Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.1997, Blaðsíða 11
FÖSTUDAGUR 15. ÁGÚST 1997
- kolbrjálaðir en góðir frá Seattle
Erfítt er að skilgreina þá blöndu
tónlistar sem heyrist þegar diskur
með Seattlesveitinni Screaming
Trees er settur undir geislann. Helst
dettur manni í hug þær melódíur
sem heyrðust á sjöunda áratugnum
í framsæknu rokki og psychedelic-
tónlist þeirra tíma, í bland við frum-
legt grungerokk og jafnvel áhrifum
frá Led Zeppelin! Screaming Trees
hafa starfað i 12 ár eða allt frá 1985
og gefið út fjölmargar plötur.
Brjálaðir!
Sveitin vakti tljótt athygli fyrir
ófyrirsjáanlega sviðsframkomu,
drykkjuskap, slagsmál og sífelldar
tilkynningar til fjölmiðla um að nú
væru þeir að hætta! Ekki minni at-
hygli vakti útlit hljómsveitarmeð-
lima, sérstaklega bræðranna og
lagasmiðanna Lee bassaleikara og
Van Conner gítarleikara en hvor
um sig vegur um 150 kíló. Lee hefur
verið nefndur sem einn brjálaðasti
gítarleikari á sviði síðan Jimi
Hendrix féll frá og verður það að
teljast afrek fyrir jafn þungan
mann!
Erfið fæðing
í fjölda ára gaf sveitin út plötur
sem fengu þokkalega dóma en litla
sölu. Eftir að hafa gert samning við
Epic-útgáfuna 1990 gáfu Screaming
Trees út plötuna Uncle Anesthesia í
samvinnu við Chris Comell, söngv-
ara Soundgarden. Hún þótti af-
burðaléleg og meðlimir sveitarinnar
hugðust enda ferilinn með einni
plötu til viðbótar. 1992 kom fyrir-
hugaður svanasöngur sveitarinnar
út, platan Sweet Oblivion.
Screaming Trees hefur loksins slegið í gegn með plötunni Dust og trónir nú
við hlið Seattlesveita á borð við Pearl Jam og Soundgarden.
Frægð og frami
Timamót urðu í sögu sveitarinn-
ar þvi Pearl Jam og Nirvana vora
skyndilega orðnar heimsfrægar og
markaður hafði opnast fyrir tónlist
Screaming Trees. Þremur vikum
eftir útgáfu plötunnar var lagið All
I Know tíunda mest spilaða lag á
rokkútvarpsstöðum í heiminum.
Sweet Oblivion var talin meistara-
verk af fjölmörgum gagnrýnendum
og einhvern veginn blandaðist
frægð Screaming Trees við Grunge-
æðið sem þá stóð í blóma, ekki síst
vegna þess að sveitin er frá Seattle,
háborg Grungestefnunnar. Scream-
ing Trees léku á sömu stöðum í
Seattle og félagar þeirra í Nirvana,
Pearl Jam, Álice in Chains og
Soundgarden.
Lanegan og Cobain
Lanegan, söngvari Screaming
Trees, og Kurt heitinn Cobain,
söngvari Nirvana, voru reyndar
góðir vinir. Cobain skildi eftir skila-
boð á símsvara Lanegans daginn
áður en hann framdi sjálfsmorð og
vildi að þeir hittust til að spila sam-
an. Cobain söng bakraddir i einu
lagi á sólóplötu Lanegans, The
Winding Street, sem kom út 1990.
Það má hafa uppi getgátur um áhrif
dauða Cobains á Lanegan því
nýjasta plata Screaming Trees,
Dust, er í heildina séð þrungin
söknuði og angurværð, ólíkt fyrri
verkum sveitarinnar.
Dust
Með Dust sem kom út í fyrra
tókst Screaming Trees sannarlega
að halda í við Sweet Oblivion. Plöt-
unni hefur verið líkt við tímalaust
rokk, platan sem Soundgarden hefði
langað að gera, Alice in Chains mun
aldrei gera og Pearl Jam of nið-
urgrafnir til að geta gert. Screaming
Trees voru reyndar með aðra plötu
í burðarliðnum áður en Dust leit
dagsins ljós. Henni var hins vegar
hent til hliðar, einfaldlega vegna
þess að þeim þótti hún ekki nógu
góð. Þeir vildu semja eitthvað sem
þeir sjálfir gætu hlustað á eftir tíu
ár og þótt gott. Eftir sex mánaða
lagasmiðar hélt sveitin í hljóðver
með 300 lög í vasanum. Útkoman'"'
varð Dust. -ps
Margt verður á döflnni um helgina og svo virðist sem
hljómsveitir landsins hafi vaknað á ný eftir heldur ró-
lega síðustu helgi.
Skítamórall
Loksins heldur
hljómsveitin Skita-
mórall ekta sveita-
ball á tjalddansleik
á Gaddstaðaflötum
við Hellu. Á ballinu
spila einnig hljóm-
sveitimar Land &
synir og 4 play.
Diskótekarinn knái
dj. Marin verður á
svæðinu og mun
hann stýra fyrstu íslandsmeistarakeppninni í Breakdansi
síðan á því mikla breakári 1987. Brenna og flugeldasýning
verður við tjaldið.
Ballið er liður i hátíðinni Töðugjöldum sem verður haldin
við Hellu um helgina.
Greifarnir
Greifamir tóku sér frí um
síðustu helgi enda veitti
þeim ekki af eftir fjörið um
verslunarmannahelgina. í
kvöld halda þeir þó áfram af
fullum krafti og leika i Mið-
garði í Skagafirði. Annað
kvöld spila þeir í Stapa i
Njarðvík og búast við góðri
aðsókn á báða tónleikana.
Greifúnum hefur gengið vel í sumar og að sögn Viðar Krist-
jánssonar er þetta besta sumar sveitarinnar til þessa.
Sálin hans Jóns míns
Sálin leikur um helgina á tvennum miðnæturtónleikum. í
kvöld verða þeir í Sjallanum á Akureyri þar sem sjónhverf-
ingasveitin Stripshow hitar upp fyrir mannskapinn.
Annað kvöld er stefnan sett á Egilsstaði þar sem sveitin
heldur tónleika á Hótel Valaskjálf. Þetta eru einu tónleikar
Sálarinnar á Austurlandi í sumar.
Reggae on lce
Strákamir í Reggae on
Ice ætla í kvöld að taka sér
langþráð frí. Þeir verða
þeim mun hressari annað
kvöld þegar þeir halda uppi
stuðinu í Hreðavatnsskála í
Borgarfirði.
Vestfirðingar, varið ykk-
ur!
Djass og blús á Selfossi
I kvöld og annað kvöld verður haldin djass- og blúshátíð
sem hluti af 50 ára afmæli Selfossbæjar.
í kvöld leika JJ Soulband, KK & Bubbi Morthens og Vinir
Dóra. Annað kvöld er svo röðin komin að Tríói Kristjáns
Guðmundssonar, Kvartetti Kristjönu Stefánsdóttur og Kvar-
tetti Sigurðar Flosasonar.
Kántríbær á Skagaströnd
Annað kvöld spilar hljómsveitin Últra í Kántríbæ á Skaga-
strönd. Nýr gítarleikari, Sigurjón Alexandersson, hefur geng-
ið til liðs við hljómsveitina.