Dagblaðið Vísir - DV - 06.06.1997, Side 12

Dagblaðið Vísir - DV - 06.06.1997, Side 12
26 myndbönd FÖSTUDAGUR 6. JÚNÍ 1997 MYNDBAm ÖMMJJj ★★★■i Blue in the Face: Meira frá tóbaksbúðinni Fyrir skömmu kom út myndin Smoke sem var samstarfsverkefni þeirra Wayne Wang og Paul Aust- er. Blue in the Face er framhald þessa samstarfs og eins konar hliðar- mynd við Smoke. Miðdepill myndarinnar er tóbaksbúðin hans Auggie, sem kom mikið við sögu í Smoke. Ekki er neinn söguþráð að finna í myndinni heldur eru sýnd ýmis skondin atvik í kringum búðina og þá sem þangað koma og inn á milli er skotið fróðleiksmolum um Brooklyn og viötölum við misfræga íbúa, þar sem Lou Reed fer m.a. á kostum og reytir af sér gullkomin. Leikaramir fá að spila nokkuð frjálst og margt í myndinni er spunnið án handrits. Með því að tengja sögubútana sam- an við Brooklyn og tóbaksbúðina hans Auggie og með því aö stíla inn á léttgeggjaðan húmor þar sem hlegið er að og með íbúum Brooklyn fæst sterk heildarmynd og myndin verður afar eftirminnileg. Af þeim sem koma í búðina er einna mestur fengur í leikstjóranum Jim Jarmusch sem bullar ansi skemmtilega heimspeki um reykmenningu en eitt skemmtilegasta atriðið er byrjunaratriöið þar sem Mira Sorvino verður fyrir barðinu á þjóf og Auggie fer að skipta sér af. Útgefandi: Skifan. Leikstjórar: Wayne Wang og Paul Auster. Aðalhlut- verk: Harvey Keitel o.m.fl. Bandarísk, 1996. Lengd: 90 mín. Öllum leyfð. -PJ Kansas City: Spillingarborg ★★★ Hér segir frá símadömunni Blondie, sem grípur til sinna ráða þegar eiginmaður hennar lendir í klónum á glæpaklíku eftir misheppnað rán. Hún rænir ópí- umsjúkri eiginkonu valdamikils manns, sem er einn af ráðgjöfum Roosevelts forseta, með það í huga að svo valdamikill maður hljóti að geta náð bónda hennar aftur. Hann hef- ur hins vegar ekki miklar áhyggjur af eiginkonu sinni, en því meiri af hneykslismálinu sem af gæti orðið. Robert Altman er hér með óvægnari og kaldlyndari mynd en oft áður, en varpar léttleikanum og húmomum, sem einkennt hefur myndir hans, fyrir róða. Með því tekst honum ansi vel að draga fram skuggahliðar borgar sem þrífst á glæpum og pólitískri spillingu. Hann hefur sterka stjórn á hæfum leikurum, en þar fara fremst í flokki Jennifer Jason Leigh og Miranda Richardson, sem ná afar góðum tökum á hlutverkum sinum og ná vel saman. Djassinn er síðan góður bónus og gerir mikið fyrir mynd, sem annars hefði orðið heldur drungaleg. Útgefandi: Skífan. Leikstjóri: Robert Altman. Aðalhlutverk: Jennifer Jason Leigh, Miranda Richardson og Harry Belafonte. Bandarísk, 1995. Lengd: 111 mín. Bönnuð innan 16 ára. -PJ The Pest: Ofleikur ★★ Pestin er gælunafh smásvindlara nokkurs sem get- ur brugðið sér í allra kvikinda liki og gerir það. Skoska mafian er á hælunum á honum og til að bæta gráu ofan á svart platar ríkur nasisti hann til að undirrita samning þar sem hann samþykkir að vera veiðibráð hans í sólarhring og fær 50.000 dollara fyrir, ef hann lifir. Hann þarf einnig að kljást við spilltan son nasistans, sem sýnir áhuga á nánum kynnum við hann, og kröfuharðan