Dagblaðið Vísir - DV - 11.07.1997, Side 4
FÖSTUDAGUR 11. JÚLÍ 1997 T>V
i8 um helgina
nýkomin frá Munchen þar sem hún
hefur unnið að undirbúningi fyrir
tónleikana ásamt söngkennara sín-
um, Dafne Evangelistos.
En hvers vegna gera tónlistar-
menn sér ferð alla leið í Skálholt tO
að halda tónleika? „Skálholt er nátt-
úrlega einstakur staður, aðstaðan
er góð og hijómburður þar frábær.
Marta G. Halldórsdóttir syngur á
tónleikum í Skálholti um helgina.
En það sem mestu máli skiptir er
þö líklega það að sumartónleikam-
ir hafa gengið vel og ávallt hefur
verið vel að þeim staðið, m.a. hefur
aðsókn alltaf verið mjög góð og þar
sem áheyrendumir em þar er
skemmtilegast að vera. Helga Ing-
ólfsdóttir og aðrir brautryðjendur
þessarar hátíðar hafa unnið mjög
gott uppbyggingarstarf á þessum
stað, og það er ekki síst þess vegna
sem eftirsóknarvert er að syngja í
Skálholti," segir Marta.
Tónleikar Mörtu og Hedwig hefj-
ast klukkan 17 á morgun, laugar-
dag, en fyrr um daginn klukkan 15
leikur Hedwig Bilgram á einleiks-
tónleikum. Á sunnudaginn klukkan
15 veröur flutt úrval úr efhisskrám
laugardagsins. Messa verður í Skál-
holtskirkju klukkan 17 á sunnudag
og í messunni verða fluttir þættir
úr tónverkmn helgarinnar. Boðið
er upp á bamagæslu í Skálholts-
skóla og kafíiveitingar verða seldar
í skólanum milli tónleika. Aögang-
ur er að venju ókeypis og allir
hjartanlega velkomnir.
kbb
Sumartónleikar í Skálholti halda
áfram göngu sinni. Um síðustu
helgi vom fluttu Voces Thules og
Rut Ingólfsdóttir íslenska sam-
tímatónlist en um helgina verður
horfið aftur í tímann, reyndar allt
aftur til nokkurra helstu meistara
barokktímabilsins, þeirra Bachs,
Purcells og Telemanns. Að þessu
sinni munu þær Marta G. Halldórs-
dóttir og Hedwig Bilgram flytja
verk eftir Bach, Purcell og Telem-
ann.
Marta Halldórsdóttir er hérlend-
um tónlistaraðdáendum að góðu
kunn. Eftir að hún lauk námi frá
tónlistarháskólanum í Múnchen
fyrir fjórum árum hefur hún tekið
virkan þátt í tónlistarlífi lands-
manna. Hún hefur komið fram sem
einsöngvari með kórum og kamm-
ermúsikhópum, farið með hlutverk
hjá íslensku óperunni og komið
fram á tónlistarhátíðum. Með henni
á tónleikunum leikur heimskunnur
orgelleikari, Hedwig Bilgram.
Marta og Hedwig kynntust fyrst
fyrir 10 árum þegar Marta aðstoð-
aði hana á tónleikum í Skálholti en
þá var Marta ekki söngkona heldur
unglingur í sumarvinnu. „Ég
kynntist Hedwigu í Skálholti fyrir
tíu árum. Ég var þá kirkjuvörður
að sumarlagi i Skálholti og var
fengin til þess að fletta nótum fyrir
hana á sumartónleikum þar. Eftir
það tókst með okkur góður vinskap-
ur og þegar ég hóf nám við tónlist-
arháskólann í Múnchen hafði ég
samband við hana en hún hefur
verið prófessor þar í fjöldamörg
ár,“ segir Marta. Tónleikamir í
Skálholti eru ekki þeir fyrstu þar
sem þær Marta og Hedwig koma
fram saman. „Þegar ég var úti við
nám þá söng ég nokkrum sinnum
með henni og nemendum hennar á
nemendatónleikum og þá gjaman
eitt verk sem við ætlum að flytja á
tónleikunum, Schemellissöngbók-
við þau. Þar á meðal er aría sem
lögð er í munn Maríu meyjar sem
ákallar son sinn eftir að hafa týnt
honum. í aríunni kemur fram
ákveðinn beygur og María er smám
saman að átta sig á því að þetta
barn hennar er einhver áður
óþekkt stærð sem hún ræður
kannski ekki alveg við.“ María er
ina eftir Bach, en sú tónlist er i
miklu uppáhaldi hjá okkur báðum.
