Dagblaðið Vísir - DV - 09.05.1997, Qupperneq 4
18
FÖSTUDAGUR 9. MAÍ 1997
&nlist
Island
- plötur og diskar -
I
1. (2) Dig Your Own Hole
Chemical Brothers
2. (1 ) Stoosh
Skunk Anansie
3. ( 3 ) Pottþétt 7
Ýmsir
4. ( 7 ) Falling Into You
Celine Dion
5. (- ) In It For the Money
Supergrass
6. ( 8 ) Romeo & Juliet
Úr kvikmynd
7. ( 9 ) Spice
Spicc Girls
8. (12) Pop
U2
9. ( 4 ) Polydistortion
Gus Gus
10. (13) Live in Paris
Celine Dion
11. (11) Paranoid & Sunburnt
Skunk Anansie
12. (Al) Older
George Michael
13. (17) Secrets
Toni Braxton
14. (18) Homework
Daft Punk
15. (10) Blur
Blur
16. ( 6 ) Evita
Ur kvikmynd
17. ( 5 ) Ultra
Depeche Mode
18. (20) Coming Up
Suede
19. (Al) Live
Secret Samadhi
20. (Al) Tragic Kingdom
No Doubt
London
-lög-
10.
(_ ) Love Won't Wait
Gary Barlow
( - ) Star People '97
George Michael
(- ) Love is the Law
Seahorses
(4 ) Lovefool
The Cardigans
( 2 ) I Belive I Can Fly
R Kelly
(_) Alright
Jamiroquai
( 6 ) You Might Need Somebody
Shola Ama
(1 ) Blood on the Dance Floor
Michael Jackson
( 5 ) Bellissima
DJ Quicksilver
(3 ) Bodyshakin'
911
New York
1. ( - ) Share My World
Mary J. Blige
2. (- ) Carrying Your Love With Me
George Strait
3. ( 2 ) Spice
Spice Girls
4. (1 ) Life After Death
The Notorious B.I.G.
5. ( 3 ) Space Jam
Soundtrack
6. ( 4 ) Bringing Down the Horse
The Wallflowers
7. ( 7 ) Pieces of You
Jewel
8. ( 6 ) Falling Into You
Celine Dion
9. (- ) Waterbed hev
Heavy D
10. ( 8 ) Baduizm
Erykah Badu ............
Bretland
-^plötur og diskar —
á brennandi böku
Paul McCartney: Nýjasta platan hans er eins konar heimilisiðnaöur.
„Eftir að vinnu við seríuna The Beatles Ant-
hology lauk langaði mig að semja nýja tónlist," seg-
ir Paul McCartney um tilurð nýjustu plötunnar
sinnar, Flaming Pie, sem kom út á mánudag. „Ant-
hology-útgáfan var mjög góð fyrir mig því að við að
taka þátt í að ganga frá henni rifjaðist upp fyrir mér
íjölmargt af þeirri tónlist sem við skópum í gamla
daga og jafnframt af hvaða gæðaflokki hún var. Það
má því segja að vinnan við Anthology hafi verið
eins konar endurhæfingarnámskeið áður en ég hófst
handa við Flaming Pie.“
Paul samdi flest laganna fjórtán sem völdust á
plötuna siðustu tvö árin. Og þegar kom að hljóðrit-
uninni voru hendur látnar standa fram úr ermum
og unnið hratt.
„Flaming Pie er að miklu leyti heimatilbúin
plata,“ segir hann. „Ég átti lausar stundir, engin
pressa var á mér að skila nýrri plötu en lögin komu
bara eitt af öðru. Ég gat ekki stöðvað þau. Þau voru
sem sagt samin mér sjálfum til skemmtunar en alls
ekki til þess að fylla heiia plötu.“
Tímatakmörk
í fleiri en einu tilviki setti Paul McCartney sér
tímamörk við að semja lög. Lagið Some Days varð
tO dæmis þannig til að Paul ók konu sinni, Lindu,
dag einn til bóndabæjar í Kent á Englandi. Linda,
sem er þekktur matreiðslubókahöfundur, þurfti að
láta mynda nokkra rétti og Paul vissi að verkið tæki
um það bil tvær klukkustundir. Hann einsetti -sér
því að semja eitt lag og texta við það meðan hann
biði. Það tókst. Þegar Linda hafði lokið verkinu
sagðist hún vera tilbúin að halda heim og spurði
Paul hvort honum hefði leiðst meðan hún var að
vinna. Hann kvað nei við því. „Ég samdi lag á með-
an ég beið. Viltu heyra?"
