Dagblaðið Vísir - DV - 25.04.1997, Side 12

Dagblaðið Vísir - DV - 25.04.1997, Side 12
FÖSTUDAGUR 25. APRlL 1997 34 ^fiyndbönd MYNDBAMDA The Fan: ★★ Ofstækisfullur aðdáandi tm Robert De Niro leikur hnífasölumanninn Gil Ren- ard. Hann er ekki alveg heill á geði og gengur illa í einkalífinu. Með því að fjölskyldu- og atvinnumálum hans hrakar hallar hann sér að áhugamálinu, sem er homaholti, og ákveður að koma ferli uppáhalds homaboltahetjunnar sinnar, Bobby Raybum, á réttan kjöl aftur, en Bobby hefur gengið illa upp á síðkastið. Til að hressa upp á einbeitinguna hjá Bobby rænir Gil syni hans og hót- ar að drepa hann ef Bobby hlaupi ekki „home run“ í næsta leik. Þessi mynd er ágæt framan af, meðan athyglin er á mismunandi erfiðleikum Gil og Bobby og sérstaklega er farið vel með samband Gil við son sinn. Hins vegar hríðversnar myndin þegar á líður, spennukaflinn er fremur máttlaus og endirinn ámátleg della. Robert De Niro er ömggur að vanda og Wesley Snipes furðu þolanlegur. í aukahlutverkum eru m.a. Benicio Del Toro, sem túlkar vel skemmtilega persónu helsta keppinauts Bobby, og Ellen Barkin, sem er eins og illa gerður hlutur í illa skrifuðu hlut- verki útvarpskonu. Ef dellunni með sonarránið hefði verið sleppt og dramatíkin til lykta leidd í þess stað hefði myndin getað orðið góð. Útgefandi: Sam myndbönd. Leikstjóri: Tony Scott. Aðalhlutverk: Robert De Niro og Wesley Snipes. Bandarísk, 1996. Lengd: 112 mín. Bönnuð inn- an 16 ára. -PJ Rough Magic: Ást og töfrar ★★ Töfrakonan Myra flýr til Mexíkó undan fyrmrn heitmanni sínum eftir að hann drap lærifoður henn- ar. Þar kynnist hún blaðasnápi nokkrum og fellir hug til hans. Þau taka síðan höndum saman við skottulækni um að komast yfir töfralyf indíánaætt- flokks í Mexikó. Þau lenda í ævintýrum, yfirnáttúru- legir atburðir fara að gerast, og vondi kallinn sem drap lærimeistara Myru er að sjálfsögðu á hælunum S®t^3KsS§lí'f?L?s á þeim. Söguþráðurinn hefur alla burði til að vera efniviður í ferska og skemmtilega mynd en leikstjórinn, Clare Peploe, skýtur yfir markið. Húmorinn er ekki nógu ferskur og myndin verður því einungis bjánaleg fyrir vikið. Aukaleikarar eru sumir hverjir ágæt- ir, þ.á.m. Jim Broadbent og D.W. Mofett, en Bridget Fonda og Russel Crowe era þreytt og litlaus í aðalhlutverkunum. Russel Crowe er reynd- ar eins og sótthreinsuð útgáfa af Mickey Rourke, e.k. skátaforingjalegur Mickey Rourke. Broadbent, Mofett og einstaka skemmtileg atriði bjarga myndinni næstum því upp í meðalmennsku. Útgefandi: Skífan. @pers:Leikstjóri: Clare Peploe. Aðalhlutverk: Bridget Fonda, Russei Crowe og Jim Broadbent. Bandarísk, 1995. Lengd: 100 mín. Bönnuð innan 12 ára. -PJ Feeling Minnesota: Bræðrabyltur +** Bófaforinginn Red neyðir Freddie til að giftast bók- haldaranum sínum Sam eftir að hann kemst að þvi að hún hefur stolið frá honum. Jjaks, bróðir Sam, mætir í brúðkaupið og það er ást við fyrstu sýn milli hans og Freddie. Þau stela peningum af Sam og stinga af, en hann reynir auðvitað að elta þau uppi og sömuleiðis spillt og ágjöm lögga, sem finnur peningafnykinn. Allt fer síðan vel í lokin og vondu kallamir fá makleg málagjöld án þess að góðu gæjamir