Dagblaðið Vísir - DV - 26.05.1997, Qupperneq 33
MÁNUDAGUR 26. MAÍ 1997
45
Eítt skipslíkaniö á sýningunni í
Norræna húsinu.
Föðurland vort
hálft er hafið
í anddyri Norræna hússins
stendur yfir sýning á skipslíkön-
um af Svíþjóðarbátum sem komu
til íslands fyrir hálfri öld. Hefur
sýningih yfirskriftina Föðurland
vort hálft er hafið. Einnig eru
sýnd líkön af eldri og yngri skip-
um sem áttu sinn frægðarferil og
ljósmyndir sem tengjast hafinu
prýða einnig sýninguna. Líkönin
gerði Grímur Karlsson, skipstjóri
í Njarðvík, en hann á mikiö safn
af skipslíkönum sem hann hefur
gert af miklum hagleik undanfar-
in ár. Sýningin stendur til 10. júní.
Tónleikar
Pennateikningar
Þessa dagana sýnir Brynja
Ámadóttir pennateikningar í
Galleríi Sölva Helgasonar, Sölva-
bar í Lónkoti, Sléttuhllð í Skaga-
firði. Brynja er fædd á Siglufirði
en fóöurætt hennar kemur úr
Skagafirði, Óslandshlíð og Hofs-
ósi. Þetta er sjöunda einkasýning
Brynju, einnig hefúr hún tekið
þátt í samsýningum. Sýningin
stendur til 28. júní.
Jakusho Kwong fyrir miöri mynd
ásamt Dalai Lama.
Hvað er unnið
með því að tapa?
Jakusho Kwong eða Roshi eins
og hann er oftast nefndur er einn
af fáum ZEN-meisturum. Hann er
nú kominn til landsins á vegum ís-
lenska zen-hópsins og heldur fyrir-
lestur í Menningarmiðstöðinni
Gerðubergi annað kvöld kl. 20.30.
Gróðurkortagerð
1 kvöld verður haldinn síöasti
fræðslufyrirlestur Hins íslenska
náttúrufræðifélags á þessari vor-
önn. Fundurinn er í stofu 101 í
Lögbergi. Á fúndinum flytur Guð-
mundur Guðjónsson landfræöing-
ur erindi sem hann nefnir Gróð-
urkortagerð.
Samkomur
Phoenix-klúbbfundur
Síðasti Phoenix-klúbbfundur-
inn fyrir sumarfrí verður haldinn
í kvöld kl. 20.00 á Hótel Loftleið-
um í Þingsölum. Phoenix-klúbb-
fundir eru fyrir alla þá sem sótt
hafa Brian Tracy námskeiðið
Phoenix - Leiðin til árangurs og
eru ætlaðir til upprifjunar og við-
halds jákvæðu hugarfari.
Tvímenningur
Félag eldri borgara í Reykjavík
stendur fyrir tvímenningi í
bridge í Risinu í dag kl. 13.00.
Lögfræðingur félagsins er til við-
tals á þriðjudögum.
Gengið á Krýsuvíkurberg
Krýsuvíkurberg er mesta fúgla-
bjargið í nágrenni höfuðstaðarins,
um 7 km langt og allt að 40 m hátt.
Er það suðurbrúnin á Krýsuvíkur-
heiði. Ganga á Krýsuvíkurberg er
ákaflega áhugaverð, einkum á vor-
in og snemma sumars, meðan
fúglalífið er þar mest.
Umhverfi
Um tvær aðalleiðir er að velja á
bergið. Önnur er með vesturbrún
hraimsins sunnan Geitahlíðar og
er þá komið niður á austurenda
bergsins en hin er suður frá Bæjar-
felli. Hægt er að aka nokkuð áleið-
is niður með Vestrilæk en svo
verður að ganga niður hjá Selöldu
og á bergið vestarlega. í hvoru til-
fellinu sem er er æskilegast að
ganga eftir allri bergbrúninni og
þarf því drjúgan tíma í ferðina ef
gert er ráð fyrir nægum tíma til
fuglaskoðunar og hvílda.
Heimild: Gönguleiðir á íslandi eftir
Einar Þ. Guðjohnsen.
Kaffi Reykjavík:
Grétar
og Sigga
Beinteins
Kaffi Reykjavík er einhver
vinsælasti skemmtistaðurinn á
höfuðborgarsvæðinu og þar er
haldið uppi merki lifandi tón-
listar og ekkert kvöld líður hjá
án þess að einhver skemmti-
kraftur eöa hljómsveit komi þar
fram. í kvöld eru það Stjómar-
liðamir vinsælu, Grétar Örv-
arsson og Sigga Beinteins, sem
Skemmtanir
skemmta gestum á Kaffi
Reykjavík. Óþarft er að kynna
þau nánar en þau hafa staðið
framarlega í íslensku
skemmtiflórunni í mörg ár og
hafa gert víðreist um landið
auk þess sem þau geta státað af
glæsilegustu útkomu í
Eurovision-söngvakeppninni
sem íslendingar hafa náð. Þau
Grétar og Sigga Beinteins munu
einnig skemmta annaö kvöld.
Órafmagnað á
Gauknum
í kvöld verður órafmagnað
gæðapopp á Gauki á Stöng með
hljómsveitinni Lekkert. Annað
kvöld og miðvikudagskvöld er
það U3- Project sem leikur fyrir
gesti á Gauknum. Hljómsveit
þessi hefúr sérhæft sig í U2.
Grétar Örvarsson og Sigga Beinteins
skemmta gestum á Kaffi Reykjavík f
kvöld.
Leikhúskjallarinn:
J ónasarkvöld
í tilefni sextíu ára afinælis Máls og menningar verð-
ur á afmælisárinu efiit til margs konar hátiðahalda.
