Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.1997, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.1997, Blaðsíða 3
MÁNUDAGUR 28. JÚLÍ 1997 23 PV____________________________________________________________________________________________íþróttir Paö var að vonum þung brúnin á Guð- jóni Þórðarsyni og félögum hans á ís- lenska varamannabekknum í gær. Unga kynsióöin á Höfn var hins vegar vel með á nótunum og studdi íslenska liðið með ráðum og dáð. DV-myndir Jóna Vináttulandsleikur á Hornafirði í gær: Liðiö þarf að gera betur en þetta - sigur hafðist á elleftu stundu gegn Færeyingum Fjölþjóðlegt liö sá um dómgæslu Það var svo sannarlega fjöl- þjóðlegt lið sem annaðist dóm- gæsluna á Höfn í gær. Dómari var Milan Mitrovic frá Slóveníu og aðstoðardómarar þeir Slawi- mir Stempniewski frá Póllandi og Levan Mikeladze frá Georgíu. Varadómari var Miroslav Rado- man frá Júgóslavíu og eftirlits- maður var Paolo Casarin frá ítal- íu. Þeir eru allir við störf í Evr- ópukeppninni hér á landi og fengu þama skemmtilegt auka- verkefni. Fóru frekar á Vatnajökul Flestir fulltrúar UEFA, sem eru á landinu vegna Evrópu- keppninnar, fóru til Hornafjarð- ar í gær en KSÍ tók Fokker á leigu til að flytja þá austur. Vegna seinkunar á flugi ákváðu hinir erlendu gestir að sleppa því að horfa á leikinn og fóru frekar í skoðunarferð upp á Vatnajökul. Rúnar með met Rúnar Kristinsson setti nýtt landsleikjamet í gær. Hann lék 101. landsleik sinn fyrir íslands hönd, samanlagt f öÚum aldurs- flokkum, og bætti met Ólafs Þórðarsonar sem á 100 leiki að baki. Þetta var 62. A-landsleikur Rúnars. Nlu fjarverandi hjá Færeyingum Færeyingar gátu ekki teflt fram sínu sterkasta liði í gær. Lið Gí og KÍ eru að spila í Evr- ópukeppni þessa dagana og leyfðu ekki mönnum sínum að fara til íslands. Þá hófst danska úrvalsdeildin í gær og þar spila þrír færeyskir landsliðsmenn sem ekki fengu leyfi. Alls vant- aði níu leikmenn af þessum sök- um en þeir sem fylltu skörðin voru greinilega staðráðinir í að nota tækifærið vel. Góð heimavinna Sindramenn á Homafirði stóðu mjög vel að undirbúningi og framkvæmd landsleiksins. Alls vora um 60 starfsmenn á þeirra vegum í tengslum við leikinn. Ágæt aðsókn Um 700 manns sáu leikinn og vora heimamenn mjög ánægðir með þá aðsókn. Mikill fjöldi bæj- arbúa er í sumarfríi en flestir frestuðu því fram yfir 100 ára af- mælishátíð bæjarins sem var um daginn. Góð aðstaða íslensku landsliðsmennimir vora mjög ánægðir með allar að- stæður eystra en þeir komu þangað snemma á laugardag. Þeir dvöldu á Edduhótelinu í Nesjum og æfðu þar á góðum grasvelli. Tveir ráðherrar Tveir ráðherrar vora á meðal áhorfenda á Höfn í gær, Halldór Ásgrímsson, sem er frá Höfn, og Finnur Ingólfsson. Þá var Egill Jðnsson alþingismaður líka mættur, enda á heimavelli. Heilsuðu leikmönnum Fyrir leikinn heilsuðu þeir Sturlaugur Þorsteinsson, bæjar- stjóri á Höfn, Eggert Magnússon, formaður KSÍ, og Ámi Stefáns- son, stuðningsmaður Sindra númer eitt, upp á leikmenn lið- anna. -JKS/VS DV, Hornafirði: íslendingar og Færeyingar áttust við í vináttulandsleik á Höfn í Homafirði í gær og hafði íslenska liðið sigur á elleftu stirndu. Venju- legur leiktími var úti. Viðbót sem dómarinn bætti við vegna tafa og meiðsla kom að góðum notum fyrir íslenska liðið en þá var eina mark leiksins skorað. Ekki var leikur ís- lenska liðsins til að hrópa húrra fyr- ir því lengstum lék það ekki vel en sigur hafðist og það var fyrir öllu þegar á botninn er