Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.1997, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.1997, Blaðsíða 3
I>V FÖSTUDAGUR 15. ÁGÚST 1997 Bíóhöllin, Háskólabíó, Laugarásbíó, Regnboginn: Stórmyndin Speed 2 - Cruise Control verður tekin til sýninga í fjórum kvikmyndasölum í Reykja- vík í dag; Bíóhöllinni, Háskólabiói, Laugarásbíói og Regnboganum. Spe- ed 2 er sjálfstætt framhald myndar- innar Speed sem naut mikilla vin- sælda á árinu 1994. Sú mynd var með Söndru Bullock og Keanu Reeves í aðalhlutverkum og sló eft- irminnilega í gegn. Hún gerði Bull- ock að sannkallaðri stórstjörnu, enda hefur hún leikið aðalhlutverk- ið í fjölmörgum stórmyndum síðan. Keanu Reeves er ekki síður þekktur leikari en hann leikur ekki í nýju myndinni. Bullock og Reeves var báðum boðið að leika í ffamhaldsmynd- inni. Bullock þekktist boðið en Reeves hafnaði þvi og vildi frekar beina kröftum sínum að tónlistar- flutningi með rokkhljómsveit sinni. Keanu Reeves hefur látið hafa eftir sér að hann sjái eftir þeirri ákvörð- un enda hefur Speed 2 - Cruise Control fengið góða dóma gagn- rýnenda. í hans stað í aðalhlutverkinu á móti Bullock er Jason Patric sem er upprennandi stjama í Hollywood. Hann er einna þekktastm- fyrir hlut- verk sín í Sleepers og Geronimo: The American Legend, þar sem hann fór á kostum. Hlutverk skúrksins í myndinni er í höndum stórleikarans Willems Dafoe. Hann er einstaklega fjölhæfur leikari og virðist geta brugðið sér átakalaust í hvaða hlutverk sem er. Hann nýtur mikillar virðingar sem leikari og hefur starfað með mörgum þekkt- ustú leikstjórum heims, meðal ann- Sandra Bullock er i einu aðalhlutverkanna og hefur fengið nýjan mótleikara, Jason Patric, í stað Keanu Reeves. ars Martin Scorsese í Last Tempta- tion of Christ, Alan Parker í Miss- issippi Buming, Oliver Stone í Bom on the Fourth of July, David Lynch í Wild at Heart, svo að eitthvað sé nefnt. Leikstjóri myndarinnar, hinn hollenski Jan De Bont, þykir einn af þeim fæmstu í leikstjóm spennu- og hasarmynda. Hann sló í gegn í fyrri myndinni, Speed, en leikstýrði með- al annars stórslysamyndinni Twist- er. Hann hóf feril sinn sem kvik- myndatökumaður og var meðal annars við stýrið í myndum eins og Die Hard og Leathal Weapon 3. Eins og í fyrri myndinni byggir Speed 2 fyrst og fremst á hraða. í fyrri myndinni var það strætisvagn sem aka þurfti á miklum hraða en í Speed 2 er það glæsisnekkja í Karíbahafí. Jason Patric leikur Alex, kærasta Söndru Bullock (Annie), og þau ákveða að bregða sér í „afslöppun" í lystisnekkju. Svo óheppilega vill til að tölvusnilling- urinn Geiger (Dafoe) áformar rán á snekkjunni og að sjálfsögðu lenda Annie og Alex í atburðarásinni miðri. -ÍS Laugarásbíó hefur tekið til sýn- ingar myndina Trufluð veröld í leikstjórn hins kunna leikstjóra Davids Lynch. Lynch hefur ekki sent frá sér nýja mynd um árabil og aðdáendur þessa sérstæða leik- stjóra hljóta því að fagna þessari sendingu hans. Kvikmyndin Trufluð veröld (Lost Highway) fetar ótroðnar slóðir að hætti Lynch og það kemur ekki á óvart að hún skuli lýsa skuggahliðum mannlífsins. Flestar þekktustu mynda Lynch, eins og Twin Peaks, Blue Velvet og Wild at He- art, eru því marki brenndar. Lynch er handritshöfundur myndarinnar ásamt Barry Gif- ford. í myndinni gefur Lynch hug- myndaflugi sínu lausari taum en nokkum tíma áður og lætur áhorfendum eftir að ráða í þráð hennar - ef hann er þá í rauninni til! Saga myndarinnar er byggð eins og um draum sé að ræða. Áhorfendur fá að kynnast venju- legu fólki í