Dagblaðið Vísir - DV - 11.07.1997, Side 10

Dagblaðið Vísir - DV - 11.07.1997, Side 10
FÖSTUDAGUR 11. JÚLÍ 1997 24 -v « tíónlist * | t 1. (- ) Fat of the Land Prodigy | | 2. (1 ) OK Computer Radiohead I | 3. ( 2 ) Pottþétt 8 Ymsir IÍ 4. ( 3 ) Forever Wu Tang Clan i 5. ( 4 ) Spice Spice Girls t 6. (10) Falling into You Celine Dion Í 7. ( 5 ) Stoosh Skunk Anansie 4 8. ( 6 ) Evita Ur söngleik t 9. (- ) Bestu barnalögin Safnplata t 10. (-) Tjútt Skítamórall t 11. (19) 5th Element Úr kvikmynd i 12. ( 7 ) Tragic Kingdom No Doubt Í 13. ( 8 ) Very Best of Cat Stevens t 14. (- ) ln It for the Money Supergrass t 15. (- ) Rómeó og Júlía Úr kvikmynd Í 16. (12) Fields of Gold, Best of Sting i 17. (16) TheSaint Úr kvikmynd t 18. (- ) Best of Tsjajkovskí i 19.(11) 13sígildarsöngperlur 14 Fóstbræður t 20. ( - ) Depoche Mode Ultra mwmxtis/sKmtamiMmtiiisk London t 1.(1) I II Be Missing You Puff Daddy & Fait Evans | | 2. ( 2 ) Ecuador Sash! Featuring Rodriguez t 3. (- ) The Journey 911 | t 4. ( 6 ) Free Ultra Nate | t 5. ( - ) Something Goin' on Todd Terry Í 6. ( 5 ) Bitter Sweet Symphony The Verve i 7. ( 4 ) MmmBob Hanson | t 8. (- ) A Change Would Do You Good Sheryl Crow | i 9. ( 7 ) I Wanna Be the Only One Eternal Featuring BeBe Winans Í 10. ( 3 ) JustAGirl No Doubt NewYork -lög- | 1.(1) l'll Be Missing You Puff Daddy & Faith Evans t 2. ( 3 ) Bitch Meredith Brooks i 3. ( 2 ) MmmBop Hanson | 4. ( 4 ) Roturn of the Mack Mark Morrison | 5. ( 5 ) Look into My Eyes Bone Thugs-N-Harmony | t 6. ( 7 ) I Belong to You Rome | i 7. ( 6 ) Say You'll Be there Spice Girls t 8. (-) Sunny Came Home Shawn Colvin t 9. (- ) Do You Know Robyn t 10. (- ) Quit Playing Games Backstreet Boys ! .1 vHA . w \ Bretland J 1. (-) ThatFatofthe Land The Prodigy i 2. ( 1 ) OK Computer Radiohead i 3. ( 2) Heavy Soul Paul Weller | J 4. ( 4 ) Spice Spice Girls J 5. ( 5) Before the Rain Eternal t 6. ( -) Some Other Suckers Parade Del Amitri t 7. ( -) Guns in the Ghetto UB40 i 8. ( 3 ) Destination Anywhere Jon Bon Jovi t 9. (10) Stoosh Skunk Anansie t 10. ( - ) Romanza Abdra Bocelli i ZI \ Bandaríkin ..-r- plötur og diskar- t 1. ( 2 ) Spice Spice Girls t Z ( 5 ) Middle of Nowhere Hanson J 3. ( 3 ) Everywhere Tim McGraw t 4. (- ) Generation Swine Motley Crue t 5. ( 6 ) Batman & Robin Soundtrack i 6. (1 ) Butterfly Kisses Bob Carlisle J 7. ( 7 ) God's Property God's Property from Kirk Franklin's i 8. ( 4 ) Wu-Tang Forever Wu-Tang Clan t 9. (- ) Bringing Down the Horse The Wallflowers tlO. (- ) Pieces of You Jewel r * O tokk ER SKOLLIN Tuttugu hljómsveitir voru skráðar til leiks í hljóm- sveitakeppninni Rokkstokk ’97 sem fer fram í Reykjanesbæ i dag og á morgun. Fjöldinn var reyndar stöðugt að taka breytingum, hljóm- sveitir að detta út, aðrar að hlaupa í skarðið og enn aðrar að breyta um nöfn og liðsskipan og bjuggst að- standendur keppninnar við að svo yrði fram á síðustu stundu. Keppnin sjálf á morgun Hátíðin hefst klukkan ijögur í dag þegar hljómsveitimar koma fram á tveimur útisviðum í Keflavik. Tíu spila á hvoru sviði. Fari svo aö ekki viðri til útitónleika verða hljóm- sveitirnar færðar inn. Keppnin sjálf fer siðan fram á morgun í Félags- bíói, hefst klukkan þrjú og lýkur ein- hvem tíma á þriðja