Fyrsta menningarkvöldið er í kvöld í Leikhúskjallaran-
um og nefnist það Jónasarkvöld. Þar flytur Páll Valsson
erindi um Jónas Hallgrímsson og flutt verða ný lög eft-
ir Atla Heimi Sveinsson við ljóð Jónasar. Erindi Páls
heitir Eitt sumar enn - Austfjarðaferðin sumarið 1842,
en hann er umsjónarmaður endurbættrar útgáfu á
Kvæði og sögum Jónasar Hallgrímssonar sem fyrst
komu út 1957.
Tónleikar
Atli Heimir Sveinsson tónskáld hefur samið ný lög við
nokkur þekktustu ljóða skáldsins og eru þau komin út
á geislaplötu, alls tuttugu og tvö að tölu, undir yfirskrift-
inni Jónasarlög. Flytjendur laganna í kvöld eru Signý
Sæmundsdóttir, söngur, Sigurlaug Eðvaldsdóttir, fiðla,
Anna Guðný Guðmundsdóttir, píanó, Sigurður Ingvi
Snorrason, klarinetta og Hávaröur Tryggvason, kontra-
bassi. Ljóðakvöldið hefst kl. 20.30.
Atli Heimir Sveinsson tónskáid.
Guðjón Einar
Við endurbirtum hér
myndina af Guðjóni Ein-
ari þar sem slæm villa
læddist í textann á föstu-
dag. Hann fæddist á fæð-
ingardeild Landspítalans
Barn dagsins
9. maí kl. 22.07. Hann var
við fæðingu 3810 grömm
að þyngd og mældist 55
sentímetra langur. For-
eldrar hans eru Guörún
K. Guðjónsdóttir og Leon
Einar Pétursson og er
Guðjón Einar fyrsta barn
þeirra.
Mælskulist er í miklum metum
hjá hirðinni í myndinni Háðung.
Háðung
Háskólabiói sýnir um þessar
mundir frönsku gæðamyndina
Háðung (Ridicule). Mynd þessi
gerist við hirð Lúðvíks XVI og er
aðalpersónan ungur aðalsmaður,
Ponceludon, sem kemur úr sveit-
inni. Tilgangur hans er að fá
konunginn til að samþykkja lag-
færingar á jörð sinni svo að
verkamenn geti verið lausir við
mýrarköldu. Hann rekur sig
fljótt á marga veggi við hirðina
þar sem sá sem hefur yfir að
ráða mælskulist á mesta mögu-
leika á að ná eyrum konungs. Nú
vill svo til að Ponceludon er
Kvikmyndir
snillingur i kappræðum og
kemst því á endanum i talfæri
við kónginn. Hann á þó eftir að
komast að því að það þarf meira
til ef halda á hylli konungs. Leik-
stjóri er Patrice Leconte en með
aðalhlutverk fara Charles Berl-
ing, Fanny Ardant, Jean
Rochefort og Judith Godreche.
Nýjar myndir:
Háskólabíó: Umsátrið
Laugarásbíó: Lygari, lygari
Kringlubíó: Howard Stern
Saga-bíó: Tindur Dantes
Bíóhöllin: Beavis og Butt-Head
Bíóborgin: Donnie Brasco
Regnboginn: Öskrið
Stjörnubíó: Amy og villigæsrnar
Stjörnubíó: Blóð og vín
Krossgátan
T" T~ 1 ¥• if L >
i ir
/0» fS"
11 j mmm
1 i? ST
18
y J w
Gengið
Almennt gengi LÍ nr. 137
23.05.1997 kl. 9.15
Eininq Kaup Sala Tollgengi
Dollar 69,820 70,180 71,810
Pund 113,510 114,090 116,580
Kan. dollar 50,730 51,050 51,360
Dönsk kr. 10,8480 10,9050 10,8940
Norsk kr 9,9100 9,9650 10,1310
Sænsk kr. 9,2070 9,2570 9,2080
Fi. mark 13,6770 13,7580 13,8070
Fra. franki 12,2610 12,3310 12,3030
Belg. franki 2,0009 2,0129 2,0108
Sviss. franki 49,6300 49,9000 48,7600
Holl. gyllini 36,7500 36,9700 36,8800
Pýskt mark 41,3300 41,5400 41,4700
ít. líra 0,04187 0,04213 0,04181
Aust. sch. 5,8680 5,9050 5,8940
Port. escudo 0,4090 0,4116 0,4138
Spá. peseti 0,4895 0,4925 0,4921
Jap. yen 0,60320 0,60680 0,56680
írskt pund 105,320 105,980 110,700
SDR 96,84000 97,42000 97,97000
ECU 80,5100 80,9900 80,9400
r~
Lárétt: 1 útlistun, 8 Þræði, 9 matar-
ilát, 10 sterkt, 12 undirforul, 14 tarf-
ur, 15 haf, 16 kalda, 18 guðir, 19
málms, 21 bugður, 22 borðaði.
Lóðrétt: 1 sveigjanleg, 2 deila, 3
bogi, 4 reyndar, 5 kvenmannsnafn, 6
reikningar, 7 glensa, 11 gæfan, 13
skurður, 15 ánægð, 17 krot, 20
ásaka.
Lausn á síðustu krossgátu:
Lárétt: 1 vanmeta, 7 aða, 8 erja, 10
regn, 11 hál, 12 liggi, 13 sú, 14 ang-
ist, 16 ösnu, 18 sóa, 19 ljá, 20 marr.
Lóðrétt: 1 varla, 2 aðeins, 3 nagg, 4
mengi, 5 er. 6 tjá, 9 alúðar, 11 hissa,
15 gná, 16 öl, 17 um.
Símsvari vegna gengisskráningar 5623270