Dagblaðið Vísir - DV - 11.07.1997, Side 11
FÖSTUDAGUR 11. JÚLÍ 1997
fer á kreik
Sumarið er gengið í garð
hjá Sálinni hans Jóns míns,
einni langlífustu hljómsveit
þjóðarinnar. Tvennir tón-
leikar eru að baki á sumar-
vertíðinni, rúmlega tugur
eftir. Hljómsveitin ætlar að
vera að fram í miðjan ágúst.
Þá leggst hún í dvala að
nýju.
„Okkur hefur gengið
ágætlega hingað til,“ sagði
Guðmundur Jónsson, gitar-
leikari og lagahöfundur,
þegar slegið var á þráðinn
til hans í sólina og steikar-
hitann í Lundúnum fyrr í
vikunni. „Við spiluðum
ásamt fleiri á afmælishátíð
á Selfossi fyrir háifum mán-
uði og vorum í Ýdölum á
laugardaginn. Það komu
um þúsund manns sem
verður að teljast ágætt á
þessum síðustu og verstu
tímum.“
Sálin ætlar að efna til
tónleika í Inghóli á Selfossi
annað kvöld. í næstu viku
hefst vertíðin síðan fyrir al-
vöru og þá verður leikið
hvert fóstudags- og laugar-
dagskvöld þar til staðar
verður numið að nýju.
„Staðan hjá okkur er hálf-
skrýtin enn. Ég er enn þá í
London en flyt heim í sex
vikur núna í vikulokin,"
segir Guðmundur. „Atli
(Örvarsson) er enn ekki
mættur til leiks. Hann er á
Kýpur að spila með skóla-
bræðrum sínum frá Banda-
ríkjunum en hann verður
með frá og með næstu
viku.“
Þrjú ný lög
Sálin hans Jóns míns
sendir ekki frá sér plötu í
sumar. Hún á hins vegar
þrjú lög á safndiskinum
Bandalög 7 sem Spor ætlar
að gefa út innan tveggja
vikna. Eitt lagið, Englar
er þegar orðið vel
þekkt eftir að
hafa hljóm-
að oft
„Upphaflega áttu lögin
aðeins að vera tvö. Atli
flaug heim til að taka þau
upp með okkur. Þá var
trommuleikarinn okkar,
Tómas Jóhannesson, hins
vegar ekki til staðar
þannig að við þ
um að fá
ið snúið þegar liðsmenn
hljómsveitarinnar eru
dreifðir út og suður,“ segir
Guðmundur.
Hann bætir því við að
ekki standi til að hljóðrita
meira af nýjum lögum á
þessu ári. „Raunar er
allt óráðið eftir miðjan
ágúst. Kannski höld-
um við nokkra tón-
leika um jólin.“
Jónsson
lofar því hins
vegar að meira
verði um að vera hjá
Sálinni hans Jóns míns á
næsta ári.
„Hljómsveitin á tíu ára
starfsafmæli 1998 og það
stendur til að halda al-
mennilega upp á það,“ segir
hann. „Það hefur komið til
tals að gefa út safnplötu
með úrvali af því sem við
höfum sent frá okkur og
jafnvel eitthvað meira.
Sálin
hans
Jóns
míns: Tíu
ára starfsaf-
mæli á
ári.
á dag í músíkút-
varpsstöðvunum
að undanfórnu.
Nýju lögin eru öll eft-
ir Guðmund. Stefán
Hilmarsson söngvari
samdi texta við tvö og
Friðrik Sturluson bassaleik-
ari á einn.
lánstrommara
og trommuheila.
Svo hættist þriðja lagið
við. Þá komst Atli ekki svo
að Jens Hansson tók að sér
hljómborðsleikinn. Sam-
starfíð getur því verið dálít-
Afmælis-
ár'98
Guð-
mund-
ur
Það er annars útbreiddur
misskilningur að Sálin sé
sífellt að hætta og byrja aft-
ur,“ bætir hann við. „í okk-
ar huga höfum við aldrei
hætt. Við erum alltaf í þess-
ari hljómsveit en tökum
okkur bara góð hlé milli
vinnutarna. Fyrstu flmm
árin spiluðum við um nán-
ast hverja einustu helgi og
það var einfaldlega of mik-
ið. Fyrir fjórum árum var
samstarfið alveg að springa.
Þá ákváðum við að gera
eins og hljómsveitin Grafik
gerði á sinum tíma; spila
sjaldnar en vera virkilega
að þann tíma sem spilatím-
inn stendur yfir. Núna hef-
ur vinskapurinn meira
vægi en áður innan hljóm-
sveitarinnar og samstarfið
gengur með ágætum.
Tryggir aðdáendur
Við værum raunar löngu
hættir ef ekki kæmi fólk til
að hlusta á okkur,“ segir
Guðmundur Jónsson að lok-
um. „Ef við höfum það í
huga að eitt dægurlag lifir
aðeins nokkrar vikur eru
það forréttindi að fá þúsund
manns til að koma og hlusta
og skemmta sér með okkur
eins og í Ýdölum um sið-
ustu helgi. Fyrir slíka
tryggð við okkur erum við
að sjálfsögðu þakklátir."
-ÁT
U2 spila
heima
U2 hafa loksins staðfest að
þeir muni halda tónleika í
heimaborg sinni, Dublin, 30.
ágúst næstkomandi. Það var
vafaatriði hvort hljómsveitin
fengi að spila vegna strangra
reglna sem gilda í borginni um
tónleikahald. Samningar hafa
sem sagt tekist og U2 eru á leið-
inni heim.
