Dagblaðið Vísir - DV - 06.06.1997, Page 10

Dagblaðið Vísir - DV - 06.06.1997, Page 10
FÖSTUDAGUR 6. JÚNÍ 1997 i Qmyndbönd að baki fallegu andliti býr heilsteypt kona sem er vel liðin I Courage under Fire leikur Meg Ryan unga stríðshetju og móður sem er látin þegar myndin hefst. Persónan er á yfirborðinu mjög ólík þeim persónum sem Ryan hefur túlkað á farsælum leikferli. En það er nú samt svo að það er eins og alltaf streymi ein- hver hlýja í þær persónur sem Ryan túlkar og er stríðshetjan í Courage under Fire engin undantekning. Það var þó ekki þessi hæfi- leiki sem Meg Ryan varð fræg fyrir heldur fyrir að gera sér upp fullnægingu á eftirminni- legan hátt í kaffihúsi í When Harry Met Sally. í þeirri mynd sýndi hún umtalsverða hæfileika sem gam- anleikkona og er sjálfsagt eftirsóttust sem slík. Ryan hefur þó sýnt að hún er ekki síðri í dramat- ískum hlutverkum, má þar nefna When a Man Loves a Wom- an þar sem hún leik- ur alkóhólista sem nærri eyðileggur fjölskyldu sína. Meg Ryan er nú ein eftirsóttasta leikkonan í Hollywood og getur nán- ast valið úr flestum þeim kvenhlut- verkum sem bjóðast. Nýjasta kvik- mynd hennar er Adicted to Love sem frumsýnd var um leið og The Lost World: Jurassic Park og var það eina myndin sem stóru fyrirr tækin þorðu að frumsýna á móti risaeðlum Spielbergs. Meg Ryan er ákaflega vel liðin leikkona og allir sem vinna með henni hæla henni fyrir samstarf og telja hana sérstaklega góða í um- gengni. Að baki fallegu andliti hennar býr heilsteypt og ákveðin persóna sem hefur sýnt að það er töggur í henni þegar eitthvað bjátar á í einkalífinu en hjónband hennar og leikarans Dennis Quaid hefur ekki alltaf verið dans á rósum. Qu- aid var án þess að hún vissi háður When a Man Loves a Woman lék Meg Ryan hús- móður sem á við áfengisvandamál að stríða. Með henni á myndinni er Andy Garcia sem lék eigin- mann hennar. ■■ Courage under Fire leikur Meg Ryan stríðshetju sem fórnar sér fyr- ir áhöfn sína. eiturlyfjum þegar þau kynntust. í nokkur ár gerði hún sér ekki grein fyrir vandamálinu en þegar kom að því að taka þurfti á málunum og Quaid fór I meðferð stóð hún við hlið hans eins og klettur. Úr blaðamennsku í leiklist Meg Ryan fæddist 19. nóvember í smábænum Fairfield í Connecticut. Á námsárum hennar stóð hugur hennar til blaðamennsku og innrit- aðist hún í háskólann í New York í því skyni að fullnuma sig í þeirri grein. Eftir nokkrar annir sneri hún við blaðinu og innritaðist í leik- listardeild við háskólann. Meg Ryan var ein af þeim heppnu og þurfti ekki að biða lengi eft- ir hlutverkum þegar námi lauk. Var það mikið til móður hennar að þakka en hún er fyrrum leikkona. Hafði hún góð sambönd vegna vinnu sinnar hjá sjónvarpsstöð og gat útvegaði henni hlutverk í sjónvarpi og kvikmyndum. Meira að segja þegar Ryan var enn í skóla fékk hún lítið hlut- verk í Rich and Famous, þar sem hún lék dóttur Candice Bergen. Hennar fyrsta stóra hlutverk var í sápuópe- runni As the World Turns, sem gengið hef- m- i nokkra áratugi í _______ bandarísku sjónvarpi. í As the World Turns lék Meg Ryan í tvö ár; með fram þessu starfi lék hún í tveimur ódýrum kvikmyndum. Stökkið úr sjónvarpinu yfir í kvikmyndimar tók hún þegar henni bauðst lítið hlutverk í kvikmyndinni sem gerði Tom Cruise að stjömu, Top Gun. Fyrsta aðalhlut- verk hennar í