Young Boy varð sömuleiðis til undir sambæri-
legri tímapressu. Höfundurinn var nákvæmlega
jafnlengi að semja það og það tók eiginkonu hans að
elda hádegisverð - grænmetissúpu, eggaldinpottrétt
og eplamauksköku. Grein um hádegisverðinn birtist
í New York Times en Young Boy hljómar nú á út-
varpsstöðvum um allan heim sem fyrsta smáskífu-
lagið af Flaming Pie.
Sum lög plötunnar urðu einnig til við sérstakar
aðstæður þótt Paul McCartney setti sér ekki tíma-
mörk til að ljúka þeim. Calico Skies var til dæmis
samið á Long Island þegar fellibylurinn Bob gekk
þar yfir. Rafmagnslaust varð og fjölskyldan varð að
notast við arineld til að elda sér mat. Ekki var hægt
að hlusta á neina tónlist svo að Paul tók sér
kassagítar í hönd og fór að raða saman hinum og
þessum tónum. Ein útkoman varð Calico Skies sem
höfundurinn segir að beri nokkurn keim af Bítlalag-
inu Blackbird.
litillagið
Þannig eiga öll lögin á Flaming Pie sér sögu.
Sum urðu til í hljóðverinu (Used to Be Bad og
Really Love You) og önnur í fríum á suðlægum
slóðum. Souvenir var til að mynda smíðað á
Jamaíku i letikasti. Paul McCartney gerði prufu-
upptöku aö laginu þegar það var tilbúið. í miðju
kafi tók síminn að hringja en hann hélt upptök-
unni ótrauður áfram. Undir lokin var síminn þagn-
aður en þá var hrostin á hitabeltisskúr eins og þær
gerast háværastar. Til greina kom að láta prufu-
upptökuna hljóma undir laginu þegar það var
hijóðritað til útgáfú. Frá því var fallið, að þvi und-
anskildu að regnið fær að hljóma í enda lagsins.
Nafn plötunnar, Flaming Pie eða Logandi baka,
á sér einnig sína sögu. Dag einn þegar Paul og Jeff
Lynne gítarleikari unnu að lögum á plötuna tóku
þeir sér hlé og skruppu á knæpu. Þeir höfðu lokið
tveimur lögum um morguninn og ætluðu að snara
af tveimur öðrum seinni hluta dagsins (enn ein
tímatakmörkin, það átti að vinna hratt í hljóðver-
inu og gefa hverju lagi helst ekki meira en tvær
klukkustundir!). Paul var farinn að þreytast og
átti þar af leiðandi í erfiðleikum við að snurfusa
einn textann sem átti að nota seinnipartinn. Hann
leitaði að rímorði á móti sky. Bye kom til greina,
sömuleiðis cry eða lie. Allt í einu mundi hann eft-
ir pie. Það á sér sína sögu í því þjóðsagnasafni sem
orðið hefur til í kringum Bítlana.
John Lennon á að hafa látið hafa það eftir sér í
blaðaviðtali um nafnið The Beatles að það hafi
birst honum sem sýn. Hann sá fyrir sér mann, sifj-
andi á logandi böku (flaming pie), og maðurinn
sagði: „Þið eigið að heita Beatles, ekki Beetles
heldur Beatles með a-i.“
„Ég reyndi að hrista pie-orðið af mér en því
skaut aftur og aftur upp í hugann," segir Paul. „Á
endanum ákvað ég að nota það, ekki einungis í
textann heldur líka í titil lagsins og nafn plötunn-
ar.“ Þjóðsagan um sýnina og bökuna logandi er
auðvitað ekki sönn. John og Stu (Sutcliffe) datt
það í hug og tilkynntu okkur George að þeir væru
búnir að finna nafh sem héldi."
