Dagblaðið Vísir - DV - 12.09.1997, Page 3
FÖSTUDAGUR 12. SEPTEMBER 1997
Lee og Washington í
körfubolta
Spike Lee er að verða eins og
Woody Allen - ekki fyrr búinn að
klára eina mynd en hann byrjar á
annarri. Nú eru ha&ar tökur á He
Got Game sem segir frá manni sem
situr í fangelsi fyrir að hafa myrt
eiginkonu sína. Honum er boðin
náðun ef honum tekst að fá son
sinn, sem er háskólakörfubolta-
stjama, til að láta vissan umboðs-
mann íþróttamaima sjá um mál
sín. í aðalhlutverki er Denzel Was-
hington. Er þetta þriðja myndin
sem Washington leikur í fyrir Lee,
hinar eru Mo’ Better Blues og
Malcolm X.
Kubríck flýtir sér hægt
Eins og kunnugt er vinnur
Stanley Kubrick að nýrri mynd,
Eyes Wide Shut, og flýtir sér hægt.
Hann byijaði tökur 7. nóvember og
gerir sér vonir um að verða búinn
áður en ár er liðið. Þetta hefur or-
sakað rask hjá aðalleikurunum,
hjónunum Tom Cruise og Nicole
Kidman. Þrátt fyrir seinaganginn
hafa þau þó haldið tryggð við
Kubrick, öfiigt við Harvey Keitel
sem byrjaði en gafst upp. Cruise er
greinilega góður starfsmaður; hef-
ur ekkert látið hafa eftir sér í blöð-
unum á meðan aðrir hafa verið að
kvarta yfir seinaganginum. Einn
aukaleikari sagði fyrir stuttu: „Ég
hélt ég væri ráðinn í eina kvik-
mynd og að ekki væri um æviráðn-
ingu að ræða.“
Sonur í spor föður
Danny Huston byrjar fljótlega að
leikstýra fjórðu kvikmynd sinni,
Hlegals, sem gerð er eftir handriti
Carls Gottliebs (Jaws). Fjallar
myndin um mexíkóska þjóna sem
haldið er í gíslingu á veitingastað í
Los Angeles. Huston, sem er sonur
eins frægasta leikstjóra samtím-
ans, Johns Hustons, hefur ekki náð
sama árangri og faðir hans en fyrri
myndir hans, Mr. North, Becoming
Colette og The Maddening, vöktu
litla athygli.
Mr. Bean vinsæll á
Norðurlöndum
Tvær helgar eru síöan allir fóru
í bíó i Reykjavík til að sjá Mr. Bean
og var niðurstaðan mesta aðsókn
um helgi á eina kvikmynd síðan
Independence Day var frumsýnd.
Mr. Bean er að gera það mjög gott
í Evrópu og er inngangseyrir þar
kominn í 80 milljónir dollara. Bean
er þó hvergi eins vinsæli og á
Norðurlöndunum þar sem myndin
sló aðsóknarmet yfir eina helgi,
bæði í Danmörku og Noregi.
Háskólabíó:
Þegar við vorum kóngar
„Enginn Víetkong-maður hefur kall-
að mig negra (nigger).“ AIi var
sviptur öllum titlum og dæmdur til
fangelsisvistar. Hann reyndi aftur
að ná heimsmeistaratitlinum en
tapaði fyrir Frazier. Það var því
engin fúrða að sérfræðingar væru
búnir afskrifa hann.
Háskólabíó mun í dag hefja sýn-
ingar á óskarsverðlaunamyndinni
When We Were Kings, heimildar-
mynd sem tók tuttugu og þijú ár að
fullgera. í myndinni sjáum við eitt
mesta hnefaleikaeinvígi sem haldið
hefur verið, viðureign Muhammads
Alis og George Foremans í Saír árið
1974. Einvígið var háð undir
vemdarvæng hins nýlátna ein-
ræðisherra, Mobutu Sese Seko.
En myndin er ekki bara einvígið
heldur er hún lýsing á veru Alis í
Afríku og tónleikum
1974 var Muhammed Ali 32 ára.
Sonny Liston, boxarinn sem hann
hafði sigrað fyrst í bardaga um
heimsmeistaratitilinn, hafði látist
vegna ofnotkunar fíkniefna árið
1970 og flestir ef ekki
allir sérfræðingar
höfðu afskrifað
hann. Ali
hafði neitað
að ganga í
herinn og
berjast
gegn Viet-
kong:
Ali notaði tímann eftir að einvíginu
haföi veriö frestaö til aö fara á milli
fólksins í Saír og stappa stálinu í al-
þýðuna.
Don King býður peninga
sem hann á ekki til
Á þessum árum var Don King að-
eins fyrrum fangi sem var að reyna
fyrir sér sem umboðsmaður boxara.
