Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.1997, Qupperneq 10
myndbönd
FÖSTUDAGUR 30. MAÍ 1997 '13"V
Jennlfi
- ánægðust með að hafa ekki staðnað í vissum hlutverkum
Jennifer Lopez er ung leikkona
sem er á mikilli hraðferð upp
sljömustigann í Hollywood. Lopez
hefur ekki langa reynslu að baki i
kvikmyndum en verið áberandi í
þeim myndum sem hún hefur leikið
í. Fyrsta kvikmyndin sem hún er
aðalstjarnan í, Selena, hefur náð
miklum vinsældum og þykir ljóst að
Jennifer Lopez á bjarta framtíð fyr-
ir höndum ef hún heldur rétt á spöð-
unum.
Jennifer Lopez leikur á móti
Robin Williams í Jack, sem er á
myndbandalistanum þessa vikuna,
leikur hún þar þynþokkafulla
kennslukonu sem fær meðal nem-
enda sinna fullorðinn mann sem er
þó aðeins tíu ára gamall. í myndinni
verða allir strákamir hrifnir af
kennslukonunni og er Jack þar eng-
in undantekning. Hún á samt í
meiri erfiðleikum með hann, sem
skiljanlegt er.
Lopez segir að það hafi verið leik-
sfjórinn Francis Ford Coppola sem
hafi fundist það nauðsynlegt að hún
hefði áhrif á hormónaganginn hjá
strákunum og þegar hún hafði spurt
hann hvers vegna svaraði hann þvi
til að hann hefði haft kennara sem
hafði þessi áhrif á hann þegar
hann var strákur. Sjálf segist
Lopez hafa gengið í kaþólskan
skóla í tólf ár þar sem slíkur hugs-
anagangur var víðs fjarri henni.
„Við vorum þrjár stelpumar í
minni fjölskyldu og við vissum
ekki hvað kærasti var fyrr en viö
vorum orðnar nánast að táning-
Dansaði
í vin-
um.
Þegar auglýst var eftir dansara
til að vera fastamaður í hin-
um vinsæla sjónvarpsþœtti
In Living Color sótti hún
um starfið og var valin
úr fjölda umsækjehda
og sú sem valdi
hana var Rosie
Perez, sem eins og
Lopez stökk inn í
kvikmyndimar,
en Perez var þá
danshöfundur
sjónvarps-
þáttarins.
í Anaconda þarf Jennifer Lopez aö eiga viö risaslöngu. Hún er á myndinni
ásamt Jon Voight.
sælum sjónvarpsþætti
í Jack leikstýrir Francis Ford
Coppola Jennifer Lopez en hann
var einmitt framleiðandi tyrstu
kvikmyndarinnar sem hún lék í,
My Family/Mi Familia, þar sem
hún lék unga mexíkanska móður
sem verður fómarlamb aðstæðna
þegar hópur ólöglegra innflytj-
enda er fluttur yfir landamærin
yfir til Mexíkó. Fékk hún mikið
lof fyrir leik sinn og á þeim rúm-
um tveimur árum sem liðin eru
hefur Lopez leikið í fimm kvik-
myndum.
Jennife Lopez fæddist fyrir
tuttugu og sex árum í Bronx.
Foreldrar hennar komu frá
Puerto Rico. Hún stundaði nám
jöfnum höndum í ballett og djass-
ballett. Þegar auglýst var eftir
dansara til að vera fastamaður í
Jennifer Lopez ásamt Robin Williams
hinum vinsæla sjónvarpsþætti In
Living Color sótti hún um starfið og
var valin úr fjölda umsækjanda. Sú
sem valdi hana var Rosie Perez, sem
eins og Lopez stökk inn í kvikmynd-
imar, en Perez var þá danshöfund-
ur sjónvarpsþáttarins. Áður hafði
Lopez dansað með ýmsum dans-
flokkum og meðal annars ferðast
um Evrópu með einum slíkum.
Þegar Lopez hafði lokið við My
Family/Mi Familia lék hún á móti
Wesley Snipes og Woody Harrelson
í Money Train. Jack kom næst, síð-
an Blood and Wine, þcir sem hún
leikur á móti Jack Nicholson og
Michael Caine, sú mynd er nú sýnd
í Stjömubíói. Næsta mynd hennar
var síðan hryllingsmyndin
Anaconda
sem náði
miklum vin-
sældum vest-
an hafs og
verður tekin
til sýningar
hér á landi í
byrjun júní.
