Dagblaðið Vísir - DV - 09.05.1997, Blaðsíða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 09.05.1997, Blaðsíða 5
JLj'V FÖSTUDAGUR 9. MAÍ 1997 tónlist 19 I t i ♦ ♦ ♦ ♦ Mikil spenna hefur byggst upp í kringum komu hljómsveitarinnar Skunk Anansie til íslands á morg- un. Hljómsveitin hefur nú starfað 1 rúm þrjú ár og aukið hróður sinn jafnt og þétt jafnt innan sviðs sem utan. Það verða íslensku sveitimar Un- un og Botnleðja (Silt) sem hita upp fyrir sveitina annað kvöld í Laugar- dalshöllinni. Húsið verður opnað klukkan 18, fyrri upphitunarhljóm- sveitin stígm- á svið klukkan 19 og sjálft aðalatriðið hefst klukkan 21. Þess má geta fyrir áhyggjufulla for- eldra að tónleikunum lýkur klukk- an 23, á sannkristnum tíma, og því ætti fólk í yngri kantinum að kom- ast heilu og höldnu heim vel fyrir miðnætti. Stofnuð '94 Skunk Anansie hóf feril sinn á Englandi í febrúar 1994. Nafnið er samsett úr orðunum Skunk (þýðing: svart loðið dýr með hvíta rönd á bakinu sem gefúr frá sér frekar ógeðfellda lykt jafnt til vamar og mökunar) og Anansie (þýðing: kónguló í þjóðsögum Jamaíkabúa - je man). Hljómsveitin vakti strax at- hygli og eftir aðeins tveggja mánaða samstarf var hún komin á samning hjá útgáfufyrirtækinu One Little Indian (Sykurmolamir og Björk). Ofsóknaróður og sól- brunninn Til þessa hefur hljómsveitin gefið út tvær mjög ólíkar plötur. Sú fyrri kom út árið 1995 og var nafnið Para- noid and Sunburnt (Ofsóknaróður og sólbrunninn). Platan var kröftug og uppfull af gæðarokki (fékk frá- bæra dóma hjá undirrituðum). Á henni mátti flnna fyrir áhrifavöld- um á borð við Primus og Led Zepp- elin en það var fyrst og fremst af- burðasöngur hinnar þeldökku lesb- íu, Skin, sem vakti athygli. Það var ekki annað hægt en taka undir með Melody Maker: í heimi þar sem all- ir em stjörnur í bók Sly and The Family Stone, þá er Skin sólkerfi. Sólkerflð var uppfullt af ástríðu og reiði. Hún söng öll lög plötunnar af krafti sem á sér engan líka, jafnvel rólegu lögin. Lagið Selling Jesus vakti athygli í kvikmyndinni Strange Days en vinsældalistarnir heimtuðu ballöður og fengu sitt með lögunum Weak og Charity sem bæði fóru inn á topp 20 í Bretlandi. Árið 1995 valdi breska blaðið Ker- rang Skunk Anansie besta breska bandið og árið eftir fékk hljómsveit- in verðlaun sem besta tónleikasveit- in. Hér er því um heilmikinn hval- reka fyrir íslenska tónleikagesti að ræða, þ.e. þá sem eru búnir að kaupa miða, því rúm vika er síðan seldist upp á tónleikana hér á landi. Yfir í poppið Eins og komið hefur fram er söngkona hljómsveitarinnar svört og heitir Skin, bassaleikarinn geng- ur undir nafninu Cass, Ace spilar á gítar og Mark lemur húðir (ekki verið að gera mikið úr ættarnöfnum á þessum bæ, KlSS-reglan á ensku stendur fyrir Keep It Simple Stupid eða höldum því einfoldu). Þessi flög- ur breyttu síðan um stefnu með út- gáfu annarrar breiðskífu sinnar, Stoosh (sem flnnst ekki þýðing á í íslenskri orðabók). Platan var mun poppaðri og því miður datt Skin niður í það að verða ósköp venjuleg stjama á nýjan leik. Undirritaður gaf þeirri plötu engu að síður þrjár stjömur af flórum mögulegum fyrir lagasmíðar sem eru stórgóðar og grípandi. Þeir sem sóttust eftir rokkinu hráa og öskrinu háa urðu hins vegar fyrir einhverjum von- brigðum. Stoosh hefur selst vel til þessa hér á landi (sérstaklega á síð- ustu vikum) og lagið Brazen (nýjasta smáskifa plötunnar) hefur náð ágætis árangri á vinsældalist- um. Poppið virðist því virka alveg jafn vel fyrir flölbreytta sveit á borð við Skunk Anansie sem stígur reif og glöð á svið í Laugardalshöllinni annað kvöld, klukkan 21. Þeir sem ekki eiga miða missa af kraftmiklu svitabaði í hópi öskrandi tónleika- gesta sem munu líklega ekki fá fulla heyrn að nýju fyrr en einhvem tíma um hvítasunnuhelgina. Eins og Sto- nes hefðu sagt það: ...its only rockn- roll but I like it... -GBG ♦ ♦ * ♦ ♦ i Bono og Sinead í nýrri mynd eftir leikstjórann Wim Wenders, sem ber nafiiið The End of Violence, verður lag þar sem írska kraftaverkafólkið Bono og Sinead O’Connor syngja dúett. Sam- kvæmt áreiðanlegum heimildum munu meðlimir U2 spila undir en ekki hefur komið fram hvort lagið verður gefið út undir merkjum U2 eða hvort Bono og O’Connor verða einungis skrifuð fyrir laginu. U2 hef- ur lagt til tónlist í aðrar myndir Wenders. Til dæmis hið magnaða lag Until the End of the World af plötunni Achtung Baby og Stay (Faraway, So Close) af Zooropa. Áður óútgefin lög með Kraftwerk og Roy Orbison og dúett með Micha- el Stipe úr REM og Vic Chestnut verða einnig í myndinni The End of Violence. Diana Ross heiðruð Á nýafstaðinni tónlist- arviku í London (London Music Week) fékk sálar- sflaman Ðiana Ross sér- stök heiðursverðlaun. Ross var reyndar í Bret- landi til að kynna nýja kvikmynd sem hún leik- ur i en hún kallast Out of Darkness. Winwood gefur út Steve Winwood (sem frægur er fyrir smelli eins og Higher Love) gefúr út nýja plötu, er nefnist Junction Seven, 2. júní næst- komandi. Fyrsta smáskífan sem tek- in er af plötunni kemur út þann 26. maí og nefnist hún Spy in the Hou- se of Love. Gríðarlepir vaxtar- möguleikar í Indlandi Hvort sem menn trúa því eða ekki þá líta vestrænir poppsölumenn til Indlands sem næstu gullnámu. Ind- versk tónlist hefúr reyndar notið mikillar hylli í Evrópu að undan- fömu og hafa Bretar verið sérstak- lega móttækilegir fyrir henni. Nú vonast menn hins vegar til þess að hægt sé að sefla Indverjum vest- ræna tónlist enda sé hagvöxtur þar mikill og lítið sé um sölu á ólögleg- um upptökum þar í landi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.