Hann fór til George Foremans og
spurði hvort hann vildi fá 5 millj-
ónir dollara fyrir að berjast við Ali.
Foreman játti því. King fór síðan til
Ali og spurði hann hvort hann vildi
fá 5 milljónir dollara fyrir að berjast
við Foreman. Ali játti því. Það var
því ekkert til fyrirstöðu nema það
að Don King átti aö sjálfsögðu engar
10 milljónir dollara. Inn á sviðið
kemur bjargvætturinn Mobutu sem
King nánast seldi einvígið og King
varð milljónamæringur.
Einvígið varð heimsviðburður og
það var enginn sem spáði Ali sigri.
Virtasti iþróttafréttamaður Banda-
ríkjanna á þessum árum, Howard
Cosell, sagði: „Ég tel að Ali eigi
enga möguleika. Kannski skeður
kraftaverk en ég mun ekki veðja á
það.“ Meðal þeirra sem koma fram í
myndinni og voru áhorfendur að
einvíginu var skáldiö Norman
Mailer. Hann segir: „Ég held
að Ali hafi verið mjög
hræddur og varð hræddari
eftir því sem nær dró en
sjálfstraustið bilaði aldrei
og hann fyllti sjálfan sig
þeirri vissu að hann myndi
sigra Foreman." Þess má
geta að læknir Alis var til-
búinn með flugvél að flytja
særðan kappa til Madrid
yrði það nauðsynlegt.
When We Were Kings hef-
ur fengið afbragsdóma og
eru margir sem telja hana
eina af bestu heimildar-
myndum sem gerðar hafa
verið. Leikstjóri er Leon
Gast sem Don King valdi
sjálfúr þótt honum stæði
einnig tÖ. boða að nýta sér
krafta Martins Scorsese:
Gast flaug til baka til Banda-
ríkjanna með 300.000 fet af
filmu og kominn á hausinn.
Tók nú við langt og erfitt
stríð við að koma myndinni
saman og það tók hann
fimmtán ár að borga alla
reikninga sem hlóðust upp
fyrir notkun á klippiher-
bergi. -HK
sem haldnir voru.
Aðeins fiórum dögum áður en
einvígið átti að hefiast lýstu að-
standendur keppninnar því yfir að
sex vikna seinkun yrði á einvíginu
þar sem Foreman hafði meiðst.
Þessar sex vikur var Ali kóngur í
ríki sínu og heimspressan fylgdist
með. Hann gekk út á milli kyn-
bræðra sinna stappaði í þá stálinu
og hagaði sér eins og sá sem veit að
allir muni fylgja honum.
Átti enga möguleika fyrir fram
1973 hafði George Foreman unnið
heimsmeistaratitilinn af Joe Frazi-
er. Þetta gerði hann á 25 ára afmæl-
isdegi sínum. í mars 1974 hafði
hann malað Ken Norton í bardaga
um heimsmeistaratitilinn. Hvorki
Frazier né Norton stóðu tvær lotur
gegn þessu heljarmenni.
Á æfingu fyrir einvtgiö.
Sambíóin sýna Breakdown:
Eiginkona hverfur sporlaust
Sambíóin frumsýna í dag spennumyndina
Brekadown með Kurt Russell í aðalhlutverki.
Hann og Kathleen Quinlain leika hjón sem
leggja í ferð frá Boston til San Diego, þvert yfir
Bandaríkin, ákveðin í að skilja vandamálin
eftir og hefia nýtt líf. Á leið þeirra yfir eyði-
mörk í suðvesturhluta Bandaríkjanna bilar
bíllinn og þau hjón, Jeff og Amy, eru stranda-
glópar langt frá byggð. Þegar átján hjóla
trukkur stoppar og bílstjórinn býðst til að
hjálpa þeim eru þau hin glöðustu, Amy fer
með bílstjómaum í næsta bæ þar sem hún ætl-
ar að fá viðgerðarmann með sér úti í eyði-
mörkina. í millitíðinni tekst Jeff að gera við
bílinn og heldur af staö í humátt á eftir þeim.
Þegar hann kemur á ákvörðunarstað kannast
enginn við að hafa séð trukkinn eða eiginkonu
hans og hvar sem hann kemur kannast enginn
við það að hafa séð Amy. Jeff grunar að hon-
um sé ekki sagður sannleikurinn og verður al-
veg viss í sinni trú þegar hann hittir bílstjóra
trukksins sem þykist hvorki kannast við hann
né að hafa tekið eiginkonu hans upp í bíl sinn.
Jeff (Kurt Russell) lendir í miklum háska í leit aö
eiginkonu sinni.
Keimur af vestra
Leiksfióri og handritshöfundur er Jonathan
Mostow sem er að leikstýra fyrstu stóru mynd-
inni sinni. Það var framleiðandinn afkasta-
mikli, Dino De Laurentiis, sem sá kvikmynd
hans, Flight of Black Angel, og ákvað þar með
að hann skyldi leikstýra næstu mynd fyrir sig.
