Dagblaðið Vísir - DV - 24.03.1997, Blaðsíða 1

Dagblaðið Vísir - DV - 24.03.1997, Blaðsíða 1
MÁNUDAGUR 24. MARS 1997 21 IÞROTTIR Getraunir: Enski boltinn 221 x1x2x21xx1 Lottó 5/38: 314 2025 33(35) iiiliiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii Júlíus kjörinn formaður Júdósambandsins og er kominn í ólympíunefnd Júlíus Hafstein, fyrrum formaður Ólympíuneöidar íslands, var á laug- ardaginn kjörinn formaður Júdósambands íslands í stað Kolbeins Gísla- sonar og mun hann jafhframt taka sæti í ólympíunefndinni sem fúlltrúi júdósambandsins í stað Kolbeins. Ekki eru margar vikur liðnar síðan Júlíus hætti sem formaður Óí en hann fékk ekki kosningu í neöidina á aðalfundi ólympíunefndarinnar. í stað Júlíusar í formannsætið var kjör- inn Ellert B. Schram, forseti ÍSÍ. „Við tókum þá ákvörðun á fyrsta stjómarfundi að ég tæki sæti júd- ósambandsins í Ólympíuneöid íslands, á míniun heimavelli. Ég er mjög ánægður með þann trúnað og það traust sem mér er sýnt og þetta kom óvænt. Ég er ánægður að þetta skuli hafa þróast í þessa átt eöir það sem á undan er gengið," sagði Júlíus í samtali við DV í gær. „Ég mun auðvitað vinna vel að þessu verkefni og fylgjast vel með því sem þar er að gerast. Júdóhreyfingin hefur verið fulltrúi á Ólympíuleik- um síðustu 20 árin og hefúr náð einna bestum árangri. Það eru aðeins öjálsar íþróttir og sund sem státa af því sama. Það er mikill efniviður í júdóíþróttinni og mörg verk að vinna,“ sagði Júlíus Hafstein ennfremur. Hin nýja stjóm Júdósambands íslands er þannig skipuð: Júlíus Haf- stein, formaður, Magnús Ólafsson, Karel Halldórsson, Ásgeir Aðal- bjamarson, Guðmundur Einar Halldórsson, Jón Hlíðar Guðjónsson og Kolbeinn Gislason, fráfarandi formaður. -GH Bjarki tæpur gegn Frömurum Bjarki Sigurðsson, leikmaður Aftureldingar, hefur ekki getað stigið í annan fótinn síðan eftir leikinn gegn FH í 8-liða úrslitun- um. Það er slæmt mar á hælnum sem er að angra hann auk þess sem hann er meiddur í nára. „Ég verð sprautaður fyrir leikinn gegn Fram og það veröur bara að koma í Ijós hvemig það kem- ur út,“ sagði Bjarki við DV í gær. -GH Eford í tveggja leikja bann Aganeöid körfuknattleikssam- bandsins úrskurðaði Rony Eford, leikmann KR, í tveggja leikja bann á laugardaginn. Eford sló Albert Óskarsson í þriðja leik KR og Keflavíkur Bannið tekur þó ekki gildi fyrr en á fostudag og Eford tekur það ekki út nema hann spili hér á landi næsta vetur. -VS SA meistari Skautafélag Akureyrar varð íslandsmeistari í íshokkí á laug- ardagskvöldið með því að sigra Bjöminn, 12-5, í Reykjavík. SA hafði unnið tvo fyrstu leiki lið- anna sem fram fóra á Akureyri, 15-7 og 17-7. Akureyringar hafa þar með orðið meistarar sex ár í röð. -VS Þorbjörn áfram með landsliðið? „Ég reikna með því að Þorbjöm verði áfram hjá okkur. Það eindreginn viiji hiá HSÍ að Þorbjöm verði endurráðinn. Hann hefúr unniö mjög gott starf og ég vona aö við getum gengið frá samningum við hann sem fyrst,“ sagði Guðmundur Ingvarsson, for- maöur handknattleikssambands íslands, við DV. Eins og DV skýrði frá fyrir skömmu fékk Þorbjörn freistandi þjálfaratilboð frá norska félaginu Drammen en samningur hans við HSÍ rennur út eftir HM í Japan í vor. Samkvæmt heimildum DV liggur á borð- inu nýr samningur við Þorbjöm sem mun gilda fram yfir ólympíuieikana í Sydney árið 2000. -GH Skammarleg hegðun Valsmanna eftir tapið gegn Haukum: Dómari sleginn í höfuðið Leikmenn og stuðningsmenn Vals tóku ósigrinum gegn Haukum í 8-liða úrslitinum í 1. deild karla í handknattleik á föstudagskvöld ákaflega illa. Þeir vildu kenna dómurunum um hvemig fór og veittust að þeim í leikslok með þeim afleiðingum að Sigurgeir Sveinsson, annar dómari leiksins, var sleginn í höfuðið af einum stuðningsmanni Vals. Sigurgeir meiddist ekki alvarlega en hann hruflaðist á enni eftir höggið. Leikmenn Vals, stjómarmenn og skapheitir stuðningsmenn félags- ins létu skammimar dynja á þeim Sigurgeiri og Gunnari Viðarssyni og þessi framganga Valsmanna í leikslok setti svartan blett á ann- ars frábæra skemmtun, sem leik- urinn var, og var Hlíðarendafélag- inu til mikilla vansa. Dómgæsla þeirra Gunnars og Sigurgeirs var lengst af góð en segja má að Valsmenn hafi fengið nokkra vafasama dóma á sig undir lokin sem afsaka þó ekki þessa hegðun þeirra í lokin. Dómaramir svo og Óli Ólsen, eftirlitsmaður á leiknum, mimu skila inn skýrslu til aganefndar HSí vegna þessa atviks. -GH 25 ára gömul hefö rofin Valur, FH og Víkingur hafa einokað íslandsmeistaratitilixm í 1. deild karla í handknattleik síð- ustu 25 árin en nú er ijóst að að ekkert þessara félaga hampar bikamiun eöir tap Vals gegn Haukum á föstudagskvöldið. Af þeim fiórum félögum sem era komin í undanúrslit era það aðeins Haukar og Fram sem hafa orðið íslandsmeistarar. Haukar einu sinni, fyrir 54 árum eða árið 1943 en Fram hefur átta sinnum orðið meistari, síðast árið 1972 og síðan þá hafa Vík- ingur, Valur og FH skipt titlin- um á milli sín. Valsmenn hafa verið mjög sigursælir undanfar- in áratug. Þeir hafa orðið meist- arar síðustu fjögur árin og sjö sinnum á síðustu 10 árum. -GH

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.