Dagblaðið Vísir - DV - 26.05.1997, Page 6

Dagblaðið Vísir - DV - 26.05.1997, Page 6
6 MÁNUDAGUR 26. MAÍ 1997 Fréttir Sandkorn i>v Hrygningarþorskur horf- inn úr Barentshafinu - kunnum ekki að reikna út þorskkvóta, segir forstjóri norsku hafró DV, Osló: „Við verðum bara að viðurkenna að aðferðin, sem nú er notuð við að reikna út þorskkvóta, er ekki nógu góð. Við getum ekki séð fyrir hvað stofninn verður stór á næsta ári og þar með getum við ekki ákveðið hvað kvótarnir eiga að vera stórir," segir Roald Waage, forstjóri norsku hafrannsóknarstofnunarinnar í Bergen, í samtali við DV. íslenskar spár í uppnámi? Samkvæmt skýrslu OECD um ís- lensk efnahagsmál er gert ráð fyrir vaxandi hagvexti, m.a. vegna spár fiskifræðinga um að þorskstofninn sé á uppleið. Útreikningar um ástand DV, Suðurnesjum: „Þetta er mjög gott framtak hjá áhöfninni á Skarfi. Vonandi fylgja fleiri á eftir því þetta hefur mikið að segja fyrir okkur," sagði Óli Þór Kjartansson, forstöðumaður Dósasels Þroskahjálpar Suðumesja. Skarfur GK kom til Grindavikur með óvenjulegan farm. Þegar kar var þorskstofnsins eru grundvallaðar á sömu forsendum og hjá Norðmönn- um. Hafí Roald Waage rétt fyrir sér eru þvi spár um viðgang íslenskra fiskistofna einnig í uppnámi. Waage hefur skrifað Alþjóða ha- frannsóknarstofnuninni bréf þar sem hann fer þess á leit að visinda- nefnd stofnunarinnar hefji endur- skoðun á aðferðum við útreikninga á stofnstærð þorsks. Ástæðan er sú að hrygningarþorskurinn, sem átti að vera í Barentshafinu í vor, er þar ekki nú. Fyrirsjáanlegt er að minnka verður kvótana fyrir næsta ár. Spádómar hrynja „Aðferðin, sem notuð er við að reikna út stofnstærðina, er alvar- híft frá borði kom í ljós að það var vel fullt af dósum sem áhöfnin færði Þroskahjálp að gjöf - um 1000 dósir. „Þessar dósir eru eftir mánaðar- útivist og því mikið gos drukkið um borð. Það hefur ekki gengið sem skyldi að áhafnir báta gefi dósir til Þroskahjálpar. Við tókum okkur saman um borð og hvetjum aðra til að gera það sama. Það er jafnauð- lega gölluð,“ segir Waage. „Upplýs- ingarnar eru alltaf gamlar. Það er of mikið miðað við reynslu fyrri ára og ekki nægilegt tillit tekið til skyndilegra breytinga í vistkerfinu. Nú hefur verið óvenjukaldur vetur í Barentshafmu og þá hrynja allir spádómar um stofnstærðina." Waage sagðist ekki vita hvemig leysa ætti vandamálið. Hins vegar væri ástæðulaust að láta eins og allt væri í lagi og að vísindin um þor- skinn væru á traustum grunni byggð. Þorskurinn flakkar Waage sagði að engar vísbending- ar hefðu komið fram um hvar hrygningarþorskurinn úr Barents- hafinu héldi sig nú. Hann sagðist Áhöfnin á Skarfinum viö dósakarið ásamt Ásmundi Þórhallssyni, starfs- manni Þroskahjálpar, Pétri skip- stjóra og Óia Þór. DV-mynd MK velt að henda dós í kar og í rusla- fótu. Þeir sækja dósirnar til okkar og útvega einnig poka undir þær. ekki trúa að fiskurinn hefði farið til íslands þótt þorskgengd sé nú óvenjumikil við landið. „Það er ekki hægt að útiloka að þorskurinn flakki milli íslandsmiða og Barentshafsins en það er ekkert sem bendir til að hann geri það. Merkingar á þorski sýna að einn og einn fiskur fer á milli en ekki allur stofninn. Ég held að íslenskir starfs- bræður mínir séu sammála þessu,“ sagði Waage. DV bað Waage að spá um afla í Smugunni í sumar. Hann sagöi að óumdeilanlegt væri að sjór væri mjög kaldur í austanverðu Barents- hafi eftir harðan vetur og það gæti þýtt að enginn afli yrði í Smugunni i sumar. -GK,-rt Það er ekki hægt að hafa betri þjón- ustu,“ sagði Pétur Jóhannsson, skipstjóri á Skarfinum. Óli Þór segir að dósasöfnun sé undirstaða starfsemi Þroskáhjálpar. „Hjá okkur vinna 7 fatlaðir einstakl- ingar hálfan daginn. Ef fólk gæfi ekki dósir þá hefðu þeir ekki vinnu hjá okkur. Ég efast um að þeir hefðu nokkurs staðar vinnu. Við gerðum átak í fyrra og sendum öllum skip- stjórum og stýrimönnum á Suður- nesjum bréf um dósasöfnun okkar. En því miður kom sáralítið út úr