Dagblaðið Vísir - DV - 24.03.1997, Side 8
28
MÁNUDAGUR 24. MARS 1997
íþróttir
Michael Jordan tekur frákast f leik Chicago vifi Indiana um
helgina og Dennis Rodman er til taks ef eitthvafi fer úr-
skeifiis. Sfmamynd Reuter
NBA-deildin í körfuknattleik:
„Ætlum að vinna
hvem einasta"
- Chicago vann Indiana og Detroit
Chicago ætlar ekkert að gefa eftir þrátt
fyrir yfirburðastöðu sína. Um helgina vann
liðið tvo mjög örugga sigra, gegn Indiana og
Detroit. Michael Jordan skoraði 36 stig gegn
Indiana en gegn Detroit var Scottie Pippen í
aðalhlutverki og skoraði 26 stig þrátt fyrir
að vera hvildur allan fjórða leikhlutann.
„Okkar markmið er að vinna hvern ein-
asta leik. Doug Collins (þjálfari Detroit)
þjálfaði mig og er mikill vinur minn en þeg-
ar ég fer inná körfuboltavöll reyni ég að
sigra, sama hver mótherjinn er,“ sagði Jord-
an. „Það er engin spuming að Chicago er
besta liðið í deildinni. Þeir yfirspiluðu okk-
ur á öllum sviðum íþróttarinnar," sagði
Doug Collins, sem þjálfaði Chicago á sínum
tíma.
Sigurganga Portland rofin
Ellefu leikja sigurganga Portland var loks
rofin í fyrrinótt þegar liöið tapaði í Was-
hington, 108-104. Sigurgangan hófst um leið
og blaðaskrif fóru af stað um að P.J. Car-
lesimo, þjálfari liðsins, yrði rekinn. Hann
hefur heldur betur fest sig í sessi síðan.
Phoenix hefur heldur betur sótt sig og
vann góðan útisigur í Houston. Phoenix, sem
tapaði fyrstu 13 leikjum sínum í vetur, er nú
komið í áttunda sæti vesturdeildarinnar og
sttefnir í úrslitakeppnina. Charles Barkley
er enn meiddur og lið Houston er í vanda án
hans, og það skipti ekki máli þó Hakeem
Olajuwon gerði 39 stig fyrir heimaliðið.
Sætur sigur Milwaukee
Milwaukee vann sætan sigur á New York,
80-79, þann fyrsta á heimavelli í viðureign-
um liðanna í sjö ár. Samt skoraöi Milwaukee
aðeins 10 stig í síðasta leikhluta. New York
gerði átta síðustu stig leiksins, lokakörfúna
þegar enn voru tæpar tvær mínútur eftir, en
heimaliðið hélt út í lokin þrátt fyrir að New
York fengi fjölda færa til að tryggja sér sig-
urinn. -VS
ASKRIFTARFERÐIR
DV OG FLUGLEIÐA
NLI
j/í
1 j y i a ^
Virmingur
Einn heppinn askrifandi DV er
dreginn út í viku hverri
og hreppir ferð fyrir tvo
til St. Petersburg Beach í Florida
ásamt gistingu í eina viku.
Sólarstundin nálgast
Heppinn áskrifandi DV verður dreginn
út næsta miðvikudag.
Nöfn vinningshafa verða birt í
DV-Ferðum í Helgarblaði DV.
Ert þú heitur?
Allir skuTdlausir áskrifendur DV,
nýir og núverandi, eru með
í sólarpottinum.
DV-Ferðir alla
laugardaga
Alla laugardaga er umfjöllun
í DV-Ferðum þar sem er að
finna upplýsingarog
vandaðar frásagnir um
ferðalög innanlands og utan.
Sóiarhöfuðborg Fiugleiða í ár.
Sannkailaö ævintýri fyrír ai!a
fjöiskyiduna.
St Peterburg Beach er einn vinsæiastí
áfangastaöursóiþyrstra Ísiendínga í
Fiorida. Par bjóöast nær óteijandi
tækífæri tii hvers konar skemmtunar og
útivistar, góðir gistístaðir, yndisieg
strönd, írábær aðstaöa fyrír ferðamenn,
þar sem aflt er í boðí, og
hagstætt verðlag.
íslenskur fararstjóri verður á St.
Petersburg Beaeh 27.5. - 2.9. í ferðum
sem hefjast á þriöjudögum og lýkur á
mánudögum.
FLUGLEIDIR
Traustur íslenskur ferðafélagt
DV
NEA-ÐEILDIN
Aðfaranótt laugardags:
Boston-Orlando ..........99-104
Walker 19, Wesley 19, Williams 17 -
Hardaway 27, Seikaly 17, Armstrong 17.
