Dagblaðið Vísir - DV - 09.05.1997, Qupperneq 12
FÖSTUDAGUR 9. MAÍ 1997
34
jnyndbönd
MYNDBAMDA
^MRVN
Tin Cup:
Að sigra eða sigra ekki *
Roy Tin Cup McAvoy er golfsnillingur sem húkir
í hjólhýsi og kennir golf á lúsarlaunum vegna þess
að hann er svo vitlaus að hann klúðrar öllu sem
hann kemur nálægt. Versti óvinur hans er ekki eins
snjall golfleikari en miklu klárari og gengur vel.
Hann á líka unnustu sem Tin Cup er ástfanginn af.
Til að vinna ástir hennar ákveður Tin Cup að taka
þátt í opna bandaríska meistaramótinu og vinna það. Hvorki söguþráð-
urinn né persónurnar í þessari mynd ganga upp. Svo virðist sem mein-
ingin hafi verið að búa til einhvers konar sjarmerandi „lúser“ með
snilligáfu en Costner er bara ekkert sjarmerandi og einhvem veginn gat
ég ekki fengið mig til að taka snilligáfu hans trúanlega. Hann býr til per-
sónu sem er svo leiðinleg að við lá að ég héldi með vonda kallinum.
Rene Russo er lítið skárri. Hún er snoppufríð en afar léleg leikkona og
gersneydd öllum kynþokka. Ekki einu sinni Cheech Marin nær að
galdra fram brosviprur þannig að þessi mynd er vonlaus í alla staði. Til
að bæta gráu ofan á svart eru leiðindin rúmlega tveir klukkutímar að
lengd. Golfið fær hálfa stjörnu.
Útgefandi: Warner-myndir. Leikstjóri: Ron Shelton. Aðalhlutverk: Kevin
Costner og Rene Russo. Bandarísk, 1996. Lengd: 129 mín. Öllum leyfð.
Chain Reaction:
Eltingaleikur
-pj
Hópur vísindamanna er að reyna að þróa aðferð til
að vinna orku úr vatni en aðferðin á að skila nánast
ótakmarkaðri orku á ódýran hátt án þess að ógna
umhverfinu. Þegar tilraunimar hera loks árangur er
forvigismaðurinn drepinn og tilraunastofan sprengd
í tætlur. Keanu Reeves og Rachel Weisz leika tvö
ungmenni sem voru þátttakendur í tilrauninni og er
þeim kennt um ódæðið. Þau leggja á flótta og em
hundelt, hæði af alríkislögreglunni og hinum óprút-
tnu samsærismönnum sem í rauninni báru ábyrgð á
ódæðinu. Keanu Reeves fer ekkert illa með línumar
sínar en ég man ekki einu sinni hvernig Rachel Weisz litur út. Morgan
Freeman og Fred Ward eru hins vegar traustir í sínum hlutverkum.
Söguþráðurinn er afar veikburða og sérstaklega er broslegt að það taki
Fred Ward nánast alla myndina að fatta að einhver kom fólskum sönn-
unargögnum fyrir i íhúðum skötuhjúanna tveggja. Hins vegar er mikið
af flottum sprengingum og tilheyrandi og það er víst það sem mestu máli
skiptir í svona mynd. Hasarinn er eins og gengur og gerist en vinnu-
brögðin í fagmannlegri kantinum.
Útgefandi: Skífan. Leikstjóri: Andrew Davis. Aðalhlutverk: Keanu Reeves
og Morgan Freeman. Bandarísk, 1996. Lengd: 107 mín. Bönnuð innan 12
ára. -PJ
Bordello of Blood:
Blóðsugufyndni
Hér er um að ræða mynd úr seriunni Tales from
the Crypt sem leggur sig út fyrir að gera fyndnar
hryllingsmyndir. í Bordello of Blood er aldagömul
vampíra búin að hola sér niður í líkhúsi nokkru og
rekur þar vændishús þar sem viðskiptavinimir fá
ekki alveg þá þjónustu sem þeir vonast eftir. Eftir
að drullusokkur nokkur mætir örlögum sínum þar
fer systir hans að grafast fyrir um hvarf hans og
ræður einkaspæjara til að kanna málið. í þetta
blandast síðan vantrúað lögreglulið og heittrúaður
sjónvarpspredikari. Hryllingurinn og grínið eru
bæði í veikburðari kantinum, enda er markhópurinn kannski einum of
ungur, hvort sem um er að ræða þroskaðan húmor eða hryllingsþol.
