Dagblaðið Vísir - DV - 14.06.1997, Blaðsíða 44

Dagblaðið Vísir - DV - 14.06.1997, Blaðsíða 44
★ TÍr' LAUGARDAGUR 14. JÚNÍ 1997 UV X 52 ★. idge GENERALI-Evrópumótið 1997: Metþátttaka frá 36 löndum Fertugasta og þriöja GENERALI- Evrópumótið í bridge hefst í dag í borginni Montecatini á Mið-Ítalíu. Metþátttaka er í mótinu, 36 sveitir í opna flokknum, 26 i kvennaflokki, yfir 100 pör í Evrópumóti kvenna og 20 sveitir í flokki eldri spilara. ísland sendir sveitir í opna flokk- inn og kvennaflokk. Miklar vænt- ingar eru bundnar við karlaliðið í opna flokknum en til þess að kom- ast í keppni um Bermudaskálina í haust þarf sveitin að ná einu af fimm efstu sætunum. Fyrir þá sem aðgang hafa að Intemeti verður hægt að skoða mótsblaðið á www.bridge.gr daglega. Málgagn bridgeblaðamanna telur upp nokkrar þjóðir sem líklegar i efstu sætin og kemur það á óvart að ekki er minnst á ísland í þeim hópi. Vonandi afsanna okkar menn þá spá. Þau lönd sem líkleg þykja til af- reka eru Austurríki, Danmörk, Frakkland, England, ísrael, Ítalía, Holland, Pólland og Svíþjóð. Mér finnst nú að ísland eigi heima í þessum hópi. Umsjón Stefán Guðjohnsen Ítalía er núverandi Evrópumeist- ari en líklega er England með merkilegasta liðið. í því spila tvenn- *jkák --------------- H ★ ir tvíburar, Hackett- og Tred- innikbræðumir. í kvennaflokki em Frakkar nú- verandi Evrópumeistarar og Þjóð- veijar heimsmeistarar. Þessar sveit- ir verða að teljast líklegir sigurveg- arar en enginn skyldi þó afskrifa Englendinga fyrir fram. ísland hafnaði í 15. sæti í kvenna- flokki af 22 þjóðum á síðasta Evr- ópumóti og því ættu konumar að geta bætt þann árangur núna. Við skulum skoða eitt spil frá síð- asta Evrópumóti í kvennaflokki. A/A-V * G643 VÁ983 * D983 * 4 * D7 m 10632 + K54 * 10987 * K985 * DG * Á762 * ÁKD * A102 * K54 * G10 * G6532 Spilið kom fyrir í leik íslands og Hollands en Hollendingar hafa löng- um átt gott kvennalandslið. ísland vann leikinn 18-12 og átti þetta spil sinn þátt í sigrinum. Lokasamningurinn var fjórir spaðar í suður á báðum borðum. í lokaða salnum spilaði Gunnlaug út tígulgosa, drottning, kóngur og ás. Hollendingurinn spilaði síðan trompi á gosann í blindum og þar með gaf hún þrjá slagi á tromp - einn niður. Heldur tilþrifalítil spila- mennska. Evrópulandslið íslands 1997: Efri röð talið frá vinstri: Guðmundur Páll Arnarson, Guðrún Óskarsdóttir, Valgerður Kristjánsdóttir, Anna ívars, Ljósbrá Baldursdóttir, Jacci McGreal, Matthías Þorvaldsson. Sitjandi frá vinstri: Aðal- steinn Jörgensen, Jón Baldursson, Björn Eysteinsson, fyrirliði, Þorlákur Jónsson og Sævar Þorbjörnsson. DV-mynd Hilmar Þór í opna salnum fékk Esther Jak- obsdóttir út lauf. Hún drap á kóng og spilaði hjartadrottningu, kóngur og ás. Síðan kom spaði, sjöið, áttan og tían. Vestur hélt áfram með lauf, Esther trompaði í blindum og spil- aði trompi. Þegar drottningin kom frá austri var trompvandinn leyst- ur. Enn kom lauf, Esther drap, tók tígulás og meiri tígul - unnið spil. Stórmeistararnir Alexei Sírov og Veselin Topalov tefldu bráðabana um sigurinn á stórmótinu í Madrid . á Spáni, sem lauk á dögunum. Topa- lov hafði lengstum forystu á mótinu sjálfu en á endasprettinum var Sírov sterkari og tókst að ná hon- um. Tveimur einvígisskákum