Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.1997, Qupperneq 2
22
MÁNUDAGUR 16. JÚNÍ 1997
íþróttir
i>v
Coca Cola bikarinn
Dalvik-FH...................0-2
- Ásmundur Haraldsson, Jón Gunn-
ar Gunnarsson.
lA 23-ÍA.....................2-3
Kári Steinn Reynisson, Pálmi Har-
aldsson - Steinar Adolfsson, Ólafur
Þórðarson, Haraldur Hinriksson.
Víöir-Grindavik..............0-1
- Ólafur Ingólfsson (vítaspyrna)
KR 23-Fram...................0-4
- Þorbjöm A. Sveinsson 2, Anton
Bjöm Markússon, Steinar Guögeirs-
son.
Leiknir-ÍBV..................0-1
- Sigurvin Óiafsson 2, Steingrímur
Jóhannesson, Hermann Hreiðarsson.
Þróttur N-Þróttur R..........3-4
Þráinn Haraldsson 2, Marteinn Hilm-
arsson - Einar öm Birgisson 2, Sig-
uröur Ragnar Eyjólfsson, Ingvar Óla-
son.
ÍR-Keflavik.........e. framl. 1-2
Kristján Brooks - Eysteinn Hauks-
son, Jóhann Guömundsson
Sindri-Breiðablik............1-7
Stefán Amaldsson - Kjartan Einars-
son 3, Bjarki Pétursson, ívar Sigur-
jónsson, Kjartan Antonsson, ÞórhaU-
ur Hinriksson.
Reynir S-Stjarnan............0-2
- Ingólfur Ingóifsson 2
Afturelding-Þór..............1-3
Ágúst Guömundsson - Páll Gíslason,
Hreinn Hringsson, Ámi Þór Árna-
son.
HK-Leiftur....................l^
Jón Þ. Stefánsson - Gunnar Már
Másson 4.
Fjölnir-KA...................0-7
- Höskuldur Þórólfsson 2, Steingrím-
ur Eiösson 2, Dean Martin, Nobosja
Lovec, Slobodan Stefanovic.
Völsungur-Fylkir...........0-3
- Enes Cogic, Aðalsteinn Víglunds-
son, Erlendur Þór Guimarsson.
Keflavik 23-Valur .........0-2
- Hörður Magnússon, Sigurbjöm
Hreiðarsson.
KS-KR........................0-4
- Ríkharöur Daðason 2, Brynjar
Gunnarsson 2.
Vikingur-Skallagr . . . e.framl 1-2
Sváfhir Gíslason - Hjörtur Hjartar-
son, Vaidimar K. Sigurðsson.
Mikil dramatík
í Neskaupsstað
Það var mikil dramatík í leik
Þróttar, Neskaupstað, og nafna
þeirra úr Reykjavík. Þegar 4
mínútur voru til leiksloka benti
ekkert til annars en að heima-
menn væru að slá toppliðið í 1.
deild út úr keppninni. Staðan var
þá 3-1 en á hreint óskiljanlegan
hátt tókst Reykjavíkur- Þrótt-
urum að snúa leiknum sér í vil.
Þeir minnkuðu muninn í 3-2 þeg-
ar rúmar þrjár mínútur voru eft-
ir og skoruðu svo tvö síðustu
mörkin úr vítaspymum sem Ein-
ar Öm Birgisson framkvæmdi.
Gestimir skoruðu fyrsta mark
leiksins strax á 2. mínútu en
heimamönnum, sem léku mjög
vel í þessum leik, tókst að skora
tvívegis fyrir leikhlé. Þeir bættu
við þriðja markinu í upphafi síð-
ari hálfleiks og þegar Lúðvík
Jónassyni, vamarmanni Þróttar,
R, var vikið af leikvelli í 15 mín-
útum fyrir leikslok vænkaðist
enn hagur heimamanna. En þá
fór að síga á ógæfuhliðina fyrir
heimamenn. Þráni Harcddssyni,
fyrirliða liðsins, var vikið af leik-
velli þegar 8 mínútur voru eftir
og viö það hrundi leikur liðsins.
Reynsluleysi háði hinum ungu
leikmönnum Þróttar, N, á
lokakaflanum og varð hann að
hreinni marjröð.
