Dagblaðið Vísir - DV - 09.05.1997, Side 10
32 myndbönd
FÖSTUDAGUR 9. MAÍ 1997
- tók að sér djarft hlutverk í Bound sem margar aðrar höfðu hafnað J
Því er ekki að neita að
ág hafði miklar efa-
Jennifer Tilly, sem sjá má í nýj-
ustu kvikmynd Jims Carreys, Liar
Liar, sem sýnd er í kvikmynda-
húsum á höfuðborgarsvæðinu,
hefur á mörgum árum verið að
vinna sig upp metorðastig-
ann i Hollyood. Hún var
bamung þegar hún hóf að
leika í kvikmyndum og sjón-
vai’pi árið 1983 og var þá
frekar þekkt sem litla systir
Meg Tilly. í dag stendur hún
jafnfætis systur sinni, ef
ekki feti framar, og má hún
aðallega þakka það frammi-
stöðu sinni í kvikmynd Wo-
ody Allens, Bullets over
Broadway, en fyrir leik
sinn í henni hlaut hún til-
nefningu til óskarsverð-
launa. Þá hefur vakið
mikla athygli leikur
hennar í Bound
sakamála-
mynd sem
íjallar um
tvær lesbísk-
ar stúlkur
sem ákveða
að stela pen-
ingum af rnafl-
unni.
Meg Tilly hef-
ur fengið það orð
á sig að hún eigi
auðvelt með að leika
miskunnarlausar kon-
ur, nokkurs konar
gangstera. Sjálf er hún
hissa á þessari líkingu
enda segist hún varla
vita hvernig gangster
á að haga sér: „Þetta
tengist þó sjálfsagt
því að mjög auð-
velt er að lenda i
þeirri aðstöðu í
Hollywood, ef
maður stendur
sig vel í einu hlut-
verki, að fá tilboð
um sams konar
hlutverk aftur og
aftur.
Tilly er ánægð
. með Bound sem
hún segir brjóta
nokkra múra i
Hollywood.
„Þetta er djörf til-
raun í gerð saka-
málamynda og
eiga þeir bræð-
ur, Larry og
Andy
Wachovski,
heiður skilinn
fyrir þor og kjark. Eg
veit ekki hvað
margar
leikkonur
höfnuðu
hlutverk-
inu sem
ég leik
vegna
þess að í
myndinni
er ástarat-
riði á milli
tveggja les-
bískra
stúlkna. Það er
skiljanlegt að
mörgu leyti.
Varla er hægt að búast við að mynd
á borð við Bound fái mikla aðsókn
og sjálfsagt hafa þær hugsað hlutina
þannig að engin ástæða væri til að
hætta mannorði sínu fyrir kvik-
mynd sem myndi hvort er eð fara
beint á myndbandamarkaðinn."
Fljótt kom þó í ljós að þeir bræð-
ur vissu hvað þeir voru að gera og
hefur Bound vakið mikla athygli
fyrir sérstök efnistök. En hvemig
skyldi Jennifer Tilly líka það að
vera nakin fyrir framan kvik-
myndavélamar? „Það fer allt eftir
því hvernig kvikmynd er verið að
gera. Nekt er hægt að réttlæta í
kvikmyndum þar sem mikill metn-
aður er á bak við, eins og í Bound.
Ég tók eftir því í Bound að þeir sem
voru að vinna við kvikmyndatöku
og fleira fóru meira hjá sér heldur
en ég og Gina (Gershon) og þar
voru þeir bræður engin undan-
tekning, þeir gátu varla litið á
okkur þegar þeir voru að leið-
beina okkur. Því er ekki að
neita að ég hafði miklar efa-
semdir um það hvort ég gæti
leikið eðlilega ástaratriði á
móti annarri konu en þegar
til kom var allt umhverflð
svo laust við alla erótík að
þetta var ekkert mál.“
Gefandi að leika
undir stiórn
Woody Allens
Eins og fyrr segir er þekkt-
asta hlutverk Jennifer Tilly
hlutverk Olive í Bullets over
Broadway, sem Woody Allen
stjómaði, og hefur Tilly ekkert
nema gott að segja um Allen. Hann
er svo ósköp venjulegur og alls ekki
eins og maður býst við fyrir fram.
Hann er lítið gefinn fyrir að tala við
annað fólk, stundum er eins og
hann þekki ekki fólk sem hann er
að vinna með, hvort sem það eru
leikarar eða aðrir, ef hann hittir
það fyrir utan starfið, en hann er
ákaflega kurteis og á það til að
sleppa beislinu af leikurunum og
leyfa þeim að impróvisera.
