Dagblaðið Vísir - DV - 25.04.1997, Side 8

Dagblaðið Vísir - DV - 25.04.1997, Side 8
FÖSTUDAGUR 25. APRÍL 1997 'íi 'tsm » Wn helgina Jómfmnni Söngkonan Tena Palmer flytur jasslög ásamt Póröi Högnasyni, Hilmari Jenssyni og Pétri Grétarssyni á Jómfrúnni í kvöld. í kvöld verða jasstónleikar á Jóm- frúnni, Lækjargötu 4, á vegum jass- klúbbsins Múlans. Þá stígur á svið- ið hljómsveit, skipuð þeim Tenu Paimer söngkonu, Þórði Högnasyni bassaleikara, Hilmari Jenssyni gít- arleikara og Pétri Grétarssyni slag- verksleikara. Á efnisskránni eru jasslög sem enn sem komið er mega teljast sjald- heyrð, þó svo að í hinum víða , jass- kosmós" séu þau talin með klassísk- um verkum. Tónleikarnir hefjast stundvíslega kl. 21 og er miðaverð 1000 kr. en 500 fyrir nemendur og eldri borgara. Frændkórinn í Fálagslundi Á morgun heldur Frændkórinn tónleika að Félagslundi í Gaulverja- bæjarhreppi. Tónleikarnir hefjast kl. 15 og á efhisskrá eru einkum vorleg, íslensk og erlend þjóðlög. Frændkórinn var stofnaður í byrjun árs 1991 þegar bamaböm Þórunnar Pálsdóttur og Jóns Gísla- sonar frá Norðurhjáleigu komu saman í undirbúningi fyrir niðja- mót sem haldið var þá um sumarið. Frændkórinn hefur starfað reglu- lega síðan og allt þar til í haust und- ir stjórn eins barnabarnanna, Eyrúnar Jónasdóttur í Kálfholti. Kórinn starfar nú undir stjórn Sig- rúnar Þorgeirsdóttur. i vetur var kórinn opnaður fyrir öllum afkom- endum Þórunnar og Jóns og hefur því þriðji ættliður bæst í hópinn. Auk ættartengsla á Frændkórinn sér þá sérstöðu að kórfélagar eru búsettir víða um Suðurland, allt frá Mosfelisbæ austur í Landeyjar. Dönsk teiknimynd í Norræna húsinu Norræna húsið hefur boðið upp á kvikmyndasýningar fyrir börn á stmnudögum og verður engin undantekning þar á um helgina. Á sunnudaginn, kl. 14, verður sýnd danska teikni- myndin Strit og Stumme. Þar fá áhorfendur að kynnast stelp- unni Strit og stráknum Stumme sem búa neðanjarðar því öllu lífi á jörðinni hefur nánast -verið eytt. Strit og Stumme heyra sögur um bláan himin og blómstrandi engi, um lífið ofanjarðar þar sem rot- turnar ráða ríkjum. Þeim finnst þetta fjarstæðukenndar sögur en dag einn leggja þau af stað upp. Leiðin upp á yfirborð jarðar er löng og ströng en allt fer vel að lokum eins og í öllum góðum ævintýrum um barátt- una miiii góðs og iils. Myndin er með dönsku tali og eru allir velkomnir. Aðgangiu- er ókeyp- is. Tjarnarkvartettinn heldur tónleika Tjarnarkvartettinn úr Svarf- aðardal heldur tónleika í Borg- amesi og Grundarfirði á sunnu- dag og mánudag á vegum verk- efnisins Tóniist fyrir alla. Fyrri tónleikamir verða í Borgames- kirkju ki. 21 á sunnudagskvöld- ið en í Grundarfirði syngur kvartettinn í Grannskóla Eyrar- sveitar á mánudagsmorgun og í Grundarfjarðarkirkju um kvöld- ið, ki. 20.30. Efnt er til þessara tónleika nú vegna þess að ófærð raskaði áætlun tónlistarfólksins þegar það fór um Vesturland í mars og söng fyrir liðlega 2000 nemendur á 20 skólatónleikum og efndi auk þess til söng- skemmtunar fyrir almenning fjögur kvöld. Tjarnarkvartettinn verður í Borgarnesi og Grundarfirði á sunnudag og mánudag. Á þessu ári eru liðin 100 ár frá því að Eyrarbakkahreppur var stofnaður með skiptingu Stokkseyr- arhrepps hins foma í tvö sveitarfé- lög. Hreppsnefnd Eyrarhakkahrepps ákvað á síðasta ári að minnast þess- ara tímamóta með hátíðahöldum. Sérstök afmælisnefnd var skipuð og hefur hún nú sett niður heilmikla dagskrá sem hófst í gær en hátíða- höldin standa fram eftir sumri. í gær var opnuð myndlistarsýn- ing í samkomuhúsinu Stað þar sem sýnd verða verk eftir Rut Magnús- dóttur í Sólvangi á Eyrarbakka. Rut er uppalin í sveit í norðurhlíðum Alpafjalla. Hún sótti skóla í Inns- brack og Múnchen og er menntuð í plöntufræði og kirkjutónlist. Rut og eiginmaður hennar, Níls Ólafsson, búfræðingur frá Noregi, komu til ís- lands 1955 til tímabundinnar dvalar en ilentust