„Ég hef nú ékki lent í öðm eins á
minum langa ferli. Við vorum al-
gjörlega með leikinn í okkar hönd-
um og Reykjavíkur-Þróttaramir
vora hreinlega hættir áður en
ósköpin dundu yfir. Við vorum
miklu betri aðilinn í 80 mínútur.
Það vora þrír 16 ára strákar í byrj-
unarliðinu hjá okkur og það lék
mjög vel en því miður tókst okkur
ekki að ljúka þessu eins og við hefð-
um fyllilega átt skilið,“ sagði Guð-
jón Guðmimdsson, þjáifari og leik-
maður Þróttar, N, við DV. -GH
Coca Cola-bikarinn:
Erfitt hjá Keflavík
- vann þó sterkt lið ÍR, 1-2, eftir framlengingu
Það þurfti framlengingu til að fá
fram úrslit í leik ÍR og Keflavíkur í
bikarkeppninni en hann fór fram á
ÍR-velli á laugardag.
„Við bjuggumst alltaf við þessari
baráttu frá ÍR-ingum því félagið hef-
ur á að skipa góðum strákum. Þetta
er nú bikarleikur svo það má alltaf
svo sem búast við 120 mínútna leik
en aðalatriðið er að vinna og það
tókst og við erum þar með komnir í
16-liða úrslitin," sagði Gunnar
Oddsson, þjálfari Keflavíkurliðsins.
ÍR-liðið mætti mjög ákveðið til
þessa leiks og ekkert var gefið eftir.
Ekkert mark hafði verið skorað þeg-
ar venjulegum leiktíma lauk enda
hafði leikurinn verið nokkuð jafn
og hefðu ÍR-ingar með smáheppni
.alveg eins getað sigrað. í fyrri
hluta framlengingarinnar braut
varnarmaður fR á Hauki Guðnasyni
innan teigs og var vítaspyrna dæmd
umsvifalaust senji Eysteinn Hauks-
son skoraði úr af öryggi. I síðari
hluta framlengingarinnar juku Suð-
urnesjamenn forystuna í 0-2, með
glæsilegu skallamarki Jóhanns
Guömundssonar sem átti frábæran
leikkafla undir lokin.
ÍR-ingum tókst að minnka mun-
inn skömmu síðar með fallegu
marki Kristjáns Brooks eftir góða
aukaspymu inn fyrir vörn Keflavík-
inga. Þetta hleypti miklu kappi í
leikmenn ÍR og vora þeir hárs-
breidd frá því að jafna undir lokin.
ÍR-liðið barðist vel og sýndi að
það er kannski minni munur á lið-
um úrvalsdeildar og 1. deildar en
menn halda. Kristján Halldórsson
stóð upp úr í vörninni og einnig
varði Ólafur Þór eins og berserkur.
í framlínunni ógnaði Kristján
Brooks mjög mikið ásamt Guðjóni
Þorvarðarsyni. Amljótur Davíðsson
kom inn sem varamaður og sýndi
góð tilþrif í fyrsta leik sínum með
ÍR en úthald skortir enn þá.
Keflavík teflir fram mjög sterku
og jöfnu liði, þó svo að einbeiting-
una hafl skort svolítið að þessu
sinni. Ólafur Gottskálksson varði af
mikilli snilld enda markvörðm- á
heimsmælikvarða og mikið hefði
verið fróðlegt að sjá þá Gunnar
Oddsson og hinn tekniska og fljóta
Jóhann Guðmundsson í leiknum
gegn Litháen á dögunum. -Hson
GunnarMár
sá um HK-inga
Gunnar Már Másson, fyrirliði
Leifturs, sá um að koma Ólafs-
firðingum í 16-liða úrslit í bikar-
keppninni í gær. Gunnar skoraði
öll mörk Leifturs þegar liðið
lagði topplið 2. deildar, HK, að
velli á Kópavogsvelli, 1-4.
Gunnar nýtti færi sín mjög vel
því hann fékk fjögur slík og
skoraði úr þeim öllum. HK átti
marga ágæta kafla og framan af
leik var munurinn ekki sjáanleg-
ur á liðunum en hann kom betur
í ljós þegar á leið.
