Dagblaðið Vísir - DV - 26.05.1997, Page 18
18
MÁNUDAGUR 26. MAÍ 1997
8. HG í Foldaskóla sendir bangsann Benna um Bandaríkin:
Hefur heimsótt yfir tug skóla
8. HG í Foldaskóla hefur undan-
farið tekið þátt í sérstöku verkefni á
vegum Kidlink, samtaka sem fá fólk
á aldrinum 10-15 ára um allan heim
til að spjalla saman á Netinu. Þau
sendu lítinn bangsa, sem heitir
Benni, til Bandaríkjanna
með alls kyns sérstaka
hluti frá íslandi í
poka. Jafnaldrar
krakkanna í
Bandaríkjunum
hafa síðan skipt
á þessum hlutum
og hlutum heim-
an frá sér. Nú er
Benni kominn
heim með hlutina
og þar kenndi
ýmissa grasa, svo
ekki sé sterkar
til orða tekið.
Blaðamað-
ur DV
hitti
krakkana á föstudaginn og spjallaði
við Rósu Gunnarsdóttur sem á í
raun frumkvæðið að verkefninu um
Benna.
Ótrúlega viðbrögð
„Krakkarnir í bekknum hafa gert
dálítið að því að tala við jafnaldra
sína í Bandaríkjunum í gegnum
Kidlink. Ég hafði heyrt af því
að krakkar höfðu sent jafn-
öldrum sínum í öðrum lönd-
um ýmsa hluti og ákvað því
að reyna eitthvað svipað,“
sagði Rósa.
Rósa sendi stutta fyrir-
spurn inn á vef Kidlink
þar sem þessi hugmynd
var viðruð. Við-
brögðin létu svo
á sér
standa.
Ragnheiöur Bjarnadóttir, 14 ára, meö Benna.
Hluti 8. HG í Foldaskóla meö Benna. Á bak viö þau má sjá hluta af því sem
kom með Benna frá Bandaríkjunum. DV-myndir S
„Ég átti alls ekki von á svo ótrúlega
miklum viðbrögðum sem raunin
varð. Allir vildu fá eitthvað frá ís-
landi,“ sagði Rósa. Úr varð að Benni
var sendur til Bandaríkjanna með
bakpoka og m.a. voru sendir fánar
og myndir, ásamt nokkrum sérís-
lenkum uppskriftum, m.a. að sviða-
sultu og lifrarpyslu. „Þetta hefur
mælst mjög vel fyrir. Benni hefur
nú farið í um 14-15 skóla og alls
staðar hafa viðtökurnar verið prýð-
isgóðar," sagði hún.
Benni fer kringum
hnöttínn
Benni hefur nú flakkað um
Bandaríkin undanfama mánuði og
safnað að sér ýmsum hlutum sem
krakkarnir í skólunum þar hafa
viljað láta af hendi. Framtak þetta
hefur einnig vakið athygli erlendra
fjölmiðla og m.a. var frétt í Los Ang-
eles Times um heimsókn Benna.
Hlutimir sem þeir fengu til baka
voru margir hverjir ekki af verri
endanum. Eldfjallaaska, ísknatt-
leikspökkur og ógrynnin öll af póst-
kortum og veggmyndum svo fátt eitt
sé nefnt. Krakkarnir, sem eru 14
ára, virtust allir vera hinir ánægð-
ustu með það sem þeir fengu.
En Benni fær hins vegar ekki
langa hvíld. Eftir nokkrar vikur
heldur hann áfram flakki sínu.
Fyrst verður hann sendur aftur til
Bandaríkjanna þar sem nokkrir
skólar komust ekki að í fyrstu heim-
sókninni. Síðan fer hann hringinn í
kringum hnöttinn, til Brasilíu,
Ástralíu, Nýja-Sjálands og að lokum
Evrópu.
