Dagblaðið Vísir - DV - 14.06.1997, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 14.06.1997, Blaðsíða 10
 10 LAUGARDAGUR 14. JUNI 1997 (slendingar í heimsókn í Páfagarði og DV var á staðnum: n Það er mjög kalt á Islandi it - sagði Jóhannes Páll II. páfi við Frónbúa um heimsókn sína hingað 1989 „It is very cold in Iceland," sagöi Jóhannes Páll II. páfi á sinni syngj- andi pólsku ensku um íslandsheim- sókn sína sumarið 1989 viö Guð- mundu Elíasdóttur söngkonu fyrir framan Péturskirkjuna í Róm ný- lega. Guðmunda var ein af 17 manna hópi fólks úr Leikmannafé- lagi kaþólska Islendinga sem fór í pílagrímsfor til Rómar á dögunum. íslenska hópnum var tekið með kostum og kynjum í Róm og naut þar án vafa langrar persónulegrar vináttu þeirra Jóhannesar Gijsen, biskups í Landakoti, og páfa. Þegar páfi, sem er hinn víðforl- asti í sögunni, er ekki á ferðalögum um heimsbyggðina tekur hann á hverjum miðvikudegi á móti þeim sem hann vilja hitta á Péturstorg- inu. Sá háttur er hafður á að söfnuð- ir og hópar hvaðanæva úr heimin- um tilkynna komu sína til Vatík- ansins sem síðan skipar hópunum til sætis á torginu og þykir því meira til koma, þeim mun nær páfa hópunum er skipað til sætis. Blaða- maður DV, sem var með í för í Róm þann 28. maí sl., gerðist því langleit- ari eftir því sem Jóhannes Gijsen, biskup i Landakoti, leiddi íslenska hópinn nær sæti sjálfs páfans í Róm og vísaði honum loks til frátekinna sæta á hægri hönd páfa, skammt frá þeim þjóðhöfðingjum og sendimönn- um erlendra rikja sem næstir hon- um sátu. Óhræddur um líf sitt Áður en sjálf athöfnin hófst ók páfi í opnum bíl umhverfis Péturs- torgið og í ljósi þess að tilræðismað- ur skaut á páfa árið 1981 var Jó- hannes Gijsen bisk- up spurður hvers vegna páfi notaði ekki frekar jeppann með skothelda gler- búrinu. Biskup sagði við DV að páfi ein- faldlega neitaði að ganga á þann hátt í lið með óttanum. En það var ljóst að öryggisgæsla var talsverð þótt ekki væri hægt að segja að hún væri mjög áberandi. Dökkklæddir lífverð- ir með talsvert bólgna jakka voru allt í kringum bil páfa á leið hans um- hverfis torgið og inn- an um mannmergð- ina á miðju torginu og öryggisverðir voru á þökum hús- anna í kringum torg- ið. Þessum hring- akstri lauk með því að jeppanum var ekið upp tröppurnar fram- an við Péturskirkj- una og páfi sté niður Beðið eftir Jóhannesi Páli páfa fyrir framan Péturs- kirkjuna í Róm. Fremst á myndinni með sólhlíf er Sig- urlaug Knudsen söngnemi. Maðurinn með hatt á höfði er Torfi Ólafsson, fyrrv. formaður Félags ka- þólskra leikmanna. Fyrir aftan hann situr Guðmunda Elíasdóttir söngkona og sú sem stendur við hlið hennar er Sif Knudsen deildarstjóri. DV-myndir SÁ af pallinum og gekk undir skyggnið sem stendur framan við aðalinn- gang kirkjunnar og tók þar sæti. Þar hlýddi hann og allur þing- heimur á ávörp biskupa | og kardí- nála sem kynntu þá hópa sem byggja kirkju sína á. Húrrahróp Þegar hópamir og kirkjur þeirra voru nefnd stóð hver hópur upp og lét í sér heyra með ýmsu móti, sumir með húrrahrópum og aðrir hylltu kirkjufoðurinn með söng og hljóðfæraslætti, æði misjöfnum. Áberandi var hversu margir þessara hópa voru frá Póllandi, ættlandi páfa, en auk þess voru ótrúlega margir þeirra lengra að Jóhannes Páll II. páfi heilsar (slendingum á Péturstorginu í Róm. Hann hafði orð á því að það hefði verið kalt á íslandi þegar hann var þar. komnir voru til að hlýða á þennan æðsta mann kirkju sinnar og arf- taka Péturs postula, klettsins sem Kristur sjáífur kvaðst mundu komnir, ekki sist frá löndum S-Am- eríku. Jóhannes Páll páfi tók síðan til máls og ávarpaði gesti sina á íjölda tungumála, m.a. pólsku, spönsku, ít- ölsku, ensku. Að því loknu blessaði hann hóp fjölfatlaðs fólks sem leitt var fyrir hann, heilsaði þjóðhöfð- ingjunum sem næstir honum