Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.1997, Page 4
24
25
4-
MÁNUDAGUR 28. JÚLÍ 1997
MANUDAGUR 28. JULI 1997
Iþróttir
Iþróttir
Þórður Emil Ólafsson, Islandsmeistari karla í golfi:
„ Með gæsahúð
þegar ég kom
inn á 18. flöt"
- geri mér grein fyrir þessu eftir nokkra daga
Skagamaðurinn Þórður Emil
Ólafsson kom, sá og sigraði á lands-
mótinu í golfi á Grafarholtsvelli um
helgina. Þórður Emil hafði tveggja
högga forystu á Friðbjörn Oddsson,
GK, og þrjú högg á Kristin G.
Bjarnason, GR, fyrir siðasta hring-
inn. Þórður Emil lék síðasta hring-
inn á laugardag af miklu öryggi og
hafði forystu allan timann. Frið-
björn veitti honum harða
keppni en varð að játa sig sigr-
aðan á lokasprettinum.
„Þetta er alveg meiri háttar.
Ég var með gæsahúð þegar ég
kom inn á 18. flötina og ætli ég
geri mér nokkuð almennilega
grein fyrir því að ég hafi sigrað
fyrr en eftir nokkra daga,“ sagði
Þórður Emil eftir að sigurinn
var í höfn.
Þóröur mjög öruggur á
lokahringnum
Þórður lék lokahringinn á 72
höggum, einu minna en Frið-
björn og tveimur minna en
Kristinn. Þórður var mjög ör-
uggur í öllum sínum aðgerðum
á meðan Friðbjöm var ýmist að
leika frábærlega eða í vandræð-
um. Kristinn lék einnig ágæt-
lega en púttin gerðu honum lífið
leitt.
Afdrifarík mistök
Eftir 15. braut hafði Friðbjörn
minnkað forskot Þórðar í eitt
högg og allt útlit var fyrir
æsispennandi lokabaráttu. Úr-
slitin réðust á 16. og 17. holu.
Þórður stóðst pressuna, en Frið-
bjöm gerði afdrifarík mistök og
því hafði Þórður þriggja högga
forystu fyrir síðustu holuna og
úrslitin voru ráðin.
Púttin gengu vel og settu
punktinn yfir i-iö
„Ég verð að viðurkenna að ég var
stressaður á fyrstu holunum en eft-
ir að ég fékk skolla á 3. holunni ró-
aðist ég og fór að einbeita mér. Frið-
bjöm sótti hart að mér en ég stóðst
pressuna og hélt út. Ég er mjög sátt-
ur við hvemig ég var að slá og ég er
Kristinn G. Bjarnason var í baráttunni allan
ann og varö í þriöja sæti.
sérstaklega ánægður með hvað pútt-
in gengu vel. Ég var farinn að halda
að ég gæti ekki púttað. Það setti
punktinn yfir i-ið í þessu móti,“
sagði Þórður.
Þórður var ánægður með allar að-
stæður í Grafarholti eins og aðrir
kylfingar og ekki spillti veðurblíðan
á laugardag fyrir. Áhorfendur vom
íjölmargir og fylgdu þeir kylfingun-
um eftir og fylgdust með hverri
hreyfingu þeirra af miklum
áhuga. Á síðustu holunum fylgd-
ust allra augu með þeim Þóröi,
Friðbimi og Kristni og stemn-
ingin i kvöldsólinni á 18. flötinni
á laugardagskvöldið var ósvikin.
„Ég hef stundað keppnisgolf
lengi og kannast því viö barátt-
una á toppnum. Það var frábært
að hafa alla þessa áhorfendur og
veðrið var frábært. Völlurinn er
orðinn alveg meiri háttar og hef-
ur aldrei verið betri. Eftir þær
breytingar sem gerðar hafa verið
er hann mjög krefjandi og
skemmtilegur.“
Bikarinn áfram á Akranesi
Með sigrinum tókst Þórði að
halda bikarnum á Akranesi en
félagi hans, Birgir Leifur Haf-
þórsson, sigraði á mótinu í fyrra.
