Dagblaðið Vísir - DV - 11.07.1997, Síða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 11.07.1997, Síða 6
FÖSTUDAGUR 11. JÚLÍ 1997 T*>V 20 um helgina VEITINGASTADIR A. Hansen Vesturgötu 4, Hf., s. 565 I 1693. Opið 11.30-22.30 alla daga. Amigos Tryggvagötu 8, s. 551 1333. Op. 17.30-22.30 v.d. og sd., 17.30- 23.30 fd. og ld. Argentína Barónsstíg Ua, s. 551 9555. Opið 18-23.30 v.d., 18-3 um i helgar. Asía Laugavegi 10, s. 562 6210. Opið 11.30- 22.30 v.d., 12-22.30 sd„ 1 11.30-23.30 fd. og ld. Askur Suðurlandsbr. 4, s. 553 8550. Op. 11-22 sd.-fid., 11-23.30 fd. og ld. Austur Indía fjeíagið Hverfisgötu 56, s. 552 1630. Opið a.d. frá kl. 18. Á næstu grösurn Laugavegi 20, s. 552 8410. Opið 11.30-14 og 18-22 v.d., 18-22 sd. og lokað ld. Banthai Laugavegi 130, s. 552 2444. Op. 18-22 md.- fid. og 18-23 fod.-sd. ’ Carpe Diem Rauðarárstíg 18, s. 562 J 3350. Opið 11-23 alla daga. Caruso Þingholtsstræti 1, s. 562 | 7335. Opið sd.-fid. 11.30-23.30. Fd. Iog ld. 12.-2. Grænn kostur Skólavörðustíg 8b, s. 552 2028. Opið md.-ld. frá 11.30-21 og sd. frá 18-21. Hard Roek Café Kringlunni, s. 568 9888. Opið 11.45-23.30 md.-ld., 12-23.30 sd. Homið Hafnarstræti 15, s. 551 3340. Opið 11-23.30 alla daga. Hótel Borg Pósthússtræti 11, s. 551 1440. Opið 8-23.30 alla daga. Hótel Esja Suðurlandsbraut 2, s. 568 9509. Opið 11-22 alla daga. Hótel Holt Bergstaðastræti 37, s. 552 5700. Opið 12-14.30 og 19-22.30 v.d., 12-14.30 og 18-22 fd. og ld. Hótel Loftleiðir Reykjavíkurflug- velli, s. 552 2322. Opið í Lóninu í 5-23, í Blómasal 18.30-22. i: Hótel Óðinsvé v/Óðinstorg, s. 552 I 5224. Opið 12-15 og 18-23 v.d., 12-15 og 18-23.30 fd. og ld. Hótel Saga Grillið, s. 552 5033, í Súlnasalur, s. 552 0221. Skrúður, s. i 552 9900. Grillið opið 19-22.30 a.d., Súlnasalur 19-3 ld„ Skrúður 12-14 og 18-22 a.d.. Humarhúsið Amtmannsstíg 1, s. 561 3303. Opið 10-23.30 v.d„ 10-1 :j ld. og sd. Indókína Laugavegi 19, s. 552 2399. 'i Opið 11.30-22.30 alla daga, ld. frá I 11.30-23.30. Ítalía Laugavegi 11, s. 552 4630. : Opið 11.30- 23.30 alla daga. Jónatan Livingston Mávur } Tryggvagötu 4-6, s. 551 5520. Opið I 17.30-23 v.d„ 17.30-23.30 fd. og ld. Kinahofið Nýbýlavegi 20, s. 554 5022. Opið 17-21.45 v.d„ 17-22.45 fd„ ld. og sd. Kína-húsið Lækjargötu 8, s. 551 I 1014. Opið 11.30-14 og 17.30-22 v.d„ 17.30-23 fd„ 15-23 ld„ 17-22 sd. Kínamúrinn Laugavegi 126, s. 562 2258. Opið fd„ ld„ 11.30-23.30, I sd.-fid. 11.30-22.30. Kofi Tómasar frænda Laugavegi 2, 3 s. 551 1855. Opið 10-01 sd.-fid. og 'i 11-03 fd. og ld. Kringlukráin Kringlunni 4, s. 568 0878. Opið 12-1 vd„ 12-3 fd. og ld. Lauga-ás Laugarásvegi 1, s. 553 a 1620. Opið 11-22 og 11-21 um helgar. : Lækjarbrekka Bankastræti 2, s. 3 551 4430. Opið md.-mid. 11-23.30, fid.-sd. 11-0.30. Madonna Rauðarárstíg 27-29, s. I 562 1988. Opið 11.30-23.30 a.d. Marhaba Rauðrárstíg 37, s. 562 j 6766. Opið a.d. nema md. | 17.30-23.30. Naustið Vesturgötu 6-8, s. 551 1 7759. Opið 12-14 og 18-01 v.d„ j 12-14 og 18-03 fd. og ld. b Ópera Lækjargötu 2, s. 552 9499. ! Op. 18-23.30 v.d„ 18-24.30 fd. og Id. Pasta Basta Klapparstíg 38, s. 561 } 3131. Opið virka daga frá 11.30 til í 1.00 og um helgar til 3.00. Perlan Öskjuhlíð, s. 562 0200. Opið | 18-23.30 v.d„ 18-24.30 fd. og ld. Potturinn og pannan Brautarholti 22, s. 551 1690. Opið a.d. 11.30-22. Primavera Austurstræti, s. 588 I 8555. Op. 12-14.30, 18-22 v.d„ 18-23 fd„ 18-23.30 ld„ 18-22 sd. Salatbarinn hjá Eika Fákafeni 9, | s. 588 0222. Opið alla daga frá kl. | 11.30.