sátu Páfi faðmar Sigurlaugu Knudsen aö sér. en gekk síðan til íslenska hópsins og tók í hönd allra og blessaði þá sem hann náði til. Ung stúlka í hópnum, Sigurlaug Knudsen söng- nemi, vakti sérstaka athygli páfa þvi hana faðmaði hann að sér og blessaði sérstaklega. -SÁ Jóhannes Páll páfi ásamt Jóhannesi Gijsen, biskupi á íslandi. Hjá sjálfri móður Theresu í Róm: Guð blessi þig, sonur sæll - sagði hún við blaðamann DV og laumaði h'elgimynd í lófa hans „Guð blessi þig, sonur sæll,“ sagði móðir Theresa við blaða- mann DV og klappaði honum á kollinn og laumaði lítilli helgi- mynd af heilagri Theresu, dýrlingi nunnureglunnar, úr silfri í lófa hans. DV hitti móður Theresu í öðru tveggja klaustra nunnureglu hennar í Róm eldsnemma að morgni síðasta mánudags maí- mánaðar sl. ásamt hópi fólks úr Félagi kaþólskra leikmanna. íslenski pilagrímahópurinn kom til Rómar aðfararnótt mánu- dagsins 26. maí og viö komuna á hótelið var þreyttum ferðalöngum tilkynnt að þeir sem vildu ættu þess kost aö hitta móöur Theresu í öðru af tveimur klaustrum reglu hennar í Róm strax kl. 6.30 morg- uninn eftir. Flestir létu sig hafa það að rífa sig upp um morguninn þrátt fyrir að eiga langt og erfitt flugferðalag frá Islandi til Rómar að baki. Þegar að klaustrinu kom varð hópurinn að bíða nokkra stund fyrir utan hliðið að klausturgarð- inum meðan kannað var hvort fólkiö væri það sem það sagðist vera. Þegar inn var komið kom í ljós aö allnokkur hópur bæði lærðra og leikra var þar þegar samankominn til að hitta þessa heimsþekktu konu. Glaðar nunnur Klaustrið er stórt íbúðarhús ásamt útihúsum og mjög stórri lóð umhverfis sem umlukin er hlöðn- um múrvegg. Eignin ber þess merki að hafa áður verið bústaöur ríkrar fjölskyldu. Einu húsanna, sem trúlega hefur verið einhvers konar vagna- eða vélageymsla, hefur verið breytt í einfalda kapellu og í henni hófst morgun- messa fljótlega eftir að við íslend- ingarnir vorum komnir inn fyrir hliðið. Það vakti athygli okkar hve ungar nunnurnar voru og glaðar og kátar. Messan var vissulega hefðbundin kaþólsk messa en yfir henni var mikill léttleiki og undir predikun indverska prestsins, sem flutti messuna, var mikið hlegið og innilega. Taugaveiklaðir lífverðir Að messunni lokinni var okkur gestunum skipað í einfalda röð sem síðan gekk fyrir móður Ther- esu sem sat í hjólastól inni í kapellunni. I kringum móður Theresu voru aðstoöarmenn henn- ar og lífveröir og var nokkur taugaveiklun í þeirra hópi yfir til- standinu og vildu þeir hindra að DV tæki myndir af skjólstæðingi sínum nema frá ákveðnu sjónar- homi þar sem reyndar var útilok- að að ná mynd af öðru en bökum lífvarðanna. Þegar blaðamaður þóttist hvorki skilja né heyra athuga- semdir lífvarðanna gáfust þeir upp að öðru leyti en því að skipa honum að nota ekki leifturljós. 87 ára og furðu ern Móðir Theresa, sem er 87 ára gömul, virtist furðu ern og greinilegt var að hún ber mjög sterka persónu og nýtur mikillar virðingar og væntumþykju bæði nunnanna í reglu hennar sem og þeirra gesta sem þama vom sam- ankomnir að hylla hana og njóta blessunar hennar. Bresk kona, sem stóð við hlið blaðamanns DV utan við kirkjuna meðan á mess- unni stóð, hvíslaði að það væri ekki á hverjum degi sem maður ætti í vændum að hitta mann- eskju sem nánast ömggt væri að yrði tekin í dýrlingatölu strax að lokinni jarðvist sinni. Og það orkaði greinilega mjög sterkt á marga að hitta þessa merku konu sem helgað hefur ævi sína því að þjóna þeim fátækustu af fátæk- um, því margir gestanna þurrk- uðu tár af hvörmum þegar þeir yfirgáfu klaustur Theresusystra í Róm. -SÁ Móðir Theresa í hjólastól sínum í kapellu nunnuklausturs síns í Róm. Fyrir aftan hana eru glaðir meðlimir prestareglu sem starfar viö hlið Theresusystra. DV-mynd SÁ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.