Dagblaðið Vísir - DV - 26.05.1997, Blaðsíða 4
4
MÁNUDAGUR 26. MAÍ 1997
Fréttir
Rís ný verslunarmiðstöð í Smárahvammslandinu?
Hagkvæmniathuganir
gefa jákvæða niðurstöðu
Enn er óvíst til hvers risastór lóð
í Smárahvammslandinu i Kópavogi
verður notuð. Hugmyndir hafa
heyrst um stóra verslunarmiðstöð
og skrifstofubyggingu. Á laugardag
sagði DV frá Smáranum ehf., hluta-
félagi sem stofnað hefur verið um
athugun á nýtingu á umræddri lóð.
Lóðin er 100 þúsund fermetrar og af-
markast af Reykjanesbraut að aust-
an, Hagasmára að sunnan, Smára-
hvammsvegi að vestan og Fifu-
hvamsvegi að norðan. Heilsugæslu-
stöð rís nú vestast á lóðinni en að
öðru leyti er óráðið hvað þar verður
byggt. Niðurstöður hagkvæmniat-
hugana varðandi verslunarmiðstöð
hafa verið jákvæðar.
„Það er verið að skoða hvað gera á
við lóðina og mörgum spumingum
ósvarað. Þetta er stór lóð sem gefur
tilefni til mikilla fjárfestinga. Það
hefur verið unnið að undirbúnings-
vinnu vegna nýtingar lóðarinnar í
eitt og háift til tvö ár sem ekki er
langur tími miðað við líftíma fjár-
festinganna. Niðurstöður allra hag-
kvæmniathugana hafa verið jákvæð-
ar en vinnu við umfangsmiklar
markaðsrannsóknir og fleira er ólok-
ið. Þeir aðilar sem standa að Smár-
anum horfa langt ffam í tímann og
verða engar ákvarðanir teknar fyrr
en öll lykilatriði eru á hreinu,“ sagði
Pálmi Kristinsson, framkvæmda-
stjóri Smárans, við DV.
Að Smáranum ehf. standa Nóa-
tún, Olíufélagið, BYKO, Steypustöð-
in og Byggingarfélag Gunnars og
Gylfa. Síðastnefndi aðilinn er lóðar-
hafl á þessum stað.
Pálmi leggur áherslu á að enn sé allt
galopið varðandi nýtingu lóðarinnar.
Tal um verslunarmiðstöð eða skrif-
stofubyggingu sé bara orðrómur. -hlh
Harpa Lind Haröardóttir var valin feguröardrottning (slands 1997 á Hótel Islandi sl. föstu-
dagskvöld. Hún tók viö kórónunni og sprotanum úr höndum Sólveigar Lilju Guömunds-
dóttur, feguröardrottningu íslands áriö 1996, en hún er einnig úr Njarðvík.
Harpa Lind
fegurst kvenna
Þorgeröur Þóröardóttir, feguröardrottning Austurlands, var kjörin besta Ijós-
myndafyrirsætan en hún lenti í fimmta sæti í keppninni um titilinn feguröar-
drottning íslands. DV-myndir Teitur
Harpa Lind Harðar-
dóttir úr Njarðvík var
valin fegurðardrottn-
ing íslands á Hótel ís-
landi á föstudagskvöld-
ið en tuttugu stúlkur
frá öllum landshlutum
kepptu um titilinn.
Guðný Helga Herberts-
dóttir úr Reykjavík
varð í öðru sæti og
Dagmar íris Gylfadótt-
ir, fegurðardrottning
Reykjavíkur, hafnaði í
því þriðja. Hún var
einnig kjörin vinsæl-
asta stúlkan. Þorgerð-
ur Þórðardóttir, feg-
urðardrottning Aust-
urlands, var kjörin
besta íjósmyndafyrir-
sætan.
Harpa Lind mun
keppa fyrir íslands
hönd um titilinn Ung-
frú Evrópa og Ungfrú
heimur.
-gdt
Dagfari_________________________
Kringlóttir útreikningar
Eftir mikla útreikninga og yfir-
legu hafa færustu sérfræðingar
fundið út hvað helst vantar í ís-
lenskt samfélag. Það er hvorki
sjúkrahús né skólar enda nóg af
slíku. Það sem sárast brennur á
mönnum er að fá nýja verslunar-
miðstöð, klasa eða kringlu eins og
við þekkjum úr Kringlumýrinni.