Leikaramir eru nánast allir þriðja flokks en sjónvarpspresturinn er þó
þokkalegur. Corey Feldman leikur töffarann sem er borðaður í byrjun
myndarinnar og er nákvæmlega eins og hann var þegar hann barnung-
ur barðist við Kiefer Sutherland í einhverri vampírumyndinni. Þrátt
fyrir alla gallana er myndin brosleg á stundum og svo eru vampírur
alltaf flottar, sérstaklega ef þær em kvenkyns.
Útgefandi: ClC-myndbönd. Leikstjóri: Gilbert Adler. Aðalhlutverk: Dennis
Miller, Erika Eleniak og Angie Everhart. Bandarísk, 1996. Lengd: 83 mín.
Bönnuð innan 16 ára. -PJ
The Funeral:
Mafíósar
Myndin hefst á líkvöku mafíósans Johnnys Temp-
ios. Meðal syrgjenda eru bræður hans, Ray og Chez.
Chez er ekki alveg heill á geði og er nánast óvið-
ræðuhæfúr vegna örvæntingar hans. Ray er hins
vegar drifinn áfram af heift og hefhdarþrá. Milli þess
sem við fylgjumst með leit Rays að morðingja bróð-
ur síns fáum við að sjá skot úr fortíðinni og fræð-
umst um samband hræðranna þriggja. Myndin fetar
ekki veg spennumyndar heldur kannar samskipti
mafiósanna og eiginkvenna þeirra og sýnir á kald-
ranalegan hátt þeirra miskunnarlausu veröld. Örlög
þeirra eru grimm og áhorfandanum er ekki hlíft við neinu. Með því að
víkja ekki undan þar sem aðrar myndir hefðu hlíft áhorfandanum ýtir
hún óþægilega við honum og öðlast trúverðugleika fyrir vikið. Abel
Ferrara leikstýrir gjarnan athyglisverðum og tilgerðarlausum myndum
og nær yfirleitt miklu úr leikarahópnum. Þessi mynd er nokkuð vel
heppnuð og leikaramir standa fyrir sinu en bestur er senuþjófurinn
Benicio Del Toro. Vincent Gallo og Isabella Rossellini ná einnig fima-
sterkum tökum á sínum hlutverkum og Christopher Walken og Chris
Penn líða fyrir samanburðinn þótt þeir leiki alls ekki ilia.
Útgefandi: Myndform. Leikstjóri: Abel Ferrara. Aðalhlutverk: Christopher
Walken, Vincent Gallo og Chris Penn. Bandarísk, 1996. Lengd: 90 mín.
Bönnuð innan 16 ára.
-PJ
Phenomenon heldur fyrsta sætinu þriöju vikuna í röð
en verður sjáifsagt fljótlega að fara að gefa eftir. Sú sem
líklegust er til aö ná efsta sætinu er Tin Cup sem kem-
ur á hraðferð beint í þriðja sætiö. Pessi gamansama
kvikmynd með Kevin Costner gerist aö stórum hluta á
golfvelli og er því örugglega góð skemmtun öllum þeim
sem þessa dagana eru aö pússa kylfur sínar fyrir átök
sumarsins. Á myndinni er Kevin Costner í hlutverki at-
vinnumannsins og Cheech Marin í hlutverki kylfu-
sveins. Önnur ný mynd kemur inn á listann þessa vik-
una. Er það úrvalsmyndin Smoke sem segir á skemmti-
legan máta frá kaupmanninum á horninu og viðskipta-
vinum hans og hvernig líf allra blandast saman - sann-
kölluö kvikmyndaveisla fyrir alla sem gaman hafa af
góðum kvikmyndum.
28. apríl til 4. maí
S/ETI FYRRI VIKA VIKUR Á LISTA TITILL , UTGEF. TEG.
