Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.1997, Síða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.1997, Síða 11
★ - ★ + tyndbönd 25 FÖSTUDAGUR 30. MAÍ 1997 Vinkonurnar þrjár, Brenda Morelli Cushman, Elise Elliot Atchison og Annie MacDuggan Paradise, hafa séð betri tíma. Þær hafa verið vin- konur frá þvi á skólaárum sínum en hafa far- ið í mismunandi áttir síðan. Brenda giftist viðskiptajöfri, Elise gerðist kvikmyndastjarna og Annie húsmóðir. Allar tóku þær virkan þátt í að hjálpa eiginmönnum sinum að byggja upp fyrirtæki sín en nú hefur þeim öll- um verið sparkað fyrir yngri og kynþokka- fyllri konur. Stöllumar þrjár ákveða að láta ekki þijótana komast upp með svona meðferð. Þær lýsa yfir striði á hendur sínum fyrrver- andi eiginmönnum og leggja á ráðin um grimmilegar hefndaraðgerðir. The First Wives Club: i hef ndarhug Metsöluskáldsaga Bette Midler, Goldie Hawn og Diane Keaton leika forsmáðu konumar þijár í The First Wives Club en meðal annarra leikara em m.a. Maggie Smith, Sarah Jessica Parker, Dan Heda- ya, Bronson Pinchot, Elizabeth Berkley og Marcia Gay Harden. Myndin er gerð eftir samnefndri skáldsögu eftir Olivia Goldsmith. The First Wives Club var hennar fyrsta bók og sló strax í gegn, komst á met- sölulista og hlaut góðar við- tökur gagnrýnenda. Leik- j stjóri myndarinnar er Hugh Wilson (Police Academy, Rustler’s Rhapsody, Guar- ding Tess) en hann frétti fyrst af bókinni í gegnum fyrrver- andi enskukennara sinn. Hann spurði hana hvort hún hefði lesið eitthvað nýlega sem gæti orðið að góðri mynd og hún benti honum á The First Wives Club. En þegar hann fór að spyijast fyrir um hana kom í ljós að það var þegar búið að selja kvik- myndaréttinn að henni. Þeg- ar svo heppi- lega vildi til að honum var boðið að leik- stýra mynd- inni þurfti hann ekki að hugsa sig lengi um, sérstak- lega eftir að hann komst að því hvaða leikkonur höfðu verið fengnar í aðalhlutverkin. Bette Midler hefúr hlotið tvær óskarsverð- launatilnefningar, tvenn Emmy verðlaun, fem Grammy verðlaun, ein Tony verðlaun og tvenn Golden Globe verðlaun. Hún hefur átt velgengni að fagna á tónlistarsviðinu ekki síður en á leik- listarsviðinu og gaf nýlega út sina sextándu plötu. Hún hafði reyndar þegar byggt upp farsælan feril í sönglist og leiklist og m.a. komið fram í vinsæl- um söngleikjum á Broad- way þegar hún sló í gegn sem kvik- myndastjama í The Rose sem aflaði henni ~ ' ^ hennar fyrstu ósk- arsverð- launatil- nefningar. Divine Madness Jinxed fylgdu í kjölfarið en 1984 hóf hún störf hjá Walt Disney kvikmyndaverinu og kom fram í mörgum vinsælum gamanmyndum, þ.á m. Down and out in Beverly Hills, Ruthless People, Outrageous Fortune og Big Business. Meðal ann- arra mynda hennar á níunda áratugnum vora Beaches, Stella og Scenes from a Mall en þann ti- unda byijaði hún með For the Boys. Upp á síðkastið hefur hún hvílt sig nokkuð á kvik- myndaleik en kemur aftur fram á sjón- arsviðið í hinni geysivinsælu The First Wives Club. Næst lék hún undir stjóm Carls Reiner í That Old Feel- ing. Eitt af upprunalegu blómabörnunum Goldie Hawn sló í gegn strax i annarri mynd sinni þegar hún hlaut óskarsverðlaun fyrir leik sinn í Cactus Flower 1969. í kjölfarið fylgdu myndir eins og The Sugarland Express, There’s a Girl in My Soup og Shampoo. Eftir tveggja ára frí til að sinna fjölskyldunni lék hún síðan í Foul Play og síðan Private Benjam- in en fyrir hana hlaut hún óskarsverðlaunatil- nefningu. Meðal nýlegri mynda hennar era Protocol, Overboard, Bird on a Wire, Deceived, Housesitter og Death Becomes Her en næst fáum við að sjá hana í nýjustu Woody Allen myndinni, Everyone Says I Love You. Hún hef- ur einnig unnið mikið sem framleiðandi, m.a. við Wildcats, Overboard, My Blue Heaven og Criss Cross. Diane Keaton var í upprunalega leikhópnum sem setti upp söngleikinn Hárið og lék þar á eftir aðalhlutverkið á móti Woody Allen í Play It Again, Sam. Sú mynd varð upphafið á löngu og farsælu samstarfi þeirra sem gaf af sér mynd- irnar Sleeper, Manhattan, Love and Death, Interi- ors, Radio Days, Man- hattan Murder Mystery og síðast en ekki síst Annie Hall en fyrir hlut- verk sitt í henni hlaut Diane Keaton ósk- arsverðlaunin. Meðal ann- arra mynda hennar eru The Godfather (1, 2 og 3), Reds, Crimes of the Heart, Baby Boom, The Good Mother, Father of the Bride (1 og 2) og sú nýjasta er Marvin’s Room. Þá hefur hún reynt fyrir sér sem leikstjóri og hét fyrsta kvik- myndin hennar Unstrung