Dagblaðið Vísir - DV - 09.05.1997, Síða 3
JLt'W FÖSTUDAGUR 9. MAÍ 1997
HLJÓMPLjÍTU
Bee Gees - Still Waters:
Falsettan hljómar ★★<
Bræðurnir Gibb eru samir við sig þótt árin líði. Létt poppið,
samstilltar háar raddirnar, skerandi falsettan. Allt hljómar þetta
afskaplega gamalkunnugt. Og kannski hafa raddir bræðranna
aldrei verið jafn bjartar og skjálfandi og einmitt nú.
Við höfum heyrt mörg dæmi þess í áranna rás að Barry, Robin
og Maurice Gibb kunna að semja grípandi popplög. Sum hafa lif-
að lengi og eru orðin sígræn. Önnur eru fallin í gleymsku jafnvel
þótt þau séu ekkert síðri en þau sem náðu í efstu sæti vinsælda-
listanna. Ómögulegt er að spá fyrir um örlög áheyrilegustu lag-
anna á Still Waters, laga eins og Alone og I Surrender. Kannski
hljóma þau á öldum ljósvakans eftir tuttugu ár eins og lögin úr
Saturday Night Fever gera nú eða eftir þrjátíu ár eins og
Massachusettes, To Love Somebody. Og þó sennilega ekki. Bee
Gees hafa náð sínum hápunkti á ferlinum (og það meira að segja
tvisvar sinnum) og það sem nú er gefíð út og á eftir að koma út
er rétt til að minna okkur á að bræðumir eru enn að. Meira að
segja þokkalega emir.
Van Morrison - The Healing Game:
Hinn mikli Morrison
Aðdáendur Morrisons hafa kannski ekki verið sáttir við allt
sem hann hefur verið að fást við það sem af er þessum áratug. En
á The Healing Game er hann kominn í sitt gamla horf, soul- og
blúsblandaður með tilfmningaþrungna doo- wop ballöðu hér og
þar. Lögin eru grípandi og hvert viðlagið á fætur öðru krækir sig
í undirvitundina og ómar í henni löngu eftir að lokalagið, titillag-
ið sjálft, er á enda runnið.
Það er afskaplega erfitt að gera upp á milli laganna á The Heal-
ing Game. Piper at the Gates of Dawn er snoturt í einfaldleik sín-
um og sker sig nokkuð frá hinum, enda í írskum anda. Doo-wop
lögin It Once Was My Life og If You Love Me hljóma áheyrilega,
ekki síst vegna þess að ný lög i þeim stíl verða ekki oft á vegi
manns. Titillagið er sterkt, sömuleiðis Waiting Game og ... já, í
raun og vem má hrósa öllum tíu lögum plötunnar.
Van Morrison er jafn kröftugur og fyrr. Af meðreiðarsveinum
og -meyjum hans á plötunni á Pee Wee Ellis saxisti eftirtektar-
verðastan leik. Gamli nótnaboxarinn og söngvarinn Georgie
Fame kemur við sögu, á nokkrar látlausar krúsidúllur á Hamm-
ond og raddar hér og þar. Fjöldi annarra hljóðfæraleikara og
söngvara lætur í sér heyra. Hvergi er slegið feilpúst enda er The
Healing Game ein af eftirtektarverðari plötunum sem út hafa
komið það sem af er þessu ári.
Ásgeir Tómasson
tónlist
s1 tl 01 les' 1 PJ La- ta
1
Si níd Ulí
Fjórmenningarnir í hljómsveit-
inni Rolling Stones eru teknir til við
að hljóðrita lög á nýja plötu sem
talið er að komi út síðar á þessu ári.
Don Was upptökustjóri hefur yfir-
umsjón með verkinu og meðal ann-
arra upptökustjóra sem leggja hönd
á plóginn eru Kenneth „Babyface"
Edmonds, Dust Brothers og Danny
Saber. Don Was lagði einmitt gjörva
hönd á síðustu tvær Stonesplötur,
Frekari vangaveltur liggja ekki
fyrir um hvaða listamenn aðrir
eigi eftir að koma við sögu á næstu
plötu Stones. Óvíst er einnig hvort
Daryl Jones leikur á bassann.