Að lokum má geta þess að hægt
er að fylgjast með þessu skemmti-
lega verkefni 8. HG í Foldaskóla á
slóðunum
http://www.intercom.net/loc-
al/weeg/bennil.html og http:
/ / www.kidlink.com/KID-
PROJ/Benni. -HI
„Ýtni" færist í vöxt á Netinu:
Microsoft og Netscape
bæta ýtni í vafrana
Ýtni, eða „Push“, eins og það heit-
ir á ensku, er nýtt form í upplýs-
ingaleit sem að mörgu leyti er talið
hentugra heldur en að leita á vefn-
um, enda getur slíkt gert hvem
mann vitlausan. Að minnsta kosti
virðist þetta skoðun Microsoft og
Netscape. Báðir þessir vafrafram-
leiðendur ætla að bæta eiginleikum
í vafra sína sem gerir notendum
kleift að nýta sér ýtnina til þess að
fá upplýsingar.
Ýtni gengur út á það að í stað
þess að þurfa að leita að upplýsing-
um um ákveðna hluti í hvert sinn
sem maður þarf á þeim að halda eru
sendar til manns nýjar upplýsingar
um leið og þær berast. Pointcast er
Óskalisti
brúðhjónanna
Gjafaþjónusta fyrir
brúðlcaupið 1
<9)SILFURBÚÐIN
'-LS Kringlunni 8-12 »Sími568 9066
- Þar fœröu gjöfina -
sennilega þekktasta dæmið um ýtni
en með því er hægt að fá fréttir
sendar nánast um leið og þær eiga
sér stað. Kosturinn við þess aðferð
annar en að fá niðurstöðumar strax
er sá að maður fær ekki allar þær
gagnslausu upplýsingar sem oft
vilja fljóta með þegar leitað er. Af
þessum ástæðum hafa ýmsir talið
ýtni hentuga leið til að fá þær upp-
lýsingar sem á þarf að halda.
Microsoft ætlar að bæta þessum
eiginleika við Internet Explorer 4.0
þegar endanleg útgáfa af honum lít-
ur dagsins ljós. Gert hefur verið
samkomulag við ýmis fyrirtæki um
að þau noti tækni Microsoft til að
ýta upplýsingum sínum til netnot-
enda. Reyndar er þar ekki um
einkarétt að ræða því sum þessara
fyrirtækja, sem hafa náð samning-
um við Microsoft, segjast einnig
styðja Netscape.
Netscape hefur hins vegar gert
betur. Fyrirtækið er í samstarfi við
Marimba og hefur samið um að all-
ar þær 100 ýtnirásir sem fyrirtækið
ræður yfir verði fáanlegar í Nets-
cape. Þessi tækni kallast Netcaster.
Eitt er ólíkt með því sem þessir
tveir framleiðendur bjóða upp á í
vöfrum sínum. Microsoft lætur þá
sem veita upplýsingarnar ráða
hvaða gögn er hægt að fá á þennan
hátt. Netscape mun hins vegar frek-
ar safna saman öllu sem finnst og
úr því geta síðan notendur valið
hvaða flokk upplýsinga þeir vilja fá
sendan í tölvuna til sín.
-HI
Netíð í símaklefa
Lítiö kanadískt fyrirtæki, King Products,
hefur nú þróaö nýja tækni sem gerir
vefinn aögengilegan gegnum venjuleg-
an símaklefa. Fyrirtækiö hefur þegar
fengiö pantanir fyrir ríflega 2 milljónir
dollara.
Tækni
þessi, sem
kallast á
ensku
„powerpho-
nes,“ veröur
fyrst sett
upp í Hong
Kong.
Þannig verö-
urt.d. hægt
aö panta
hótelher-
bergi og
borö á veit-
ingahúsi úr
símaklefa á
fjölförnum
stööum, s.s.
járnbrautar-
stöövum og söfnum.
Kirkjubækur
á geisladiska
Danir eru farnir aö gera kirkjubækur
sínar aögengilegar á geisladiskum.
Fyrsti geisladiskurinn er þegar kominn
út og inniheldur kirkjubækur Árósa frá
1729-1891. Alls eru þetta 6293
skannaöar síöur og eru 36.839 ein-
staklingar skráöir á þessum síöum.