-20.30. nema ld. frá 11.30.-16. : Lokað á sd. Samurai Ingólfsstræti la, s. 551 | 7776. Opið v.d. 18-22, fd„ ld„ 18-23. ::! Singapore Reykjavíkurvegi 68, s. i 555 4999. Opið 18-22 þd.-fid„ 18-23 s fd.-sd. } Sjanghæ Laugavegi 28, s. 551 6513. Opið 11.30-23.30 v.d„ 12-22.30 sd. Sjö rósir Sigtúni 38, s. 588 3550. ; Opið 7-23.30 alla daga. Skólabrú Skólahrú 1, s. 562 4455. j Opið frá kl. 18 alla daga og í hd. Steikhús Harðar Laugavegi 34, s. j 551 3088. Opið 11.30-21 v.d. og sd„ 11.30-23.30 fd. og ld. j Tilveran Linnetsstíg 1, s. 565 5250. Opið 11-23 alla daga. Við Tjörnina Templarasundi 3, s. 551 8666. Opið 12-14 og 18-22.30 |md.-fd„ 18-23 ld. og sd. Viðeyjarstofa Viðey, s. 568 1045 og 562 1934. Opið fid,- sud„ kaffist. kl. 14-17. Veitingasalur kl. 18-23.30. Vitabar Bergþórugötu 21, s. 551 | 7200. Opið 15-23.30,v.d„ 12-02 a.d. Þrír Frakkar hjá Úlfari Baldurs- götu 14, s. 552 3939. Opið 11-14.30 í og 18-23.30 ld. og sd. Og yfir öllu saman vakir svo allsherjargoöinn. Alþjóðleg víkingahátíð í Hafna Vopnaskak og1 Víkingahátíðin í Hafnarfirði var sett á miðvikudaginn. Þetta er í annað sinn sem slík hátíð er haldin hérlendis en fyrsta hátiðin var hald- in 1995. Sú hátíð gekk í alla staði vel og var því ákveðið að endurtaka leikinn. „Hugmyndin að hátíðinni er upphaflega komin frá dönskum manni, Lars Bæk Sorensen. Við héma á íslandi höfðum spurnir af því að Lars hefði gengist fyrir sams konar víkingarhátíðum bæði í Dan- mörku og Póllandi og þegar við höfðum fengið nánari upplýsingar fannst okkur tilvalið að slík hátíð yrði haldin hér,“ segir Rögnvaldur Guðmundsson, framkvæmdastjóri hátíðarinnar. „Við leituðum síðan til bæjarstjórnar sem tók erindinu vel og sömu sögu var að segja um þá fjölmörgu styrktaraðila sem við fengum til liðs við okkur. Stofnað var hlutafélag í kringum hátíðina og þegar upp var staðið komum við ágætlega út úr þessu. Það lá því beint við að endurtaka leikinn." Aukinn áhugi fslendinga Þátttakendur á hátíðinni koma víða að og greinilegt er að talsverð- ur áhugi er meðal útlendinga fyrir þessum viðburði. Að sögn Rögn- valds er þó mikill áhugi á hátíðinni meðal íslendinga: „Ég hef það á til- finningunni að áhuginn hérlendis hafi aukist talsvert frá síðustu há- tíð. Við höfum þegar fengið ótal fyr- irspurnir og meira fer fyrir íslensk- um atriðum í dagskránni en áður. Hins vegar verður áfram þó nokkuð um útlenda gesti. Hingað eru til dæmis komnir erlendir leikarar og hestamenn, að ógleymdum þraut- þjálfuðum bardagamönnum sem sýna munu bardagalistir." Alls eru 80 til 90 sveitir bardagamanna á há- tíðinni, þar af ein íslensk. Skemmtidagskrá á Víðistaðatúni „Dagskráin hjá okkur er marg- þætt en skiptist í megindráttum í menningardagskrá og skemmtidag- skrá. Skemmtidagskráin fer að mestu leyti fram á Víðistaðatúni og „Eigi skal höggva!" Þegar víkingar reiöas Kraftajötnar í