tímanum um nóttina. „Á útitónleikunum verðum við bara með lítil hljóðkerfi. Fyrirkomu- lagið verður nánast eins og hljóm- sveitirnar hafi bara fært sig út fyrir bílskúrsdymar og spili þar í staðinn fyrir að vera inni,“ segir Kiddi, einn aðalskipuleggjandi keppninnar. „I Félagsbíói verðum við hins vegar með stórt kerfi og þar verður mikið lagt upp úr þvi að hafa hljóminn sem bestan. Mikill áhugi Kiddi segir að áhuga á þátttöku hafi ekki skort. Flestar hljómsveitirnar sem skráðar eru til keppni eru reyndar af Suðumesjum. Nokkrar em úr höfuðborginni og nágrenni hennar og ein frá Vestmannaeyjum. „Þær spila flestar rokk, tvær til þrjár eru með tölvumúsík og ein þeirra, Rassálfar, sker sig nokkuð úr. í henni er leikið á ýmiss konar hljóðfæri sem heyrist ekki oft í þeg- ar rokk er annars vegar,“ segir Kiddi. Þrjú frumsamin Á tónleikunum í dag hefur hver hljómsveit hálfa klukkustund til að kynna sig og má þá spila hvað sem er. í hljómsveitakeppninni á morgun á hver hljómsveit hins vegar að leika þrjú frumsamin lög. Þriggja manna dómnefnd hefur því ærinn starfa fyr- ir höndum að komast að niðurstöðu um hvaða hljómsveit skarar fram úr og hlýtur utanlandsferð sem boðin er í verðlaun. Að auki verða veitt verð- laun fyrir besta sönginn og hljóð- færaleikinn og einnig fær frumleg- asta hljómsveitin sérstök verðlaun. Dómnefndina skipa Kiddi kanína, ísar Logi úr Undirtónum og Heiðar úr Botnleðju. Gefa út geislaplötu Hlutverki Heiðars er aldeilis ekki lokið þegar dómnefndarstörfum sleppir. Hljómsveit hans, Botnleðja, kemur fram um kvöldmatarleytið á morgun. Hin gestahljómsveitin, Qua- rashi, spilar hins vegar í lokin, með- an dómnefndin er að bræða með sér hvaða hljómsveit hafi sigrað í keppninni. Leikur allra hljómsveitanna verð- ur tekinn upp á laugardag og stend- ur til að gefa út geislaplötu með því athyglisverð- asta sem fyrir eyrun ber. Eitt skilyrðið fyrir þátttöku í keppninni var einmitt að hljómsveitirnar hefðu ekki gefið út geisladisk áður. Þess má að lokum geta að heilmiklar upplýs- ingar um Rokkstokk ’97 er að finna á heimasíðu keppninnar og fróðleik um hana og hljómsveit- irnar sem verða með. Slóðin er ok.is/rokkstokk. -ÁT- Botnleðja verður önnur tveggja gestahljómsveita í Rokkstokk-keppninni á morgun. Hljómsveitimar sem voru skráðar til keppni í byrjun vikunnar eru Klotera Inc., Drákon, Blús- bræður, Rassálfar, OP!, Fálkar, Geðklofi, Dan- modan og Splendid, allar úr Keflavík eða Reykja- nesbæ. Úr Reykjavík koma Kristiníus, Siðfágun, Tempest, StarBitch, Panorama og Port. Dúnmjúk- ar kanínur er eina hljómsveitin sem skráð er til leiks frá unghljómsveitabænum Hafnarfirði, Konukvöl er úr Sandgerði og D-7 úr Vestmanna- eyjum. Tvær hljómsveitir, Fleður og Sódóma, eru óstaðsettar í sveitarfélög. sumar Hljómsveitin Soma: Það blundar fremur lítil Rabarbara-Rúna í henni. Hljómsveitin Soma lætur það ekki aftra sér að gefa út plötuna Föl þótt hásum- ar sé. Það er heldur ekkert hráslaga- legt við lögin þrettán á plötunni, rokkað hressilega í sumum, farið ögn rólegar í öðrum en hvergi sleg- ið af. „Við sigruðum í hljómsveita- keppni FÍH, Fjörunganum, í apríl í fyrra og þá má segja að hljómsveit- in hafi byrjað upp á nýtt,“ segir Halldór Sölvi