hvolft. Það vora margir sem biðu með vissri spennu eftir þessum leik. Þama mættust lið sem era á svip- uðu styrkleikastigi en Færeyingar kviðu leiknum nokkuð því í þeirra lið vantaði ekki færri en níu leik- menn sem leikið hafa í und- ankeppni heimsmeistaramótsins. Ótti Færeyinga reyndist ástæðulaus því þeir stóðu uppi í hárinu á ís- lenska liðinu og vel það. Færeysku leikmennirnir, sem allajafnan fá ekki tækifæri með landsliðinu, vora „Ég var ekki ánægöur með leik- inn og það vantar töluvert upp á. Það er alveg ljóst að Færeyingar léku mjög skipulagðan leik og þeir era líkamlega sterkir. Þeir mættu tO leiks með það að markmiði að tapa ekki leiknum. Menn verða að skapa til að sigra svona lið en þeg- ar menn leika á alþjóðlegum vett- vangi verða þeir að gefa af sér. Sköpunargáfuna vantaði hjá ís- lenska liðinu og þegar hún er ekki til staðar verður uppskeran ekki mikil. Það má segja sem svo að við höfum verið heppnir að fá þessa sókn undir lokin sem skapaði þetta ákveðnir að standa sig og það gerðu þeir svo sannarlega. Það vora þvi að vonum vonsviknir Færeyingar sem gengu af leikvelli en á heildina litið hefði jcifntefli ekki talist ósann- gjöm úrslit Ieiksins. Það verður að segjast eins og er að það var fátt um fína drætti hjá ís- lenska liðinu. Vömin skilaði ágætri vinnu en það sama verður ekki sagt um sóknina. Eins og allir vita hefúr liðið átt í vandræðum með að skapa sér marktækifæri og svo var einnig í gær. Þetta er mikill veikleiki sem fyrir alla muni verður að vinna bug á og það sem allra fyrst. Það er eins og allt sjálfstraust vanti í sóknina og menn virðist óöryggir þar frammi. í vændum er leikur gegn Liechtenstein í undankeppni HM og þá verður sóknarleikurinn að vera sterkasta vopn liðsins. í þau fáu skipti sem eitthvert bit var í sóknarleiknum var Amar Grétarsson upphafsmaðurinn og höfundurinn og er hann greinilega í mjög góðri æfingu um þessar mundir. Amar átti í tvígang hörku- mark. Reyndar munaði ekki miklu að við bættum við öðra marki aft- ur,“ sagði Guðjón Þórðarson lands- liðsþjálfari við DV eftir leikinn. Guðjón sagði að til að skora mörk verða menn að koma með stungu og fyrirgjafir. Ef svo hins- vegar menn eru ekki tilbúnir til að gera þessa hluti erum við í slæmum málúm. Algjörlega óviöunandi „Ég mun berjast við að koma lagi á þessa hluti. Fyrir mig er þetta al- gjörlega óviðunandi og ég verð að fá menn sem vilja meira en kom út skot að færeyska markinu en aðeins snjöll markvarsla kom í veg fyrir að boltinn hafnaði í netinu. Tryggvi Guðmundsson og Jóhann Guðmundsson komu inn á sem varamenn i upphafi síðari hálfleiks en þeir félagar vora þama að leika fyrstu leiki sína með A-landsliðinu. Innkoma þeirra frískaði upp á leik íslenska liðsins. Til að koma lagi á leik íslenska liðsins þarf að eiga sér stað hugar- farsbreyting á meðal leikmana liðs- ins. Það er alfarið undir þeim sjálfúm komið hvort þeir klæðast landsliðspeysunni eður ei. Það verðúr að koma lagi á þá hluti sem upp á vantar. Guðjón Þórðarson er fullur af metnaði að koma liðinu inn á réttar brautir. Metnaðurinn verður einnig að vera hjá leikmönn- unum sjálfúm. Þrátt fyrir fjarvera lykilmanna færeyska liðsins er alveg ljóst að knattspyman á eyjunum er í fram- for. -JKS úr þessum leik. Menn verða ein- faldlega að láta boltann ganga hratt og skipulega með eitthvað að leiðar- ljósi. Það má alls ekki láta kylfu ráða kasti hvemig leikurinn þró- ast. Ég er sáttur við að sigra en alls ekki sáttur við leik minna manna. Ég