Skotapilsum Kraftakeppni á vaxandi vinsældum að fagna sem íþróttagrein hérlendis. íslenskir kraftakarl- ar hafa gert garðinn frægan erlendis og skemmst er að minnast frábærs árangurs þeirra í keppninni um sterkasta mann heims. Það ætti því að vera mörgum gleðiefni að á morgun hefst fyrsti áfangi hinna íslensku Hálandaleika við knattspyrnuvöllinn á Eskifirði. „Hugmyndin að því að halda Hálandaleika hérlendis kviknaði fyrst árið 1984 þegar Jón Páll fór til Skotlands og keppti þar á Hálanda- leikum. Áður hafði Hreinn Haíídórsson kúlu- varpari farið á þessa leika en það fór einhvern veginn fram hjá mönnum þá,“ segir Hjalti „Úrsus“ Árnason, einn af aðstandendum Há- landaleikanna. „Skotland er nafli kraftiþrótta- heimsins og þar njóta Hálandaleikar gríðar- legra vinsælda, eru vinsælasta íþróttin á eftir fótholtanum. Okkur fannst gráupplagt að halda slika á íslandi, og sérstaklega þar sem Hálanda- leikum fylgir ekki jafnmikil meiðslahætta og í annars konar kraftakeppni, t.d keppninni um sterkasta mann heims. Það er ekkert óalgengt að menn fari inn á sjúkrahús í þrjár vikur með slíka keppni að baki en á Hálandaleikum getum við keppt margar vikur í röð án þess að meið- ast,“ segir Hjalti. Skotapils og Bravsheart Að sögn Hjalta eiga kraftaíþróttir miklum vinsældum að fagna um allan heim. „Ég veit til þess að í Ameríku einni eru yfir 200 leikar og í Skotlandi ber Hálandaleika næstum því upp á hvern einasta dag.“ Keppnisgreinar á Hálanda- leikum eru alls 5. „Fyrsta greinin er steinkast sem gengur út á það að kasta 8 kg steini sem lengst. Þetta er líklega ein elsta íþróttagrein mannkynsins." Eftir það er lóðakast, þar sem 12 kg lóði er kastað eins langt og menn geta. „Þessu er kastað með kringlukastsstíl. Skoskir bændur notuðu þetta sem vopn áður fyrr og dæmi um þá notkun mátti t.d. sjá i myndinni Braveheart. Sá er þó munurinn á okkur og Skot- unum í Braveheart að við erum ekki að kasta þessu í neitt. - Við gerum ekki flugu mein,“ seg- ir Hjalti. Þessu næst fylgir staurakastið. „Staurakastið er yfirleitt hápunktur allra Há- landaleika og þá er áhorfendum vissara að halda sig í öruggri fjarlægð, því að staurarnir geta flogið í allar áttir. Aðrar greinar eru lóða- kast yfir rá og sleggjukast, þar sem venjulegri sleggju er kastað." Þegar Hálandaleikar eru annars vegar eru Skotapilsin ómissandi: „Keppendur verða að sjálfsögðu allir í Skotapilsum. Að keppa á Há- landaleikum án Skotapilsa væri álíka óviðeig- andi og keppa í Formúlu eitt kappakstri á kassabíl," segir Hjcdti. „Við verðum þó að játa að pilsin sem við klæðumst eru öllu fáskrúðugri en þau sem Skotarnir klæðast, þar sem i pils þeirra eru vafin flókin mynstur sem sýna ætt- göfgi hvers og eins.“ Meðal þekktra keppenda á Hálandaleikunum auk Hjalta eru Andrés Guðmundsson kraftajöt- unn, Pétur Guðmundsson kúluvarpari, Auðunn Jónsson kraftlyftingakappi og Sölvi Fannar, en sá síðastnefndi er líklega þekktastur fyrir að hafa þjálfað Gaua litla í sjónvarpinu í vetur. Að sögn Hjalta er stefnt að því að gera leikana að hátíð fyrir alla fjölskylduna og stendur til að leyfa áhorfendum að spreyta sig.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.