Dagblaðið Vísir - DV - 14.06.1997, Page 18
18 dagurílífi
LAUGARDAGUR 14. JÚNÍ 1997 I^"V
Þuríður Sigurðardóttir hefur í mörg horn að líta:
Leið eins og nýhreinsuðum hundi
„Ég vaknaði klukkan sex en
hefði þegið að sofa örlítið lengur.
Ég fór seint í rúmið, hafði verið á
fundi með félögum mínum í Hesta-
mannafélaginu Sörla, þar sem ég
er í ferðanefnd. Nefhdin var að
kynna tilhögun í 8 daga hestaferð
sem 50 manns hafa skráð sig í.
Eftir sturtu leið mér eins og „ný-
hreinsuðum hundi“. Ég skutlaði
bóndanum í vinnuna og fór þaðan
á umferðarvaktina í Umferðarráði.
Ég átti hæði morgun- og kvöld-
vaktina þennan dag. Ég bytjaði á
því áö hella upp á kaffi, fletti blöð-
unum, hlustaði á sjöfréttir og
komst að því að engar alvarlegar
fréttir bárust úr umferðinni, sem
betur fór. Því næst hringdi ég á all-
ar helstu lögreglustöðvar landsins,
Vegagerðina og svaraði símanum
á milli. Við fáum upplýsingar um
ýmiss konar gatnaframkvæmdir
sem við svo miðlum áfram til
hlustenda. Útsendingar eru beinar
og það voru 5 útvarpsstöðvar sem
ég fór inn á þessa vaktina.
Minnka við mig
Eftir sendingar fór ég á skrifstofu
Umferðarráðs en þar hef ég unnið
ýmis störf undanfarin ár. Ég settist
við tölvuna og kíkti á „Emil“, svar-
aði tölvupósti og byrjaði svo að
skrifa fundargerð frá fundi fræðslu-
nefndar sem ég sit í. Fundargerðin
er eitt af mörgu sem ég þarf að
klára áður en ég hætti á skrifstof-
unni í lok vikunnar. Ég þykist ætla
að minnka við mig vinnu.
Þá var komið að fundi með kvik-
myndagerðarmönnum sem ætla að
vinna auglýsingar fyrir Umferðar-
ráð um hjálmanotkun. Bubbi
Morthens ætlar að koma til liðs við
okkur en hann telur að hjálmur hafi
bjargað lífi sínu þegar hann var að
hjóla á dögunum og lenti á bíl.
Ég var skráð í nokkur ökupróf
þess að fá að keyra. Ég neitaði í
fyrstu að koma og sækja hann en
sá mig um hönd. Maður má ekki
sleppa slíku tækifæri þegar ung-
lingurinn vill vera með manni.
Æfingaaksturinn er einmitt kjör-
inn vettvangur til þess. Við spjöll-
uðum um nýju sumarvinnuna
hans og fleira og hann þvoði bíl-
inn, mér til mikillar ánægju. Ég
keypti ferskt pasta, fljótlegt og
þægilegt, eldaði og gekk frá. Bónd-
inn fékk frí enda hálfslappur af
einhverri pest.
Eftir fráganginn fór ég og potaði
nokkrum kartöflum niður í garð-
holuna mína. Betra seint en frosið!
I hrúgaldinu
Ég fór inn um níuleytið, hafði
hugsað mér að horfa á tvo þætti í
sjónvarpinu, nokkuð sem er harla
óvenjulegt. Guðmundur þulur
brosti við mér þegar ég kveikti og
ég hugsaði hlýlega til hans því í
raun átti ég þessa vakt. Ég var svo
heppin að hann hafði beðið mig að
skipta við sig og það hentaði mér
sannarlega vel, vinnudagurinn
hefði orðið óþarflega langmr.
Ég kom mér vel fyrir í hrúgald-
inu og horfði á Póstkort frá Nas-
hville en þar komu við sögu nokkr-
ar hetjur úr tónlistinni.
Áður en ég skipti yfir á Stöð 2
til að horfa á Perlur Austurlands
smm-ði ég nesti fyrir Erling til að
hafa með í vinnuna. Perlan að
þessu sinni voru Lónsöræfi, því-
lík fegurð - og litimir. Ég hef
yndi af íslenskri náttúru og veit
ekkert skemmtilegra en að ferð-
ast, helst á hestbaki, með góðum
félögum um landið okkar. Af því
fæ ég aldrei nóg. Og nú langar
mig á Lónsöræfi. Skrýtið - síðan
ég hætti að fljúga fyrir nokkrum
árum hefur mig aldrei langað til
útlanda."
Þuríður Sigurðardóttir f vinnu sinni hjá umferðarútvarpinu.
en mikið er að gera við að dæma í
ökuprófúm þessa dagana. Ég er
kölluð til þegar yfir flýtur. Það
kemur mörgum á óvart að hitta
fyrir konu sem prófdómara. Flest-
ir eiga von á „gömlum úrillum
karli“ eins og þau segja sum (fyrir-
gefið, strákar mínir).
Bóndinn fákk frí
Erling sonur minn, sem er 16
ára, hringdi i mig þegar ég var að
ganga út úr dyrunum um sexleytið
og spurði hvort ég þyrfti ekki í búð
á leiðinni heim. Ég kvað já við og
spurði hvort eitthvað sérstakt
vantaði. Nei, hann langaði bara til
DV-mynd E.ÓI.
Finnur þú fimm breytingar? 415
Hér sitjum við bara sisona og ræðum gömlu, góðu dagana.
Nafn: _
Heimili:
Vmningshafar fyrír fjögur hundmðustu og þrettándu
getraun reyndust vera:
Margrét Árnadóttir, Daði Már Hervarsson,
Austurbergi 32, Háholti 23,
111 Reykjavík. Akranesi.
Myndimar tvær virðast viö fyrstu
sýn eins en þegar betur er aö gáð kem-
ur í ijós að á myndinni til hægri hefúr
fimm atriöum veriö breytt. Finnir þú
þessi fimm atriði skaltu merkja við
þau meö krossi á myndinni til hægri
og senda okkur hana ásamt nafni þínu
og heimilisfangi. Að tveimur vikum
liðnum birtum við nöfn sigurvegar-
anna.
r 1 BhJ
KALIMA.R Í |
i
1. verðlaun:
Kalimar-Spirit AF, 35 mm myndavél
frá Radíóbæ, Ármúla 38, að verðmæti
3.995 kr.
2. verðlaun:
, Tvær Úrvalsbækur að verðmæti kr.
1570, Sekur eftir Scott Turow og Kóli-
brísúpan eftir David Parry og Patrick
Withrow.
Vinningamir verða sendir heim.
Merkið umslagið með lausninni:
Finnur þú fimm breytingar? 415
c/o DV, pósthólf 5380
125 Reykjavík