Dagblaðið Vísir - DV - 24.03.1997, Síða 2
22
MÁNUDAGUR 24. MARS 1997
íþróttir
JOV
KR (43) 95
Keflavík (52) 100
12-16, 25-20, 34-32, 36-50, (43-52),
55-54, 57-71, 68-76, 84-84, 85-95, 91-96,
95-100.
Stig KR: Hermann Hauksson 25,
Jónatan Bow 20, Rony Eford 20, Ingv-
ar Ormarsson 12, Gunnar örlygsson
10, Hinrik Gunnarsson 4, Björgvin
Reynisson 4.
Stig Keflavíkur: Damon Johnson
25, Kristinn Friðriksson 24, Guðjón
Skúlason 20, Falur Harðarson 15, Al-
bert Óskarsson 11, Birgir öm Birgis-
son 4, Gunnar Einarsson 1.
Fráköst: KR 28, Keflavik 33.
3ja stiga körfur: KR 8, Keflavík
11.
Dómarar: Helgi Bragason og
Kristinn Albertsson, höfðu mjög góð
tök á leiknum.
Áhorfendur: 300.
Maður leiksins: Kristinn Frið-
riksson, Keflavík.
vik i
úrslit
- vann KR 3-1
Hinrik Gunnarsson úr KR grípur Keflvíkinginn Damon Johnson heljartökum
víkingar fengu vítaskot og héldu síöan boltanum.
Keflvíkingar eru komnir í úrslit
íslandsmótsins í körfuknattleik gegn
Grindavík annað árið í röð eftir sigur
á KR-ingum í fjörugum leik á Nesinu
í gær.
„Við vissum að þeir gæfust ekki upp
því þetta var þeirra síðasti möguleiki.
Við lékum ekkert sérstaklega vel í dag,
við þurftum engan stórleik til þess að
sigra þá enda erum við einfaldlega betri
en þeir,“ sagði Sigurður Ingimundar-
son, þjáífari Keflvíkinga, eftir leikinn.
Sigurður sagðist ánægður að vera
kominn með liðið í úrslit. „Leikimir
gegn Grindavík leggjast vel í mig og það
verður góð stemning fyrir þessum leik-
um tveggja bestu liða landsins.“ sagði
Sigurður.
Sigurður hafði talsvert við störf aga-
ne&dar KKÍ að athuga og sagði það
hneyksli að Roni Eford, leikmaður KR,
hefði aðeins fengið tveggja leikja bann.
„Hann hefði átt að fá mim lengra bann
og það strax. Ársbann hefði verið nær
lagi.“
Leikur liðanna var jafii og skemmti- I
legur en nokkuð sveiflukenndur. Kefl- j
víkingar voru þó yfirleitt með frum-
kvæðið og ávallt fljótir að taka sig á ef
KR-ingar komust of nálægt eða yfir.
Hermann, Jónatan voru bestir hjá
KR, en Eford virkaði utan við sig og
gerði mikið af mistökum. Liðsheild-
in hjá Keflavík var sterk með Krist-
in í miklu stuði og Damon og Guð-
jón góða. Falur fór mikinn í fyrri
hálfleik og Albert skilaði sínu i
vörninni að vanda.
„Við náðum því sem við ætl-
uðum og vorum inni i leiknum
alveg þangað til í lokin að þeir
reyndust sterkari. Með smá-
heppni hefði við getað unn-
ið. Við erum ekki búnir að L
þróa leik okkar jafh mikið J
og þeir enda allt of mikl- /
ar breytingar á liðinu í
vetur. En það tókst
eða vera í hópi 3-4
bestu liðanna,1
sagði Hrannar
Hólm, þjálfari
KR-inga.
f leik liðanna í gær. Þetta þóttu að vonum fullharkalegar varnaraðgerðir og Kefl- \ -BL
Fimleikar:
Tvöfaldur
sigur
gegn írum
ísland vann auðveldan sigur, og þaö tvö-
faldan, í landskeppni í fimleikum í Laugar-
dalshöllinni á laugardaginn. ísland A sigraði
með 128,150 stig, ísland B kom næst með
120,825 stig og írland rak lestina með 116,900
stig.
Elva Rut Jónsdóttir sigraði sem einstak-
lingur með 34,850 stig. Elaine Duggan frá ír-
landi kom næst með 32,200 stig og þriðja
varð Elín Gunnlaugsdóttir með 32,050 stig.
Lið Austurríkis og Norður-írlands hafa
venjulega tekið þátt þessari landskeppni,
sem nú var haldin í þriðja sinn. Noröur-írar
treystu sér ekki til að vera með í þetta skipti
vegna nýrra keppnisrreglna sem voru í gildi
og Austurríki afboðaði þátttöku sína tíu dög-
um fyrir mótið vegna meiðsla og veikinda.
-VS
Eva Þrastardóttir lelkur listir sfnar f gólfæfingunum f landskeppninni á laugardaginn.
DV-mynd Hilmar Þór
Kristján stiga-
meistari
í snóker
Kristján Helgason tryggði sér í gær stiga-
meistaratitilinn í snóker þegar hann sigraði
Jónas P. Erlingsson, 3-1, f úrslitaleik síðasta
stigamóts vetrarins.
Jóhannes B. Jóhannesson var sá eini sem átti
möguleika til þess að skáka Kristjáni. Til þess
þurfti hann að slá Kristján út í átta manna úr-
slitum og vinna síðan mótið. Jóhannes freistaði
þess að lenda í fjórða sæti í sínum riðli til að
lenda á móti Kristjáni. Sú ráðagerð fór út um
þúfur því Jóhannes misreiknaði sig örlítið og
lenti í fimmta sæti í riðlinum!
Kristján fékk samtals 283.000 stig, Jóhannes B.
Jóhannesson 186.343, Jóhannes R. Jóhannesson
74.000, Ásgeir Ásgeirsson 73.592, Gunnar Hreið-
arsson 63.875, Bemharð Bemharðsson 42.029,
Jónas P. Erlingsson 41.000 og Bjami Jónsson
39.686.
Kristján hefur þar með tryggt sér sæti á
heimsmeistaramótinu í Zimbabwe næsta vetur.
Hitt sætið fær íslandsmeistarinn, og hreppi
Kristján líka þann titil fer Jóhannes B. Jóhann-
esson á HM. -VS