Dagblaðið Vísir - DV - 25.04.1997, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 25.04.1997, Blaðsíða 11
, i <• » . j * * 9 v myndbönd 33 FÖSTUDAGUR 25. APRIL 1997 Að snúa gæfunni sér í hag Vanur í faginu Roy „Tin Cup“ McAvoy hefur gert mörg mistök í lífinu. Hann hefði getað verið atvinnumaður í golfi í stað þess að kenna golf í krummaskuðinu Salome í Texas. Hann heíði getað haldið áfram ást- arsambandinu við dansklúbbseig- andann Doreen í stað þess að tapa golfflötinni sinni til hennar í veð- máli. Síðast en ekki síst þyrfti hann ekki að lítillækka sig með því að gerast kylfusveinn fyrir erkióvin sinn og keppinaut, golfstjömuna David Simms. Þegar Dr. Molly Griswold, kærasta David Simms, kemur til hans til að fá golfkennslu gerir hann enn ein mistökin og verður ástfanginn af henni. Honum verður ljóst að til að vinna hug hennar verður hann að gera eitt- hvað stórfenglegt, svo sem að vinna opna bandaríska meistaramótið, erfiðasta atvinnumannamót heims- ins. Hæfileikaríkur undir- málsmaður Tin Cup verður gefin út á mynd- bandi mánudaginn 28. apríl. Leik- stjóri myndarinnar er Ron Shelton, en í aðalhlutverkum eru Kevin Costner og Rene Russo. í helstu aukahlutverkum eru Cheech Marin, annar helmingur Cheech & Chong tvíeykisins, og Don Johnson, sem frægur varð sem Sonny Crockett í Miami Vice þáttunum. Shelton er vanur að skrifa handritin að mynd- unum sínum og gerði það einnig í þessu tilviki. Hann fékk þó golffé- laga sinn, John Norville, til að að- stoða sig. Þeir skálduðu í samein- ingu upp persónu sem bjó yfir mikl- um hæfileikum, en einnig persónu- ■ Tin Cup gerist að hluta tii á golfvöllum. leikagöllum sem kæmu henni í vandræði. Roy McAvoy er viðkunn- anlegur undirmálsmaður og vand- ræðagemlingur sem hefur snilligáfu hvað golf varðar og gallar hans vama honum þess að nýta sér hæfi- leika sína, en það voru einmitt þess- ir gailar sem vöktu áhuga Kevins Costners á hlutverkinu, ásamt far- sælu samstarfi hans og Ron Shelton í Bull Durham. Til að ljá myndinni trúverðug- leika fékk Shelton raunverulega golfleikara til að koma fram í mynd- inni, þeirra frægastir er sennilega Fred Couples og Corey Pavin. At- vinnugolfaramir Peter Jacobsen og Cragi Stadler fengu meira að segja nokkrar linur i myndinni. Næsta vandamál var þá að gera Costner trúverðugan sem golfleikara við hliðina á þessum stjömum og at- vinnugolfaramir Gary McCord og Peter Kostis tóku hann því upp á sina arma og leiðbeindu honum. Leikstjórinn Ron Shelton hefur leikstýrt „íþróttamyndum" með góðum árangri, en skemmst er að minnast samstarfs hans og Kevins Costners í Bull Dur- ham, Shelton fékk ósk- arsverð- launa- tilnefn- ingu fyr- ir hand- rit sitt að þeirri mynd. Fyrsta handrit Sheltons sem komst á breiðtjaldið var Under Fire, en Bull Durham var frumraun hans sem leikstjóri. 1 kjölfar hennar gerði hann Blaze, sem fjallaði um samband ríkis- stjóra og nektar- dansmeyjar. Þriðja mynd hans var White Men Can’t Jump og sú fjórða Cobb, og hafa íþrótt- ir því komið við sögu í fjórum af fimm mynd- um hans. Kevin Costner er . stór- stjama Kevin Costner leikur Roy McAvoy sem hefur gert mörg mistök í lífinu en reynir að rétta úr kútnum. í Hollywood og einn af áhrifamestu leikurunum í kvikmyndaiðnaðinum þar. Mesta verk hans hingað til var Dances with Wolves, sem hann framleiddi, leikstýrði og lék í, en hún hlaut alls sjö óskarsverðlaun, þ. , á m. fyrir bestu mynd og bestu leik- stjórn. Síðustu myndir hans á und- an Tin Cup voru Wyatt Earp og Wa- terworld, en Kevin Costner hefur verið jafnvígur á grin, spennu, hasar og drama. Meðal frægra mynd hans era Silverado, The Bodyguard, A Perfect World, The War, JFK, Robin Hood: Prince of Thieves, The Untouchables, No Way Out, Bull Durham og Field of Dreams. Mótleikari Kevin Costner er Rene Russo sem byrjaði feril sinn sem tískumódel áður en hún sneri sér að kvikmynda- leik. Fyrsta hlutverk hennar var í grín- myndinni Major Leage, og í kjöl- farið fylgdu hlutverk í Mr. Dest- iny, Freejack og One Good Cop. Ferill hennar tók svo við sér eftir að" hún kom fram í Let- hal Weap- on 3 og hún