Hrafnsson, ryþmagít- arleikari Soma. „Annars byrjaði þetta allt saman á Kleppi,“ bætir hann við og hlær. „Við vinnum þar báðir gitarleikarar hljómsveitarinn- ar og stofnuðum á sínum tíma hljómsveitina Glimmer. Málin hafa síðan þróast eðlilega og nú erum við sem sagt komnir með plötu sem við leggjum höfuðáhersluna á aö kynna núna í sumar. Gítarleikarinn sem Halldór Sölvi nefndi er Snorri Gunnarsson. Aðrir liðsmenn hljómsveitarinnar eru Þorlákur Lúðvíksson hljómborðs- leikari, Jónas Vilhelmsson sem leik- ur á trommur, Kristinn Jón Amar- son bassaleikari, og Guðmundur Annas Ámason söngvari. „Guðmundur kom ekki í hljóm- sveitina fyrr en þremur vikum áður en við tókum þátt í hljómsveita- keppninni," segir Halldór. „Það kom þó ekki í veg fyrir að við sigruðum. Heldur ekki að helming- ur hljómsveitarinnar mætti allt of seint og fyrir vikið urðum við að fara á sviðið án þess að hafa fengið hljóðprufu fyrst. Eftir þetta urðu síðan bassaleikaraskipti hjá okkur." Hratt unnið Fyrir sigurinn fengu liðsmenn Soma sextíu upptökutíma í stúdíó Gný. Þeir nýttu þá til að vinna prufuupptökur. Áttu enda nóg af frumsömdu efni. Áður en að þvi kom hins vegar að hljóðrita plötuna ákváðu sexmenningamir að leggja öllu gamla efninu og semja nýtt. Nýju lögin vom síðan hljóðrituð í Grjótnámunni og Stúdió Stefi. Hall- dór segir að upptökumar hafi verið unnar á nokkuð löngum tíma en stúdíótímarnir hafi þegar upp var staðið samt ekki verið nema 120-130. „Og þá er öll vinnslan með talin þannig að við höfum í raun og vem verið fljótir þótt við dreifðum upptökutimanum á nokkuð langt tímabil.“ Platan Föl kom síðan út fimmta júní. Soma hélt útgáfutónleika þá imi kvöldið í Þjóðleikhúskjallaran- um og fékk þrjú hundmð gesti. Harla gott þegar haft er í huga að boðið var upp á lifandi tónlist víða um höfuðborgina þetta sama kvöld. „Við höfum reyndar aðallega spil- að í Rosenbergkjallaranum, komum þar alloft fram síðastliðinn vetur og spiluðum þá aðallega tónlist eftir aðra,“ segir Halldór. „Núna leggjum við hins vegar höfuðáhersluna á að spila lög af plötunni. Við komum fram i miðborg Reykjavíkur á þjóð- hátíðardaginn og höfum síðan verið hér og þar. Annað kvöld verðum við í Njálsbúð með Botnleðju, Kolrössu, Maus, Soðinni fiðlu og fleiri hljóm- sveitum og að viku liðinni spilum við í Miðgarði á undan Sálinni hans Jóns míns.“ Milliþungt rokk Halldór Sölvi bætir því við að hljómsveitin Soma sé fyrst og fremst rokkhljómsveit sem ekki bjóði upp á hefðbundið prógramm fyrir sveitadansleiki. „Við höfum reyndar æft þrjátíu til fiörutíu lög eftir aðra sem við flíkum ekkert mikið um þessar mundir," segir hann. „Það er hins vegar frekar lít- il Rabarbara-Rúna í okkur þannig að við hentum ekki fyrir sfiórn- lausa stuðdansleiki. Reyndar er tón- listin hjá okkur stöðugt að þróast. Við settum stefhima á milliþungt rokk þegar við byrjuðum að taka upp plötuna og ég held að segja megi að sú stefna sé ráðandi hjá okkur núna. Þó að við bjóðum ekki upp á böll með helstu stuðlögum síðustu áratuga gengur okkur ágæt- lega að finna verkefni sem við fáum borgað fyrir þannig að ég held að ég megi segja að okkur gangi bara ágætlega að koma tónlistinni okkar á framfæri." -ÁT

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.