Gunnar skoraði þrívegis á síð-
ustu 20 mínútunum í fyrri hálf-
leik og bætti því fjórða við 20
mínútum fyrir leikslok en síðan
lagaði Jón Þ. Stefánsson stöðuna
fyrir HK þegar hann skoraði eft-
ir fallegt mark eftir laglega send-
ingu Þórhalls Víkingssonar.
-VS
.
' 'í-Á'
.. 'ííi
-
fðpv&q
Dæmigerð mynd úr leik ÍR og Keflavík þar sem toppliöiö í úrvalsdeildinni, Keflavik, átti í hinum mestu vandræðum með Breiðhyltinga. Á innfelldu
myndunum er Sigurður Björgvinsson, annar af þjálfurum Keflvíkinga, að svekkja sig yfir leik manna sinna af varamannabekknum. DV-mynd Hilmar Þór
KR haföi betur
í snjókomunni
í Siglufirði
Ásmundur
byrjaði vel
FH-ingar heimsóttu Dalvík-
inga í annað sinn á skömmum
tíma. Á dögunum skildu liðin
jöfn, 2-2, í 1. deildinni, þar sem
heimamenn höfðu heppnina með
sér, en á laugardaginn unnu FH-
ingar verðskuldaðan sigur, 0-2,
og verða því í pottinum í dag
þegar dregið verður til 16-liða úr-
slitanna.
Staðan var markalaus í hálf-
leik en í upphafi þess síöari
skoraði Ásmundur Haraldsson
mark fyrir FH-inga í fyrsta leik
sínum fyrir félagið en hann gekk
til liðs við Hafnarfjarðarliðið frá
KR á dögunum. Eftir markið
áttu FH-ingar mörg góö tækifæri
til að bæta við mörkum en mark-
vörður Dalvíkinga var í miklum
ham. Hann kom hins vegar eng-
um vörnum við þegar varamað-
urinn, Jón Gunnar Gunnarsson,
bætti við öðru marki FH og þar
viö sat. -GH
Haraldur Haraldsson, nýráðinn
þjáifari KR, stjómaði mönnum
sínum til sigurs í fyrsta leik sínum
sem þjálfari þegar KR lagði KS, 0-4,
í snjókomunni í Siglufirði í gær-
kvöld. Staðan í hálfleik var 0-2.
Eins og við var að búast réðu
KR-ingar ferðinni á malarvellinum
gegn 3. deildar liði heimamanna
sem börðust vel allan tímann. Að-
stæður til knattspyrnuiðkunar voru
ekki beint glæsilegar, hríðarveður
og 2-3 stiga hiti.
Ríkharður Daðason kom KR-ing-
um á bragðið strax á 5. mínútu og
Brynjar Gunnarsson bætti við öðra
á 38. mínútu. KS-ingar áttu ágæt
skyndiupphlaup í fyrri hálfleiknum
og úr einu þeirra björguðu KR-ing-
ar á marklínunni.
KR-ingar réðu svo ferðinni í
síðari hálfleik og bættu við tveim-
ur mörkum og voru markaskor-
aramir þeir sömu og í þeim fyrri.
Rikharður skoraði á 65. mínútu og
Brynjar innsiglaði sigur vesturbæj-
arliðsins 5 mínútum fyrir leikslok.
KR-ingar sýndu svo sem engan
glansleik enda voru aðstæður
erfiðar fyrir knattspymumennina.
-ÖÞ/GH
Bikarmeist-
ararnir áfram
Bikarmeistarar Skagamanna
tryggðu sér sæti í 16-liða úrslit-
unum og kom það engum á óvart
því meistaramir mættu eigin U-
23 ára liði.
„Gömlu mennimir" gerðu út
um leikinn í fyrri hálfleik en þá
skoruðu þeir þrjú mörk en fengu
færi til að skora mun fleiri
mörk.
„Kjúklingarnir“ mættu
grimmari til leiks í þeim siðari
og tókst að skora í tvígang um
hálfleikinn miðjan en nær
komust þeir ekki.
Framlengt í Víkinni
Skallagrímur hafði betur gegn
Víkingum, 1-2, á Víkingsvelli.
Staðan eftir venjulegan leiktíma
var 1-1, en Borgnesingar tryggöu
sér sigurinn með marki Valdi-
mars K. Sigurðssonar úr víta-
spyrnu undir lok framlengingar-
innar.
-GH