því þau leggja upp á fímmtudagsmorgun með vistir fyrir hópinn, þar á meðal 60 kíló af kjöti sem notað verður í veislunni á föstudagskvöld í Nýjadal, en þar munu 4 matreiðslumenn sjá um að elda veislumat ofan i alla þátttak- endur. Það glumdu við hamarshögg og rafsuðuneistamir lýstu út i kvöld- rökkrið þegar við yfirgáfum litla verkstæðið í Kópavoginum. Þar inni var verið að gera þrjá veglega jeppa klára i slaginn um næstu helgi. Svipað ástand er í mörgum bílskúrum og verkstæðum enda ætla allir að vera með besta bílinn þegar leggja upp í afmælisferð Ferðaklúbbsins 4x4 yfir Sprengisand um næstu helgi. -JR Annars er það greinilegt að þeim líkar vel að skreppa í sveitina og þau eyða gjarnan hluta af sumarfrí- inu þar, enda er gott að nýta sér vélageymsluna til viðgerða á jepp- anum þegar heyvinnslutækin em úti á túni. Jón, faðir Kristínar, er með ágætt verkstæði heima á Fossi og hefur verið þeim innan handar með viðgerðir á þeim bilum sem þau hafa verið að byggja upp og breyta. 3 til 4 ferðir á vetri „Við reynum að fara í þrjár eða fjórar góðar Ijallaferðir á hverjum vetri,“ segja þau Kristín og Amar. Amar vinnur vaktavinnu hjá Áburðarverksmiðjunni, þar sem hann er vélgæslumaður, en Kristín er meinatæknir á sýklafræðideild Landspítalans, og það starf kallar líka stundum á vaktir. „Við reynum þó að haga því þannig til að við get- um átt eina góða helgi saman í hverjum mánuði og þá er reynt að halda til fjalla. Yfirleitt er farið saman í hóp, 3 til 4 bílar í einu, oftast sömu kunningj- arnir, en oft dettum við inn í aðra hópa, einkum í vinnuferðum á veg- um klúbbsins, en farið er í slíkar ferðir á sumrin og haustin inn í Set- ur sem er fjallaskáli Ferðaklúbbsins 4x4, sunnan við Hofsjökul. Við fömm ekki til útlanda, viljum frekar skoða landið okkar sem hef- Fullreynt í fjórða sinn: Skipt um gírkassa fyrir stóru ferðina „Það má segja að þetta hafi verið fullreynt í fjórða sinn,“ sögðu þeir Þórarinn Guð- mundsson og Steinmar Gunn- arsson, félagar i Ferðaklúbbn- um 4x4, þegar við hittum þá á litlu verkstæði sem þeir deila með nokkrum öðrum úr klúbbnum, þar á meðal þeim Arnari og Kristínu sem rætt er við á öðrum stað í blaðinu í dag. „Við fórum í könnunarferð inn í Nýjadal til að skoða að- stæður fyrir stóru jeppaferð- ina um næstu helgi,“ sagði Þórarinn sem er betur þekkt- ur í hópi 4x4-manna sem Tóti. „Á leiðinni til baka gaf gír- kassinn í Mözdunni hjá Stein- mari sig og við urðum að keyra til baka í fjórða gír.“ Bíll Steinmars er Mazda 2600 og er á 44 tomma dekkj- um, líkt og bílar hinna sem deila með sér þessu litla verk- stæöisplássi, og nú á að setja í hann miklu sterkari kassa. Það em orð að sönnu því gír- kassinn úr stóra Wagoneem- um, sem átti að fara í staðinn, er nærri helmingi stærri og þurftu þeir félagarnir að breyta festingum og smíða millistúta svo hægt væri að koma honum fyrir. Eins og hinir bílamir á verkstæðinu og á fjölda ann- arra verkstæða úti um allan bæ átti Mazdan hjá Steinmari að verða tilbúin í slaginn um næstu helgi. -JR Steinmar Gunnarsson og Þórarinn Guðmundsson meö gírkassana tvo, þann minni úr Mözdunni sem gafst upp í fjóröa sinn undan átökunum frá aflmikilli véiinni og stóru dekkjunum, og viö hliöina má sjá kassa úr Wagoneer sem kemur í staöinn. DV-mynd Þjetur

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.