Margir möguleikar eru til leitar á síö-
unum, t.d. eftir nafni manns, fæöing-
arstað og fæöingardegi. Meðal ann-
arra möguleika má nefna aö hægt er
aö skoöa nánar síöur sem innihalda
einhverjar athyglisveröar athugasemd-
ir.
Oracle 8
kemuríjúní
Næsta útgáfa af Oracle gagnagrunnin-
um, Oracle 8, veröur sett á markaö um
heim allan 24. júní. Nýja útgáfan get-
ur meðhöndlaö miklu meira magn
upplýsinga en eldri útgáfur. Ray
Lane, framkvæmdastjóri Oracle,
sagöi aö líklega mundu nettölvurn-
ar koma á markaö á svipuöum
tíma.
Málaferli gegn
Amazon.com
Hagnaður Nintendo
minnkar
Útlit er fyrir aö Nintendo sé aö
veröa undirí samkeppninni viö
Sony á leikjatölvumarkaönum.
Hagnaöur Nintendo minnkaöi um
13,7% á sföasta ári í tímatali þeirra
Japana en hjá þeim voru áramót
31. mars. Nintendo-menn skýra
þetta meö miklum kostnaöi viö
framleiöslu og dreifingu á hinni
nýju 64 bæta [eikjatölvu þeirra,
Nintendo 64. Á meðan á þessu
stendur heldur Sony Playstation
áfram aö seljast vel. í fýrra seldu
þeir 8,9 milljón tölvur meöan Nin-
tendo seldi aöeins 6,1 milljón._
@megin:Bókaversl-
unin Barnes &
Noble, sem nýlega
hefur opnað vef-
síöu, hefur höföað
mál á hendur sam-
keppnisaðila sínum,
Amazon.com. Sú
síöarnefnda er
ákærö fyrir aö kalla
sig stærstu bóka-
búö heims á heima-
síöu sinni. Segja
talsmenn Barnes &
Noble aö
Amazon.com sé
ekki bókabúö heldur bókabraskari
sem noti Netiö til aö græöa. Amaz-
on.com, sem er nú aö rétta úr
kútnum eftir nokkra fjárhagserfið-
leika, er þessa dagana aö fara á
almennan hlutabréfamarkaö. Bú-
ist er viö mikilli sölu á þeim bréf-
um næstu vikur og mánuði.
/
Kerri Strug
Bandaríska funleikakon-
an Kerri Strug öðlaðist
heimsfrægð eftir Ólympíu-
leikana í Atlanta á síðasta
ári. Heimasíða tileinkuð
henni er staðsett á
http://www.strug.com.
Ferðalög
Mjög ítarlegur og
j skemmtilegur ferðavefur er
á http: //www.tra-
velweb.com. Þar er m.a.
hægt að fá upplýsingar um
flugfar og hótel og panta sér
far og gistingu.
Símaskrá Banda-
ríkjanna
Ef leitað er að símanúm-
eri og/eða heimilisfangi
einhvers í Bandarikjunum
þá er rétti staðurinn
http://www.abii.com/looku
í pusa/adp/peopsrch.htm.
Þar er hægt að finna alla
| skráða símnotendur Banda-
í ríkjanna.
Edgar Allan Poe
Heimasíða tileinkuð þess-
um fræga hryllingssagna-
höfundi er á
; http://www.cais.com/webw
eave/poe/poe.html.
Jamaica
Þeir sem vilja fá upplýs-
ingar um Jamaica geta
fundið allt sem þeim dettur
í hug um landið á
http://www.jamaica-
gleaner.com.
Britanica um ÓL
Encyclopaedia Britanica
hefur sett saman myndar-
legan upplýsingavef um
sögu Ólympíuleikanna.
Hann er að fmna á http:
//sports.eb.com.
HM í handbolta
Heimasíða tileinkuð
heimsmeistarakeppninni í
handknattleik sem nú
stendur sem hæst er að
finna á http://handball.et-
net.co.jp.
Hekla
Upplýsingar og myndir af
Heklu er að finna á http:
//www.smart.is/rang/ra-
efiii/kohekl.htm.