Dublínarbúar eru mjög
spenntir að fá „strákana sína“
heim aftur og eiga miðamir á
tónleikana vafalítið eftir að selj-
ast upp á skotstundu.
Nóg að gera
Shaun Ryder er ekki uppi-
skroppa með verkefhi þessa dag-
ana. Hann er að vinna með hljóm-
sveitinni Black Grape að nýrri
plötu sem er væntanleg um miðj-
an október og einnig er hann að
undirbúa sig fyrir hlutverk sitt í
kvikmyndinni The Avengers.
Með honum í myndinni leika
engu ómerkilegri leikarar en
Sean Connery, Uma Thurman,
Patrick McNee og Eddie Izzard.
18.-19. júlí hitar Black Grape upp
fyrir U2-tónleika í Rotterdam.
Um lie
Sálin í Inghóli
Síðastliðinn laugardag hóf Sálin
hans Jóns míns sumartúrinn eftir
alllangt hlé.
Um helgina ætla þeir Sálar-
menn að gera allt brjálað á Sel-
fossi en þeir spila fyrir gesti og
gangandi á stóra sviðinu í Inghóli.
Fyrir áhugasama Sálarmenn og -
konur er rétt að benda á heima-
síðu Sálarinnar. Þar er hægt að
fylgjast með ferðum sveitarinnar í
allt sumar, fá tóndæmi af nýjum
lögum og fræðast um hvaðeina
sem lýtur að Sálinni.
Slóðin er:www.mmedia.is/salin
Sniglabandið
Sniglabandið hefur um árabil
skemmt landsmönnum, ungum
sem öldnum, og þessa helgina
verður ekkert lát á því.
í kvöld spilar hljómsveitin á
skemmtistaðnum Dubliner í
Reykjavík og annað kvöld verður
hún í Úthlíð í Biskupstungum.
Sniglabandið er nú að leggja loka-
hönd á geisladisk sem ber nafnið
Ágúst kemur klukkan tvö, og er
hann væntanlegur í september..
Paparnir
Um helgina verður þjóðhátíð
þjófstartað er hinir hressu írskættuðu
Hljómsveitin Sniglabandið heldur í kvöld uppi fjörinu á Dubliner.
Papar úr Eyjum spila á Gauki á
Stöng.
Greifarnir
Hunang
Annað kvöld mun hljómsveitin
Hunang brenna norður á Sauðár-
krók og slá upp hörkudansleik á
Kaffi Króki. Þeir félagar eru ekki
þekktir fyrir annað en taumlausa
gleði svo Skagfirðingar sem og
aðrir landsmenn ættu ekki að
þurfa að láta sér leiðast á Krókn-
um.
Um helgina halda Greifarnir
stórdansleik í Hnifsdal. Félags-
heimilið á ísafirði var of lítið en
ætli samkomuhúsið í Hnífsdal
verði nógu stórt? Dansleikur sem
enginn má missa af.
Hótel Saga
Um helgina leikur Hilmar
Sverrisson fyrir gesti Mímisbars-
ins. Hann er gestum sínum löngu
kunnur fyrir góðan leik.
Rokkstokk
Um helgina verður hljómsveita-
keppnin Rokkstokk haldin í
Reykjanesbæ. Keppnin fer fram á
nokkrum stöðum í bænum og
verður bæði haldin í dag og á
morgun. Aðalkeppnin fer fram á
morgun í Félagsbíói.
Kringlukráin
Á Kringlukránni verður ýmis-
legt um að vera.
í kvöld leikur sveitin Léttir
sprettir fyrir dansi. Eins og nafnið
gefur til kynna flytur hún létta og
skemmtilega tónlist og verða lög
eftir Bítlana í fararbroddi. Annað
kvöld mun hljómsveitin halda
uppi krárstemningu á Kringlu-
kránni.
Geirmundur íTjaldi
galdramannsins
Geirmundur klikkar aldrei og í
kvöld spilar kappinn ásamt hljóm-
sveit sinni í Tjaldi galdramanns-
ins að Lónkoti í Skagafirði. Hefst
sveiflan klukkan 23 og kostar 1000
krónur inn.
Bylting
Hljómsveitin Bylting frá
Akureyri spilar bæði í kvöld og
annað kvöld á Café Amsterdam
Sóldögg á Austurlandi
Hljómsveitin Sóldögg heldur
austur um helgina. í kvöld spilar
hún í Valaskjálf Egilsstöðum og
annað kvöld í Miklagarði
Vopnafirði.
Gömlu brýnin á Gullöld
Um helgina leika gömlu brýnin
Svenni og Halli fyrir dansi á
Gullöldinni, kránni í hjarta
Grafarvogs.
Últra
Hljómsveitin Últra spilar í
Katalínu í Kópavogi, bæði í kvöld
og annað kvöld. Hljómsveitin lofar
miklu fjöri og góðri tónlist.
Sveitaball
Annað kvöld verður geggjað
sveitaball í Njálsbúð en þar munu
hljómsveitirnar Botnleðja,
Kolrassa krókríðandi, Maus,
Soðin fiðla, Spírandi baunir og
Sóma leika fyrir dansi. Forsala er
í Spútnik og Hljómalind. Miðaverð
er 1500 krónur og er 16 ára
aldurstakmark. Sætaferðir á
tónleikana verða frá BSÍ. -me
mmmmmmmmmmm