Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.1997, Blaðsíða 2
i6 tfrikmyndir
FÖSTUDAGUR 15. ÁGÚST 1997 H3 V
Stjörnubíó - Blossi:
Ný íslensk stórmynd, kvik-
myndin Blossi/810551, verð-
ur frumsýnd t Stjörnubíói í
dag. Blossi/810551 er önnur
mætt til
kvikmynd leikstjórans Júlí-
usar Kemp. Fyrri mynd
hans, Veggfóður, naut mik-
illa vinsælda og eigi færri en
45.000 áhorfendur sáu hana
hér á landi, þar af 13.000
manns á fyrstu sýningar-
helginni.
Framtíðartryllir
Lawrence Fishbume og Sam Neill eru í að-
alhlutverkum í myndinni Event Horizon sem
frumsýnd er í dag í Bandaríkjunum. Myndin
er byggð á vísindaskáldsögu og er um björgun-
arfór geimskips sem sent er til útjaðra sólkerf-
is okkar í tilraun til að bjarga öðru geimskipi
sem ekkert hafði frést af í 7 ár. Myndin á að
gerast árið 2047.
Aðaileikaramir mættu á forsýningu mynd-
arinnar síðastliðinn þriðjudag og vora ánægð-
ir með viðtökur áhorfenda.
j'J U
Stjörnubíó — Tvíeykið:
Van Damme í stórræðum 'k'k'k
Það er stutt á milli hasarmynda með belgíska slags-
málaséníinu Jean Claude Van Damme og er Tvíeykið
(Double Team) sú síðasta í röð mynda sem allar hafa
sama yfirbragð en em samt misgóðar. Tvíeykið fer beint
í hóp betri mynda Van Damme og er það fyrst og fremst
handbragð leikstjórans Tsui Hark sem gerir það að verk-
um að Tvíeykið er hin skemmtilegasta afþreying. Hark
er einn þeirra Hong Kong leikstjóra sem Hollywood hef-
ur verið að veiða upp úr flóm hasarmynda frá Hong
Kong og er ljóst að Hark ræður vel við það sem hann er
að gera og kann svo sannarlega að láta myndavélina
túlka á áhrifamikinn hátt það sem er að gerast á tjald-
inu. Van Damme er ekki óvanur að leika undir stjóm
leikstjóra frá Hong Kong, það var einmitt hann sem fékk
John Woo til að leikstýra Hart Target sem var fyrsta
mynd Woos vestan hafs.
Van Damme hefur leikið annan snilldarleik þegar hann fékk vandræðagemlinginn í
ameríska körfuboltanum, Dennis Rodman, til að leika á móti sér. Hvað sem segja má um
persónu Rodmans í einkalífmu og á körfuboltavellinum þá hefur hann mikla útgeislun og
kann að gera grin að sjálfum sér. Vert er að taka eftir að hann er með sinn hvem háralit-
inn í hveiju atriði sem hann er í, í öllum regnbogans litum.
Þriðji töffarinn í myndinni er Mickey Rourke sem ekki hefur verið til minni vandræða
en Rodman. Greinilegt er að Rourke hefur stundað líkamsrækt meðfram villtu lifemi og
tekur hann sig vel út í hlutverki skúrksins, hefur ekki verið betri í langan tíma.
Sagan, sem sögð er í Tvíeykinu, um fyrrum njósnara sem herst gegn hættulegasta
hryðjuverkamanni heimsins, er ekki merkileg enda er hún algjört aukaatriði og best að
vera ekkert að hugsa um alla annmarkana á henni heldur njóta þess að sjá þrjá töffara
gera það sem þeir kunna best og taka má ffarn að það er alls ekki sú list að geta haldið
uppi samræðum.
Leikstjóri: Tsu Hark. Aðalleikarar: Jean Claude Van Damme, Dennis Rodman og Mickey Ro-
urke.
Kvikmyndin Blossi/810551 gerist í nútíman-
um og nánustu framtíð. Myndrænt yfirbragð
hennar og útlit er allt mjög nútímalegt. Hún
fjallar nær eingöngu um fólk sem fætt er eftir
árið 1975. Það er fólkið sem aldrei hefur verið
í sveit, hefur verið matað alla ævi og hefur
allan sinn lærdóm úr tískufjölmiðlum. Sumir
kalla þessa kynslóð MTV-kynslóðina en hún
hefur fengið ýmis önnur heiti. Lars Emil
Ámason er handritshöfundur myndarinnar.