venjulegri borg gera einkennilega hluti við mjög óvenjulegar aðstæður. Fyrst eru kynnt til sögunnar hjónin Fred og Renee Madison. Til heimilis þeirra fara að berast einkennileg myndbönd sem sýna þau sofandi í rúmum sínum - eins og einhver hafi laumast inn í hús þeirra og myndað þau. Skömmu síðar rekst Fred á kvikmyndiru Con Air irkirk Con Air er ein af þessum pottþéttu hasar- myndum, þéttpökkud hamagangi og testosteroni frá upphafi til enda. Formúlan er á sínum staS og ekkert kemur á óvart og að hætti Arnies og Die Hard-myndanna er þetta formúla með húmor þar sem ýkjurnar eru yfirgengilegar. Hraðar klippingar og hrátt yfirbragð gerir það að verkum að Con Air virk- ar þæöi alvarieg og hákðmlsk í senn og fer yfir um á hvorugu. -úd Scream irkhrk Ein alflottasta og skemmtilegasta hryllings- mynd sem komiö hefur fram lengi og sýnir vel þá möguleika sem búa I hrollvekjunni. Craven sýnir fullkomna þekkingu og næmi á hrollvekjunni og tekst aö skapa úr þessum kunnuglegu formúlum hressandi og hrellandi hryllingsmynd. -úd Fimmta frumefnið ★★★ Ómissandi og án hiks ein alfallegasta og smartasta framtíðarmynd sem rataö hefur á sýningartjald. Samspil hljóös og myndar er með eindæmum elegant og til að njöta þessa alls sem best er vænlegast að búta heilann upp og stýra allri orku á augu og eyru. -úd Elskunnar logandi bál ★★★ Ástarsamband nemanda og kennara er við- fangsefni Bo Widerbergs. Myndin er vel heppnuð útfærsla á erfiðum tilfinningaflækj- um, dramatísk en þó oft með kómísku yfir- bragði. Sonur leikstjórans Johans Wider- bergs sýnir afburöaleik i erfiðu hlutverki -HK Grosse Pointe Blank: i t , ★★★ Styrkur .Leigumorðingjans" felst i óvenju myrkum húmor, afbrags samtölum oggóðum leik Cusacks. Aukahlutverkin eru einnig mjög vel mönnuð. -GE Horfinn heimur: Jurassic Park: ★★★ Eftir frekar hæga byrjun þar sem mikill tími fer í útskýringar tekur Horfinn heimur vel viö sér þegar komiö er í návígi viö grameðlur, snareðlur og aörar fornar eðlur. Sagan er greinileg framhaldssaga, þar sem lítið er um nýjar hugmyndir, en af sinni alkunnu snilld og fagmennsku tekst Steven Spíelberg aö skapa mikla og ógnvekjandi skemmtun sem fær stundum hárin til að risa. -HK Men in Black ★ kk í MIB er eins og yfirfærslan úr teiknimynda- sögu í kvikmynd sé aldrei fullfrágengin og kemur þetta sérstaklega niður á plottinu. Áherslan er slik á húmor og stil aö sjálfur hasarinn veröur út undan og í raun virkar MiB meira sem grinmynd en hasar. En þrátt fyrir alla galla er þessi mynd ómissandi fyrir alla þá sem láta sér ekkert mannlegt óvið- komandi. -úd mann sem virðist vita eitthvað um hans mál og stuttu síðar er Fred handtekinn fyrir að myrða Renee. Fred veit hins vegar ekk- ert hvaðan á sig stendur veðrið og kannast alls ekki við að hafa myrt eiginkonuna. Sönnunargögnin virðast hins vegar borðleggjandi og ekkert mark er tekið á mótbár- um hans og hann er lokaður bak við lás og slá. Þegar fangaverðir ætla að taka Fred til yfirheyrslu er allt annar maður í klefanum sem hefur enga hugmynd um hvers vegna hann er þar niður- kominn. Þar með er hin draum- kennda atburðarás komin á full- an skrið og sleppir ekki áhorfend- um fyrr en í mögnuðu lokaatriði sem skýrir allt - eða ekki neitt! Aðalleikararnir i myndinni eru ekki af verri endanum: Bill Pullman, Patricia Arquette, Balt- hasar Getty, Robert Blake, Gary Busey, Richard Pryor og Robert Loggia. -ÍS Patricia Arquette, sem hér skartar svartri hárkollu, er í einu aðalhlutverk- anna í myndinni.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.