þurfi að óhreinka hendur sínar of mikið. Myndin er nokkuð skemmtileg fyrir þær sakir að allar persónurnar eru hálfgerðir lúðar, engar hetjur er þama að finna. Söguþráðurinn tekur stundum óvænta stefnu og kemur jafnvel á óvart, en er í staðinn svolítið heimskulegur. Togstreitan milli bræðranna skapar skemmtilegar sögufléttur og Keanu Reeves og Vincent D’Onofrio eru í ágætu stuði. Cameron Diaz er í ver skrifuðu hlutverki en stendur sig ekkert illa. Dan Akroyd er hins vegar fremur asnalegur í lögguhlutverkinu og virðist ekki ráða viö að fara út fyrir sínar hefðbundnu brautir. Hreimurinn hjá honum er alveg von- laus. Útgefandi: Myndform. Leikstjóri: Steven Baigelman. Aðalhlutverk: Keanu Reeves, Cameron Diaz og Vincent D'Onofrio. Bandarísk, 1996. Lengd: 100 mín. Bönnuð innan 16 ára. -PJ Lone Star: 40 ára gamalt morðmál Þegar beinagrind finnst í landamærabænum Frontera í Texas hefst rannsókn fógetans Sam Deeds á löngu liðnum atburðum. Beinagrindin er talin vera af líki spillta fógetans Charley Wade sem hvarf fyrir 40 árum og Sam heldur að morðinginn hafi ver- ið bæjarhetjan Buddy Deeds, faðir hans. Hann gref- ur upp ýmis leyndarmál í leit sinni að sannleikan- um og er það oftast eitthvað annað en hann eða áhorfandinn eiga von á. í rannsókninni fáiun við innsýn í bæjarlífið fyrr og nú og í raun tekur John Sayles fyrir alla þá þróun sem orðið hefur í samskiptum kynþátt- anna í Suðurríkjunum á þessari öld. Aðalpersónurnar em látlausar, en því fjarlægari sem persónumar em í tíma eða atburðarásinni því sterk- ari verða persónueinkenni þeirra, og hámarkast það í hinum goðsagna- kenndu Charley Wade og Buddy Deeds. Handritið er listavel skrifað og kvikmyndataka fagmannleg og örugg. Chris Cooper sýnir afbragðsleik í hlutverki Sam Deeds - engir stælar, enginn bægslagangur, engir fimmaurabrandarar. Útgefandi: Skífan. Leikstjóri: John Sayles. Aðalhlutverk: Chris Cooper. Bandarísk, 1995. Lengd: 130 mín. Bönnuð innan 16 ára. PJ Myndbandalisti vikunnar ■/_ til 20. apríl SÆTI FYRRI VIKA VIKUR Á LISTA ~r m«r,-r—r. TITILL ÚTGEF. TEG. 1 Ný 1 Phenomenon Sam-myndbönd Drama 2 Ný 1 MHM Black Sheep CiC-myndbend Gaman 3 7 2 Fan Sam-myndbönd Spenna 4 1 4 .-í Twister 'v->' 1 ■ CiC-myndbönd Spenna 5 2 5 Time to Kill Warner myndir Spenna MÉI 6 5 2 Escape from L.A. ClC-myndbönd ■ Spenna 7 Ný 1 Substitute Háskólabíó Spenna S 3 6 Nutty Professor r ClC-myndbönd Gaman 9 4 3 Stiptease Skrfan Spenna 10 t 10 2 Feeling Minnesota 1 Myndferm Spenna 11 « : 5 Multiplicity Skífan Gaman 12 , 15 2 1 ”'•1 Lone Star Skífan Spenna 13 12 6 Heaven's Prisoners Sanwnyndbönd [ Spenna 14 r HUI4 14 3 r Beautiful Girls , . ‘t Skífan ■ r Gaman 15 ! 9 7 ; Eraser Warner myndir Spenna 16 1 1 11 13 Fargo I Háskólabíó Spenna 17 ! 