Heroes en hún hefur einnig leikstýrt nokkrum sjón- varpsmyndum og þáttum og tónlistarmynd- böndum. PJ UPPÁHALDS MYNDBANDIÐ MITT Lísa Pálsdóttir útvarpskona „Ég hef gaman af svo- lítið geggjuðum húmor í anda Montv Python-hópsins og get horft á þær myndir aftur og aftur. Ég á nokkuð marga þætti af Fawlty Tower eða Hótel Tindastól og hef alltaf jafhgaman af þeim þáttum og ekki sist John Cleese sem fer með aðalhlut- verkið. Ann- ars bilaði myndbands- tækið mitt fyrir ári og þá notaði ég tækifærið og fékk mér Fjölvarpið. Þar hef ég aðgang að TNT-sjón- varpsstöö- inni sem sýnir gaml- ar klassísk- ar myndir. Þegar ég er ein heima kem ég mér vel fyrir og horfi á ein- hveijar gamlar, góð- ar myndir. Betty Davis og Katherine Hep- burn eru í miklu uppáhaldi hjá mér og núna er t.d. verið að sýna klass- ískar myndir með Hep- bum sem er níræð og enn á lífi. Ég þarf nú reynd- ar að fara að fá mér nýtt mynd- bandstæki þvi ég á eftir að sjá svo margar myndir sem ég hef misst af í bíó. Ég hef líka gam- an af spennu- myndum með góðu plotti. Ég sá t.d. Usu- al Suspect um daginn og lík- aði vel. Ég fæ stundum æði og tek fjöld- ann allan af myndum . og ligg yfir tæk- inu í ein- hverja daga en tek mér svo gott frí frá mynd- bandstæk- inu.“ l \ S É|j-. Weekend in the Country Fyrir þremur áram gerði Kenneth Brannagh ágæta gaman- mynd, Peter’s Friend. Saöiaði hann þar sam- an vinum og kunningjum svo úr varð nokkurs konar fjölskyldu- og vinamynd. Sá sem skrifaði ágætt handrit að myndinni heitir Martin Bergman og er bandarískur handritshöfundur. Bergman er einnig á léttum nótum í Weekend in the Country en nú leik- stýrir hann einnig. Hefur hann safnað saman sterku liði leikara í kvikmynd sem fjallar um ólíkar per- sónur sem eyða einni helgi saman á hóteli sem kallast Ruth’s Inn. Þang- að koma þau í ólíkum erindagjörð- um. Helgin á svo eftir að tengja þau öll saman í gegnum atburði sem gerast og það má segja að allar fyr- irætlanir gestanna taki aðra stefnu en upphaflega var gert ráð fyrir. í helstu hlutverkum eru Faith Ford, Christine Lathi, Jack Lemm- on, Dudley More og Betty White. Sam-myndbönd gefa út A Week- end in the Country og er hún öll- um leyfö. Útgáfudagur er 29. maí. §m i i . m An Unexpected Family An Unexpectedi Family fjallar um I Barböra Whitn-1 ey, orðheppna 1 ógifta konu sem! kosið hefur að ná I langt í starfi I sínu. Kvöld eitt I bankar upp hjá I henni systir I hennar og biðurl hana að lita eftir' bömum sínum tveimur á meðan hún bregður sér til útlanda. Barbara kærir sig ekk- ert um börnin og neitar en systir hennar stingur af og skilur bömin eftir. Eftir að Barbara hefur gert ár- angurslausar tilraunir til að hafa uppi á systur sinni neyðist hún til að fara að hugsa um bömin. Það kemur í ljós að hin ábyrgðarlausa systir er ekkert að flýta sér að ná í þau og því neyðist Barbara til að endurskipuleggja framtíð sína með bömin í huga. Það tekur tíma fyrir alla aðila að venjast hver öðrum en með þeim þróast væntumþykja og hlýja. En þegar allt er komið í lag og Barbara búin að sætta sig við móð- urhlutverkið kemur systirin og krefst bamanna. Það er Stockard Canning sem leikur Barböm og helsti mótleikari hennar er Stephen Collins. ClC-myndbönd gefur út An Unexpect- ed Family og er hún leyfð öllum ald- urshópum. Utgáfudagur er 28. maí. fliM Wm ar er að hún sé hliðar-’ Blue in the Face Blue in the Face er í raun óbeint framhald af gæðamyndinni Smoke eða kannski frek- hægt segjaj*^*^***' saga við atburð- f'í.“ ina sem gerast í Smoke. Sem fyrr er sögusviðið tó- baksbúð Auggies sem er á götu- homi í Brooklyn. Fjöldi kunnra gesta heimsækir búðina og fylgst «<. ., er með líflegum • -». samtölum þeirra og samskiptum við f Auggie sem Harvey Keitel leikur sem fyrr. Meðal þeirra sem rekast inn í búð Auggies eru Michael J. Fox, Lily Tomlin, Lou Reed, Mira Sorvino, Jim Jarmusch, Giancarlo Espostio og Roseanne sem leikur óá- nægða eiginkonu sem dreymir um að komast til Las Vegas. Blue in the Face varð eins og Smoke til upp úr samstarfi leikstjór- ans Wayne Wangs og rithöfundar- ins Pauls Austers. Hún er þó mun minni í sniðum og má segja að Blue in the Face sé kvikmynd sem kemst næst því að vera spuni. Mikið af samtölunum urðu til fyrir framan myndavélina og eru tökur þar af leiðandi öðruvísi en áhorfendur eiga að venjast. Skífan gefur út Blue in the Face og er hún leyfð öllum aldurshópum. Útgáfudagur er 29. maí. I l

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.