kvikmynd var í Innerspace. Það var einmitt við tökur á þeirri kvikmynd sem hún kynntist Dennis Quaid og fljótlega eftir frum- sýningu á Inner- space giftu þau sig. Meg Ryan og Dennis Quaid búa ekki í Los Angeles heldur eiga þau fal- legt sveitasetur í Connecticut, þar sem þau era öllum stundum ásamt barni sínu. Vinn- unnar vegna sjást þau ekki svo vikum skiptir, en hafa þó leikið í tveimur kvikmyndum sam- an auk Innerspace, D.O.A. oe Flesh and -HK er nú ein eftir- sóttasta leikkonan í oggetur nánast úr flestum þeim kven- hlutverkum sem bjóðast. Nýjasta kvikmynd hennar er Adicted to Love sem frum- sýnd var um leið og The Lost World: Jurassic Park og var það eina myndin sem stóru fýrirtækin þorðu að frumsýna á móti risaeðl- um Spi- elbergs. ■ Samuel L. Jackson, sem leikur annað Long Kiss Goodnight, hefur leikið nokkur eftirminnileg hlut- verk, en víst er að flestir muna eftir honum sem Jules, at- vinnumorðingjanum með biblíutextann á vörunum í kvik- mynd Quentins Tarantinos, Pulp Fiction. Fyrir leik sinn í þeirri kvikmynd fékk hann tilnefningu til óskarsverðlauna sem besti leikarinn í aukahlutverki, sem og tilnefningu til Golden Globe verölaunanna og var valinn besti leikarinn í aukahlutverki þegar Bretar útdeildu sínum verðlaunum. í milli þess sem hann lék í Pulp Fiction og The Long Kiss Goodnight lék hann meðal annars í Die Hard with a Vengeance og A Time to Kill. Samuel L. Jackson er ekki óvanur að vera orðaður við verð- laun, hans verður ávallt minnst þegar fjallað er um kvik- myndahátíðina í Cannes fyrir að hafa verið eini leikarinn í sögu hátíðarinnar sem fengið hefur verðlaun dómnefndar fyr- ir aukahlutverk. Var það fyrir leik í kvikmynd Spike Lees, Jungle Fever. Fyrri sömu mynd fékk hann viðurkenningu frá gagnrýnendum í New York. Samuel L. Jackson er úr Suðurríkjunum og lauk leiklistar- skólanámi í Atlanta og starfaði um hríð við leikhúsin þar í borg. Leið hans lá til New York þar sem hann lék meðal ann- ars í verkum Shakespeares á Shakespeare-leikhátíðinni. Fyrsta hlutverk í kvikmynd sem eitthvað kvað var Ragtime sem Milos Forman leikstýrði. Hann má þó þakka frama sinn Spike Lee sem hefur notfært sér hæfileika hans frá því hann gerði sína fyrstu kvikmynd, School Daze. Samuel L. Jackson býr i Los Angeles ásamt eiginkonu sinni, leikkonunni La Tanya Richardson og dóttur þeirra Zoe. Hér á eftir fer listi yfir þær kvikmyndir sem Samuel L. Jackson hefur leikið í: Ragtime, 1981 Eddie Murphy, Raw, 1987 School Daze, 1988 Coming to America, 1988 Sea of Love, 1989 Do the Right Thing, 1989 A Shock to the System, 1990 The Return of Superfly, 1990 Mo' Better Blues, 1990 GoodFellas, 1990 The Exorcist III: Legion, 1990 Betsy's Wedding, 1990 Strictly Business, 1991 Jungle Fever, 1991 Johnny Suede, 1991 Jumpin at the Boneyard, 1992 Patriot Games, 1992 Juice, 1992 White Sands, 1992 National Lampoon's Loa- ded Weapon, Samuel L. Jackson í hlutverki sínu f The Long Kiss Goodnight. 1993 True Romance, 1993 The Meteor Man, 1993 Menace li Society, 1993 Jurassic Park, 1993 Amos 8í Andrew, 1993 Pulp Fiction, 1994 The New Age, 1994 Fresh, 1994 Losing Isaiah, 1995 Kiss of Death, 1995 Die Hard with a Vengeance, 1995 A Time to Kill, 1995 The Great White Hype, 1996 The Long Kiss Goodnight, 1996 -HK

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.