Um er að ræða bók sem Schemelli
nokkur gaf út, og Bach samdi tón-
list við.“ Marta og Hedwig hyggjast
einnig spreyta sig á lögum sem þær
hafa ekki Qutt áður. „Purcell hef ég
ekki sungið áður en ég þekki lögin
vel og hlakka mikið til að takast á
Skemmtilegast
að vera þar sem
áheyrendurnir eru
- segir Marta G. Halldórsdóttir söngkona
Sumarkvöld við orgelið:
Ovenjuleg orgeltónlist
í Hallgrímskirkju
Það er væntanlega ekki á hverj-
um degi sem mexíkósk tónlist er
flutt hér á landi. Á sunnudaginn
kemur æfía þó hjónin Ofelia Gomez
Castellanos og Gustavo Delgado
Parra frá Mexíkó að flytja tónleika-
gestum orgeltónlist úr heimalandi
sínu. Verkin á efnisskránni eru
flest frá barokktímanum en þau
hjón hafa með starfi sínu undanfar-
in ár lagt mikla rækt við að flytja
mexíkóska tónlist auk þess sem þau
hafa beitt sér fyrir varðveislu gam-
alla orgela í Mexíkó. Tónleikamir í
Hallgrímskirkju eru áfangi á tón-
leikaferð þeirra um Evrópu og það
er íslenskum tónlistarunnendum án
efa mikill fengur að fá þau hingaö
til lands.
Stór hluti efnisskrárinnar er
mexíkósk tónlist endurreisnar- og
barokktímans en auk þess verður
leikin evrópsk barokktónlist frá
sama tíma. Af mexíkóskri tónlist
má heyra nokkrar mismunandi út-
færslur á „glosado" en það er ákveð-
in tegund af mexíkóskum söngva-
kvæðum. Flest verkanna voru í
upphafi ýmist samin fyrir kirkjukór
eða strengjahljóðfæri.
Til samanburðar verður flutt tón-
list eftir evrópsk tónskáld, þ. á m.
J.S.Bach. í lok tónleikanna verða
flutt tvö verk eftir Gustavo Delgado
Parra en eins og fram hefur komið
er hann annar flytjenda kvöldsins.
Hjónin Castellanos og Parra stun-
duðu bæði nám við tónlistarháskól-
ann í Mexíkóborg og brautskráðust
þaðan 1988. Þau hafa komið fram á
fjölda tónleika, einkum í Mexíkó og
Hollandi, og þá lagt sérstaka rækt
við að kynna mexíkóska orgeltón-
list. Leikur þeirra hefur verið hljóð-
ritaður fyrir útvarp, sjónvarp og
geisladiskaútgáfu.
Tónleikarnir á sunnudag hefjast
klukkan 20.30.
Tvennir tónleikar
á Norðurlandi
um helgina
Á laugardag og sunnudag
mun tónlistarhópurinn Quadro
Corydon koma fram á tvennum
tónleikum í Reykjahlíðarkirkju
og Akureyrarkirkju. Verk frá
barokktímanum verða í fyrir-
rúmi á tónleikunum og flutt
verða verk eftir Monteverdi og
Vivaldi m.a. Quadro Corydon
er skipaður fjórum konum. Þær
stofnuöu Quadro Corydon árið
1994 og hafa haldið hópinn síð-
an. Stefna þeirra er að leika 17.
og 18. aldar tónlist á llflegan og
litríkan hátt og kynna hana fyr-
ir nútímamönnum. í fyrra unnu
þær til verölauna í alþjóðlegri
keppni barokkhljómsveita í
Hollandi. Að tónleikunum lokn-
um hér halda þær til Svíþjóðar í
tónleikaferð þar sem tónleikum
þeirra verður útvarpað og sjón-
varpaö um land allt. Tónleikam-
ir í Reykjahlíöarkirkju á Laugar-
dag hefjast klukkan 21 en tón-
leikamir í Akureyrarkirkju
klukkan 17.
Ævintýrið endurtekið
í Nýlistasafninu
Raddskúlp-
túrinn Ævin-
týri eftir
Magnús Páls-
son verður
endurfluttur í
Nýlistasafn-
inu klukkan
20.30 á morg-
un. Flytjend-
iu- em þau
Elfar Logi
Hannesson,
Eyvindur Er-
lendsson,
Lilja Þóris-
dóttir og
Marta Nor-
dal.
Aðrar sýn-
ingar í safninu halda áfram. Þar má
nefna sýninguna Yngstu kynslóðina
sem Gallerí Gúlp og Undir pari
standa fyrir og ljósmyndasýningu
Áslaugar Thorlacius.
Raddskúlptúrinn Ævintýri eftir Magnús Páls-
son verftur endurfluttur annaft kvöld klukkan
20.30 í Nýlistasafninu.
í setu-
stofu Ný-
listasafnsins
sýnir Jón
Reykdal
nokkur ný
málverk en
hann á að
baki margar
einkasýn-
ingar og hef-
ur tekið þátt
í samsýn-
ingum
heima og er-
lendis. Loks
má nefna að
á efstu hæð
hússins í
Súm-sal er
haldið upp á 20 ára afmæli sýning-
arhússins við Suðurgötu 7.
Sýningarnar em opnar daglega
nema á mánudögum frá kl. 14 til 18.
Þeim lýkur 20. júlí.