8 4 ! Great White Hype Skífan < Gaman 18 Ný ■1 Solo Skífan Spenna 19 ' 13 5 ; Island of Dr. Moreau Myndform ' Spenna 20 1 Ai 9 J Eye for an Eye ClC-myndbönd Spenna Þaö eru sviptingar á myndbandalistanum þessa vik- una. Twister, sem hefur einokaö efsta sætiö undanfarn- ar vikur veröur aö sætta sig viö fjóröa sætiö. í efsta sæti geisist inn á listann hin geysivinsæla kvikmynd Phenomenon meö John Travolta í aöalhlutverki. Mynd þessi jók enn á vinsældir Travolta, sem viröist ekki geta gert neitt rangt þessa dagana. Þaö er af sem áöur var þegar hann lék í hverri misheppnuöu kvikmyndinni á fætur annarri og var nærri búinn aö klúöra ferli sín- um. Á myndinni er hann í hlutverki sínu í Phenomenon ásamt mótleikkonu sinni, Kyra Sedgwick. í ööru sæti er einnig ný kvikmynd, Black Sheep, meö hinum feitlagna Chris Farley í aöalhlutverki. Þriðja nýja myndin á list- anum er svo Substitute, sakamálamynd meö Tom Ber- inger í aöalhlutverki. Phenomenon John Travolta og Robert Duvall Hinn hlédrægi Ge- orge verður fyrir því að einhvers konar eldingu lýstur niður í hann og vankar hann. Þegar hann rankar við sér áttar hann sig á því að áður óþekkt orka hefur hreiðrað um sig i líkama hans og huga, orka sem gerir honum kleift að sjá og finna fyrir óorðn- um hlutum jafnframt því að hann getur nú hreyft hluti úr stað með huganum. Þegar hæfileikar hans spyijast út vekur það upp misjöfn við- brögð. Black Sheep Chris Farley og David Spade Mike Donnelly er með afbrigðum óhepp- inn og er í raun eitt stykki gangandi stór- slys. Nú hefúr Mike ákveðið að aðstoða bróður sinn við að vinna ríkisstjórakosn- ingar. En það er alveg sama hvað Mike reyn- ir að gera, alltaf skal allt enda með ósköp- um. þegar A1 sér að póhtískur feriil hans er kominn í hættu fær hann letiblóðið Steve Dodds, til að aðstoða sig við að koma bróð- ur sínum úr umferð tímabundið. Steve samþykkir en áttar sig fljótt að hann er að gera hrikalegustu mis- tök lífs síns. The Fan Robert De Niro og Wesley Snipes Farandsölumaður- inn Gil hefúr sjúkleg- an áhuga á hafna- bolta og þegar uppá- haldslið hans festir kaup á stórstjömunni Bobby Raybum, fara undarlegir hlutir að gerast í höfði Gils. Þegar Bobby stendur ekki undir vænting- um ákveður Gil að taka til sinna ráða til að koma stjörnunni aftur á beinu braut- ina. Brátt fara áform Gilks að taka á sig óhugnanlega mynd því þær leiöir sem hann notar eru sjúk- legar, svo ekki sé meira sagt, til að mynda er morð í hans augum aðeins leikur. Twister Bill Paxton, Helen Hunt og Gary Elwes. Veðurfræðingamir Bill og Jo hafa um ára- bil elst við skýstróka og em manna fróðust um þá. Samt sem áður er lítið annað vitað um þessa stróka en að þeim má skipta í ftmm kraftstig. Eina færa leiðm til að komast að því í raun hvaðan strókamir fá kraftinn er að standa inni í miðju þeirra og gera mælingar. Þau Biil og Jo hafa smíðað vél sem ætlað er að gera þessar mælingar en vandamálið er að koma henni inn í ein- hvem strókinn. Það er hins vegar hægara sagt en gert. A Time to Kill Matthew McCon- aughey og Sandra Bullock. Myndin gerist í Mississippiríki þar sem kynþáttafordómar em enn ríkjandi. Tveir mddar ræna tíu ára gamalli blökkustúlku, nauðga henni og mis- þyrma svo illilega að þeir telja hana látna. Svo er þó ekki og lög- reglustjórinn kemst fljótt að því hvaða menn vom að verki og handtekur þá. Faðir stúlkunnar tekur fullur af heift lögin í sínar hendur og skýtur illmennin til bana. Þaö kemur í hlut lögfræð- ingsins Jakes Brigance að verja gjörðir fóður- ins og bjarga honum frá því að fá dauðadóm.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.