Fjölskylduplata
Paul McCartney er 1 aðalhlutverki á nýjustu plöt-
unni sinni - syngur lögin, leikur á bassa, gítar,
trommur og fleira. Linda kona hans syngur bak-
raddir i nokkrum lögum, fiölskylduvinurinn Ringo
Starr trommar í tveimur og semur raunar annað
með Paul. Og loks er þess að geta að sonur Pauls og
Lindu, James McCartney, tekur gitarsóló í laginu
Heaven on Sunday. Það er ffumraun hans á hljóm-
plötu. James kemur reyndar aðeins viðar við sögu
því að hann er efniviðurinn í laginu Young Boy sem
fyrr var nefnt. Pilturinn hefur sem vonlegt er spurt
fóður sinn ýmissa spurninga um lífið og fortíöina.
Spurningarnar urðu fóðurnum tilefni til að rifia upp
um hvað hans eigin hugrenningar snerust þegar
hann var sautján-átján ára og hvaða hugmyndir
hann gerði sér um lífið fram undan.
Young Boy varð Paul jafiiframt tilefni til að kalla
til leiks gamlan kunningja , Steve Miller. Þeir unnu
saman fyrir tæpum þremur áratugum og notaði
Miller þá dulnefnið Ramon. Hann leikur í nokknun
lögum á Flaming Pie og semur einnig lagið Used to
Be Bad með Paul McCartney. ÁT
| 1.(1) Tellin' Stories
The Carlatans
2. ( 3 ) Spice
Spice Girls
3. ( 2 ) In It For the Money
Supergrass
4. ( 4 ) White on Blonde
Texas
5. ( 5 ) Shelter
The Brand New Heavies
6. (- ) Republica
Republica
7. (13) Pop
U2
8. ( 7 ) Dig Your Own Hole
The Chemical Brothers
9. (10) Ocean Drive
Lighthouse Family
10. ( 6 ) Ultra
Depeche Mode
< Bandaríkin
----— plötur og diskar —
1. (1 ) Hupnotize
The Notorious B.I.G.
2. { 3 ) You Were Ment For Me
Jewel
3. ( 2 ) Can't Nobody Hold Me Down
Puff Daddy
4. ( 5 ) I Want You
Savage Garden
5. ( 4 ) For You I Will
Monica
6. (- ) 16 Mmmbop
Hanson
] 7. ( 7 ) Return of the Mack
Mark Morrison
t 8. ( 9 ) Where Have All the Cowboys...
Paula Cole
| 9. ( 8 ) Hard To Say l m Sorry
AZYet
|10. (6)6 Wannabe
Spice Girls
Ragga og Jack Magic
sveitin
Ragga and the Jack
Magic Orchestra senda á
mánudaginn kemur frá sér
sína fyrstu hljómplötu sem
ber nafn kombósins. Fólkið
að baki nafninu er að sjálf-
sögðu Ragnhildur Gísladóttir
söngkona og eiginmaöur
hennar, Jakob Frímann
Magnússon. Þau eru þegar
byrjuð að kynna nýju plöt-
una og voru til dæmis með
sína fyrstu tónleika sem
aðalnúmer í Lundúnum í
fyrradag.
Þótt platan sé enn ekki
komin á almennan mark-
að hefur henni bersýni-
lega verið dreift til er-
lendra músíkblaða-
Það
manna.
syna ur-
vekja athygli
klippur sem útgefandinn, EMI, hefur safnað. Af
þeim má sjá að breskir gagnrýnendur eru al-
mennt hrifnir af útkomunni. í mánaðarritinu Q
fær platan til að mynda fiórar stjörnur af fimm
mögulegum og þar eru aðstandendumir lofaðir
fyrir frumleika og sterkt ímyndunarafl. í tfma-
ritinu Vox, sem reynir að keppa við Q á bresk-
um markaði, er hrifningin ekki alveg eins mik-
il og platan fær einkunnina fióra (hæst gefið
10).
Svo að enn sé vitnað í umsagnir breskra
músíkblaða (Ragnhildur og Jakob afþakka við-
töl við Fjörkálf DV) þá er rödd söngkonunnar
líkt við víkingaexi sem fellur á frosinn vodka-
klump í mnfiöllun New Musical Express um
tónleika Röggu and the Jack Magic Orchestra í
háskólanum í Bath fyrir nokkrum vikum. Þar,
eins og í fleiri umsögnum, má lesa að tónlistin
sem boðið er upp á sé frumleg og stórskrítin í
senn en að það geri hana einmitt athyglisverða.
Ragga and the Jack Magic Orchestra: Frumleg,
furðuleg og athyglisverð er það sem breskir
blaöamenn hafa meðal annars um tónlist nýju
plötunnar að segja.