Birgir var ekki með að þessu
sinni þar sem hann hefur gerst
atvinnumaður. En hvað er fram
undan hjá Þórði?
„Ég mun sem íslandsmeistari
taka þátt í Evrópumóti einstakl-
inga í Genf i ágúst og síðan eru
2-3 stigamót eftir í íslensku
mótaröðinni, sveitakeppnin og
Norðurlandamót í september,"
sagði íslandsmeistarinn frá
tím- Akranesi, Þórður Emil Ólafsson.
-BL
Þóröur Emil Ólafsson tekur við heillaóskum eftir aö hann haföi tryggt sér íslandsmeistaratitiiinn á iaugardagskvöldið.
Ragnar Ólafsson, landsliöseinvaldur í golfi:
„Þetta var frábært landsmót"
- spáöi Þórði eöa Kristni sigri - Friðbjörn kom á óvart
„Þetta var frábært landsmót og
frammistaða manna var með ágæt-
um. Völlurinn er mun erfiðari eftir
breytingamar, brautirnar eru
þrengri og meira krefjandi, en
menn vora að spila mjög jafnt golf,“
sagði Ragnar Ólafsson landsliðsein-
valdur í landsmótslok.
„Ég var búinn að spá Þórði eða
Kristni en Friðbjöm kom á óvart
og stóðst pressuna. Það verður
gaman að fylgjast með framhaldinu
hjá honum og einnig Birgi Haralds-
syni sem einnig var að leika vel.
Það era enn tvö stigamót eftir og ef
þeir halda áfr£un á sömu braut
verða þungavigtarmenn að víkja,"
sagði Ragnar, aðspurður um val á
landsliöinu.
„Það var gaman og spennandi að
fylgjast með konunum þar sem bar-
áttan var hörö og ljóst að nýr meist-
ari yrði krýndur. Þær spiluðu allar
vel, jafnt golf, en breiddina vantar.“
Ragnar tók þátt í mótinu og hafn-
aði í 21. sæti. „Ég sprakk á síðasta
hringnum og lék á 85 höggum eftir
ágæta þrjá hringi þar á undan. Það
þarf að æfa til að vera góður, það er
alveg ljóst.“
-BL
Meistaraflokkur karia
Þóröur E. Ólafsson, GL (80, 68, 71, 72). 291
Friöbjöm Oddsson, GK (78, 71, 72, 73) .... 294
Kristinn G. Bjamason, GR (74, 72, 76, 74) . . 296
Helgi B. Þórisson, GS (75, 73, 77, 73) . 298
Birgir Haraldsson, GA (78, 71, 75, 76) . 300
Helgi Dan Steinsson, GR (82, 70, 74, 74) ... . 300
Björgvin Sigurbergsson, GK (76, 74, 74, 77) . 301
Sigurpáll Sveinsson, GA (80, 76, 69, 78) .... 303
Tryggvi Pétursson, GR (78, 76, 77, 73) . 304
Þorkell S. Siguröarson, GR (80, 74, 74, 76) . . 304
Björgvin Þorsteinsson, GA (76, 76, 75, 77) .. 304
Öm Ævar Hjartarson, GS (77, 73, 75, 79) ... 304
Guðm. R. Hallgrímsson, GS (84, 75, 70, 79) . . 308
ívar Hauksson, GKG (77, 83, 75, 75)... 310
Ingi Rúnar Gíslason, GL (81, 73, 77, 79) .... 310
Þorsteinn Hallgrímsson, GR (77, 83, 73, 77) . 310
Tryggvi Traustason, GK (77, 82, 74, 77) .... 310
Ólafur Már Sigurðsson, GK (84, 77, 76, 74 . . 311