því. Hvert dósir eða flöskur áhafna fara veit ég ekki,“ sagði Óli Þór. -ÆMK Þroskahjálp fékk 1000 dósir INTERNETÞJONUSTA PÓSTS OG SÍMA POSTUR OG SIMI HF Þeir sem tengjast Internetþjónustu Pósts og síma hf með innhringingu fá hraða og örugga tengingu við Interneþð, og þar með Veraldarvefnum. Ýmislegt er innifalið, m.a. • netfang fyrir tölvupóst • 5 MB geymslurými fyrir tölvupóst • 0,5 MB geymslurými fyrir eigin heimasíðu Tenging meb innhringingu um olmenna símanetib, hrabi alit ab 28,8 kb/s. Tenging meb innhringingu um samnetib, ISDN, hrabi ailt ab 64 kb/s. Verð fyrir skráningu kr. 1.868 Fast verð á mánuði kr. 1.245 ** Verð fyrir hverja mínútu kr. 1.97 10 klst. á mánuði kosta kr. 2.427 25 klst. á mánuði kosta kr. 4.200 ** Innheimt ársfjórðungslega kr. 3.735 Verð fyrir skráningu kr. 623 Fast verð á mánuði kr. 374 * Verð fyrir hverja mínútu kr. 1.12 10 klst. á mánuði kosta kr. 1.046 25 klst. á mánuði kosta kr. 2.054 * Innheimt ársfjórðungslega kr. 1.121 Talsímakostnaður er ekki innifalinn í mínútuverði þjónustunnar. Nánari upplýsingar er að fá í síma 550 6330, hjá Gagnaflutningsdeild Pósts og síma hf. Gott að tapa Það er oft stórkostlegt að fylgjast með ummælum þjálfara og íþrótta- manna sem þeir viðhafa eftir leiki. Þaö að ummæli þeirra eru oft skemmtileg af- lestrar má í og með rekja til þess að ffétta- menn reyna oft að ná til þeirra strax í leikslok á meðan þeir era „heitir", i þeirri von að þeir missi eitt- hvað „skemmtilegt" út sér áður en þeir ná að róa sig niður. Þjálfari íslands- og bikar- meistara Skagamanna í knatt- spymu, Ivan Golac, lofar góðu fyrir sumariö í þessum efnum en hans menn fóra til Vestmannaeyja i fyrstu umferð íslandsmótsins og töpuðu þar verðskuldað 1-3. En það var engan bilbug að finna á þjálfar- anum eftir tapið heldur þvert á móti. Hann virtist ánægður og fyrstu „gáfulegu" ummæli hans féllu í leikslok. Vinnum allt Þjálfarinn lýsti því nefnilega yfir eftir ósigurinn að nú fyrst væri hann sannfærður um að hans menn yrðu íslandsmeistarar og myndu vinna alla 17 leikina sem eftir væra. Það gekk reyndar ekki eftir þeg- ar „Kiddi Björns og milljónamær- ingamir“ í Leiftri frá Ólafsfirði komu á Skag- ann sl. fimmtudags- kvöld en þá fengu heimamenn aðeins eitt stig. En vegna þeirra ummæla þjálfara Skagamanna sem féllu í Eyjum verður manni á að hugsa tú þess hvað hann mun segja ef Skagamenn tapa leik i Bikarkeppninni í sumar. Ætli hann segist þá sannfærður um að Skagamenn verði bikarmeistarar árið 1998? Valtýr san íþróttafréttamaðurinn smávaxni á Bylgjunni, Valtýr Bjöm Valtýs- son, hefur verið glaðbeittur og skemmtilegur í lýsinginn sínum frá Heimsmeist- arakeppninni í handknattleik í Japan og þótt kátur sé að öllu jöfnu virk- ar hann óvenjuglaður og hress í út- sendingum sín- um þaðan. Gárungamir svokölluðu voru að ræða þetta og urðu sammála um aö skýringin væri aug- ljós. Valtýr, sem er með smávöxn- ustu mönnum, er nefriilega á „heimavelli" hvað hæðina varðar og vel það. Hann ber höfuö og herð- ar yfir margan Japanann í Koma- móto og fær ekki I hálsinn þótt hann ræði við þá augliti til auglitis. Áfram Valtýr san! Þeir eru bestir Austur á Húsavík er svo ritstjóri Vikurblaðsins, Jóhannes Sigurjóns- son, að velta því fyrir sér hversu góðu knattspyrnuliði Völsungur þar í bæ gæti teflt fram, ef allir synir Húsavík- ur lékju með liðinu í sumar. Ritstjórinn fann nefnflega út af sínu al- kunna þing- eyska lítfllæti að brottfluttir Völsungar eru lykilmenn flestra bestu liðanna i aðal- deild knattspyrnunnar (ég neita að skrifa Núlltadeildin eins og for- svarsmenn KSÍ vilja kalla þá deild). Ritstjórinn segir augljóst að Völs- ungur sé „orðinn útungunarstöð fyrir stóra og ríku klúbbana og auð- vitað löngu orðið tímabært að fara að gera samninga við leikmenn liðs- ins strax í 3. flokki þannig að félag- ið fái eitthvað fyrir sinn snúð þegar og ef þeir hleypa heimdraganmn.“ Umsjón: Gylfi Kristjánsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.