þeirra um sigurinn lauk með jafn- tefli. Þá tefldu þeir hraðskák, þcir sem Topalov hafði hvítt og 6 minút- ur en Sírov mínútu minna og nægði þeim síðamefnda jafhtefli. Eftir spennandi skák tókst Sírov með naumindum að halda jöfnu og þar með var hann úrskurðaður sigur- vegari mótsins. Þeir Sírov og Topalov fengu 6,5 vinninga af 9 mögulegum en næstir komu Alexander Beljavskí og Vlad- imir Akopjan með 5,5 v. Manuel Illescas, Nigel Short og Judit Polgar fengu 4,5 v„ Valery Salov 3,5 v„ Jeroen Piket 2,5 v. og San Segundo rak lestina með 1,5 v. Enski stórmeistarinn Nigel Short varð að sætta sig við 50% vinnings- hlutfall en hann átti þó hug og hjörtu áhorfenda með djarfri tafl- mennsku. Sú ákvörðun hans að dusta rykið af þeirri frægu skák- byrjun „kóngsbragði" átti sinn þátt í vinsældum hans. Þessi byrjun er þekkt fyrir að vera áhættusöm og kannski ekki alveg „kórrétt“ en hún leiðir oft á tíðum til skemmtilegra sviptinga. Short náði að knésetja Pi- ket og Akopjan með leynivopni sínu en gerði þau mistök að reyna fyrir sér í þriðja sinn - gegn Sírov. Úr þeirri rimmu fór Short hallloka, enda var leynivopnið ekkert leyni- vopn lengur. Kóngsbragð þótti sjálfsagt vopn hér í eina tíð. Fyrsti heimsmeistar- inn, Wilhelm Steinitz, var m.a. kimnur fyrir að beita því og eru mörg afbrigði kóngsbragðs nefnd eftir honum. Á yngri árum vílaði Steinitz ekki fyrir sér að leika kóngnum fram á borðið snemma tafls og tefldi feiknarlega djarft en síðar á ævinni breyttist afstaða hans til skáklistarinnar og hann innleiddi varnartækni, sem hann varð þekktur fyrir. Nú er Short hins vegar genginn í bamdóm og er farinn að tefla eins og Steinitz á yngri árum. Hann var aðeins 24 leiki að vinna skákina og þar af lék hann 8 kóngsleiki, sem er sannarlega óvenjulegt. Hvítt: Nigel Short Svart: Jeroen Piket Kóngsbragð. 1. e4 e5 2. f4 exf4 3. Rf3 Be7 Svoneftid Cunningham vöm, sem oftast er mætt með 4. Bc4 og kóngur- inn fær reit á fl ef svartur segir skák með biskupnum. En Short fer óhikað fram á borðið með konung- inn! 4. Rc3 Bh4+ 5. Ke2 d5 Eðileg viðbrögð til að reyna að færa sér kóngsstöðuna í nyt em að opna taflið á þennan hátt. 6. Rxd5 Rf6 7. Rxf6+ Dxf6 8. d4 Bg4 9. Dd2 Rc6 10. c3 0-0-0 Betra er 10. - g5, sem hvítur svar- ar með 11. Kdl 0-0-0 12. Kc2 og kóng- urinn leitar vars. 11. Dxf4 De6 Með þessum sterka leik hótar hvítur 13. Rxh4 og einnig 13. Bc4! Svartur á enga viðunandi lausn á vandanum, svo að Piket freistar þess að fórna peði og hrista upp í taflinu. Umsjón JónLÁmason 12. - g5 13. Rxg5 Bxg5 14. Dxg5 f5 15. h3! Hins vegar ekki 15. e5? Rxe5 16. dxe5? Db6+ 17. Kf4 Df2 mát, sem sýnir skuggahliðar svona tafl- mennsku. 15. - Rxd4!? Athyglisverð tilraun, því að ef 15. - Dxe4+ 16. Kf2 og svartur á erfitt uppdráttar, t.d. 16. - Bdl 17. Df4 Dc2+ 18. Dd2 Da4 19. Bd3 með vinn- ingsstöðu. 16. cxd4 Hxd4 17. hxg4! Hxe4+ 18. KÍ2 fxg4 19. Hh6 Hf8+ 20. Kgl?? Nú var Piket orðinn afar tíman- aumur og kæruleysi grípur Short. Eftir 20. Kg3 vinnur hvítur auðveld- lega en nú fær svartur óvænt tæk- ifæri. 20. - Hxfl+! 21. Kxfl Hel+ 22. Kf2 De2+? Missir af 22. - He2+ 23. Kg3 Hxg2+! 24. Kxg2 De2+ og nær jafn- tefli með þráskák. 23. Kg3 Dd3+ 24. Kxg4 - og svartur gafst upp.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.