Dagblaðið Vísir - DV - 02.05.1997, Blaðsíða 9
DV FÖSTUDAGUR 2. MAÍ 1997
Sossa sýnir í Gallerí Fold
Á morgun, kl. 15, opnar
Sossa, Margrét Soffía Bjöms-
dóttir, sýningu á olíumálverk-
um i Gallerí Fold við Rauðar-
árstíg. Sýninguna nefnir lista-
konan Freistingar og félags-
legt samneyti.
Sossa er fædd í Keflavik
árið 1954. Hún stundaði nám
við Myndlista- og handíða-
skóla Islands 1977-79, Skolen
for Bragskunst í Kaupmanna-
höfn 1979-84 og School of the
Museum and Fine Art í Boston
í Bandaríkjunum 1989-92. Það-
an lauk hún mastersgráðu í
myndlist. Sossa hefur haldið
Qölda sýninga hérlendis og er-
lendis. Sýningin stendur til 25.
maí. Galleri Fold er opið dag-
lega frá kl. 10-18, laugardaga
kl. 10-17 og sunnudaga frá
kl.14-17.
Sossa við eitt verka sinna sem eru til sýnis í Gallerí Fold.
DV, Vesturlandi:__________________
Laugardaginn 3. maí nk. verður
opið hús í Samvinnuháskóanum frá
kl. 13:00til 15:00.Gestum verða sýnd
húsakynni og aðstaða. Kennarar og
nemendm- taka á móti gestum, leiða
þá um húsakynnin og svara spurn-
ingum. Sýndar verða tiilögur sm
borist hafa í samkeppni um nýtt
merki skólans, og veitt verða verð-
laun fyrir bestu tillöguna. Afmælis-
árgangar Samvinnuháskólans og
gamla Samvinnuskólans heimsækja
skólann þennan dag, en húsið er öll-
rnn opið og væntanlegir umsækj-
endur eru sértaklega boðnir vel-
komnir. DVÓ
Mikið um dýrðir
hjá Heklu
Á morgun og sunnudag verður
mikið um dýrðir hjá raftækjaversl-
un Heklu í tilefni þess að í ár eru
liðin fimmtíu ár síðan Kenneth
Wood stofnaði fyrirtæki sitt,
Kenwood. Á þessu ári eru einnig
liðin fimmtíu ár frá því Hekla hóf
innflutning frá fyrirtækinu. Vegna
þessa ætlar Electric, raftækjaversl-
un Heklu, að bjóða Kenwood Chef-
hrærivélina á ótrúlegu verði.
Á morgun munu þeir Eiríkur og
Siggi Hall senda þátt sinn út frá
versluninni og verður gestum og
gangandi boðið upp á veglega afmæ-
listertu, pylsur og kók. Jóhannes
Felixson, íslandsmeistari í köku-
bakstri, mætir báða dagana til
skrafs og ráðagerða. Magnús Ver
Magnússon, sterkasti maður heims,
kemur og veitir eiginhandaráritan-
ir o.fl. Skemmtunin stendur frá
10-17 laugardag og 13-17 sunnudag.
Norðlenskir og
sunnlenskir
hestadagar í
Reiðhöllinni
Um helgina verða i Reiðhöllinni
hinir árlegu hestadagar sem hesta-
menn á Suður- og Norðurlandi
standa að.
Á sýningunni hafa jafnan komið
fram mörg af þeim hrossum sem
hæst ber á landinu enda landshlut-
amir sem að sýningunni standa
hrossmargir. Að vanda ber margt
skemmtilegt fyrir sjónir. Nemendur
frá Bændaskólanum á Hólum opna
sýninguna af sinni alkunnu snilld
og smekkvísi. Sýndir verða tveir ís-
landsmeistarar í tölti, þeir Laufi frá
Kollaleiru og Hrafn frá Hrafnagili,
en þessir hestar vöktu mikla athygli
á síðasta ári. Að þessu sinni verða
það ekki atvinnuknapar sem ríða
þessum gæðingum heldur eigendur
þeirra. Ræktunarhússýningar verða
frá Laugarvatni þar sem fram koma
sex stóðhestar sem allir hafa hlotið
fyrstu verðlaun, auk stóðhestsins
Glampa frá Vatnsleysu í Skagafirði.
Þá koma fram afkvæmi Ófeigs frá
Flugumýri. Afkvæmi Galdurs frá
Sauðárkróki koma fram í fyrsta
skipti en þau eru öll brúnskjótt og
vekja vafalaust mikla athygli.
Einvígi verður á hverju kvöldi en
því er haldið leyndu hvaða hestar
og kempur takast á en það verða
aldrei þeir sömu.
Ýmislegt verður til skemmtunar
á milli reiðsýninga og verða sýning-
arbásar frammi í anddyri. Á einum
þeirra verður stóðhesturinn Feykir
frá Hafsteinsstöðum sem er snjó-
hvítur höfðingi.
Sýningamar verða í kvöld og á
morgun, kl. 21, og á sunnudaginn,
kl. 16.
Hér má sjá eitt af verkum fvu Sigrúnar Björnsdóttur en hún mun opna sína
fyrstu einkasýningu í Listhúsi 39 í Hafnarfiröi laugardaginn 3. maf. A sýning-
unni veröa 20 grafikverk sem eru dúkristur og unnar meö blandaöri tækni.
Sýningin ber heitiö „Öfl náttúrunnar" og sýnir hvert verk mynd af því sem
hin ólfku öfl í náttúrunni geta myndaö.
Listhúsið er opiö ki. 10-18 virka daga, á laugardögum er opiö 12-18 og á
sunnudögum 14-18.
•n helgina
Þjóðleikhúsið
Litli Kláus og Stóri Kláus
sunnudag kl. 14.00
Leitt hún skyldi
vera skækja
laugardag M. 15.00
Fiðlarinn á þakinu
laugardag kl. 20.00
sunnudag kl. 20.00
Köttur á heitu blikkþaki
fóstudag kl. 20.30
Listaverkið
laugardag kl. 20.30
sunnudag kl. 20.30
Borgarleikhúsið
Völxuidarhús
laugardag kl.20.00
Svanurinn
fóstudag kl.20.00
Dómínó
föstudag kl. 20.00
Loftkastalinn
Áfram Latibær
sunnudag kl. 14
sunnudag kl. 16.00
Á sama tíma að ári
laugardag kl. 15.30
íslenska óperan
Káta ekkjan
laugardag kl. 20
Kaffileikhúsið
Vinnukonurnar
föstudag kl. 21.00
Leikfálag Akureyrar
Vefarinn mikli frá Kasmír
laugardag kl. 20.30
Skemmtihúsið
Ormstunga
sunnudag kl. 20.30
Hugleikur Tjarnarbíóí
Embættismannahvörfin
föstudag kl. 20.30
aukaafslátt af
smáauglýsingum
DV
Smáauglýsingar
in
550 5000
HASKULABIU