1 i ; 3 Phenomenon Sam-myndbönd Drama
2 . 4 . 2 Chain Reaction Skrfan Spenna
3 Ný 1 ; Tin Cup Warner myndir Gaman
4 2 i 3 r Black Sheep ClC-myndbönd Gaman
5 ; 3 8 ; Substitute Háskólabió Spenna
6 1 6 r 7 Timeto Kill Warner myndir Spenna
7 ; 5 4 ; Fan Sam-myndbönd Spenna
8 9 l 4 r Escape from L.A. ClC-myndbönd Spenna
9 io ; 4 ; Feeling Minnesota Myndfsrm Spenna
10 n 7 Multiplicity Sfcrfan Gaman
11 7 8 Nutty Professor ClC-myndbönd Gaman
r 12 H mm 12 5 Stiptease Skífan Spenna
n ; s ; 6 ; Twister ClC-myndbönd Spenna
14 13 r 4 ; r Lone Star Skífan Spenna
15 ; ní ; i ; Smoke Skífan Drama
16 i 15 i 5 Beautiful Girls Skrfan Gaman
17 17 3 ; Solo Sktfan Spenna
18 14 9 : HHHH Eraser Warner Myndir Spenna
19 18 ' 15 Fargo Háskólabíó Spenna
20 20 i 2 Funeral Myndform Spenna
Phenomenon
John Travolta og
Robert Duvall
Hinn hlédrægi
George verður fyrir
því að einhvers
konar eldingu lýst-
ur niður í hann og
vankar hann. Þegar
hann rankar við sér
áttar hann sig á því
að áður óþekkt orka
hefur hreiðrað um
sig í líkama hans og
huga, orka sem ger-
ir honum kleift að
sjá og ftnna fyrir
óorðnum hlutum,
jafnframt því að
hann getur nú
hreyft hluti úr stað
með huganum. Þeg-
ar hæfileikar hans
spyrjast út vekur
það misjöfn við-
brögð.
Chain Reaction
Keanu Reeves og
Morgan Freeman
Vélvirkinn Eddie
Kasalivich og vís-
indakonan Lily
Sinclair eru í flokki
vísindamanna sem
hafa fundið upp
nýja tegund orku.
Skömmu eftir að
uppfinningin er
gerð er rannsóknar-
stofan eyðilögð í
sprengingu og yfir-
maður þeirra myrt-
ur. Eddie og Lily
eru grunuð um
ódæðið og eina von
þeirra er að valda-
mikill embættis-
maður leggi þeim
lið. Allsendis óvíst
er þó að hann sé á
þeirra bandi.
Tin Cup
Kevin Costner og
Rene Russo
Ef Roy „Tin Cup“
McAvoy væri snjall
hefði hann getað
orðið meðal þeirra
snjöllustu í golfí-
þróttinni í stað þess
að vera nú golf-
kennari í litlum bæ
i Texas. Hann hefði
einnig átt að láta
sér nægja að kenna
sálfræðingnum dr.
Molly golf eins og
beðið var um í stað
þess verða ástfang-
inn af henni. Nú
þarf hann að gera
eitthvað stórkost-
legt til að koma lífi
sínu á rétta braut.
Það sem Roy þarf
að gera er að sigra á
opna bandaríska
meistaramótinu.
Black Sheep
Chris Farley og
David Spade
Mike Donnelly er
með afbrigðum
óheppinn og er í
raun eitt stykki gang-
andi stórslys. Nú hef-
ur hann ákveðið að
aðstoða bróður sinn
við að vinna ríkis-
stjórakosningar. En
það er alveg sama
hvað Mike gerir,
alltaf endar allt með
ósköpum. Þegar A1
sér að pólitískur fer-
ill hans er í hættu
fær hann letiblóðið
Steve Dodds til að að-
stoða sig við að koma
bróður sínum úr um-
ferð tímabundið.
Steve áttar sig fljótt á
að hann er að gera
hrikalegustu mistök
lífs síns.
The Substitute
Tom Berenger og
Diane Verona
Kennslukona við
framhaldsskóla í
Flórída hefur sagt
forsprakka glæp-
aklíkunnar i skólan-
um stríð á hendur
með þeim afleiðing-
mn að á hana er ráð-
ist og hún stórslösuð.
Unnusti hennar,
málaliðinn Shale,
ákveður að ráða sig
sem forfallakennara í
hennar stað til að
ganga á milli bols og
höfuðs á glæpaklík-
unni. Hann kemst
hins vegar fljótt að
því að klíkan er
hlekkur í gífurlega
vel skipulagðri eitur-
lyfjadreifingu og
kallar félaga sína til
liðs við sig.