Kringlan hefúr glatt okkur í ríf-
lega áratug og í dag vita menn ekki
hvemig þeir fóru að áður en hún
kom til. Þar er allt til alls, verslan-
ir af öllum gerðum, allt frá efna-
laugum upp i áfengisverslun, veit-
ingastaðir og nýjasta viðbótin er
fjöldi kvikmyndasala. í salarkynn-
um Kringlunnar geta menn eytt
heilu dögunum og þurfa því ekki
að láta sér leiðast heima hjá sér.
Þetta er fjölmennasti samkomu-
staður þjóðarinnar og guUtryggt að
hitta fjölda manns á göngum versl-
unarmiðstöðvarinnar.
Viti menn ekki hvað þeir ætla
sér að kaupa fara þeir í Kringluna
og mega ganga út frá þvi sem vísu
að þeir finna eitthvað. Ungmenni
steðja þangað að loknum prófum
og sletta úr klaufunum. Allt er svo
þægilegt á glæsigötum verslunar-
klasans. Þar eru menn ekki háðir
dæmigerðu íslenski veðri, hríð og
frosthörkum eð vetri og rigningu
og roki að sumri.
Stórkaupmenn vilja meira að
segja gera Kringluna alþjóðlega og
flytja inn ferðamenn í þeim til-
gangi einum að fara með þá í mið-
stöðina og selja þeim merkjavöru
svokaUaða sem mun vera ódýrari
hér á landi en í nálægum stórborg-
um. íslendingar hafa að vísu aldrei
áttað sig almennUega á þessu enda
flykkjast þeir í verslunarferöir tU
útlanda og telja sig vera að gera
stórkostleg kaup.
í kringlum framtíðarinnar felast
möguleikarnir. Við erum hvort
sem er með allt of dýran landbún-
að, mengandi stóriðju og of fáa
fiska í sjónum. Þess vegna hafa
helstu stórfyrirtæki tekið sig sam-
an og ætla sér að koma upp nýrri
kringlu í Kópavogi. Sú kringla hef-
ur fengið tU umráða risavaxna lóð
enda mun ekki af veita. Þar á allt
að vera á svipuðum nótum og i
Kringlumýrinni, bara stærra.
Verslanir fleiri og stærri. Göngu-
götumar breiðari og fleiri og jafn-
vel fleiri bíósalir.
Þessi nýi klasi kann að valda
nokkru hugarangri hjá fólki enda
er ekki ýkja langt á miUi Kringlu-
mýrar og Smárahvamms þar sem
nýja verslunarmiðstöðin á að rísa.
Húsmæður verða að gera það upp
við sig hvar þær eiga að eyða deg-
inum. Auðvitað er hugsanlegt að
hinir skipulögðu ráði vel við verk-
efnið. Þeir gætu tU dæmis farið á
mánudögum í Kringluna og
þriðjudögum í Smáraklasann og
síðan koU af koUi. Þá er og hugs-
anlegt að skipta heimsóknunum
hreinlega eftir vikum. Viku í
Kringlunni og viku í Smára-
hvammi. GaUinn er bara sá að
ekki eru aUir svona skipulagðir.
Eiga krakkar að dreifa sér að
loknmn prófum eða skipta miUi
ára? Oddatölur í Kringlu og jöfnu
tölurnar í Kópavoginum?
Þetta verður sennUega minna
vandamál með innfluttu viðskipta-
vinina. Væntanlega verður séð tU
þess að þeir komi við á báðum
stöðum tU þess að ná sér í merkja-
vöruna. VUji menn hafa virkUeg-
an stæl á þessu ætti að koma upp
neðanjarðarbraut miUi verslunar-
miðstöðvanna, metrói að útlendri
fyrirmynd. Þá þyrftu ferðamenn-
irnir aldrei að kynnast íslenskum
útsynnmgi. Þeir yrðu sóttir í
Leifsstöð og skUað þangað aftur að
loknum innkaupum.
Nái áformin um nýju kringluna
fram að ganga ætti ekki að væsa
um okkur í framtíðinni. Það mætti
jafnvel hugsa sér að koma upp enn
einni í Leifsstöðinni um leið og
þeir stækka hana. Þá þarf ekki
einu sinni að fara með merkjavöru-
kaupendurna út af UugveUinum.
Dagfari