vinnuveitanda, og þá þarf hann að mæta í kvöldverðarboð hjá foreldrum kærustu sinnar. Leikstíll John Leguizamo er hér um bil miðja vegu milli Pauly Shore og Jim Carrey og byggist auðvitað að mestu á ofboðslega ýktum ofleik. Húmorinn er auðvitað eins heimskulegur og hugsast getur, sem er allt í lagi þegar hann heppnast. The Pest er oft mjög skemmtileg og sum at- riðin fá mann til að skella vel upp úr. Önnur heppnast ekki og eru þá fremur neyðarleg. Með því að vanda myndina betur og fleygja ófyndn- ari atriðunum hefði hún getað orðið meistarastykki á borð við Ace Ventura (ég á auðvitað við þá fyrri), en svo er ekki og í staðinn er hún bara hin sæmilegasta della. Útgefandi: Skífan. Leikstjóri: Paul Miller. Aðalhlutverk: John Leguizamo. Bandarísk, 1996. Lengd: 92 min. Öllum leyfð. -PJ The Silencers: Góðar og vondar geimverur Svartklæddu mennirnir eru geimverur sem hafa tekið sér bólfestu á jörðinni og komið sér í mjúkinn hjá hernaðaryfirvöldum í Bandaríkjunum. Þeir eru að hjálpa þeim til að smíða vél sem getur gert mönn- um kleift að ferðast milli stjamanna, en i raun eru þeir að búa í haginn fyrir innrás. Önnur tegund geimvera, af heldur betri sort, sendir einn úr sínum röðum til að skakka leikinn og hann gengur til liðs við alríkislög- reglumann sem hefur flækst í málið. Söguþráðurinn er tóm steypa og fá- ránlega götóttur, sem hefði veriö allt í lagi ef tekist hefði að skapa góða stemningu í myndina og gera stílíseraða hasarmynd. Það tekst hins veg- ar ekki. Myndin tekur sig of alvarlega, leikarar em lélegir, og cillt of mik- il áhersla er lögð á endalausar bílaklessur og sprengingar. Úr verður fremur leiðigjöm defla sem á lítið skylt við X-Files (á kápunni er reynt að selja myndina út á einhvern skyldleika við þættina) annað en gmnn- hugmyndina um svartklæddu mennina og samsærið í kringum geim- vemheimsóknina. Útgefandi: Myndform. Leikstjóri: Richard Pepin. Aöalhlutverk: Jack Scalia og Dennis Christopher. Bandarísk, 1995. Lengd: 96 mín. Bönnuð innan 16 ára. -PJ My ndban dalisti vikunnar 7 \tS /7n4 / % e • 26.maí til 1. júní SÆTI FYRRI VIKA VIKUR Á LISTA TITILL ÚTGEF. TEG. 1 1 2 Long Kiss Goodnight Myndform Spenna 2 5 2 Jack Sam-myndbönd Gaman 3 Ný 1 Fear ClC-myndbönd Spenna 4 Ný 1 Jingle All the Way Skífan Caman 5 2 4 Courage under Fire Skífan Spenna 6 3 3 Dragonheart ClC-myndbönd Spenna 7 4 4 Associate Háskólabíó Gaman « 7 7 Phenomenon ’ Sam myndbönd Drama 9 6 6 Chain Reaction Skífan Spenna 10 S 5 : Tin Cup Warner myndir Gaman 11 15 : 2 Emma Skífan ' Gaman 12 , 10 i 7 Substitute m ; Háskólabíó Spenna 13 n ; ii : Time to Kill Wamermyndir Spenna 14 12 2 ( , Assassination File ClC-myndbönd r Spenna 15 I 13 ; 3 ; X-Files: Tempus Fugit ■ Skrfan , Spenna 16 9 i 7 ; i Black Sheep CiC-myndbönd Gaman 17 ' 14 : 12 : Nutty Professor ClC-myndbönd 1 Gaman 1S 16 ; ii ; r Multiplicity Skífan Gaman 19 18 5 ' Smoke Skrfan ' Drama 20 : Ný , r 1 , "... First do no Harrn,, Bergvík Drama The Long Kiss Goodnight stóðst atlögu nýrra mynda þessa vikuna og það þótt í hlut ætti Arnold Schwarzenegger en Jingle All the Way