Jens Sigurðsson, GR (82, 76, 77, 77)... 312
Ragnar Ólafsson, GR (77, 75, 75, 85)... 312
Öm Sölvi Halldórsson, GR (81, 77, 77, 78 . . . 313
Sigurður H. Hafsteinsson, GR (81, 75, 77, 82) 315
Einar Long Þórisson, GR (84, 76, 82, 73) ... 315
Gunnlaugur Sævarsson, GG (81, 81, 74, 79) . 315
Vilhjálmur Ingibergsson, NK (86, 79, 77, 74) 315
Sverrir Þorvaldsson, GA (86, 75, 76, 79) .... 316
Hörður Már Gylfason, GK (81, 82, 79, 74) . . . 316
Viggó H. Viggósson, GR (80, 77, 78, 84) .... 319
Gunnsteinn Jónsson, GK (81, 78, 78, 82) ... . 319
Hjalti Atlason, GR (85, 79, 78, 78)..... 320
Hannes Eyvindsson, GR (85, 83, 75, 78) .... 321
Helgi Anton Eiríksson, GR (93, 74, 77, 78) . . 322
Davíö Jónsson, GS (83, 81, 82, 78) .... 324
Eiríkur Guömundsson, GR (83, 79, 87, 76) . . 325
Ingólfur Pálsson, NK (88, 79, 82, 79).. 328
Skúli Ágústsson, GA (87, 83, 84, 79)... 333
Keppendur vom 40.
1. flokkur karia
Ólafur Auöunn Gylfason, GR (76, 73, 73, 75) .297
Ólafur H. Jóhannessón, GSE (75, 73, 78, 75) .301
Ottó Sigurösson, GKG (79, 76, 74, 73) ...302
Jónas Kristjánsson, GR (77, 74, 75, 77) .303
Pétur Óskar Sigurðsson, GR (75, 76, 76, 77) . .304
Kristinn Árnason, GR (79, 74, 78, 74) ...305
Guðmundur Sigurjónsson, GS (78, 75, 73, 79) 305
Ólafur Þór Ágústsson, GK (76, 74, 74, 81) . . .305
Tomas P.B. Salmon, GR (79, 76, 75, 78)...308
Höröur Sigurösson, GR, (76, 73, 80, 80)..309
Pétur Þór Grétarsson, GR (78, 78, 76,11)... .309
Halldór H. Halldórsson, GSS (78, 71, 81, 79) .309
Finnur Oddsson, GR (78, 77, 79, 76)......310
Rúnar S. Gíslason, GR (80, 77, 82, 72)...311
Guðmundur Vigfússon, GR (76, 81, 75, 80 .. .312
Auðunn Einarsson, GÍ (75, 76, 81, 81)....313
Jens K. Guðmundsson, GR (83, 74, 79, 77) . . .313
Gunnar Þór Halldórsson, GK (81, 75, 78, 80 . .314
Kristvin Bjamason, GL (82, 80, 78, 75) ..315
Þorsteinn Geirharðsson, GS (83, 79, 76, 77) . .315
Keppendur voru 104.
Meistaraflokkur kvenna
Ólöf María Jónsdóttir, GK (76, 76, 79, 76) . . . 307
Ragnhildur Sigurðard., GR (83, 79, 76, 74) .. 312
Herborg Amarsdóttir, GR (81, 78, 75, 79) . . . 313
Þórdís Geirsdóttir, GK (81, 80, 79, 82) . 322
Keppendur voru 4.
1. flokkur kvenna
Magdalena Þórisdóttir, GS (84, 82, 83, 85) . . 334
Sigríður Mathiesen, GR (86, 79, 89, 83). 337
Lilja Karlsdóttir, GK (80, 86, 90, 85).. 341
Ama Magnúsdóttir, GL (97, 86, 85, 86)... 354
Kristín Pétursdóttir, GK (86, 84, 93, 91) .... 354
Jóna B. Pálmadóttir, GH (83, 96, 101, 90) . . . 370
Keppendur vora 6.