„Ég kýs að kalla þessa kynslóð „malbikunar-
kynslóðina" en Július Kemp, leikstjóri mynd-
arinnar, er einmitt af þessari kynslóð. Hann
hefur enda beint sjónum sínum að þessari
kynslóð í myndum sínum til þessa,“ segir
Emil.
Myndin Blossi sýnir á óvæginn hætt hvem-
ig þessi kynslóð lifir. Hún lifir fyrir daginn í
dag og er ólík fyrri kynslóðum hvað það varð-
ar. Hún hefur allt annað gildismat og allt aðra
sýn á tilveruna. Aðal sögupersónurnar eru
tveir krakkar af ungu kynslóðinni. Krakkam-
ir em Stella (Þóra Dungal), menntaskólastúlka
sem þyrstir í hasar, og Róbert (Páll Banine),
smákrimmi sem verður á vegi hennar og veit-
ir henni meiri hasar en hún fær ráðið við.
Þau keyra um landið á stolnum bíl með stolið
góður inn við beinið en hefur lent í heldur
betur vafasömum félagsskap."
Páll er sjálfur sannfærður um að Blossi
komi til með að slá í gegn. Þóra Dungal er
sama sinnis og er ánægð með samstarfið við
leikstjórann og handritshöfundinn. „Það var
mjög skemmtilegt að vinna með Júlla Kemp
og Lars Emil (sem einnig var hönnuður leik-
mynda og búninga). Þeir vissu mjög vel hvað
þeir voru að gera og ég held að myndin líti
mjög vel út, að minnsta kosti eru þau skot
sem ég hef séð alveg rosalega fLott. Páll Bani-
ne er rosalega professional,“ segir Þóra.
r
A erindi erlendis
Lars Emil telur að malbikunarkynslóðin
hér á landi sé ekkert ólík jafhöldrum sínum í
öðrum vestrænum löndum. „Blossi gæti því
vel átt erindi á erlendan markað. Annars er
ég bjartsýnn á að hún nái góðri aðsókn hér-
lendis, hún hefur allt til þess að bera.“ Fram-
leiðsla myndarinnar gekk samkvæmt áætlun
en áætlað er að hún hafi kostað á milli 50 <pg
70 milljónir í framleiðslu. -ÍS
Hilmar Karlsson
Róbert (Páll Banine) og Stella (Póra Dungal) gera úttekt á gleraugnamarkaöi bensínstöövar.
kreditkort með geðveika dópsala á eftir sér.
Einn þeirra er Úlfur (Finnur Jóhannesson).
Lars Emil var spurður að því hvort að-
standendur Blossa væru ekki hræddir um að
reynsluleysi aðalleikaranna myndi há mynd-
inni. „Nei, það held ég ekki. Við tókum fullt af
leikurum í prufutökur og Þór, Páll og Finnur
komu einfaldlega best út. Ætli það sé ekki
vegna þess að það vom karaktereinkenni
þefrra sem réðu valinu," segir Emil. Nú hefur
Finnur verið nokkuð til umfjöllunar í fölmiðl-
um en hann var í fyrra settur i tveggja ára
keppnisbann fyrir ólöglega lyfjanotkun. „Finn-
ur virðist algjörlega hafa náð tökum á lífi sínu
á ný og stóð sig vel í hlutverki Úlfs.“
Páll Banine er ekki meö öllu óþekktur þó
hann hafi hingað til ekki haft sig mikið í
frammi sem leikari. Hann hefur einu sinni
glímt við smáhlutverk í leikritinu Standandi
Pína. Páll er aðallega þekktur fyrir að vera
fyrmm söngvari hljómsveitarinnar vinsælu,
Bubbleflies. Hann er nú nemandi í Myndlista-
og handíðaskólanum. Páll segir um persónuna
Róbert í myndinni; „Robbi er bara venjulegur
strákur sem hefur ratað á villigötur. Hann er