fór í fjórða sæti. Tán- ingshryllingurinn Fear náði að fara einu sæti ofar, sjálfsagt líður Jingle All the Way fyrir það að margir tengja hana jól- unum. Aö öðru leyti eru ekki miklar breytingar á myndbandalistanum. Ein önnur ný mynd er á listanum, „...First Do No Harm“ sem rétt kíkir í 20. sætið. Um er að ræöa úrvalsdrama meö Meryl Streep í aðaihlutverki. Long Kiss Goodnight Gena Ðavis og Samu- el L Jackson Húsmóðirin Sam- antha Caine þjáist af minnisleysi og man ekkert frá tímanum áður en hún flutti í hverfið fyrir átta árum. Samt sem áður lýstur æ oftar niður 1 huga henn- ar leifturmyndum sem hún á erfitt með að átta sig á hvaðan koma. Smám saman gerir hún sér þó grein fyrir að þessar myndir eru í raun hennar eigin minningar frá tíma þeg- ar hún var einhver önn- ur kona. Hún ræður spæjara til að komast til botns í málinu og þar með hefst rannsókn á flóknu og viðfeðmu máli. Robin Williams og Di- ane Lane Jack er tíu ára drengur sem eldist flór- um sinnum hraðar en eðlilegt er. Hann hefúr notið vemdar og ástrík- is foreldra sinna og hef- ur ávallt haft einka- kennara. Jack vill sem skiljanlegt er leika sér við aðra stráka og því er hann sendur i fyrsta sinn í skóla og sest á bekk með öðrum tíu ára krökkmn. í fýrstu virðist þetta ekki ætla að ganga upp því skóla- félagar hans líta á hann sem viðrini og eiga erfitt með að umgang- ast hann, en Jack býr yfir skynsemi bg lífs- hamingju sem fleytir honum yfir erfiðasta lljallann. Reese Wh'rtherspoon og Mark Wahlberg. Nicole er ung stúfka sem á í miklum vand- ræðum með að sætta sig við afskiptasemi fóður síns. Hún vill fara eigin leiðir og dreymir um að hitta drauma- prinsinn. Kvöld eitt þegar hún er úti með bestu vinkonu sinni hittir hún David, ungan mann sem í fyrstu virð- ist eins og sniðinn út úr draumaheimi hennar. Þau ná strax saman og Nicole er mjög ástfang- in. En ungi maðurinn er ekki allur þar sem hann er séður, en það reynist enginn barna- leikm' að losna viö hann. Jingle All The Way Arnold Schwarzenegger og Sindbad. Það er liðið að jólum og hjá flestum er jóla- undirbúningi lokið. En þannig er það ekki í til- felli Howards Langston. Howard elskar eigin- konu sina Liz og soninn Jamie en hefúr ekki haft tíma til að sinna þeim sem skyldi. Nú á að bæta úr og finna einu jólagjöfina sem sonm hans vifl, Hvirfil- manninn. Það reynist alls ekki auðvelt því þegar Howard fer af stað hefúr jólagjöfin verið uppseld í fjórar vikur, fer nú í hönd við- burðaríkur aðfangadag- ur. Courage underRre Denzel Washington og Meg Ryan. Undirofúrstinn Nath- an Sterling verður fyrir því um nótt í Persaflóa- stríðinu að sprengja upp, fyrir slysni, banda- rlskan skriðdreka. Her- inn ákveður að þagga málið niður og kallar Sterling heim. í kjölfar- ið er honum falið að rannsaka dauða flug- stjóra sem er um það bfl að verða fýrsta kon- an til að hljóta æðsta heiðursmerki Banda- ríkjahers. Vitnum ber ekki saman um atvik þau sem leiddu til dauða hennar og til- raunir Sterlings til að komast að hinu sanna ýfa gömul sár.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.