Jennifer Tilly hóf feril sinni í
sjónvarpinu og var um skeið fasta-
maður í Hill Street Blues og The
Gary Shandling Show. Fyrir leik
sinn í þvi síðamefnda og sjónvarps-
myndinni Heads hlaut hún tilnefn-
ingar sem besta leikkonan. Þá lék
hún gestahlutverk í sjónvarpsserí-
um á borð við Moonlighting, Cheers
og Dream on. Tilly hefur jöfnum
höndum leikið á sviði og fékk verð-
laun fyrir leik sinn í One Shoe off
eftir Tina Howe og önnur verðlaun
fyrir leik sinn í Vanities. Meðal
leikrita sem hún hefur leikið í má
nefna Tartuffe, Baby with the Bat-
hwater og The Wool Gatherers. Til-
ly hefur leikið í mörgum kvikmynd-
um. Má þar nefna The Getaway,
Made in America, Shadow of the
Wolf, Scorsher, The Fabulous Baker
Boys, Moving Violations og No
Small Affair.
-HK
semdir um það hvort ég
gæti leikið eðlilega ást-
aratriði á móti annarri
konu en þegar til kom
var allt umhverfið svo
laust við alla erótík að
þetta var ekkert mál.
Jennifer Tilly og Gina Gershon í hlutverkum sínum í Bound.
í Liar Liar leikur Jennifer Tilly eiginkonu sem stendur í skilnaðarmáli við eig-
inmann sinn sem sakar hana um gróft framhjáhald.
ur á The Apostle, sem hann
leikstýrir og leikur í auk
þess að skrifa hand-
ritið. Hér fer á eft-
ir listi yfir helstu
kvikmyndir sem
Robert Duvall
hefur leikið í:
To Kill a Mocking-
bird, 1963,
The Chase, 1966
Countdown, 1968
The Detective, 1968
Bullitt, 1968
True Grit, 1969
MASH, 1970
THX 1138,
1971
The
í Phenomenon leikur Robert
Duvall þorpslækni og vin Johns
Travolta, þann sem fyrstur trúir
honum og reynir að vemda hann.
Robert Duvall á að baki langan feril
í kvikmyndum, en hefur auk þess
skrifað handrit og leikstýrt og gefið
^út plötur með eigin tónlist. Hann
hlaut óskarsverðlaun fyrir leik sinn
í Tender Mercies en hefur að auki
þrisvar verið tilnefndur; var það
fyrir The Godfather, Apocalypse
Now og The Great Santini.
Robert Duvall hóf feril sinn í
þeirri frægu kvikmynd To Kill a
Mockingbird, árið 1963, og hefur síð-
an leikið í yfir sextíu kvikmyndum.
- leikferill
Síðast sást hann leika á móti Demi
Moore í The Scarlett Letter, á móti
Dennis Quaid og Juliu Roberts í
Something to Talk about og í A
Family Thing lék hann á móti
James Earl Jones auk þess að
frammleiða þá mynd.
Robert Duvall hefur leikið í
nokkrum góðum sjónvarpsmynd-
um, má þar nefna Stalin, þar sem
hann lék titilhlutverkið, en fyrir
leik sinn í þeirri mynd hlaut hann
Golden Globe verðlaunin, Lonesome
Dove og Ike, þar sem hann lék
Eisenhower forseta. Robert Duvall á
að baki eina heimildarkvikmynd,
sem hann leikstýrði, We’re not the
Robert Duvall í hlutverki þorpslæknisins í Phenomenon.
Jet Set, sem
fjallar um rod-
eo-fjölskyldu í
Nebraska og nú
er hann að und-
irbúa
tök-
Godfather, 1972
Joe Kidd, 1972
The Conversation, 1974
The Godfather Part II, 1974
Breakout, 1975
Network, 1976
The Eagle Has Landed, 1977
The Betsy, 1978
Apocalypse Now, 1979
The Great Santini, 1979
True Confessions, 1981
Tender Mercies, 1983
The Natural, 1984
The Lightship, 1986
Colors, 1988
The Handmaid's Tale, 1990
Days of Thunder, 1990
Rambling Rose, 1991
The Plague, 1991
Falling Down, 1993
Wrestling Ernest Hemmingway,
1993
The Paper, 1994
The Stars Fell on Henrietta, 1995
Something to Taik about, 1995
The Scarlett Letter, 1995
A Family Thing, 1996
Phenomenon, 1996
-HK