Stærsta hlut-
verk hennar
aftur á móti
hingað til er
titilhlutverkið
'Jack- í Selena. í
þeirri mynd leikur hún söngkonuna
vinsælu sem myrt var fýrir tæpum
tveimur árum. Vakti morðið heims-
athygli. Hefur Selena fengið góða
dóma og nýtist Lopez vel í hlutverk-
in reynsla hennar í skemmtana-
bransanum.
Jennifer Lopez er mjög ánægð
með þau hlutverk sem hún hefur
fengið hingað til: „Ég hef ekki þurft
að vera hrædd við að festast í einu
hlutverki, ég hef verið svo heppin
að hlutverkin hafa verið mjög ólík
og ef ferill minn heldur áfram á
'
Dennis
- Leikferillinn
Dennis Quaid er einn af eftirsótt-
ustu leikurum í Hollywood. Hann
hefur leikið í rúmum þrjátíu kvik-
myndum og sjónvarpsmyndum og
unnið með mörgum af hæfileika-
mestu leikstjórunum. Dennis Quaid
leikur aðalhlutverkið í Deagonhe-
art, sem er í þriðja sæti myndbanda-
listans, og stutt er síðan hann lék á
móti Juliu Roberts í Something to
Talk about. Þá var hann sá leikari
sem hlaut mesta hrós fyrir leik í
Wyatt Earp, lék hann Doc Holliday
og var nánast óþekkjanlegur í hlut-
verkinu.
Dennis Quaid lék sitt frysta hlut-
verk í kvikmynd árið 1977, var það í
September 30, 1955, sem James
Bridges leikstýrði. Athygli vakti
hann fyrst í gamanmyndinni vin-
sælu, Breaking Away, sem Peter
Yates leikstýrði. Hann fylgdi vel-
gengninni eftir með The Long
Riders þar sem hann lék á móti
eldri bróður sínum, Randy Quaid.
Dennis Quaid hefur átt misgóða
daga eins og flestir en oft hefur hon-
um tekist vel upp. Má nefna myndir
eins The Big Easy, þar sem hann lék
á móti Ellen Barkin, Everybody’s
All American, þar sem mótleikari
hans var Jessica Lange, Great Balls
of Fire, en í þeirri mynd lék hann
rokkarann Jerry Lee Lewis, og
Postcards from the Edge þar sem
mótleikari hans var Meryl Streep.
Fyrir tíu ánun lék Dennis Quaid
í Innerspace og var mótleikari hans
Meg Ryan. Kynni þeirra leiddu til
hjónabands sem þykir standa traust-
um fótum enn þann dag í dag. Auk
þess að leika í Innerspace hafa þau
hjón leikið saman í D.O.A. og Flesh
and Bone.
Dennis Quaid fæddist í Houston í
Texas og nam leiklist við háskólann
í Houston. Lék hann um tíma í
þeirri borg en flutti sig um set til
New York þar sem hann fékk sitt
fyrsta tækifæri á sviði á móti bróð-
ur sínum Randy í leikriti Sam
Shepards, True West. Quaid hefur
leikið í nokkrum sjónvarpsmyndum
og eru helstar, Bill on His Own og
Johnny Belinda. Hér á eftir fer listi
yfir þær kvikmyndir sem Dennis
Quaid hefur leikið í.
September 30, 1955,1977
Seniors, 1978
Our Winning Season, 1978
G.O.R.P., 1979
Breaking away, 1979
The Long Riders, 1980
All Night Long, 1981
Caveman, 1981
The Nights Went out in Georgia,
1981
Tough Enough, 1982
Jaws 3-D, 1983
The Right Stuff, 1983
Dreamscape, 1984
Enemy Mine, 1985
The Big Easy, 1987
Innerspace, 1987
Suspect, 1987
D.O.A. 1988
Great Bails of Fire, 1989
Postcards from the Edge, 1990
Come See the Paradise, 1990
Undercover Blues, 1993
Wilder Napalm, 1993
Flesh and Bone, 1993
Wyatt Earp, 1994
Something to Talk about, 1995
Dragonheart, 1996
Dennis Quaid
í hlutverki
sínu í
art.