Dagblaðið Vísir - DV - 11.07.1997, Síða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 11.07.1997, Síða 7
FÖSTUDAGUR 11. JÚLÍ 1997 rfirði: vígaferli stendur fóstudag og sunnudag frá 13 til 21 en á laugardag frá 14 til 21,“ segir Rögnvaldur. Föstudaginn munu bardagalistamenn sýna víg- fimi sína og kynna foman vopna- búnað á Víðistaðatúni. Þá verða hestar teymdir undir börnum og Leikfélag Hafnarfjarðar sýnir leik- verkið Epli Iðunnar þar sem segir frá því er Loki stal eplum Iðunnar. Það hafði óheppilegar afleiðingar fyrir goðin þar sem þau sóttu eilífan æskuþrótt sinn til þessara epla. Auk þessara atriða siglir vikingaskipið Islendingur með gesti frá Fjörukrá- arbryggju við Strandgötu og þá ;t er voöinn vís. Etið og drukkiö aö víkingasiö. DV-mynd E.ÓI. verður gestum boðið að spreyta sig í bogaskotfimi. Þá verður hér vík- ingamarkaður alla daga hátíðarinn- ar þar sem margs konar vamingur verður boðinn til sölu. Skundað á Þingvöll Á laugardagsmorgun verður fjöl- mennt á Þingvöll þar sem fram fer hátíðarþing að hætti vikinga. „Við verðum með hópreið víkinga niður Almannagjá og niður vellina neðan við Öxarárfoss. Þá verðum við með fiölbreytta dagskrá í Stekkjagjá. Heiðursgestur okkar þann daginn verður Ólafur G. Einarsson, forseti Alþingis. Að lokinni dagskránni á Þingvöllum verður haldið aftur í bæinn þar sem dagskráin verður með svipuðu sniði og daginn áður, nema hvað efnt verður til Hallgerð- arkeppni þar sem hárfegursta kon- an verður valin. Höfðingi heygdur og brenndur Á lokadegi hátíðarinnar verður margt um að vera. Föstu liðirnir verða áfram á sínum stað, þar á meðal víkingamarkaðurinn og bar- dagasýningamar. Klukkan 15 verð- ur keltnesk messa og þá verða skeggprúðasta víkingnum veitt verðlaun fyrir skeggið. Klukkan 18 hefst síðan heljarmikill bardagi sem lýkur með því að höfðingi úr öðru liðinu fellur í valinn. Hann verður heygður og síðan brenndur á stóru víkingaskipi í tjörninni á Víðistaða- túni. Ekki þarf að taka fram að „höfðinginn“ sem hér um ræðir er að sjálfsögðu ekki lifandi áhættu- leikari heldur brúða. Aðstandendur víkingahátiðarinn- ar gera ráð fyrir að fiöldi gesta leggi leið sína á hátíðina: „Við fengum 13 þúsund gesti á síðustu hátíð og von- umst eftir 20 þúsund núna,“ segir Rögnvaldur Guðmundsson, fram- kvæmdastjóri víkingahátíðarinnar í Hafnafirði. -kbb Þaö verður mikiö um dýröir á Selfossi um helgina. Mynd Filmverk/Gunnar Selfossbyggð: Hápunktur afmælishátíðar Afmælishátíð í tilefhi 50 ára af- skólann og vemdaðan vinnustað gildi. Lögin vom sett í kjölfar mælis Selfossbyggðar nær há- punkti sínum um helgina meö heimsókn forseta íslands og konu hans. Samtímis verða fiölmargar uppákomur í bænum og ættu all- ir, jafnt ungir sem aldnir, að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. „Ég geri ráð fyrir því að há- tíðahöldin nái hápunkti sínum um helgina og er forsetaheim- sóknin að sjálfsögðu stærsti þátt- urinn þar,“ segir Magnús Már Magnússon, æskulýðsfulltrúi á Selfossi, sem situr í afmælis- nefnd bæjarins. „Annars skiptist hátíðadagskráin hjá okkur nokkum veginn jafht milli for- setaheimsóknarinnar og al- mennrar skemmtidagskrár. Heimsókn forsetans hefst klukk- an 11 um morguninn með mót- töku við Selfosskirkju og von- umst við til að bæjarbúar