Dagblaðið Vísir - DV - 26.05.1997, Page 36

Dagblaðið Vísir - DV - 26.05.1997, Page 36
 Vinningótölur laugardaginn 1 11 (26 28 f 36 Vinningar vinninga Vinning&upphœð <■ sats m 1 11.475.700 2.4ats<* ® 6 120.130 1 4 at s 127 9.790 4- 3 ats 4.394 660 24. 05 Hélldarvinnlngóupphœð 16.339.850 FRÉTTASKOTIÐ SÍMINN SEM ALDREI SEFUR Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eöa er notað í DV, greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan sólarhringinn. 550 5555 Ástfangin krydd- stúlka á íslandi „Viö erum yfir okkur ástfangin," sagði Fiölnir Þorgeirsson þegar blaðamaður DV rakst á hann á ■*^r skemmtistaðnum Astró sl. laugar- dagskvöld ásamt kryddstúlkunni Mel B. sem er meðlimur einnar „heitustu" poppsveitar heims um þessar mundir, Spice Girls. Turtildúfurnar komu akandi í límósínu, eins og finu fólki sæmir, ásamt hópi af fólki og litu vart hvort af öðru allt kvöldið. „Mel fer til Bretlands á morgun en henni finnst alveg frábært að vera hérna. Ég er í fyrirtækja- rekstri þannig að ég get ekki farið utan núna en ég mun heimsækja hana reglulega og ætli við verðum ekki til skiptis á tslandi og Bret- landi,“ sagði Fjölnir. -ggá Aðilar VestQarðadeilunnar á óformlegum fundum í gærkvöld: Búist við sáttatillögu Aðilar vinnudeilunnar á Vest- fjörðum, alþýðusambandsmenn og vinnuveitendur, sátu á óformleg- um fundum með ríkissáttasemjara í Karphúsinu gærdag og í gær- kvöld. Þar var farið ítarlega yfir stöðu mála og fundaði sáttasemj- ari með aðilunum hvorum í sínu lagi. Þótti fjóst að verið væri að kanna grundvöll sáttatillögu. „Við vitum ekki hvort þessir fundir leiða til sáttatillögu eða annars, þ.e. að menn semji. Deilu- aðilar eru komnir suður og hér eru miklar þreifingar í gangi. Mál- in skýrast væntanlega á morgun," sagði Þórir Einarsson ríkissátta- semjari við DV í gærkvöld, að- spurður hvort verið væri að vinna að sáttatillögu sem lögð yrði fram næstu daga. Vinnudeila Alþýðusambands Vestfjarða og vinnuveitenda vestra hefur staðið yfir í sex vik- ur. Deiluaðilar gengu á fund Dav- íðs Oddssonar forsætisráðherra og Páls Péturssonar félagsmálaráð- herra í Ráðherrabústaðnum i gær- dag þar sem ráðherrunum var gerð grein fyrir stöðu mála. Eftir fúndinn sögðu ráðherrarnir að deilan væri í mun harðari hnút en þeir hefðu gert sér grein fyrir, hnút sem virtist fremur herðast en losna. Mikið bil væri milli aðila. Sagðist Davíð hafa verulegar áhyggjur af framtíð byggðarlag- anna á Vestfjörðum héldi deilan mikið lengur áfram. Báðir útilok- uðu ráðherrarnir þó setningu bráðabirgðalaga til lausnar deil- unni, erfitt væri að flnna flöt til setningar slíkra laga. Drægist deil- an á langinn væri hins vegar ekki útilokað að gripið yrði til slíkra örþrifaráða. Verkfallsverðir fylgdust náið með ferðum togarans Bessa í gær og var mönnum heitt í hamsi. Var löndun úr togaranum stöðvuð þar sem hann hafði lagst að bryggju i Súðavík í gærmorgun. Stjóm Frosta hf., sem gerir út Bessa, sagði í tilkynningu „harma þær ólögmætu aðgerðir