náði í hlut- verk í In the Line of Fire og Get Shorty áður en hún tók sér hlut- verk Dr. Griswold 1, Tin Cup. Næsta mynd hennar var síðan Ransom sem áætlað er að komi út á mynd- bandi í júlí. -PJ UPPÁHALDS MYNDBANDIÐ MITT Guðrún Gunnarsdóttir þeirra við ákveðnar aðstæður og fordóma sem ríkja í samfélaginu. Þetta er mjög góð mynd sem vekur mann til umhugsunar um manneskjuna og samfélög mannanna. Ég vil helst horfa á rómantískar ástarsögur en þó ekki of væmnar og sorglegar. Fjölskyldusögur þar sem rakin er saga nokk- urra ættliða og gerist á löng- um tíma finnst mér gaman að horfa á. Ég vil geta hjúfrað mig niður í sófann og fylgst nokkuð átakalaust með því sem er að gerast en ekki þurfa að sitja með axlimar spenntar upp að eyrum. Ég hef gaman af mynd- um þar sem spennan ligg- ur í loftinu en eru ekki af ofbeldi. Mér finnst þó skemmtilegast að horfa á manneskju- legar og mannbætandi myndir þar sem sagan er góð. Ég get nefht myndir eins og Legends of the Fall og The Eng- lish Patient, það eru myndir að mínu skapi.“ „Besta myndin sem ég hef séð heitir Brimbrot eða Breaking the Waves. Þetta “>■ ástarsaga sem fjallar um ga stúlku sem ekki er al- 3g eins og fólk er flest. The Keeper An Occasional Hell' The Keeper er kvikmynd sem vakið hefur verðskuldaða athygli. Hún er frumraun leik- stjórans Joe Brewster, sem þykir eiga framtíð fyrir sér í kvik- myndabransan- um. Myndin segir ffá fanga- verðinum Paul Lamont sem tekur starf sitt alvarlega, en meðfram starfinu stundar hann lög- fræðinám. í fangelsinu kynnist hann umkomulausum Haiti- búa, Jean Babtiste, sem ákærður er fyrir nauðgun sem hann segist ekki vera sekur um. Paul sannfærist um sak- leysi hans og ákveður að leggja fram tryggingafé svo Jean þurfi ekki að dúsa inni. Jean er einnig húsnæðislaus og því ákveður Paul að skjóta yfir hann skjólshúsi í nokkra daga. Fljótlega eftir að Jean flytur inn myndar hann sterkt sam- band við eiginkonu Pauls og þegar Paul fer að gruna að eitthvað meira býr að baki en vinskapur tekur af- brýðisemin völdin ... í aöalhlutverkum eru Giancarlo Esposito, Regina Taylor (Upp, Upp, mín sál) og Isaach De Bankole. Stjörnubíó gefur The Keeper út og er hún bönnuð börnum innan 16 ára. Útgáfudagur er 24. apríl. Smoke hefur á undanförnum misserum vakið mikla athygli um allan heim og er það skiljanlegt, því um er að ræða einstaklega athyglis- verða kvik- mynd sem er afrakst- ur leikstjór- ans Wayne Wangs og rithöfund- arins Paul Auster. Smoke fjallar um nokkra einstaklinga sem í fyrstu virðast fátt annað eiga sam- eiginlegt en að búa í sömu stórborg- inni. Það kemur hins vegar í ljós að þessar persónur hafa allar, hver á sinn hátt, misst mikilvægt haldreipi úr lífi sinu. Þessi reynsla hefur í öll- um tilfellum haft djúpstæð áhrif á persónumar, til góðs eða ills eftir því hvernig á það er litiö, en um leið opnað fyrir ákveðið innsæi þeirra á lífið og mannlegar tilfinn- ingar. í aðalhlutverkum eru Harvey Keitel, William Hurt, Forest Whita- ker, Stockard Canning og Ashley Judd. Skífan gefur Smoke út og er hún leyfð öllum aldurshópum. Útgáfu- dagur er 30. april. An Occasional Hell er sakamála- mynd með Tom Berenger í aðalhlut- verki. Leikur hann fyrrver- andi rann- sóknarlög- reglumann, Ernie, sem neyddist til að hætta störfum eftir að hafa særst alvarlega í skotbardaga. Hann tekur nú lífinu ró sem kenn- ari og stund- ar ritstörf þess á milli. Dag einn er samkennari hans myrtur. Á morð- staðnum er að finna vísbendingar sem benda til sektar eiginkonu hins látna. Lögreglumaðurinn sem stjórnar rannsókninni sannfærist um að svo sé. í örvæntingu sinni snýr hún sér til Ernies í von um að- stoð. Hann tekur að sér rannsókn og fljótt kemst hann að því að sá myrti var ekki allur þar sem hann var séður og lykillinn að lausn málsins hljóti að vera hjá horfinni ástkonu. Auk Tom Berengers leika stórT hlutverk í myndinni Valeria Golino og Robert Davi. Leikstjóri er Salome Breziner. Myndform gefur út An Occasional Hell og er hún bönnuð börnum innan 16 ára. Útgáfudagur er 29. apríl.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.