Friöbjörn Oddsson kom á óvart meö þvf aö hafna í ööru sæti.
Friöbjörn Oddsson:
„Sáttur en
svekktur"
„Ég er sáttur við árangur minn þrátt fyrir að ég hafi
orðið í öðru sæti. En ég verð að viðurkenna að ég er líka
dálítið svekktur að hafa ekki sigrað fyrst ég komst svona
nálægt því,“ sagði Friðbjörn Oddsson, GK, sem hafnaði í
ööra sæti í meistaraflokki karla.
„Ég vann mig sjálfur í lokin með því aö missa pútt á
16. holu og klikka á innáhögginu á 17. holu. Eftir það var
þetta búið. Þórður lék mjög vel og ég held ég verði að
segja að hann hafi verið óviðráðanlegur í dag. Ég mætti
stressaður á teig í upphafi, eftir það vora taugarnar finar
og pressan jöfn. Nú er bara að einbeita sér að sveita-
keppninni í Eyjum um aðra helgi en þar ætlum við Keil-
ismenn að endurheimta titilinn sem við töpuðum í
fyrra,“ sagði Friðbjörn Oddsson. -BL
Ólöf María Jónsdóttir nýr íslandsmeistari kvenna:
„Meiri hattar
tilfinning"
- bíð spennt eftir fleiri keppendum í meistaraflokk kvenna
Ný íslandsmeistari var einnig
krýndur í meistaraflokki kvenna þar
sem Karen Sævarsdóttir hefur snúið
sér að atvinnumennsku. Ólöf María
Jónsdóttir úr Keili hafði þriggja högga
forystu fyrir síðasta hringinn og henni
urðu ekki á nein mistök á laugardag-
inn og lék í keppninni sem öruggur
sigurvegari með 5 högg í forskot á
næsta keppanda.
„Það var alveg meiri háttar til-
finning að verða íslandsmeistari, ég er
eiginlega enn að átta mig á þessu. Sig-
urinn kom mér ekkert á óvart, ég var
ákveðin í því að leika til sigurs. Ég
vissi að ef ég spilaði vel myndi ég hafa
þetta,“ sagði Ólöf María Jónsdóttir.
Herborg missti flugiö á
lokasprettinum
Herborg Arnarsdóttir, GR, veitti
Ólöfú harða keppni lengst af en missti
flugið undir lokin og varð að sætta sig
við þriðja sætið á eftir Ragnhildi Sig-
urðardóttur, GR. Þórdís Geirsdóttir,
GK, varð í fjórða sæti.
„Ég var með 6 högg í forskot eftir
fyrstu 11 holurnar (á síðasta hringn-
um) en missti síðan niður þrjú högg og
varð dálítið stressuð. En eftir 15. holu
var ég búin að vinna það upp aftur og
orðin öragg aftur. Ég er ánægö með
skorið hjá mér, púttin vora góð, en
mér gekk illa að hitta flatirnar."
Vantar meiri breidd
Ólöf var að vonum ánægð með sig-
urinn en fannst breiddin vera lítið í
meistaraflokknum. „Hinar stelpumar
voru að spila mjög vel en það vantar
meiri breidd í meistaraflokkinn. Það
er hundleiðinlegt að vera alltaf að
leika gegn þeim sömu,“ sagði Ólöf en
aðeins fjórar stúlkur tóku þátt i meist-
araflokkskeppni kvenna að þessu
sinni.
„Ég vona að þetta eigi eftir að breyt-
ast. Það eru að koma upp ungar stelp-
ur og eftir 2-3 ár vera vonandi komn-
ar 12 stelpur í meistaraflokkinn. Ég
bíð spennt eftir því,“ sagði Ólöf.