mun velja það lið sem ég fer með í leikinn gegn Liechtenstein með hliðsjón af þeim tveimur leikjum sem menn hafa leikið undir minni stjóm. Ég hef sagt að það séu þeir sjálfir sem skammta sér pláss með framgöngu sinni,“ sagði Guðjón við DV. -JKS Alan Simonsen: Liðið á réttri leið DV, Hornafiröi: „Miðað við það að okkur vantaði að minnsta kosti níu leikmenn er ég bara sæmilega sáttur. Ég er samt aldrei ánægður að tapa en þrátt fyr- ir allt er þetta lið á réttri leið. Það sýndi í þessum leik mikla baráttu og var enn fremur að gera marga góða hluti. Við getum lært margt af þessum leik og það er alltaf tilgang- urinn. Þetta var umfram allt góð æf- ing fyrir komandi átök í riðla- keppni HM þar sem við höfum þeg- ar fengið sex stig. Það era erfiðir leikir eftir en við sjáum hvað setur. í íslenska liðinu eru nokkrir góðir einstaklingar og þeir eiga eflaust framtíðina fyrir sér. Ungu leik- mennimir settu mark sitt á leikinn í siðari hálfleik," sagði Alan Simon- sen, landsliðsþjálfari Færeyinga, við DV eftir leikinn. -JKS Tryggvi Guðmundsson: Vonandi sett pressu á þjálfarann „Þetta verður varla betra. Maður gerir cillt til að sanna sig í fyrsta landsleik og að skora sigurmarkið var virkilega gaman. Ég var ánægð- ur með úrslitin en leikurinn hjá okkur gat auðvitað verið miklu betri. Liðið var ekki að sýna krassandi leik sem þeir hefðu alveg getað refsað okkur fyrir. Sem betur fer slapp það í þetta skiptið. Þaö var gaman að klæðast landsliðspeys- unni í fyrsta skipti og ég að æfla að vona að framganga mín hafi sett pressu á þjálfarann," sagði Tryggvi Guðmundsson, bjargvættur ís- lenska liðsins. -JKS ísland (0)1 Færeyjar (0)0 1-0 Tryggvi Guömundsson (89.) þrumaði boltanum í autt markiö eftir frábæra sendingu Jóhanns B. Guö- mundssonar frá hægra kanti á stöng- ina fjær. Lið fslands: Kristján Finnbogason (Ólafur Gottskálksson 79.) - Sigurður Öm Jónsson, Lárus Orri Sigurðsson, Brynjar Gunnarsson (Gunnlaugur Jónsson 68.), Hermann Hreiðarsson - Rúnar Kristinsson, Sverrir Sverris- son (Sigurvin Ólafsson 81.), Amar Gunnlaugsson, Amar Grétarsson, Einar Þór Daníelsson (Jóhann B. Guðmundsson 46.) - Ríkharður Daða- son (Tryggvi Guðmundsson 46.). Lið Færeyja: Bjame Johansen - Óli Johannesen, Bartal Eliasen, Juli- an Johnsson, Pól Thorsteinsson - Allan Mörköre, Jákup-Eli Olsen, Jan Dam, Jan Allan Mtiller (Ingi Rasmus- sen 77.), Jens Erik Rasmussen - John Petersen. Markskot: fsland 11, Færeyjar 7. Hom: ísland 7, Færeyjar 3. Gul spjöld: Sverrir Sverrisson, Óli Johannessen, Allan Mörköre. Dómari: Milan Mitrovic frá Sló- veniu lét leikinn ganga mjög vel. Áhorfendur: Um 700. Skilyrði: Stillt veður og þurrt en völlurinn aðeins blautur eftir rign- ingar undanfarið. Maður leiksins: Tryggvi Guð- mundsson - kom inn á sem vara- maöur, var mjög duglegur og setti svo sannarlega mark sitt á leikinn. Fjórir leikmenn spiluðu fyrsta A- landsleik sinn í gær. Það voru Tryggvi Guðmundsson, Jóhann B. Guðmundsson, Gunnlaugur Jónsson og Sigurvin Ólafsson og vom þeir all- ir heiðraðir sérstaklega. KR-ingarnir Einar Þór Daníels- son, Ríkharður Daðason og Brynjar Gunnarsson vom teknir af velli til aö hvíla þá fyrir Rúmeníufórina. Þeir fóm af stað þangað snemma í morgun vegna Evrópuleiksins við Dinamo á miðvikudag. Amar Grétarsson kom beint 1 leikinn frá Múnchen. Þar var hann í æfmgabúðum með hinu nýja felagi sínu, AEK frá Aþenu. Guðjón Þórðarson landsliðsþjálfari: Vantar töluvert upp á

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.