Mostow fékk að skrifa handritið sjálfur og í
heild gaf De Lauentis honum tækifæri til að
gera myndina eftir eigin höföi. Hefur Break-
down fengið ágætar viðtökur og dómar verið
jákvæðir: „Breakdown er fyrst og fremst
spennumynd en það er dálítið af vestra í sög-
unni þar sem myndin fiallar um fólk sem lifir
í bæ þar sem engar reglur eru virtar, segir
Mostow."
Breakdown er að hluta tekin í Moab-auðn-
inni í Utcih en á þessum slóðum hafa verið tek-
in útiatriði í yfir 400 kvikmyndir á siðustu
fiörutíu árum.
Auk Kurts Russels og Kathleen Quinlain
leikur J.T. Walsh stór hlutverk í myndinni.
-HK
kvikmyndirn
t-_________
Face off
í þessari nýju mynd sinni skapar
Woo spennuhasar sem jafhíramt því að
vera vel skorðaöur í bandarísku kvik-
myndasamhengi ber stil og hæfhi Woos
fagurt vitní: Travolta og Cage eru
þarna í súperformi; sérstaklega er gam-
an að sjá Travolta sanna sig þarna errn
og aftur og að öllu leyti er valinn mað-
ur í hverju rúmi. -úd
Lady and the
Tramp
Þessi klassíska teiknimynd segir
frá tíkinni Lafði og flækingsrakka sem
viö skulum kalla Snata. Hún er sak-
laus og fógur, hann kankvís þorpari
með hjarta úr gulli. Þegar Lafði lendir
í ræsinu tekur Snati hana upp á sína
arma (ef hundar geta slíkt), rómantík-
in blómstrar og þau lenda í ýmsum
ævintýrum. -GE
Nothing to Lose 'trk'k
Handritið er skemmtilega skrifað
og Robbins og Lawrence ná samleik
sem hefur myndina langt yfir þá með-
almennsku sem einkennir fjölmarga
þá dóma sem ég las um hana. Ég er
haldinn þeirri sérvisku að telja gam-
anmynd góöa ef hún er fyndin.
Jude k~kk
Myndin er afbragðsvel unnin, leik-
urinn og leikstjómin til fyrirmyndar
og kvikmyndatakan í samræmi við
andrúmsloft myndarinnar. Handritið
er ágætt í flesta staöi en ber þess þó
vitni að það er unniö upp úr langri
skáldsögu. -GE
Blossi krkk
Blossi sýnir og sannar að ekki bara
Júlíus Kemp heldur íslensk kvik-
myndagerð í heild sinni hefur komiö
langan veg síðan eftir Veggfóður. Sam-
ræðurnar rúlluðu vel i meðfórum
þeirra Páls Banine og Þóm Dungal
sem, þrátt fýrir reynsluleysi, vom
með eindæmum sannfærandi og
skemmtileg sem dálítiö ráðvillt ung-
menni. -ÚD
Horfínn heimur: kirk
Jurassic Park
Eftir ffekar hæga byrjun, þar sem
mikill tími fer í útskýringar, tekur Hofi-
inn heimur vel við sér þegar komið er í
návlgi við grameðlur, snareðlur og aðr-
ar fomar eðlur. Sagan er greinileg ffam-
haldssaga, þar sem litiö er um nýjar
hugmyndir, en af sinni alkunnu snilld
og fagmennsku tekst Steven Spielberg
að skapa ógnvekjandi skemmtun sem
fær stundum hárin til að rísa. -HK
Men in Black krkk
l
í MIB er eins og yfirfærslan úr
teiknimyndasögu í kvikmynd sé aldrei
fullfrágengin og kemur þetta sérstak-
lega niöur á plottinu. Áherslan er slík
á húmor og stíl aö sjálfur hasarinn
verður útundan og í raun virkar MIB
meira sem grínmynd en hasar. En
þrátt fyrir alla galla er þessi mynd
ómissandi fyrir alla þá sem láta sér
ekkert mannlegt óviðkomandi. -úd
Bean krkri
Af Bean má hafa bestu skemmtun. í
henni eru margar óborganlegar senur
sem ég hefði kosiö að sjá fléttaðar
saman af meiri kostgæftii. -GE
Lifsháski krkri
í fjölbýlishúsi býr borgarbúinn oft í
einangruðu en nánu samlífi við fólk
sem hann hvorki þekkir né vill kynn-
ast. Myndir líkar Lífsháska leggja
áherslu á þessa einangrun með því að
færa aðalhetjuna í annarlegt umhverfi
og neyða hana til þess að laga sig að
þessu litla samfélagi. Lifsháski vísar
skemmtilega í hefðina og leikaramir
eru sannfærandi i óvenjulegum hlut-
verkum.
-GE