-BL
2. flokkur karia
Garðar Vilhjáhnsson, GS (79, 85, 79, 80)... . 323
Kjartan Kristjánsson, GKG (79, 86, 76, 85) . . 326
ívar Harðarson, GR (82, 83, 80, 81)... 326
Ámundi Sigmundsson, GR (79, 84, 86, 80) .. 329
Stefán S. Guöjónsson, GV (78, 86, 82, 86) ... 332
Stefán B. Gunnarsson, GR (77, 79, 85, 92) ... 333
Gauti Grétarsson, NK (81, 86, 87, 79). 333
Jón Bjömsson, GHH (81, 92, 80, 84).... 337
Hermann Þorvaldsson, GR (87, 85, 86, 81) . . 339
Ragnar K. Gunnarsson, GR (77, 88, 82, 95) . . 342
Keppendur vora 75.
2. flokkur kvenna
Margrét Þ. Jónsdóttir, GK (89, 89, 88, 94) . . . 360
Aðalheiður Jörgensen, GR (91, 87, 95, 88) . . 361
Stefanía M. Jónsdóttir, GR (88, 91, 89, 98) . . 366
Auður Jóhannsdóttir, GK (98, 84, 99, 89) ... 370
Oddfríöur Reynisdóttir, GR (100, 93, 90, 102) 385
Regína Sveinsdóttir, GR (97, 97, 99, 94) .... 387
Unnur Sæmundsd., GKG (101, 98, 98, 94) ... 391
Hólmfríður Kristinsd., GR (103, 89, 103, 96) . 391
Þóra Eggertsdóttir, GKG (104, 100, 94, 95) . . 393
Sigrún Gunnarsdóttir, GR (105, 93, 103, 92) . 393
Keppendur vora 28.
3. flokkur karia
Ellert Þ. Magnason, GR (88, 99, 83, 86). 356
Ingibergur Jóhannsson, GR (92, 89, 87, 90) . . 358
Pétur L. Sigurðsson, GR (89, 97, 84, 90) .... 360
Jóhann Friðbjömsson, GOB (90, 97, 89, 84) . 360
Guðmundur R. Bragason, GR (86, 98, 90, 91) 365
Reynir Jónsson, GR (90, 99, 83, 94) .... 366
Terry D. Mahaney, GR (91, 97, 87, 92) .. 367
Þorsteinn Gestsson, GKG (87, 103, 83, 95) . . . 368
Bjöm Fróöason, GR (96, 99, 88, 86) ..... 369
Steinar Ágústsson, GR (91, 95, 96, 88) . 370
Keppendur vora 71.
Birgir Leifur Hafþórsson, Islandsmeistarinn frá 1996:
„Ákváðum þetta fyrir fram“
„Það var gaman að fylgjast með mót-
inu og auðvitað langaði mig að vera
með. Ég varð að bíta í það súra epli að
fylgjast bara meö en það er annað sem
bíður mín,“ sagði Birgir Leifur Hafþórs-
son, íslandsmeistarinn frá því í fyrra,
sem nú hefúr gerst atvinnumaður.
Birgir heldur af landi brott í dag
(mánudag) en hann mun æfa í Svíþjóð
og keppa í skandinavísku mótaröðinni.
Þar mun hann keppa nánast um hverja
helgi fram í október.
„Ég er mjög ánægður með aö titillinn
skuli áfram verða á Akranesi. Við Þórð-
mönnum sínum eftir að sigur hennar í meistaraflokki
kvenna var í höfn.
Texti: Björn Leósson
Myndir: Hilmar Þór
Ragnhildur Siguröardóttir, tii vinstri, óskar Ólöfu Maríu
til hamingju meö sigurinn.
ur voram búnir að ákveða þetta fyrir
fram, þetta var alveg öruggt allan tím-
ann. Hann var að slá mjög vel allt mót-
ið, ef frá eru dregnar fyrstu 9-10 holurn-
ar. Það var gott að slæmu holumar
komu þá en ekki á úrslitastundu," sagði
Birgir Leifur. -BL
t