Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.1997, Blaðsíða 5
Heimilismatur
Sérréttamatseðill
Kaffi og kökur
Barirm opirm
Frítt inn
Opnunartími:
Þriðjudaga - fimmtudaga 20.00 - 01.00
föstudaga - laugardaga 20.00 - 03.00
surmudaga 20.00 - 01.00
Athafna, og mannlif fyrri tíma
hefur gefið þessu fallega
gamla húsi sál.
Í/AFFI
REY M-AVl K
Bryggjuhúsiö
Vesturgata 2
sími 562 5540 og 552 5530
fax 562 5520
%n helgina
FÖSTUDAGUR 15. AGUST 1997
Kvöld í Eyjum eftir Sverri H.
Hulduhólar í Mosfellsbæ:
Sýnishorn úr
ævistarfi
Um slðustu helgi var opnuð á
Hulduhólum í Mosfellsbæ stór sýn-
ing á verkum Sverris Haraldssonar
sem nefnist Sýnishom úr ævistarfi.
Sýningin spannar allan feril lista-
mannsins, allt frá því hann var tólf
ára og fram á síðustu æviár hans en
hann lést árið 1985. Alls eru um 150
verk á sýningunni, þar á meöal olíu-
málverk og skúlptúrar. Flest verkin
era í einkaeign og mörg þeirra hafa
ekki verið sýnd áður opinberlega.
Sýningin er samvinnuverkefni
Gallerís Hulduhóla og Mosfellsbæj-
ar og er liður í hátíðahöldunum sem
efnt er til vegna 10 ára afmælis Mos-
fellsbæjar. Sýningin verður opin
alla daga nema mánudaga frá
klukkan 14 til 18. Henni lýkur 31.
ágúst.
Leikritið „Heimur Guðríðar -
Síðasta heimsókn Guðríðar Sím-
onardóttur í kirkju Hallgríms“ eftir
Steinunni Jóhannesdóttur verður
sýnt í Hóladómkirkju á Hólahátið
sunnudaginn 17. ágúst. í leikritinu
er viðburðarrík ævi Guðríðar rak-
in. Þar segir frá því hvemig þessi
sjómannskona úr Vestmannaeyjum
sem var í hópi tæplega 400 íslend-
inga sem rænt var í Tyrkjaráninu
1627 komst aftur heim til íslands og
sambandi hennar við Passíusálma-
skáldið Hallgrím Pétursson. Kynni
þeirra tókust í Kaupmannahöfh á
heimleið Guðríðar frá Alsír þar sem
Hallgrímur var fenginn til að veita
Guðríði tilsögn í kristindómi. Þau
hófu sambúð í trássi við lög og rétt
sem átti eftir að standa til æviloka
og hefur löngum vakið þjóðinni for-
vitni og jafhvel hneykslun.
Hallgrímur Pétursson var eins og
kunnugt er fæddur í Skagafirði og
ólst upp á Hólum í Hjaltadal þar
sem faðir hans var hringjari.
Með helstu hlutverk í sýningunni
Hallgrímur
fara
Mar-
grét
Guðmunds-
dóttir og Helga El-
ínborg Jónsdóttir sem
báðar leika Guðríði á ólík-
um æviskeiðum. Með
hlutverk Hallgríms
fer Þröstur Leó
Gunnarsson en leik- ?
stjóri sýningarinn- |
I. /V ar er Steinunn Jó-
hannesdóttir.
Sýningar a
sunndag verða
tvær og hefst sú
fyrri klukkan 17
en hin síðari
klukkan 21.
-t *fM 4
Ytri-Njarðvfkurkirkja:
Djasstónleikar
á sunnudaginn
Veigar Marteinsson trompetleik-
ari mun halda djasstónleika í Ytri-
Njarðvíkurkirkju á sunnudaginn
kemur. Veigar stundar nú nám í
tónsmíði og útsetningu í Miami en í
sumar hefur hann leikið með Millj-
ónamæringunum og tekið þátt í
djasslífi landsins.
Þess má geta að Veigar sigraði
nýlega i tónsmíðakeppni á vegum
djasstímaritsins Down Beat en
keppendur eru úr öllum helstu tón-
listarháskólum Bandaríkjanna og
Kanada og skipta hundraðum.
Að sögn Veigars verður dagskrá
tónleikanna í léttari kantinum og
uppistaða þeirra þekkt djasslög.
Tónleikamir hefjast klukkan 20.30 á
sunnudagskvöld og verða aðgöngu-
miðar seldir viö innganginn.
Dægurlagahljomsveit
Eyjólfs Kristjánssonar
föstudags- og laugardagskvöld.
Tríó Sigrúnar Evu
sunnudagskvöld
Hamraborg 11
sími 554 2151 og 554 2166
Lambolæri Bernaise
790 kr.
12"pizza
600
m i? &
Hólahátíð um helgina:
Tyrkja-Gudda og