fiöl- menni þar. Eftir það heimsækir forsetinn hina og þessa staði í bænum, þar á meðal Fjölbrauta- þar sem fatlaðir em með vinnu- stofú. Loks liggur leiðin að úti- vistarsvæðinu við Gesthús en þar verður almenn hátíðarsam- koma með hefðbundnu sniði, svo sem ávörpum, kórsöng og fleira í þeim dúr. Efnt verður til gríðar- stórrar grillveislu og samhliða grillinu verða fiölmargar uppá- komur aðrer, svo sem andlits- málun, leikir og alls konar sprell hér og þar. Ég geri ráð fyrir að forsetahjónin kveðji bæjarbúa um kvöldmatarleytið og haldi heim á leið en bæjarbúar munu væntanlega skemmta sér eitt- hvað fram eftir,“ segir Magnús og segist vonast eftir um 3000 gestum á hátíðahöldin. Um kvöldið verður hljómsveit- in Sálin hans Jóns míns með tón- leika á stóra sviðinu í Inghóli. Selfosshreppur varð til árið 1947 þegar lög um sameiningu Sandvíkurhrepps, Ölfushrepps og Hraungerðishrepps gengu í langvinnra viðræðna milli full- trúa hreppanna og þegar ekki gekk saman hjó Alþingi á hnút- inn með lagasetningu. Byggðin sjálf við Selfoss er nokkru eldri en segja má að kjami hennar hafi myndast í kringum 1891 við smíði Ölfusárbrúar. í þá daga var Ölfusárbrú mesta mannvirki sinnar tegundar hérlendis og gerð hennar markaði byltingu í samgöngumálum hérlendis. Sel- fossbær eins og hann er nú á því tilvist sína að þakka brúarstæð- inu góða en óhætt er að segja að bærinn hefði risið annars staðar ef það hefði ekki verið fyrir hendi. Afmælishátíð Selfossbyggðar hefur nú staðið síðan í maí og nær, sem fyrr segir, hápunkti sín- um um helgina. Þar með er henni þó hvergi nærri lokið því að upp- ákomur og hátíðahöld munu halda áfram með reglulegu milli- bili fram í desember. -kbb }Ma helgina • SÝNINGAR Gallcrí Handverks & hönnunar, Amtmannsstíg 1. Guflsmiöjan Stubbur er með sýningu á leikföngum. Til sýnis eru leikföng, hönnuö og smíðuð af Georg Hollanders. Sýningin stendur til 12. júlí og er opin virka daga kl. 11-17 og á laug- ' ardögum 12-16. Gallerí Homlð, Hafnarstraái 15. Gunnar Þjóðbjöm Jónsson opnar sýn- ingu á málverkum og er þetta fyrsta einkasýning hans. Sýningin stendur til 30. júll og verður hún opin frá kl. 11.00-23.30 en sérinngangur gallerísins er þó aðeins opinn trá kl. 14.00-18.00. Gallerí Ingólfsstræti 8. Nú stendur yfir sýning með nýjum málverkum eftir Tuma Magnússon. Sýningin stendur til 31. júlí. Gallerí Listakot, Laugavegi 70. Laugardaginn 12. júlí kl. 14.00 opnar ung- verska grafiklistakonan Magdolna Szabó sýningu. Sýningin stendur tii 2. ágúst og er opin kl. 10-18 virka daga og kl. 10-16 laugardaga. f Gallerí Nema hvað, Þingholts- strætí 6. Nú stendur yfir fyrsta einka- sýning Kolbrúnar Sigurðardóttur. Sýn- ingin er opin frá 5.-17. júlí, frá kl. 15-18 þriöjudaga tii föstudaga og kl. 14-18 laug- ardaga og sunnudaga. Gallerí Regnbogans, Hverfisgötu 54. Sýning á verkum Sigurðar Örlygs- sonar er opin virka daga frá kl. 16-24 og frá kl. 14-24 um helgar. Gallerí Sýnirými: Sýningar í júlí. Gailerí Sýnibox: Liija Björk Egilsdótt- ir„ Gallerí Barmur: Hulda Ágústs- dóttir, berendur eru Bruce Concle og Hildur Bjamadóttir. Gallerí Hlust: (551-4348): Kristbergur Ó. Pétursson. Galierí 20 m2: Oliver Kochta. Gerðuberg. Jón Jónsson er með mál- verkasýningu. Opið fmuntud. til sunnud. frá kl. 14-18. Hafnarborg, Strandgötu 