Dagblaðið Vísir - DV - 25.04.1997, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 25.04.1997, Blaðsíða 10
FÖSTUDAGUR 25. APRÍL 1997 JÖ> V 32 %yndbönd *> • ----- Þaö gengur mikiö á hjá Chris Farley í The Black Sheep eins og sjá má á myndinni. bransanum hefur miöast við að skemmta Bandaríkja- mönnum og er hann mjög fastur í þeim skorðum. Hefur það oftlega komið í Ijós að húmor Bandaríkja- manna og Evrópubúa fer ekki saman og er Farley kannski ein besta sönnun þess. Það er þó miður að Evrópubú- ar hafa ekki séð til hans þegar hann hermir eftir írægum skemmtikröft- um og söngvurum þvi hann þykir með þeim allra bestu í þeim geira skemmtiiðnaðarins. Chris Farley hafði í raun aldrei ætl- að af neinni alvöru í kvikmyndimar og hafði aðeins leikið nokkur smáhlut- verkum í kvikmyndum þegar honum var boðið aðalhlutverkið í Tommy Boy. Var það aðallega frammistaða hans í Waynes World- myndunum tveimur sem gerði það að verkum að hann fékk stóra tækifærið sem hann nýtti sér svo til fúils. Rmm áríþátta- röðinni Satnr- day Night Live Chris Farley for sömu leið á framabrautinni og margir af þekktustu gamanleikurum í Bandaríkjunum. Hann var í funm ár einn af meðlimum grínhópsins í þátta- röðinni vinsælu, Saturday Night Live. Chris Farley fæddist í Madison í Wisconsin-ríki og áður en hann sneri sér að skemmtanabransanum að fúllu útskrifaðist hann frá Marquette Uni- versity með gráðu í fjölmiðlafræði og leikhúsi. Meðan á námi stóð skemmti hann í ýmsum klúbbum og lék meðal annars með þekktum leikhópi sem heitir The Ark Improvisational Theatre Group. Leið hans lá síðan tO Chicago þar sem hann skemmti í tvö ár í ýmsum klúbbum og varð stöðugt vinsæUi. Þar sá þekktur leikhúsmað- ur, Del Close, hann og í gegnum hann var Farley ráðinn í þættina Saturday Night Live, þar sem hann var síðan í fimm ár, og var hann orðinn aðal- stjama þáttanna þegar hann hætti. Á þessum fimm árum skapaði Chris Farley margar eftirminnUegar persón- ur, auk þess sem eftirhermur hans voru með hvUíkum ágætum að þær einar hefðu getað haldið nafni hans á lofti. Á meðal þekktra per- sóna sem hann náði góðum tök- um á má nefna tónlist- armennina Jerry Garcia, Meatloaf og Mama Cass, leikarann Tom Amold og þingmann- inn Newt Gingrich. Það sem hefur háð Chris Farley sem gaman- leikara að mati Evrópu- búa er að hann á erfitt með að losna úr viðjum sjónvarpsins. Myndir hans em geysihraðar, nánast farsar, og það er með ólíkindum hvemig hann getur látið með öU þessi kUó framan á sér. Virðist hann ekkert hafa fyrir því að láta öUum iUum látum, hvort sem það er í gervi rokkstjömu á sviði eða í slagsmálum, þyngdin hefur engin áhrif. En þótt mörg atriði séu kostuleg og skemmtUeg era samt margar brotalamir í uppbyggingu mynda hans og heUdin ekki upp á marga físka. Það er samt ekki hægt að neita því að hann er stundum bráðfyndinn. Næsta kvikmynd Chris Farleys er Edwards & Hunts og er mótleikari hans Matt- hew Perry úr þáttaröðinni vinsælu, Friends. -HK f Tommy Boy lék Chris Farley son verksmiöjueiganda sem taka á viö fjöl- skyldufyrirtækinu. Chris Farley hafði í raun aldrei ætlað af neinni al- vöru í kvikmyndirnar og hafði aðeins leikið nokkur smáhlutverk þegar honum var boðið aðalhlutverkið í Tommy Boy.Var það aðal- lega frammistaða hans í Waynes World-myndunum tveimur sem gerði það að verkum að hann fákk stóra tækifærið. mörgu leyti skUjanlegt. AUt hans upp- eldi í skemmti- Chris Farley