Hann tók sem kunnugt er þátt í
gerð tveggja síðustu platna Stones
og fór með í Voodoo Lounge-hljóm-
leikaferðina. Og varðandi hljóm-
leikaferðir gengur sá orðrómur
einnig fjöllunum hærra að The
Rolling Stones hyggi á hljómleika-
ferð með haustinu sem eigi eftir að
teygja sig fram eftir næsta ári. Ef
fylgt verður hefðbundnu mynstri
síðustu ferða leikur hljómsveitin i
Norður-Ameríku í haust, ferðast
um Asíu og Ástralíu í vetur og vor
og kemur síðan til Evrópu næsta
sumar.
-ÁT
Rolling Stones eru í óðaönn að hljóðrita lög á næstu plötu sína undir stjórn valinkunnra upptökustjóra.
Voodoo Lounge og Stripped, og ætti
því að vera orðinn öllum hnútum
kunnugur.
Babyface hefur unnið með hljóm-
sveitinni siðustu daga og er talið að
hann taki þátt í að hljóðrita tvö til
þrjú lög. Eftir það taka Dust
Brothers við stjórninni. Þeir sáu um
upptökur Odelay-plötu Becks og
Paul’s Boutique með The Beastie
Boys.
„Við byrjum á þremur lögum og
sjáum svo til hvort þeim fjölgar,"
segir John King, helmingur Dust
Brothers. „Þannig var það líka þegar
við unnum með Beastie Boys og
reyndar Beck einnig."
Mick Jagger hafði samband við
Dust Brothers fyrr á árinu og sagðist
telja að þeir gætu gert góða hluti
með þyngri lögin á næstu Sto-
nesplötu. King segir að Jagger hafi
talað um að hann vildi fá nokkra
upptökustjóra til að taka að sér hin
ýmsu lög, allt efir því hvaða stíll
hentaði hverjum.
Clapton í gestahlut-
verki?
Talsmenn The Rolling Stones hafa
enn ekki látið neitt fara frá sér opin-
berlega um nýju plötuna. Aðdáendur
hljómsveitarinnar á netinu hafa hins
vegar komist að því að hljómsveitin
mætir síðdegis á degi hverjum í
hljóðver í Los Angeles. Þar eru lög
samin og slipuð og hljóðrituð til
prufu þegar í stað. Babyface hefur
verið á ferli og einhverjir hafa hald-
ið því fram að Eric Clapton hafí
sömuleiðis litið inn. Því er talið að
hann eigi eftir að taka þátt í gerð
plötunnar. Babyface stjórnaði
einmitt upptöku síðasta lagsins sem
Clapton sendi frá sér, Change the
World, sem hann hlaut Grammy-
verðlaunin fyrir fyrr á árinu.
Kryddstelpurnar sætu í Spice
Girls láta sér ekki nægja aö vera
heitasta númerið í poppbrans-
anum. Nú ætla þær píur að
leggja undir sig kvikmynda-
heiminn með mynd sem mun
vera einhvers konar sambland
af Wayne’s World og A Hard
Day’s Night (sem Bítlarnir
gerðu á sínum tíma). Leikstjór-
inn verður Rob nokkur Spiers
en gamanleikkonan Jennifer
Saunders, sem lék í Absolutely
Fabulous, er meðal handritshöf-
unda. Lög úr myndinni verða
líklega á annarri plötu Spice
Girls en ekki er byrjað að taka
þau upp. Tökur hefjast hins veg-
ar á myndinni í júli.
Annai's er það að frétta af út-
gáfumálum Spice Girls að vænt-
anleg er safnplatan Girl Power
sem inniheldur lögin Wannabe
og Who Do You Think You Are
með þeim vinkonum. ("
á plötunni munu vera u]
haldslög þeirra. Spice Girls 1
eiimig g
ing
greinilegaek