Toronto-Charlotte .......97-102
Stoudamire 29, Camby 16, Wright 14 -
Rice 27, Bogues 17, Pierce 16.
Philadelphia-New Jersey 112-110
Stackhouse 31, Williams 20, Iverson
19 - Gill 33, Cassell 28, Kittles 14.
Miami-LA Lakers...........98-97
Lenard 25, Hardaway 21, Mashbum 21
- Campbell 24, Van Exel 20, Jones 17.
Atlanta-Dallas............93-77
Blaylock 20, Laettner 18, Corbin 17 -
Bradley 17, Harper 11, Watson 10.
Detroit-Minnesota .......112-98
Hiil 22, Thorpe 20, Dumars 18 - Gugl-
iotta 18, K.Gamett 16, D.Gamett 15.
Indiana-Chicago..........98-117
Smits 20, Miller 18, Ferrell 14 -
Jordan 36, Pippen 18, Longley 15.
Vancouver-Denver........109-101
Reeves 31, Rahim 24, Peeler 14 -
McDyess 29, D.Ellis 26, L.Ellis 20.
Sacramento-San Antonio 114-110
Richmond 28, Williamson 17, Rauf 16 -
Wiiliams 31, Del Negro 25, Maxwell 16.
Aðfaranótt sunnudags:
Washington-Portland ... 108-104
Webber 26, Strickland 22, Muresan 17
- Rider 28, Wallace 25, Sabonis 20.
Charlotte-Golden State ... 100-93
Rice 24, Curry 21, Bogues 17 -
Smith 31, Mullin 22, Sprewell 14.
Chicago-Detroit .........103-88
Pippen 26, Jordan 23, Longley 16 -
Hill 16, Thorpe 14, Dumars 13.
Dallas-Cleveland .........72-75
Finley 22, Harper 16, Bradley 13 -
Hiil 24, Ferry 16, Phills 13.
Houston-Phoenix .........99-104
Olajuwon 39, Drexler 17, Wiilis 12 -
Chapman 27, Johnson 21, Manning 15.
Milwaukee-New York........80-79
Gilliam 20, Baker 16, Robinson 16 -
Ewing 25, Johnson 15, Oakley 12.
Utah-LA Clippers.........107-94
Malone 20, Stockton 19, Homacek 14 -
Sealy 19, Rogers 18, Vaught 16.
Seattle-Sacramento.......113-99
Hawkins 22, Kemp 16, Wingate 14 -
Richmond 25, Rauf 21, Wiiliamson 12.
John Starks var settur í eins leiks
bann hjá New York um helgina eftir
að hafa lent i rifrildi við þjálfarann,
Jeff Van Gundy, fyrir æfmgu á fóstu-
dag. Hann lék því ekki með gegn
Milwaukee en átti að spila gegn
Portland í gærkvöldi.
Nick Van Exel hjá LA Lakers var
um helgina sektaður um 1,1 milljón
króna af stjóm NBA-deildarinnar.
Eftir ósigur 1 Miami á föstudags-
kvöldið, þar sem umdeildur dómur
féll Miami I hag á lokasekúndunum,
ásakaöi Van Exel dómarana um að
hafa þegið mútur. Hann sendi þeim
síðan skriflega afsökunarbeiðni og af
þeim sökum var ákveðið að dæma
Van Exel ekki í leikbann.
Anthony Mason, hinn öflugi
framherji hjá Charlotte, veröur frá i
tvær til þrjár vikur vegna meiðsla á
fæti. Mason hefúr náö „tvöfaldri
tvennu" oftast af öllum leikmönnum
NBA-deildarinnar 1 vetur og hefur
líka spilað flestar minútur af öllum á
tímabilinu.
Alonzo Mouming, miðherji Mi-
ami, spilar væntanlega næsta leik
liösins efír að hafa misst af síðustu
þrettán vegna meiðsla.
Golf:
Olazabal vann
Spænski kylfingurinn Jose
Maria Olazabal sigraöi á
Turespana meistaramótinu í
golfi sem lauk á Kanaríeyjum í
gær.
Olazabal, sem er nýbyrjaður
aö spila aftur eftir að hafa veriö
frá vegna meiðsla í 18 mánuði,
lauk keppni á 272 höggum eða 20
höggum undir pari vallarins.
Hann var í forystu allt mótið og
tryggði sér sigurin meö því að
fara síðasta hringinn á 67 högg-
um. í ööru sæti var Bretinn Wa-
yne Westwood, tveimur höggum
á eftir Olazabal.
-GH