sem karatemeistarinn Haru í nýjustu mynd sinni, The Beverly Hills Ninja. Fituhlunkurinn og grínistinn Christ Farley hefúr átt mikUli vel- gengni að fagna í Bandaríkjunum und- anfarin misseri. AUar þær þijár kvik- myndir sem hann hefur leikið aðal- hlutverk í hafa slegið í gegn. Fyrst var það Tommy Boy þar sem hann lék son verksmiðjueiganda sem hefur ekki mikla hæfileika tU að taka við fyrir- tæki fóður síns. Hann er þvi sendur í söluferð ásamt eftirlitsmanni sem endar að sjálfsögðu með ósköpum. í Black Sheep leikur hann bróð- ur stjómmálamanns sem sér þann kost vænstan að senda bróðurinn burt meðan á kosningabaráttu hans stendur. í báðum þess- um myndum var mót- leik- ari hans David Spade og mynduðu þeir nokkurs konar nútíma Laurei og Hardy og tekst oft ágætlega upp. í nýj- ustu kvikmynd sinni, The Beverly HiUs Ninja, er Farley án Spade og virðist það ekki hafa sakað. Myndin hlaut góða aðsókn í Bandaríkjunum en í henni leikur hann karatekennara sem heldur sig vera þann besta í fag- inu. Er hann þó einn um þá skoðun. Þegar fögur stúlka hverf- ur sporlaust í hæðum Beverly tel- ur hann það sjálfsagðan hlut að bjarga henni og heldur á vit ævintýranna. Chris Farley hef- ur ekki náð sömu vinsældum í Evr- ópu og í Bandarikj- unum og hafa mynd- ir hans þar faUið í grýttan jarðveg. Það er Farley - þykir með snjöllustu eftirhermum í Hollywood Sr Robert De Niro - Ferillinn Robert De Niro leikur annað aðalhlutverkið í The Fan, sem er í öðru sæti myndbandalistans. De Niro fæddist 17. ágúst 1943 í New York og þar býr hann enn þann dag í dag. Leiklistin átti hug hans allan allt frá því hann var ung- lingur og eftir að skyldunámi lauk settist hann á skólabekk hjá ekki ómerkari leiklistarkennur- um en Stellu Adler og Lee Strass- berg. Snemma fékk hann lítil hlutverk í leikritum á Broadway og utan Broadway en hafði ekki erindi sem erfiði í leikhúsum stórborgarinnar. í New York kynntist hann ungum kvik- myndagerðarmönnum, til að mynda Brian De Palma og Mart- in Scorsese og það var í gegnum þá sem frægðarsól hans tók loks að hækka á lofti. Sú mynd sem gerði hann að kvikmyndastjömu var The Goodfather Part II. Þar lék hann hinn unga Vito Corleo- ne, sem Marlon Brando lék á efri árum í fyrstu myndinni. Fékk hann óskarsverðlaun sem besti leikari í aukahlutverki fyrir leik sinn í þeirri mynd. Ferill Roberts De Niro hefur síðan verið nánast ein sigurganga og hefur hann skilaö frá sér mörgum eftirminni- legum hlutverkum. Sín önnur óskarsverðlaun fékk hann fyrir Raging Bull. Hér á eftir fer listi yfir þær kvikmyndir sem Robert de Niro hefur leikið í. Greetings, 1968, The Wedding Party, 1969 Bloody Mama, 1970 The Gang that Couldn't Shoot Straight, 1971 Bang the Drum Slowly, 1973 Mean Streets, 1973 The Godfather Part II, 1974 The Last Tycoon, 1976 Taxi Driver, 1976 1900, 1976 New York, New York, 1977 The Deer Hunter, 1978 Raging Bull, 1980 True Confession, 1981 Once Upon a Time in America, 1984 Brazil, 1985 The Mission, 1986 Angel Heart, 1986 The Untouchables, 1987 Midnight Run, 1988 Jacknife, 1989 We're No Angels, 1989 Stanley 8c Iris, 1990 GoodFellas, 1990 Awakenings, 1990 Guilty By Suspicion, 1991 Backdraft, 1991 Cape Fear, 1991 Mistress, 1992 Night and the City, 1992 Mad Dog and Glory, 1993 This Boy's Life, 1993 A Bronx Tale, 1993 Frankenstein, 1994 Heat, 1995 Casino, 1995 The Fan, 1996 -HK

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.