sem hafðar hafa verið uppi í Hafharfirði og Grundarfirði þegar löndun var stöðvuð". Væri Bessi eina skipið á Vestfjörðum sem komið hefði ver- ið í veg fyrir löndun úr. Pétur Sigurðsson, formaður ASV, sendi í gærmorgun harðort Pétur Sigurðsson mundar hér myndatökuvél sjónvarpsmanna. Ekki fylgir sögunni hvort tökuvél- in hafi hjálpað Pétri að sjá málin ( fókus. DV-mynd Pjetur bréf til forsætisráðherra þar sem sagði að ef verkfallsbrot við lönd- un úr Bessa í Súðavík yrði ekki stöðvuð yrði ekki rætt við einn né neinn um lausn vinnudeilunnar. -hlh Pétur Sigurðsson, formaður Alþýðusambands Vestfjarða, viö upphaf fundar alþýðusambandsmanna meö Davíð Oddssyni forsætisráðherra og Páli Péturssyni félagsmálaráðherra í Ráðherrabústaðnum í gær. Á fundinum voru málin skýrð fyrir ráöherrunum. DV-mynd Pjetur Reykjavík: Tveir brunar í fyrrinótt Slökkviliðið í Reykjavík var kall- að út tvisvar sama klukkutímann í fyrrinótt vegna bruna. Fyrra útkallið átti sér stað klukk- an 1.04. Tilkynnt var um eld á 5. hæð í húsi í Lækjargötu þar sem skemmtistaðurinn Tunglið er til húsa. Skemmtistaðurinn var rýmd- ur á meðan slökkvistarf stóð yfir. Eldur hafði myndast í sófa í geymslu og gekk slökkvistarf greið- lega. Skemmdir urðu nokkrar. Rétt um það leyti sem slökkvilið var á heimleið var tilkynnt um eld og mikinn reyk í iðnaðarhúsnæði að Brautarholti 26. Þegar slökkvilið kom á staðinn var útlitið ekki gott. Mikið rauk út um glugga á efstu hæð í þriggja hæða húsi. Slökkvi- starf gekk þó vonum framar og gekk vel að slökkva eldinn. Töluverðar skemmdir urðu á húsinu vegna elds og reyks. Eldsupptök í báðum bnmimum eru ókunn en rannsókn stendur yfir. -RR Reykjavík: Sænskar löggur handtóku innbrotsþjófa Tveir sænskir lögreglumenn í fríi á íslandi handtóku tvo innbrots- þjófa í Reykjavík í gærmorgun. Svíarnir voru á herbergi sínu á Hótel Leifi Eiríkssyni á Skólavörðu- stíg þegar þeir urðu varir við mann úti á götunni. Sá var að brjótast inn í bfl. Svíamir stukku út og hand- tóku manninn. Hann var síðan færður í fangageymslur. Sænsku lögreglumennimir fóru þvi næst í göngutúr um hverfið og handtóku þá annan innbrotsþjóf á Laugavegi sem var búinn að brjóta rúðu í verslun þar. Svíarnir héldu manninum þar til Reykjavíkurlög- reglan kom að og flutti hann í fanga- geymslur. Sænsku lögregluþjónarnir ættu því að vera í góðri æfingu eftir þessa Reykjavíkurheimsókn sína. -RR Laxinn genginn „Ég var að kíkja eftir laxi í Elliðaánum og sá þá þrjá laxa í Miðkvöm, skammt neðan við Sjávarfossinn. Tveir laxanna vom smáir en einn um 12 pund,“ sagði áhugamaður um laxveiði í samtali við DV í gær. Þetta era fyrstu fréttir sem berast af laxagengd en veiði hefst í Elliðaánum um miðjan júní. -SK VERÐUR EKKI AÐ SENDA ÞÓFANA Á SÆNSKUNÁMSKEIÐ? L O K I Veðrið á morgun: Hlýtt austan til Á morgun verður suðvestan- kaldi með rigningu um vestanvert landið en hægari austan til, létt- skýjað og hlýtt. Veðrið i dag er á bls. 44

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.