hér. Áriö 1963 keyptu þau býlið Sólvang við Eyrarbakka og hafa stundað þar búskap síðan. Á sýningunni eru sýndar 39 vatnslitamyndir og vatnslitaðar pennateikningar Rutar ásamt klippimyndabókum og fjórum eldri skissubókum. Sýningunni lýkur á sunnudaginn. Um næstu helgi verður svo opnuð ljósmyndasýning Völu Dóru Jóns- dóttur í samkomuhúsinu Stað. Eyrarbakkahreppur 100 ára Eyrarbakkahreppur á 100 ára afmæli og verður þeirra tímamóta minnst með ýmsum hætti. NIESSUR Árbæjarkirkja: Gudsþjónusta kl. I 11. Eftir guðsþjónustuna verður haldinn kökubasar. Allur ágóði I rennur til fjölskyldu Elfars Arnar | Kristjánssonar, skipveija á varð- skipinu Ægi, sem fórst af slysför- um við björgunarstörf. Prestamir. Áskirkja: Guðsþjónusta kl. 11. Ami Bergur Sigurbjömsson. Breiðholtskirkja: Barnaguðs- þjónusta kl. 11. Guðsþjónusta á sama tíma. Samkoma Ungs fóiks með hlutverk kl. 20. Gísli Jónas- son. Bústaðakirkja: Bamamessa kl. | 11. Foreldrar hvattir til þátttöku með börnunum. Guðsþjónusta kl. 14 með þátttöku barnakórs kirkj- 1 unnar undir stjóm Ágústs Val- garðs Ólafssonar. Tónleikar kórs- | ins og kaffisala að lokinni guðs- þjónustu. Pálmi Matthíasson. :! Digraneskiriqa: Messa kl. 11. | Altarisganga. Bamaguðsþjónusta á sama tíma. Dómkirkjan: Messa kl. 11. Prest- *í ur sr. Hjalti Guðmundsson. Dóm- | kórinn syngur. Bamasamkoma kl. 13 í kirkjunni. ! Elliheimilið Grund: Guðsþjón- 1 usta ki. 10.15. Sr. Gylfi Jónsson. Eyrarbakkakirkja: Messa kl. 14, : ferming. Sóknarprestur. j FeUa- og Hólakirkja: Guðsþjón- usta kl. 11. Prestur sr. Hreinn Hjartarson. Bamaguðsþjónusta á sama tíma. Öll 5 ára börn í Fella- i söfnuði sérstaklega boðin til guðs- S þjónustunnar. Prestamir. j Grafarvogskirkja: Barnaguðs- þjónusta kl. 11. Bamakór Grafar- I vogskirkju syngur. Fermingar- | messa kl. 13.30. Kór Grafarvogs- < kirkju syngur. Prestarnir. Grensáskirkja: Bamastarfið: Vorferðalag sunnudagaskólans. Farið í rútuferð til Þingvalla. Lagt af stað frá Grensáskirkju kl. 11. Áætluð heimkoma kl. 15.30. | Messa kl. 11. Prestur sr. Halldór | S. Gröndai. Hafnarfjarðarkirkja: Guðsþjón- * usta kl. 14. Skátar í st. Georgs- gildi heimsækja kirkjuna og halda ;; kaffisamsæti sitt eftir guðsþjón- :;! ustuna í safhaðarheimilinu | Strandbergi. Prestur sr. Gunnþór Ingason. Tónlistarguðsþjónusta kl. 18. Jóhanna Linnet syngur. Prest- 5 ur séra Þórhiidur Ólafs. Hallgrímskirkja: Messa og | bamasamkoma kl. 11. Sr. Jón Bjarman. Ensk messa kl. 14. Sr. Toshiki Toma. Landspítalinn: Messa kl. 10. Sr. Ingileif Malmberg. Hjallakirkja: Guðsþjónusta kl. 11. Dr. Siguijón Ami Eyjólfsson héraðsprestur þjónar. Prestamir. ; Háteigskirkja: Bamaguðsþjón- usta kl. 11. Messa kl. 14. Sr. Helga ! Soffia Konráðsdóttir. Kópavogskirkja: Lokasamvera | baraastarfsins verður í safnaðar- * heimilinu Borgum kl. 11. Guðs- þjónusta kl. 11. Kór Kópavogs- i kirkju syngur. Ægir Fr. Sigur- geirsson. Langholtskirkja: Kirkja Guðs- | brands biskups. Messa ki. 11. Sr. s Ragnar Fjalar Lámsson prófastur | setur Svölu Sigríði Thomsen inn í I embætti og vísiterar söfuðinn. { Bamastarfkl. 13. Laugarneskirkja: Guðsþjónusta 6 kl. 11. Lokahátíð bamastarfsins. i Félagar úr Kór Laugarneskirkju syngja. Guðsþjónusta kl. 14 í | Sjálfsbjargarhúsinu, Hátúni 12. | Ólafur Jóhannsson. Lágafellskirkja: Guðsþjónusta kl. 14. Sr. Jón Þorsteinsson. Neskirkja: Bamasamkoma ki. 11. Guðsþjónusta kl. 11. Athugið breyttan tíma. Sr. Frank M. Hall- | dórsson. K Óháði söfnuðurinn: Guðsþjón- | usta kl. 14. Barnastarf á sama tíma. Lok bamastarfsins. Aðal- fundur safnaðarins og maul eftir S messu. Seljakirkja: Guðsþjónusta kl. 14. 1 Altarisganga. Sr. Ágúst Einarsson S prédikar. Kökubasar yngri deildar | KFUK verður haldinn eftir guðs- ! þjónustuna. Sóknarprestur. S Seltjarnarneskirkja: Messa kl. , 11. Prestur sr. Hildur Sigurðar- I dóttir. Barnastarf á sama tíma.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.