34, Hafh- arfirði. Nú stendur yfir sýning á verk- v" um þýska listamannsins Wulfs Kirs- chners. Sýningin er opin alla daga nema þriðjudaga frá kl. 12-18 fram til 21. júlí. ísafoldarhúsið, Þingholtsstræti 5. Heidi Kristiansen sýnir myndteppi. Vinnustofan er opin aúa virka daga frá kl. 12-18. Kjarvalsstaöir Sýningin íslensk myndlist til 31. ágúst. Opiö aila daga frá kl. 10-18. Listasafh Ámesinga, Tryggvagötu 23. í tilefhi 50 ára afmælis Selfossbæjar er haldin þessa dagana myndlistarsýn- ing eflir 15 Selfyssinga. Sýningin stendur til 31. ágúst og er opið frá 14-18 alla daga. Listasafn íslands. Sýning á myndlist og miðaldabókum Islands. Á sýningunni eru málverk, graflk og höggmyndir sem byggðar eru á íslenskum fomritum. Listasafh Kópavogs. Nú stendur yfir sýningin fjarvera/nærvera. Christine Borland, Krisiján Guðmundsson og Juli- ao Sarmento. Listhúsið í Laugardal. Gallerí Sjöfn Har. Myndlistarsýning á verkum eftir Sjöfh Har. Opið virka daga kl. 13-18 og laugardaga kl. 11-14. Listasafh Sigurjóns Ólafssonar, Laugaraesi. Sumarsýning á 27 völdum verkum eftir Siguijón. Opið alla daga nema mánudaga frá kl. 14-17. Listhús Ófeigs, Skólavöröustíg 5. Finninn Harri Syijánen er með sýningu á verkum sínum. Opið mán.- fös. frá kl. 10-18 og lau. frá kl. 11-14. Mokka, Skólavöröustíg 3A. Þann 11. júlí opnar Hlin Gylfadóttir sýningu á sili- kondýrum. Sýningin stendur til 6. ágúst. ‘- Nýiistasafniö, Vatnasíg 3B. Fimm sýningar. Raddskúlptúr eftir Magnús Pálsson. 1 Forsal kynna Særún Stefáns- dóttir, Jóní Jónsdóttir, Hlín Gylfadóttir, Dóra isleifsdóttir og Sigrún Hrólfsdóttir „Yngstu kynslóðina". Áslaug Thorlacius sýnir ijósmyndir og þrívið verk i Bjarta og Svarta sal. Á efetu hæð hússins, eða i Súm-sal, verður haldið upp á 20 ára af- mæli sýningarhússins Suðurgötu 7. Um- sjónarmenn eru Halldór Ásgeirsson og Steingrímur EySörð. í setustofh Jón Reyk- dal. Sýningamar em opnar daglega nema á mán. frá kl. 14-18 og þeim lýkur 20. júlí. Sjómhxjasafh íslands, Hafharfirði. Sýning á 20 olíumáiverkum eftir Bjama Jónsson listmálara. Sýningin stendur yfir sumartímann. Til 30. september verður Sjóminjasafnið opið aila daga frá kl. 13-17. Sjónarhóll, Hverfisgötu 12. Nú -j stendur yfir sýning Helga Hjaltalín á Sjónarhóli. Sýningunni lýkur þann 27. júlí. Sjónarhóll er opinn funmtudaga til sunnudaga ki. 14-18. Snegla, listhús, Grettisgötu 7. í gluggum stendur yfir kynning á verkum Sigríðar Erlu úr jaröleir. Opið virka daga kl. 12-18 og kl. 10-14 laugard. SPRON, Álfabakka 14, Mjódd. Sýn- ing á verkum Aðalheiöar Valgeirsdóttur til 8. ágúst. Opið frá mánudegi til föstu- dags, frá kl. 9.15-16. Stofhun Áma Magnússonar, Áma- garði. Sumarsýning handrita 1997. Opið daglega kl. 13-17 til ágústloka. Við Fjömborðiö, Stokkseyri. Gunnar Gránz heldur sýningu á um 20 myndverk- um.Sýninginstendurfrál2.júlíitll.ágúst. < Vorhugur, sýning á skúlptúrverkum Þorgerðar Jörundardóttur og Mimi Stall- bom stendur yfir í húsnæði Kvennalist- ans að Pósthússtræti 7, 3. hæð. Opiö á skrifstofutíma kl. 13-17 alla virka daga. Skálholt. Sýningin Kristnitaka sem er samvinnuverkefhi Myndhöggvarafé- lagsins í Reykjavík, Skálholtsstaðar og Skálholtsskóla. Sýningin stendur til 14. október. _

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.